Vísir - 23.12.1957, Síða 10
10
Ví SIR
Mánudaginn 23. desember 1957
síðar, 16. jan., „í móti þeim
hræðilega manndauða, sem þá
stóð harðast yfir, að guð með
sinni náð skyldi þar nokkra
miskunn á gera“.
Presturinn á Höskuldsstöð-
um, aldurhniginn maður, og
lagskona hans, Valdís Helga-
dóttir, efalaust einnig roskin
að árum, hrökkva við er þau
sjá þessa miklu og válegu hol-
skeflu rísa fram undan og ríða
að. Þau bregða við, kalla til
votta, tvo presta og fjóra leik-
menn og gera upp reikninga
sína 7. nóv. 1402. Hinir til-
kvöddu vottar segja svo: „Vór-
um vér í hjá og heyrðum á
reikningsskap þeirra séra Þórð-
ar Þórðarsonar og Valdísar
Helgadóttur barnamóður hans“.
í fyrstu reiknaði Valdís að séra
Þórðui’ hefði tekið landskyld af
jörðu hennar, Syðri-Ey, um en
næstu átta ár. í annan grein að
hún hefði engan ávöxt tekið af
hálfum fimmta tugi kúgilda um
mörg ár, er séra Þórður hefði
með farið.
Kenndist séra Þórður þetta
satt vera, að hann hefði að sér
tekið eða ráð fyrir gert leigu-
burð af jörðinni og kúgildum
um svo langan tíma og miklu
lengur kúgilda leigurnar. Eigi
síður þóttist Valdís peninga-
verð fyrir forgang sinn en
séra Þórður þóttist hafa klætt
hana þar fyrir. Vissum vér það
sannindi vera að séra Þórður
byggði jafnan jörðina fyrir sex
hundruð fríð, þá er hann léði
hana. í þessa peninga land-
skyldirnar lauk séra Þórður
Valdísi með handabandi til
fullrar eignar alla jörðina að
Ytri-Ey fyrir þrjátigi hundraða
með öllum þeim gögnum og
gæðum, sem jörðunni hafa fylgt
að fornu og nýju og hann hafði
fremst eigandi að orðið. Þar til
fimm kúgildi. Kenndist séra
Þórður og í handabandinu að
löngu fyrr hefði hann lukt
henni til fullrar eignar með
handabandi í fornar kúgilda-
leigur þá litlu ey eða hólma er
þar liggur fyrir jörðunni. Sagði
þó að Valdísi brast mikið í sinn
reikningsskap og lézt bæta
mundu, þó síður væri. Urðu nú
skuldir séra Þórðar við Valdísi
fimm tigir kúgilda, sagði séra
Þórður með jörðum þessum
(það mun vera Syðri-Ey og
Ytri-Ey) standa sjö kúgildi og
tuttugu og það sem þar yrði
gilt af á fardögum, þá skyldi
Valdís taka það fyrst í sína
skuld ef hún vildi.
Kvenglys og
brent silfur.
Item kenndist séra Þórður að
þvílíkt kvenglys, sem hún
hefði að geyma í klæðnaði og
brenndu silfri. Það ætti hún
sjálf, einn silfurbikar og allítinn
bolla, hér með fjórar kistur.
Þetta innanveggja. Ketil, tvo
potta, þrjú stórkeröld, upp-
gerðarkeröld sex og tuttugu,
trog fjórtán og hefur hún sjálf
geymslu yfir þessu. Mundlaug
og kamba. Stóðhross og hesta
nokkura, er hún hefur í sinni
ábyrgð og fimm sængur.“ Lýk-
ur þar þessu merkilega bréfi,
en vottar voru: Eyjólfur og
Björn Áslákssynir prestar, Þor-
steinn Bergsson, Þorgeir Brands
son, Eyjólfur gammur Bjarnar-
son, Arnór Guðmundsson og
Jón Þorgeirsson. SettU þeir inn-
sigli sín fyrir bréfið til merkis
jól!
Vélaverkstæði Sigisrðar Sveinbjörnssonar,
Skúlatúni 6.
gMi4 d!
Prentsmiðjan Oddi,
Grettisgötu 16.
/ót!
Verzlunin Hamborg,
Laugavegi 44 — Vesturveri.
\QteílL9 jól!
Almeima byg'ging’afélagið h.f.
'tL&teé jól!
f
JdO
Gamla kompaníið h.f.
gjiL9iót!
Sæíg'ætisgerðin Opal h.f.
n /°
Sundhöil Reykjavíkur.
Sundlaugar Reykjavíkur.
§JiL, /ót!
f
Kjötbúðin,
Langholtsvegi 17.
CLt'iLj jót!
Edda h.f.
umboðs- og heildverzlun.
CiciiLj joíí
Vatnsvirkinn h.f.
CUiLj jól!
Sveinabókbandið h.f.
Grettisgötu 16.