Vísir - 26.03.1958, Side 12
I Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
■ Látið hann færa yður fréttir og annað
i leatrarefnJ heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 1». hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Stórvirkar vinnuvélar til
gatnagerðar í kaupstöðum.
Frá fundi fulltrúaráðs Samb. ísl.
sveitafélaga.
Fulltrúaráðsfundi Sambands
Gslenzkra sveitarfélaga lauk s.l.
Euánudag. Fundinn sátu, auk
stjórnar sambandsins, 19 full-
ðrúar af 20, sem þar áttu sæti.
Auk reikninga sambandsins
íyrir s.L ár og fjárhagsáætlunar
ftrir liðandi ár svo og nokkurra
annarra mála, sem sérstaklega
varða sambandið sjálft, svo sem
ötgáfa nýrrar handbókar fyrir
sveitastjórnir og útgáfu tíma-
ritsins Sveitarstjórnarmál, var
íjallað um mörg mál.
Eitt þessara mála var um var-
anlega gatnagerð í kaupstöðun-
um. Um það mál var gerð eftir-
farandi ályktun:
„t framhaldi fyrir samþ. full-
trúaráðsins og með sérstakri
Miðsjón af erindi því er flutt
/» •
A. uppboðinu:
Ferðabók Thoroddsens
á 3100 krónur.
Á bókauppboði Sigurðar
Bencdiktssonar í gær var dýr-
asta bókin slegin á 3100 krón-
mr, en það var Ferðabók Þor-
Valdar Thoroddsen.
Önnur dýrasta bók dagsins
var stutt en fágætt skáldsagna-
kver frá því fyrir aldamót:
Mínir vinir, eftir Þorlák Ó.
Johnson, sem fór fyrir 1100
krónur.
Lýsing fslands I.—IV. í
skinnbandi fór fyrir 1000 kr. og
Ljóðmæli Jónasar Hallgríms-
sonar fyrir 900 krónur.
Annars virtist áhugi mis-
jafn fyrir bókum eins og ger-
ist og gengur, jafnvel þótt fá-
gætar væru. Sjö frumútgáfur
eftir Sigurð Breiðfjörð fóru á
samtals fyrir 17—18 hundruð
krónur, en dýrasta einstök
ríma — af Sigurði fót, eftir
Árna Sigurðsson — seldist fyr-
ir 560 krónur.
Tvær páskaferðir
FerðaféSagsins.
Ferðafélag íslands efnir til
tveggja páskaferða og varir
hver þeirra í fimm daga.
Önnur er ferð að Hagavatni.
Þar verður gist í sæluhúsi fé-
lagsins, en farið í göngu- og
skíðaferðir upp á Langjökul og
í annað nágrenni.
Hin ferðin er í Þórsmörk og
verður þar einnig hafzt við í
hinu nýja og myndarlega sælu-
húsi Ferðafélagisns, en efnt til
göngu- og jafnvel skíðaferða
um nálæg fjöll á daginn.
Lagt verður af stað í báðar
ferðirnar á skírdagsmorgun og
komið til Reykajvíkur aftur að
kvöldi annars i páskum. I
' hefur verið á fundi þessum um
varanlega gatnagerð í kaupstöð-
um og kauptúnum, samþykkir
fundur fulltrúaráðsins eftirfar-
andi:
Fulltrúaráðið telur mjög æski-
legt og aðkallandi að til staðar
séu fyrirtæki er annazt geti
skipulagningu og tæknilegar leið
beiningar og jafnframt tekið að
sér að nokkru eða öllu leyti að
framkvæma varanlega gatna-
gerð og ef til vill fleiri slík verk
fyrir sveitarfélög, enda hafi slikt
fyrirtæki yfir að ráða hagkvæm-
um vélakosti til malbikunar o.
fl. er geri unnt að framkvæma
slik verk á sem hagfelldastan
hátt.“
Um kaup sveitarfélaga á stór-
virkum vinnuvélum var eftirfar-
andi ályktun gerð:
„Fundurinn telur mjög til at-
hugunar, þar sem vel hagar til
að nokkur sveitarfélög myndi
samtök um sameiginleg kaup og
rekstur stórvirkra vinnuvéla til
verklegra framkvæmda, gatna-
gerðar o. fl. og skipuleggi sam-
eiginlega sem hagfelldasta notk-
un slíkra tækja eða geri sameig-
inlega samninga við slík fyrir-
tæki, ef til eru.“
1 fundarlok ávarpaði foiTnaður
sambandsins, Jónas Guðmunds-
son fundarmenn, og þakkaði
þeim komuna.
Góður afli
Akureyrartogara.
Akureyri í morgun.
Akureyrartogararir liafa afl-
að ágætlega síðustu dagana og
hefur verið mikil vinna í Iandi
við vinnslu fiskjarins.
