Vísir - 02.12.1957, Blaðsíða 1
12 síður
»7. árg.
Mánudaginn 2. desember 1957
12 síður
BÉf
t. ..
wX
283. tbl.
Þessi sérkennilega brezka flugvél, sem er sambland af venjulegri flugu og þyrilvængju, getur
tekizt á loft lóðrétt eins og síðarnefnda tegundin, og flogið síðan með venjulegum hætti með
48 farbega innan borðs. Flugvélar af bessari tegund kallast „Rotodyne“ og eru smíðaðar af
Fairey-verksmiðjunum. Fullhlaðin vegur fluga þessi 17 lestir, og getur náð 300 km. hraða á
klst., en enn er flugsviðið aðeins 650 km.
Friðrik teflir vii Reshev-
ski í Dallas í dag.
Ovíst, við hvern hann hefur
tefit 1 fyrstu umferðinni.
Eins og getið hefur verið hér
í blaðinu, var Friðrik Ólafssyni
boðið til þátttöku í skákmóti í
Dallas x Texas, þegar mótinu
í Wageningen í Hollandi var
lokið.
Mótið i Dallas hófst á laug-
ardaginn, og hefur Upplýsinga-
þjónusta Bandaríkjanna fengið
skeyti um mótið. Skeytið er á
þessa leið:
Daniel Yanowski frá Kanada,
eini skákmaðurinn, sem unnið
hefur skák á alþjóðaskákmót-
inu í Dallas, teflir , dag við
Larry Evans frá New York, í
annari umferð mótsins, en auk
þess eigast þessir menn við:
Laszlo Szabo frá Ungverja-
landi og Miguel Najdorf frá
Argentínu, Friðrik Ólafsson og
Samuel Reshevsky, New York,
Bent Larsen og Svetozar Glig-
oric frá Júgóslavíu.
Leikar fóru þannig á laugar-
daginn, að Gligoric og Evans
gerðu jafntefli, en skákir
þeirra Reshevskis og Szabos og
Larsens og Najdorfs fóru í bið,
en þeim mun verða haldið á-
fram á mánudag.
í dag mun verða sýningar-
skák fyrir almenning, og eig-
ast þá við Pal Benkö frá Ung-
verjalandi og Kenneth R.
Smith, Dallas.“
Af skeytinu verður ekki
séð, við hvern Friðrik hefur
teflt í fyrstu umferðinni, en sé
aðeins átta menn í hans flokki,
virðist mega ráða af því, að
hann tapaði fyrir Yanowski.
-o-
• Um 225 þús. Gyðingar eru
í Marokkó, og vilja um 40%
þeirra komast til ísraels, en
fá ekki fararleyfi.
Sjómannafélögin segja
upp fiskverðssamningunt.
Stöðvun fiskiskipanna fyrirsjáan-
ieg, verði ekki samið fyrir nýjár.
Fjölmennustu samtök sjó-
manna haja sagt upp fiskverð-
samningum og er búizt við því
að öll sjómannajélög á landinu
geri slíkt hið sama.
Félögin, sem hafa sagt upp
samningum eru: Jötunn í Vest-
mannaeyjum, Sjómannafélag
Reykjavíkur, sem sagði upp
samningum s.l. föstudag, Sjó-
mannafélag Hafnarfjarðar,
Verkalýðs og sjómannafélag
Keflavíkur, Sjómannafélag
Akraness, Sjómannafélag Ak-
ureyrar, Alþýðusamband Vest-
fjarða og félögin í Stykkishólmi
og Ólafsvík.
Ef að líkum lætur, er fyrir-
sjáanlegt samningsþóf fram-
undan, annarsvegar milli sjó-
manna og útgerðarmanna og
hinsvegar milli útgerðarmanna
og ^ríkisstjórnarinnSr, því eins
og kunnugt er, hafa útgerðar-
menn hótað að stöðva skipin
fáist ríkisstjórnin ekki til að
bæta fyrirsjáanlegan reksturs-
halla á útgerðinni í vetur.
SkögareEdar ná-
Eægt stórhorg.
Skógareldar haja geisað að
undanförnu nærri Los Angeles
í Kaliforníu.
Hafa þurrkar verið þar mikl-
ir síðustu dagana, svo að eld-
arnir hafa náð mikilli út-
breiðslu, en einnig er það að
kenna stormi miklum, er geis-
að hefur jafnframt. Þegar síð-
ast fréttist, voru eldarnir aðeins
4 km. frá einu úthverfi borgar-
inar, og voru menn uggandi af
þeim sökum.
Ingi R. hraðskák-
meistari TR.
Hraðskákmóti Taflfélags
Reykjavíkur lauk í gær og
sigraði Ingi R. Jóhannsson með
yfirburðum, hlaut 17y2 vinn-
ing í 18 skákum.
Með sigri sínum hlaut Ingi
hraðskákmclstaratitil Taflfé-
lags Reykjavíkur fyrir árið
1957.
Næstir Inga að vinningum
voru Guðmundur Ágústsson
með 14 y2 vinning, Gunnar
Gunnarsson 13 V2 vinning, Kári
Sólmundarson og Sveinn Kr'ist
insson 13 v. og Haukur Sveins-
son og Stefán Briem 11 vinn-
inga hvor..
Trillan náði landi í
gærkvöldi.
