Vísir - 22.04.1958, Page 5
Þriðjudaginn 22. apríl 1958
7fSIB
5
Frakkland:
Taka Caullístar
*
Ahrif SousteBlas og Chaban-
Delmas vaxamti.
..katillisfar sömdn vift Riisíisa 1944
gæfu ajerá }>ad 1958".
Öngþveitið í stjórmálum
Frakklands hefir nú um all-
anörg ár verið mönnum mikið
áhyggjuefni, og þá einkanlega
Frökkum sjálfum og banda-
mönnum þeirra.
Að margra ætlan vofir nú
bvlting yfir í landinu, og einn
þeirra manna, sem þar kynni
að koma við sögu, segir frétta-
xitarinn Maurice Edelmann, í
brezku blaði, er Jacques Sous-
ialle, sem „þegar hefir komið
tveimur ríkisstjórnum á kné“.
„Eg kynntist honum fyrst,“
segir hann, „í kvennaskóla í
Alsír og fannst hann vera pró-
fessorslegur, og hann er líka
prófessor — í mannfræði. Hann
er fæddur 1912 og gat sér mik-
ið orð fyrir námshæfileika í
'Ecole Normale Supérieure, þar
sem margir mestu gáfumenn
Frakklands hafa stundað nám,
og 1937 var hann orðinn pró-
fessor við Sorbonne-háskólann
og yngstur prófessoranna við
þá frægu menntastofnun.
Þegar við hittumst í kvenna-
skólanum — sem var þá höfuð-
stöð de Gaulles — var Soustelle
orðinn víðkunur sem höfundur
bókar um Indíána Norður-
Ameríku, en hann var líka
líunnur sem yfirmaður upp-
lýsingaþjónustu stjórnar De
Gaulles og leyndarstarfsemi
hennar.
Hann beið.
Þegar eg hitti hann í fyrra
var hann enn Gaullisti og stund
aði enn sín fræði, en það var
einn munur. De Gaulle, þreytt-
■ur á stjórnmálaöngþveitinu og
eilífri togstreitu og vandræð-
um, hafði dregið sig í hlé, en
falið sínum beztu mönnum að
hlíta fyrirmælum Soustelles.
De Gaulle beið eftir kallinu,
— sem ekki kom. Hann var að
bíða eftir því, að franska þjóð-
in breytti stjórnarskránni að
amerískri fyrirmynd, þ. e. að
forsetinn fengi mikið fram-
kvæmdavald. En á meðan De
Gaulle beið hélt Soustelle, sem
varð landstjóri í Alsír 1955,
uppi sókn á hendur tilslökun-
armönnum í þeim málum, sem
vörðuðu ekki aðeins Alsír,
heldur einnig Marokkó og
Túnis. ' , m
Gagnrýni
Soustelles,
hvort sem hann ræðir stjórn-
arskrána og þing- og lýðræði
eða annað, er ávallt byggð á
íhugun og þekkingu- hins
xnenntaða manns, á ekkert skylt
við niðurrifsstefnu manna eins
og Poujades. Gagnrýni Soustell
es á Bandaríkjunum, sem varð
Gaillard að falli, er í París tal-
in allt annars eðlis en hama-
gangur Paujades gegn Banda-
ríkjunum, enda er Soustelle
rnaður, sem þekkir Bandaríkin
og sögu þeirra, Bandaríkja-
menn og lífsviðhorf þeirra og
venjuiy .
Menn spyrja.
Það er engum vafa undirorp-
ið, að Soustelle og gagnrýni
hans átti mestan þátt í falli
Gaillards, og í París spyrja
menn nú, hvort núverandi
stjórnarfyrirkomulag Fjórða
lýðveldisins sé dauðadæmt.
Til skamms tíma hafa menn
ekki talið mikla hættu á ferð-
um þótt talað væru um bylt-
ingu og valdatöku— sem ætti
upptök sín í N.-Afríku eins og
bylting Francos. „Hverjir ættu
svo sem að hafa forystuna?“
spyr almenningur í Frakklandi,
en þeir tveir menn, sem mest
áhrif hafa í frönskum stjórn-
málum í dag, af því að þeir
skilja fólkið bezt, eru Chaban-
Delmas landvarnaráðherra,
Gaullisti — og Jacques Sous-
telle .Kannske talar það sínu
máli, að Chaban-Delmas hefir
nýlega kvatt frá N.-Afríku sem
ráðunaut sinn Bigeard her-
deildarforingja, fallhlífahetjuna
sem allir Parísarbúar dást að.
Og fráleitt er það út í bláinn
hjá þeim, er gera það að höfuð-
atriði, er þeir fella ríkisstjórn-
ina, að virðing og álit Frakk-
lands hafi beðið mikinn hnekki
venga afstöðu Bandaríkjanna,
hvort sem það er nú rétt eða
ekki. Báðir gera sér grein fyrir,
að alger stjórnarfarsleg breyt-
ing kann að vera yfirvofandi,
eins og oft áður hefir átt sér
stað í sögu landsins eftir bylt-
inguna. En þar sem lítið ber á
bíður De Gaulle, maðurinn,
sem Roosevelt veittist erfitt að
tjónka við, gat samið við
Stalín.
Einn þingmaður hægri flokk-
anna æpti nýlega við umræðu
á þingi:
„Heldur rússneska nýlendu-
stefnu en ameríska.“
Myndi e. t. v. ekki
vekja óánægju
í Moskvu.