Togarinn Kaldbaltur, sem
kom í fyrradag til Akureyrar
var með 270 lestir og Harð-
bakur, sem væntanlegur var til
Akureyrar um hádegið í dag,
var með álíka afla eftir um það
bil tveggja vikna veiðiför. Afli
beggja togaranna fer til
vinnslu í hraðfrystihús bæjar-
útgerðarinnar og hefur verið
geysileg atvinna þar að und-
anförnu og verður vafalaust
jfram að páskum. Er búist við
að Svalbakur komi einnig til
hafnar fyrir páska, en hann
var búinn að afla 105 lestir eftir
5 daga útivist.
Norðlendingur kom til Ólafs-
fjarðar í fyrradag með 151 lest
fiskjar, sem fór til hraðfryst-
ingar.
12 stiga frost.
í gær var 12 stiga frost á
Akureyri, en í nótt og morgun
hefur dregið mjög úr frostinu
og var komið niður í 3 stig
snemma í morgun. Veður var
hið ákjósanlegasta, bjartviðri
og sólskin.
Skemmtifundur
Nerræna féiagsins
Norræna félagið í Keykjavik
efnir til skemmtifundar i Tjam-
arcaí'é niðri föstudaginn 28 marz
n.k. kl. 20,30
Skemmtifundurinn heíst á því,
að Magnú.s Gislason framkva'md-
arstjóri félagsins flytur ávárps-
orð. Síðan les Erik Sönderhólm
Sendikennari við Háskóla Islands
smásögu eftir danska Nobels-
verðlaunaskáldið Johannes V.
Jensen. Því næst sýnir Vigfús
Slgurjónsson kvikmynd frá
heimsókn forsetahjónanna til
Finnlands árið 1954 og auk þess
kvikmynd frá heimsókn finnsku
forsetahjónanna til íslands á s.l.
sumri. Að lokum verður svo stíg-
inn dans. Gestakort (verð 25 kr.)
verða afhent við innganginn.
Félagsmenn eru sérstaklega
hvattir til að fjölmenna og taka
með sér gesti.
MÍ-mót í frjálsum íþróttum.
Met jafnað í hástökki
með atrennu.
Meistaramót íslands í frjáls-
um íþróttum innan liúss var
háð um s.l. helgi.
Þar náðist allgóður árangur í
flestum greinum og í einni
þeirra var íslandsmetið jafnað,
en það var í hástökki með at-
rennu, er Jón Pétursson K..
stökk 1.85 m.
Annars var Vilhjálmur Ein-
arsson Í.R. maður þessa móts,
því hann varð þrefaldur ís-
landsmeistari: í langstökki án
atrennu 3.20 m., hástökki án
atrennu 1.61 m. og þrístökki
án atrennu 9.81 m. Má segja
að hann hafi sigrað í öllum
þessum greinum með yfirburð-
um, einkum þó tveimur hinum
síðasttöldu.
íslandsmeistari í stangar-
stökki varð Valbjörn Þorláks-
son Í.R. 3.85 m. og í kúluvarpi
Gunnar Huseby K.R. 15.08
metra.
AðaEfundur Neyt-
endasamtakanna.
Aðalfundur Neytendasamtak-
anna var haldinn i Tjarnarkaffi
15. þ. m.
Formaður samtakanna, Sveinn
Ásgeirsson, hagfræðingur, setti
fundinn og flutti skýrslu um
starfsemi þeirra s.l. ár.
Skrifstofa samtakanna hefur
á árinu veitt meðlimum þess
lögfræðilega aðstoð og upplýs-
ingar um kaup á vörum eða þjón
ustu, en margir, sem álíta að
þeir hafi verið blekktir í viðskipt
um leita til samtakanna um
leiðbeiningar og aðstoð. Skrif-
stofan er í Aðalstræti 8 og er
opin kl. 5—7.
Sveinn Ásgeirsson var endur-
kjörinn formaður en aðrir í
stjórn eru Arinbjörn Kolbeins-
son læknir, Jón Snæbjörnssop,
193. lesta stálsklp keypt
til Islands frá Noregi.
Skipinu siglt heim óskrásetíu
af íslenzkri áhöfn.
í gær kom til Hafnarfjarðar
nýtt skip, sem kcypt hefir ver-
ið til landsins frá Noregi. Skip-
ið heitir „Vico“, en hlaut
„skemmri skírn“ í Noregi og
var gefið nafnið „Haförn“.
Skipið er 193 brúttólesta stál-
skip, smiðað árið 1956. Eigandi
skipsins er Jón Kr. Gunnars-
son í Hafnarfirði, en kaupin
gerðu Magnús Jensen h.f.
