Vísir - 23.12.1957, Page 6
vism
Mánudaginn 23. desember 1957
Úr jólamyndinni í Tjarnarbíó.
verið einn þeirra fáu, sem unn-
I ið hafði það afrek að stökkva
jþrjú heljarstökk í lofti hvert á
fœtur öðru. Hann finnur þenn-
an félaga föður síns, sem að
lokum fells á að þjálfa hann.
En hin fræga Lola otar sínum
tota óspart og gerist nú margt
sögulegt, er hér verður ekki
rakið. Kvikmyndin er vel svið-
sett og leikin. Fagur líkams-
vöxtúr Ginu Lollonrigida nýt-
ur sín vel í myndinni, en dýpt
er ekki í leik hennar. Leikur
Burt Lancaster er afburða góð-
ur. — Mjög skemmtileg mynd
og spennandi.
Hafnarbíó
Úr jólamyndinni í Nýja Bió.
Nýja
Kvikmyndin sem Nýja bíó
sýnir á annan dag jóla, er hin
fræga myr.d Anastasia, með
Ingrid Bergman í aðalhlutverk-
inu. Ennfremur fara með mik-
ilvæg hlutverk Yul Brunner og
Heien Hayes. — Það er um ör-
lög. Anastasiu, yngstu dóttur
Nikulásar Rússakeisara, sem
myndin fjallar. Sögur komust
á kreik um, að hún hefði kom-
izt ein undan, er fjölskylda
her.nar var myrt. í Þýzicalandi
er kona, sem kveðst vera An-
astasia. Um þetta allt hafa ver-
ið ritaðar bækur og ó.al ritgerð-
ir, en hver sem sannleikurinn
er um Anastasíu, er myndin
ógleymanleg fyrir margra hluta
sakir, en íramar öðru fyrir
snilldarleik Ingrid Bergman.
Gamla Bíó
Jólamyndin í Gamla bíó er
„Alt IIeidelberg“, sem allir
kannast við, og alltaf er til ó-
blandinnar ánægju, á leiksviði
og í kvikmyndum. Það eru þau
Ann Blyth og Edmund Purdom,
sem fara með aðalhlutverkin,
ágætir leikarar og geðþekkir
— og svo spillir það ekki til, að
söngrödd Mario Lanza heyrist
í myndinni. Kvikmyndahand-
ritið er gert samkvæmt hinum
heiinsfræga söngleik Sigmunds
Rombergs, er hann bvggði á
leikriti Wilhelms Meyer-For-
resters. Nýir söngvar eru í
myndinni eftir Nicholas Brod-
zky og Paul Francis Webster.
— Myndin, sem mun koma öll-
um í sólskinsskap.
1 npolibio
Á svifránni (Trapeze) er
jjólamynd Tripolibíó. Þetta er
stórfræg mynd og söguna kann-
ast margir við^ því hún birtist
Úr jólamyndinni í Trípolibíó.
í dönsku vikuriti, sem hér er
mjög mikið lesið. Myndin ger-
ist frá upphafi til enda í Cirkus
Bouglione í París. Þangað kem-
ur efnilegur loftfimleikamaður,
sem verið hafði félagi föður
; hans, sem er látinn, og hafði
Úr jólamyndinni í Gamla Bíó.
Úr jólamyndinni í Hafnarbíó.
Æskugleði nefnist jólamynd-
in í Hafnarbíói. Þetta er ensk
músik- og gamanmynd, sem
John Mills, Cecil Parker Jere-
my Spenser og seinast en sann-
arlega ekki sízt Dorothy Bro-
miley leika aðalhlutverkin í. —
Hér er enginn deyfðarbragur á
neinu — öðru nær. Kvikmyndin
gerits sem sé í 6. bekk í mennta-
skóla, en þar kennir söng afar
vinsæll kennari, Dingle, sem er
rekinn fyrir framtakssemi sína
úr kennarastöðunni,' en nem-
endurnir fylkja sér um Dingle
— og fellur auðvitað allt í Ijúfa
löð að lokum.
Laugarássbíó
Nýjársfagnaður (The Carni-
val) nefnist jólamyndin í Laug-
arásbíói. Þetta er rússnesk dans
og söngvamynd, tekin í litum,
og fer hin fræga Ludmila Gar-.
schenko með aðalhlutverk.
I myndinni er mikið um létta,
lífgandi tónlist, og þarna eru
fagrar konur, og kampavín er
kneifað, þótt í Rússíá sé, en það
er unga listafólkið í „æskulýðs-
höll“, sem gert hefir uppreist
gegn afturhaldssegg, sem vill
gera skemmtun þeirra svo sið-
samlega og gamaldags, að það
tók til sinna ráða. — Myndin
er skemmtileg og gaman að sjá
hvernig Rússar 'gera létta
skemmtimynd af þessu tagi úr
garði.
Úr jólamyndinni x Stjörnubíó.
Stjörnubíó
; báðum. Vandleyst mál er kom-
ið til sögunnar, en leysist þó að
lokum. —■ Skemmtileg' mynd
og líkleg til vinsælda.
Stjörnubíó sýnir kvikmynd-
ina „Eiginmanni ofaukið“, sem
Betty Grable og Jack Lemon
leika aðalhlutverk í. Bráð-
skemmtileg dans- og söngva-
mynd. — í myndinni dansar
dansparið Marge og Gower
Champion, og fjöldi kunnra
dægurlaga er sunginn í mynd-
inni, „Dawn Bay“, „Someone
to watch over me“ o. m. fl. —
Betty Grable leikur þarna dæg-
urlagasöngkonu, sem lendir í
því að vera gift tveimur mönn-
um samtímis, en fyrri maður-
inn var talinn hafa fallið í stríð-
inu. en kemur svo allt í einu
tveim árum síðar, og var þá
kona hans öðrum gift — eða
Tjarnarbíó
Heillandi bros, sem raunar
heitir „Funny Face“ á ensku,
er bráðskemmtileg' mynd og
vel leikin, en það er Audrey
Hepburn, sem leiku Jo, sem
finnst, er leitað er að sérkenni-
legri stúlku, sem á að senda til
Parísar, til tízkukóngsins þar.
Jo verður fyrir valinu, en hefir
raunar engan áhuga fyrir tízk-
unni, heldur fyrir heimspeki.
— Fred Astaire leikur á móti
henni. Og þessi tvö — og ýmsir
fleiri — munu áreiðanlega
koma Öllum gestum Tjarnar-
bíós í sólskinsskap.
I