Það er áreiðanlega sá mögu-
leiki fyrir hendi, að núverandi
stjórnarfari yrði kollvarpað og
komið á einræðisstjórn, þar
sem De Gaulle hefði einskonar
„Hindenburg-Petain hlutverk“
en menn eins og Soustelle og
Chaban-Delmas raunverulega
hefðu völdin, — og það vekti
ekki óánægju í Kreml.
Afstaða
kommúnista.
Það er satt, að Jacques Duc-
los, kommúnistaleiðtoginn,
varaði nýlega við þeirri hættu,
að hægrimenn freistuðu valda-
töku, og' meðal vinstri flokk-
anna er megn gremja ríkjandi
yfir framferði uppivöðslu-
seggja Maitre Biaggis, sem hafa
hleypt upp fundum hvað eftir
annað, en Biaggi er þjóðernis-
sinni ög hægrimaður, lögfræð-
ingur að stétt.
De Gaulle samdi við Rússa
1944. Gætu ekki Gaullistar gert
hið sama 1958? Gaullistabylting,
völdin ?
þyrfti ekki nauðsynlega að
draga þann dilk á eftir sér, að
kommúnistum yrðd að mæta,
að þeir beittu verkfallsvopninu
eða öðrum vopnum.
Jafnaðarmenn
og róttækir
myndu mótmæla kröftuglega,
en þeir hafa ekki styrk til að
afstýra byltingu. Hið eina sem
gæti hindrað að slík bylting
heppnaðist væri allsherjarvek-
fall, en þar sem kommúnistar
ráða yfir meiri hluta verka-
lýðsfélaganna, er ekki víst að
til þess kæmi.
Þeir gngu i lið með Sous-
telle til að fella Gaillard og
stjórn hans. Þeir gætu vel
haft samstarf við hann um
að koma á nýrri stjórnarfars
skipan.
Margrét prmsessa
setur ftjB'sitt
Indúuþintj.
Margrét Bretaprinsessa kom
til Port of Spain, liöfuðborgar
Trinidad í Vestur-Indium í
morgun.
Var henni fagnað af æðstu
mönnum og gífurlegum mann-
fjölda. Hún flaug þangað í
Britannia-flugvél og ók svo frá
flugstöðinni til Port af Spain í
opinni bifreið.
A morgun setur hún fyrsta
þing Vestur-Iindíu sambands-
ríkisins.
Iflættuástand
I Aden.
Brezk blöð í morgun ræða
horfurnar í Aden, þar sem
hættuástand hefur skapast inn-
anlands, út af hreyfingu sem
miðar að aoild að sambandslýð-
veldi Nassers.
Blöðin segja, að Bretar hafi
lagalegan rétt til þess að vera
í Aden og staða þeirra þar sé
mikilvæg vegna siglinga og
ekki síður vegna varna brezkra
olíulinda við Persaflóa.
Fréttir frá ísa-
firði.
Frá fréttaritara Vísis.
Sólborg kom á föstudaginn
með 220 smál. af fiski til fryst-
ingar og herzlu, og 15 smál. af
saltfiski.
Sumir vélbátanna hafa hætt
sjóferðum sakir aflatregðu, en
rækjuveiðd er stöðug og góð og
er að henni mikil atvinnubót.
Elzti íbúi ísafjarðar, Guðrún
Eiríksdóttir, 96 ára að aldri,
andaðisf 18. þ. m.
Sjálfstæiðskvennafélagið á
ísafirði hefir safnað miklu fé
til starfsemi dagheimils barna.
Vísitalan 192 stig.
Kauplagsnefnd hefur reiknað
út vísitölu framfærslukostnað-
ar í Reykjavík hinn 1. apríl s.l.
og reyndist liún vera 192 stig.
KONA ÓSKAST
til afgreiðslustaría í tóbaks- og sælgætisverzlun.
Straumnes, Nesveg 33. Sími 1-9832.
OrBsending ísl mjolkurlrasnlelBanda frá
MjólkureftirEitsmanni ríkisins
1. Varast ber að hella saman viö sölumjólk mjólk úr kúm,
sem eru að verða geldar og eiga það skammt til burðar.
að mjólkin hefur fengið annarlegt bragð (óbragð).
2. Varast ber að heilla saman við sölumjólk mjólk ÚO
kúm fyrstu fimm daga eftir burð. ;
Reykjavík, 21. apríl. /
Mjólkureftirlitsmaður ríkisins
Kári Guðmundsson.
Kristinn 0. Guðmundsson hdl.
MaltJutmngur — lnnheimta — bainmngsgerð
Hafnarstræti 16. — Sími 13193
Ný bók eftir Jóit Dan
Almenna bókafélaginu er það mikil ánægja að j
geta tilkynnt félagsmönnum sínum, sð fyrsta .]
mánaðarbók þess verður ný skáldsaga eftir
ungan íslenzkan höfund, Jón Dan. ]
Með fyrsta smásagnasafni sínu, Þytur um nótt, í
er kom úr.1956, skipaði Jón Dan sér í fremstu
röð íslenzkra smásagnahöfunda. — Sjávarföil
er lengsta sagan, sem frá honum hefur komið
til þessa, um 150 bls.
SJÁVARFÖLL er nútímasaga um ungan mann, sem vilt
ráða örlömim sírum, saga um mann. sent kemur í dögun
með aðfalli og fer um miðnætti, begar sjórinn hefur
sigrað hann.
SJÁVARFÖLL er í órofa tengslum við jörð og liaf. Þetta
er saga um baráttu, þar sem öllu er fórnað og allt tapast
nema það, sem mestu varðar. -
Bókin er afgreidd til félagsmanna í Reykjavík að Tjarnar-
götu 16. Hún fæst auk þess hjá umboðsmönnum og í bóka-
verzlunum.