Vísir - 23.11.1957, Page 8
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
lestrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími l-lfi-60.
WMS
Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60,
Laugardagiim 23. nóvember 1957
Þriðjungur málverkanna
seldist á skammri stundu.
Sýning á máfvsrkum Bjarnð GuSmundssönar
Irá Hornafirli.
' Á vegiim fræðsludeildar S. í. S.
var í gær opnuð sýning á mál-
verkurn og vatnslitamyndum
eftir Bjarna. Guðmundsson frá
Hornarfirði. Er hér um að ræða
5Í0 myndir alls, allflestar gerðar
& Síðasta áratug.
Það mun vera næsta fátítt að
þriðjungur málverka á sýningu
Beljist á fyrstta klukkutímanum
eftir að sýningin hefur verið opn-
uð, en svo var á sýningu Bjarna
! gær. Kl. 6 var búið að selja
E5 myndir,
Bjarni Guðmundsson er kom-
Inn yfir sjötugt og hefir frá 11
ára aldri dvalið á Höfn í Horna-
firði og unnið við verzlunarstörf
eg var um skeið kaupfélags-
stjóri við Kaupfélag Austurskaft
fellinga. Frá unglingsárunum
hefir Bjarni helgað málaralist-
inni allar frístundir sínar. Motiv
hans eru eingöngu frá hinu lit-
jrika og f jölbreytta landslagi
Hornafjarðar. Meiri dirfsku í lit
og formi er að finna í hinum
síðari olíumálverkum Bjarna én
það er sterkast í vatnslitamynd-
unum, sem hinn sárfína lita-
Skynjun Bjarna nýtur sín bezt,
enda er hann talinn með fremstu
vatnslitamálurum á landinu.
Sýningin er í Sambandshúsinu
og er opin frá 2 til 10 á morgun
og sunnudag, og á síðar auglýst-
um tímum, ■
Eng!n ný tílmæli um
berstö5var í NoregL
Norska utanríkisráðuneytið
hefur birt nýja tilkynningu í
herstöðvamálinu.
Segir þar, að Bandaríkja-
stjórn hafi ekki borið fram
nein ný tilmæli um herstöðvar
í Noregi.
Tilkynning þessi er birt í
tilefni af því, að kunnugt er,
að Bandaríkjastjórnin mun
biðja um leyfi til að koma upp
eldflaugastöðvum í sumum
Natolöndum Vestm’-Evrópu.
Á bílabrautinni nálægt
Niirnberg livolfdi vöruflutn
ingabifreið í vikunni og
fuðraði farmurinn —
200.000.000 eídspýtur —
upp á svipstundu. Tjónið
nam 85 þús. mörkum.
„Óhreinsaðrar" rússneskrar
skáfdsegn beiii í ofvæni.
Gefin út á Ítdíu þrátt fyrir
hindrunartiiraunir Kremlverja.
I gær átti að koma út á Italíu
skáldsaga, sem líkleg þykir til
að vekja fiieimsathygli. Hún
nefnist „Doctor Zhivago“, eftir
víðkunnugt rússneskt skáld,
Boris Pasternak, og lýsir hann
þar þróuninni í Ráðstjórnar-
ríkjunum frá því skömmu eftir
aldamót til 1950.
í undirbúningi er útgáfa bók-
arinnar á sænsku og ensku (í
Bretlandi og Bandaríkjunum}.
Það, sem verða mun til þess
að auka um allan helming eða
meira eftirspurn að bókinni, er
það, að valdhafarnir í Ráð-
stjórnarríkjunum hafa haft öll
útispjót til þess að hindra út-
gáfu sögunnar erlendis, vegna
þess að fiiún kemur þar þýdd
efíir frumhandritinu, en þeim
[þótti mioiir heppilegt, að skáld-
sagan kæmi út óendurskoðuð.
Höfundurinn lauk samningu
skáldsögunnar' fyrir 3 árum.
Varðarkaffi í Valh’ill
i dag kl 3—5 s.d.