Kaupverð skipsins er 2 millj.
og 665 þús kr. Aðalvél skipsins
er 400 ha. Wickman vél og er
ganghraði skipsins 10 sjómílur.
Lestar skipsins eru með kæli-
útbúnaði og klæddar aluminí-
um og einangraðar með glerull.
Skipstjóri verður Sæmundur
Þórðarson frá Stóru-Vatns-
leysu.
Það er nokkuð óvanalegt,
þegar skip eru keypt frá út-
löndum, að sigla þeim óskrásett
um undir íslenzkum fána, með
íslenzkri áhöfn, kallmerkislaus
um og án samþykkis Skipaskoð
unar ríkisins. Skipið var ekki í
tryggingarflokki, en tekið í 1.
fl. A Norsk Viritas áður en það
fór frá Noregi.
í morgun var ekki búið að
skrá skipið, en verið var að
ganga frá því og skipaskoðun-
arstjóra höfðu ekki borizt í
morgun nein þau skilríki um
skipið, sem skylt er að láta í té,
áður en áhöfn er skráð á skip-
ið. Skipinu mun vera ætlaðir
einkennisstafirnir G.K. 321.
í fyrradag var á Alþingi flutt
þingsályktunartillaga um heim
ild fyrir ríkisstjórnina til að
veita ríkisábyrgð á láni til
kaupa á vélskipinu „Vico“ frá
Noregi. Tillagan var flutt af
ríkisstjórninni og mun verða á
dagskrá Sameinaðs þings í
jdag. í tillögunni segir, að fýrir
nokkrum hluta kaupverðsins
hafi fengizt lán í Noregi, en
ekki hægt að notfæra sér lán-
ið nema ríkisábyrgð kæmi til.
„Haförninn“ er glæsilegt
’ skip og vel búið, og þótt heim-
koman hafi ekki verið eftir
venjulegum leiðum þá veri
hann velkominn.
Lítil breyting á færð
á vegum úti.
Sterkir htíur ttka fflolta-
vöröuheiöi
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegamálaskrifstofunni » morg-
un hefur lítil breyting orðið á
færð á vegum úti frá því fyrir
helgi.
Holtavörðuheiðin hefur ekki
verið rudd, en sterkir bílar
komast þar leiðar sinnar og
fara ofan á hjarni eftir troðn-
um slóðum sem snjóbílar og
ýtur hafa gert. Strax og þiðnar
að ráði má búast við að grafist
niður úr troðningunum og að
þá verði leiðin ófær aftur. En
eins og sakir standa komast
stórir bílar, svo og jeppar,
alla leið úr Reykjavík og norð-
ur í Skagafjörð. Þar verður þó
ekki lengur komizt sökum þess
að Öxnadalsheiðin er ófær og
á henni mikil snjóalög. Hefur
ekkert verið hugsað um að
moka hana að svo stöddu.
Frá Akureyri var Vísi sím-
að í morgun að í undirbúningi
sé að moka veginn frá Akur-
eyri og út í Höfðahverfi og er
þá fært orðið bílum um allt
mjólkursvæðið í Eyjafirði og
grennd nema Fnjóskadalinn.
Annars er enn þá leiðindafærð
verzlunarmaður, Knútur Halls-
son, lögfræðingur og Sveinn Öl-
afsson, forstjóri.
Fulltrúarráðið var að mestu
endurkosið. Meðlimir samtak-
anna eru nú um 2000 talsins.
á hjartti.
víða, ekki sízt á Dalvíkurleið,
auk þess þröngar og djúpar
snjótraðir og erfitt fyrir bíla
að mætast.
Þá hefur Vegamálaskrifstof-
an tjáð blaðinu að færð sé enn
óbreytt í Þingeyjarsýslu og
flestar leiðir þar lokaðar, enda
gætti blotans þar sára lítið á
dögunum. Meir að segja skóf í
brautina, sem rudd var frá
Húsavík og að flugvellinum við
Laxárbrú, en leiðin þó talin
fær.
í ráði var að opna leiðina
milli Stykkishólms og Grirnd-
arfjarðar í þessari viku. Sömu-
leiðis hafði komið til tals að
ryðja leiðina vestur að Króks-
fjarðarnesi í Barðastrandar-
sýslu, meðfram vegna þess að
læknislaust er í Reykhóla-
læknishéraði og næsti læknir í
Búðardal í Dalasýslu.
Lítill afli hefur verið í Vest-
mannaeyjnm undanfarna daga
enda Iiafa verið slæmar gæftir.
1 gær munu hafa borizt um 57
lestir af fiski til Fiskiðjuversins
í Eyjum frá eitthvað um 10 bát-
um. Alltaf liggja einhverjir í
landi og róa ekki sökum gæfta-
leysis. Menn vonast nú eftir
hrotu hvað úr hverju, enda kom-
inn tími til úr þessu.