Lýst var í útvarpið í gæi'kvöldi
eftir trillubát, sem liafði farið
i róður í gærmorgun.
Var báturinn frá Þormóðs-
stöðum við Skerjafjörð og var j
einn maður á honum.
Um 9 leytið í gærkvöldi fóru j
menn frá Slysavarnaféláginu út i
|á björgunarbátnum Gíslk John-;
' sen og sáu þeir til trillunnar.;
; Hafði orðið vélarbilun, en ekki
j var neitt annað að og komst
j trillan að landi af sjálfsdáðun á
: tólftatimanum í gær.
Rjeípnaskytta slasast á
Öxnadalsheiði.
Rann 200 metra niður harðfenni og
lærbrotnaði auk fleiri meiðsia
er hann hlaut.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun.
í gær slasaðist ungur Akur-
eyringur á Öxnadalsheiði, er
hann rann niður svellaða iijarn-
fönn, um eða yfir 200 m. langt
unz hann lenti á kletti og lær-
brotnaði, auk fleiri meiðsla, er
hann lilaut.
Árla i gærmorgun fóru fimm
ungir Akureyringar í jeppabíl
upp á Öxnadalsheiði og hugðust
stunda þar rjúpnaveiðar í gær.
Óku þeir sem leið liggur vestur
heiðina, en námu staðar skammt
frá mæðiveikigirðingunni og
skiptu sér þar. Yar klukkan þá
um 9 og tæplega fullbjart.
Rétt á eftir sá einn piltanna,
Leifur Tómasson verzlunarmað-
ur, 24 ára gamall og kunnur í-
þróttamaður á Akureyri, rjúpna-
hóp uppi í fjallshlíðinni og hélt
hann þangað. Til þess að komast
að hópnum þurfti hann að fara
yfir allbratta hjarnfönn. Þar
varð Leifi fótaskortur og fönn-
in svo brött og hörð að Leifur
gat ekki stöðvað sig þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir að koma fyr-
ir sig fótunum og stöðva sig með
byssunni.
Þegar Leifur hafði runnið um
200 metra niður fönnina lenti
hann á steini, sem stóð upp úr
hjarninum og skall með svo
miklu afli á hann að hann lær-
brotnaði og hlaut fleiri meiðsl,
skarst m. a. á fæti. Ekki stað-
næmdist Leifur þarna að fullu
heldur rann enn um það til 15
metra niður og kom þá niðuur
í urð.
Nærstaddur félagi Leifs heyrði
óp í honum og kallaði hann hina
félagi sína saman. Fór einn
þeirra þegar í stað á bílnum nið-
ur að Bakkaseli og ætlaði að
síma þaðan eftir sjúkrabíl og
lækni til Akureyrar, en lands-
símastöðin á Bægisá svaraði
ekki, svo að pilturinn varð að
aka alia leið þangað til þess að
ná í síma til Akureyrar. Fyrir
bragðið kom læknir og sjúkra-
bíll ekki á slysstað fyrr en kl.
að ganga eitt.
Á meðan reyndu hinir félagar
hins slasaða pilts að hlynna að
honum eftir föngum m. a. með
þvi að breiða yfirhafnir sínar og
annan fatnað, sem þeir gátu við
sig losað, kringum hann. Einn
piltanna hljóp heim að Bakka-
seli, sótti þangað heitt kaffi,
sæng og magnyltöflur.
Þegar sjúkrabíllinn kom á
vettvang með lækninn var Leif
farið að líða mjög illa og var m.
a. orðið kalt. Varð að bera hann
um hálfan km. af slysstaðnum
og niður að bílnum. Var hann
fluttur í sjúkrahúsið á Akureyri.
Hollendingum sýnd megn
andúð í Indénesni
eftir ósigur á allsherjarþinginu og
banatilræði við Soekarno.
Allmiklar æsingar eru í Indó-
nesíu eftir að tilraun var gerð
til þess að ráða Soekarno for-
seta af dögum s.I. laugardag.
Einnig eru taugarnar í ólagi,
eftir að Indónesia beið ósigur
á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna, er rætt var að kröfur
hennar itl Hollands um Hol-
lenzku Nýju Guineu.
Soekarnc var að koma úr
skólahúsi nokkru ásamt tveim-
ur börnum sínum og hafði
mai’gt manna safnast saman
m.a. skólabörn. Allt í einu var
varpað handsprengjum í átt-
ina til forsetans, en hvorki
hann eða börn hans r.akaði, en
7 biðu bana og 45 særðust af
sprengjubrotum, og meðal
þeirra, sem biðu bana voru
börn og menn úr öryggislög-
reglunni.
Lítil siEdveiði í
nátt.
Frá frétaritara Vísis.
Akranesi í morgun.
Aðeins tveir reknetabótanna
fengu sæmilegan afla í nótt,
Fróðaklettur frá Hafnarfirði 90
tn og Bjarni Jóliannsson frá
Akranesi, 100 tn.
Flestir bátarnir höfðu mjög
lítinn afla 5—30 tunnur eftír
nóttina. Lóðað var á mikla
síld, en aflinn reyndist ekki eft-
ir því.
í gær komu 9 bátar til Akra-
ness með 380 tunnur af síld.
Flestir reknetabátarnir lögðu
í Skerjadýpinu.