Hinn ítalski útgefandi, Feltri-
nelli, segir, — að því er hermt
er í heimsblaðinu London Tim-
es, að mjög hafi verið að 'sér
lagt að hætta við útgáfuna eða
fresta henni, en hann hafi ekki
látið það á sig fá, og komi hún
út á þeim tíma ,sem upphaflega
var áætlað.
Nú er þess að geta, að Feltri-
nelli er sjálfur kommúnisti og
í kommúnistaflokknum ítalska.
Hann er vinur Pasternaks, og
er þar skýringin á því, að sag-
an kemur fyrst út á ítölsku, en
hann fékk handritið hjá hon-
um fyrir nokkru, áður en fyrir-
skipað var í Moskvu, að „leið-
rétta“ bókina. — Fulltrúi
Feltrinelli fékk handritið hjá
höfundinum, er hann var í
heimsókn í Moskvu.
Hinn ítalski útgefandi segir,
að sá hafi verið hinn eini til-
gangur höfundai’ins, að „skrifa
skáldsögu í allri einlægni“.
Hann segir að áhrifamenn í
kommúnistaflokknum hafi
reynt að hafa áhrif á sig full-
trúi Rithöfundasambandsins
rússneska, en það sé „pólitísk
sannfæring“ sín, að hann geri
það sem rétt er. með því að gefa
út bókina, „enda þótt þuð kunni
að vera gegn óskum Paster-
hak?“.
L.K. sýnír „Leynþ
mel 13"
Leikfélag’ Kópavog’s, sýnir sjón
leikinn „Leynimeinr 13“ í barna-
skólaiiúsinu í Kópavogi í kvölcl
kl. 8.
Auk frumsýningarinnar í kvöld
eru aðeins tvær aðrar sýningar
fyrirhugaðar á sjónleiknum.
Verða þær báðar á morgun,
su fyrri kJ. 4. e.li. og hin síðari
kl. 8,30.
Aðstaða til leiksýninga í Kópa-
vogi er' erfið. Til sýninganna
verður að notast við skólastofur
barnáskólans. Aðstaðan mun
batna til muna þegar lokið verð-
ur víð fyrsta áfanga hins nýja
félagsheimilis, sem nú er í
byggingu.
Sjónleikurinn „Leynimelur 13“
var sýndur í Reykjavík fyrir
meira en áratug og naut mikilla
vinsælda. Leikstjóri er Sigurður
Scheving. Uppselt er þegar á
sýningúna í kvöld.
Tónaregn endur-
tekur góða kvöld-
skemmtun.
Tónaregn, nefnist óvenju fjöl-
breytfc kvöldskemmtun, sem
fram fór i Ausfcurbæjarbíói í
fyrrakvöld.
Kom þar fram mikill fjöldi
góðkunnra skemmtikrafta. Nú
hefur verið ákveðið að endur-
taka skemmtuniná og verður það
í Austurbæjarbíói annað kvöld
klukkan 11,15.
Meðfylgjandi mynd er af Guð-
mundi Guðjónssyni, hinum vin-
sæla söngvara sem er einn í
hópi þeirra er þarna munu koma
fram.
Ný leið, Hagar-19, tekin
KGpp hjá SVR á morgun.
SmáBrreyfingar á noikkrtsm
eldri leiðum.
76 millj. manna
í vinnu.
Á síðasta ári höfðu 76 millj.
manna vinnu allt árið eða
hluta úr árinu í Bandaríkj-
i unum.
’
Hefur vinnandi mönnimi því
fjölgað í landinu um 7 milljón-
ir frá 1950, og meira en helm-
ingur aukningarinnar varð
eftir 1954. Af þeim 76 milljón-
u : starfan^i manna, er voru
við \unnu á s.l. ári, voru' 28
milljónir kvenna.
Á morgun hefst akstur á nýrri
sti’ætisvagnaleið, sem hefur hlot-
ið nafnið „HAGAR“ og verður
nr. 19.
Akstur á þessari leið hefst í
Lækjargötu, fyrir neðan Mennta-
skólann — ekki á Lækjartorgi —
og verður ekið um Frikirkjuveg,
Skothúsveg, Hringbi’aut, Hofs-
vallagötu, Nesveg, Hjarðarhaga,
Dunhaga, Ægissíðu, Lynghaga,
Suðurgötu, Skothúsveg á Lækj-
artorg.
í sambandi við þessa nýju leið
verða nokkrar breytingar á til-
högun leiðanna nr. 4 — Sund-
laugar — og nr. 5, Skerjafjörð-
ur, þannig, að Skerjafjarðar- og
Hagavagnarnir breyta um „nafn
og númer“ á Lækjartorgi, og
fara yfir á leið nr. 4. — Sund-
laugar —. Sundlaugarvagnamir
sem að innan koma, fara á
Haga- og Skerjafjarðarleiðir og
hefja akstur sinn i Lækjargötu.
Stæði Sundlaugavagnanna fær.
ist til frá því, sem nú er, í stæði
Skerjarfjarðarvagnsins gengt
anddyri Útvegsbankans.
Lækjartorg og Lækjargata
verða í sambandi við þessar fjór-
ar strætisvagnaleiðir gjaldskipti-
stöðvar.
Farþegar, sem fara vilja með
þessum vögnum um miðbæinn,
þ. e. a. s. halda áfram lengra
til austurs eða vesturs, greiða
nýtt fargjald á fyrrnefndum
gjaldskiptistöðvum og verðui’
það fargjald sérstaklega iim-
heimt af vagnstjóranum.
Sérstök áiierzla er á það lögð,
að þeir farþegar, sem ferðast um
gjaldskiptistöðvarnar, greiði far-
gjöld sín I tvennu lagi, sem fyrr
segir.
Hagavagninum eru ætlaðar 30
mínútur í hverja ferð. og er brott
faratími hans úr Lækjargötu 15
mln yfir og fyrir heila timann.
Brottf arar tí mi Sker j ar f j ar ðar-
vagnsins breytist þannig, að í
stað þess að fora 3 mín. yfir
héiían og hálfan tíma, fer har.n
nú á heila og hálfa tímanum úr
Lækjargötu. Brottfarartiminn á
Shellvegi verður hinsvegar ó-
breyttur.
Samtímis þessum breytingum
fiytzt Fossvogsvagninn leið 10
og 11 af Lækjartorgi yfir í fyrr-
nefnt Lækjargötustæði og verður
tími hans óbreyttur. Hinsvegar
breytist leið 11 örlítið þannig, að
nú ekur vagninn á heila tíman-
um um Bogahlið í stað Löngu-
hlíð. Ferðir á þessari leið, kl,
1, 2 og 3, að kapellunni í Foss-
vogi falla niður, en fólki, sem
þangað leggur leið sína á heila
tímanum, er bent á leið 18 —•
Hraðferð Bústaðahverfi.
Aðalfundur Riblíu-
fékgsins.
_ Aðalfundur Hins íslenzka
j Biblíufélags fer fram í Dóm-
kirkjunni á morgun að lokinni
síðdegismessu, þar sem Óskar
i J. Þorláksson messar, Guð-
I mundur Jónsson syngur ein-
söng og Sigurður ísólfsson
leikur undir.
Formælandi Júgóslavm
neitar uppl. um það, Sivort
Júgóslavía hafi tekið þátt £
kommúnistaráðstefnunni £
Moskvu, en fulltrúar þeirra
voru þar meðan hún stóð. I
tilkynningu sem kínv. frétta
stofan birti, ségir að þeii*
bafi ekki tekið þátt í henni.
-fc Öryggisráðið ræðir Palest-
inuvandamálið.
•jjkf- Forsetar Vestur-Þýzkalands
og Ítalíu leggja áherzlu é
aukna samvinnu Norður-
Atlantshafsríkjanna. Hss
forseti V.-Þ. er ,nú í opin-
berri béimsókn á Ítalíu.
Von Bronlano er með hon-
um og fer frá Italíu vestur
um haf og ræðir við Iciðtoga
í Washington.