Vísir - 20.08.1958, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 20. ágúst 1958
V f S I K
Ætlar að aka bíl fram á
áttunda áratuginn.
Viðtal við elzta bilstjóra
landsins.
„Það er nú eitthvað annað að
aka bil í bænnm og' þó einkum
utan bæjar í tlag en þegar ég
byrjaði.“ segir Magnús Ólafsson
bifreiðarstjóri á B.S.K. Hann á
sjötugsafmæli í dag og liefur ek-
ið bíí í 43 ár.
Þ>að vill svo til, að þrír elztu
síarfandi' bilstjórar landsins
3'ieita allir Magnús, afmælisbarn-
:ð Magnús Ólafsson, og hinir eru
Magnús Bjarnason og Magnús.
Skaftfjeld.
Seig í Krýsuvíkurbjarg
S 2 ár.
Magnús er fæddur í Grafningi,
en fluttist þaðan 9 ára. Var i
r.okkur ár í Mosfellssveit, síðan
hjá Jóni bónda á Reykjum og
lór með honum til Krýsuvíkur
3906, þegar Jón hóf búskap þar.
Magnús stundaði sjóinn í Grinda
vik á vertið. Fyrir tilviljun varð
svo það, að Magnús gerðist þar
sigmaður. Var að aðstoða sig-
mann úr Eyjum, en náði honum
ekki upp og varð að fara niður
til hans og gerði það af glanna-
skap, segir Magnús, að fara ber-
hentur sígandi niður á vaðnum.
Vestm.eyingurinn kenndi hon-
um bjargsig, sem Magnús stund-
aði í tvö ár, en berhentur seig
hann ekki í annað sinn.
Fyrstu bílstjórarnir.
Árið 1906 settist Magnús að í
Reykjavík og réðist til Garðars
Gíslasonar, var vélamaður á
„transportbátnum" Heru,‘ sem
Garðar átti og hafði í ,transpoi’ti‘
á ýmsar hafnir vestan og norðan-
lands. Svo varð það 1915, að
nokkrir Islendingar gengu undir
bilpróf, og eru þrír ofantaldir
enn i starfi. Garðar Gíslason
kéypti vörubíl, „White“, til lands-
ins, og Magnús tók að sér akstur
á honum.
Vegir og- vegleysur.
Oft kvarta menn undan veg-
timim nú á dögum, segir Magn-
ús, en himneskir eru þeir á móts
við þau ósköp, sem maður varð
að aka eftir fyrstu árin, það-
voru hreinar vegleysur. Oft varð
maður að tænia bílinn í sömu
ferð til að_ ná honum _ upp úr
drullunni. Og þeir voru ekki öf-
undsverðir, sem stunduðu áætl-
anaférðir utanbæjar fyrstu ár-
in: Það var drepandi verk.
Vonar að fá módel 1960.
Þegar Magnús er spurður að
því, hvort hann sé ekki -farinn
að . lýjast við aksturinn, svarar
hann því til, að hann sé nú ekk-
ert að hugsa út í það. Það er
alltaf jafngaman að aka, segir
hanri, og þá drepst maður aldrei,
ef manni leiðist ekki starfið. —
Strákarnir á stöðinni segja, að
ég sé eins og unglamb, og ég
trúi því. Magnús er í engum
vafa um, að hann aki módeii 3960
eins og aðrir yngri menn.
Við óskum honum til ham-
ingju með daginn í dag og mód-
el 1960, þegar þar að kemur.
Annríki á
Akranesi.
Frd fréttaritara Vísis. —
Akranesi í morgun.
Þrír Akranesbátar, sem voru
á síld fyrir norðan koniu heim
í gær. Ver kom síðdegis í gær
en Farsæll og Bjarni Jóhann-
esson komu í nótt. Fleiri Akra-
nesbátar munu vera á heim-
Ieið.
Mikið annríki hefuf verið á
Akranesi undanfarna daga.
Jökulfell hefur verið þar að
lesta hvalkjöt og Helgafell hef-
ur lestað sement, Hefur skipið
orðið að biða eftir farmi, því
sementsverkgmiðjan hefur ekki
haft undan að framleíða og af-
greiða allar þær sementspant-
anir sem borizt hafa, Skipið
mun hafa fengið á annað þús-
und lestir sem það flytur til
hafnana úti á landi. Auk þess
sem skipið hefur tekið hef-
ur mikið sement verið flutt á
bilum út á land.
Skipið sem sementsverk-
smiðjan hefur á leigu er lestað
á hverri nóttu og leggur af stað
til Reykjavíkur kl. 6 að morgni.
Skipið hefur venjulega Iestað
rúmar 100 lestir í hverri ferð.
Þá hefur löndun karfa úr báð-
um togurunum aukið mjög á
annrikið og nokkur síld berzt
stöðugt á land og er síldin fryst.
Síldarsöltun er ekki hafin enn
hér á Akranesi. -
Margrét Danaprinsessa hefur verið í þjállun í kvennasveit flughers Dana undanfarið, og er
myndin tekin, þegar stúlkurnar eru í jiu-jitsu.-þjálfun. Það er prinsessan, sem lyftir fætinum
svo hressilega til að verjast „árás“ stöllu sinnar.
Tvær sovézkar íþróttakonur
reknar úr Eandsliðinu.
Sovézkir íþróttamenn óstýrlátir.
Tvær af fremstu íþróttakonum | Knáar konur.
Sovétríkjanna voru nýlega rekn-
ar úr landsliðinu fyrir „eigin-
girni og ófélagslega liegðun.“
Konur þessar voru, svo sem
kunnugt er af fréttum. þær Nina
Ponomareva, kringlukastarinn
heimskunni, og Galina Zybina,
sem er heimsmethafi í kúluvarpi
kvenna. Enginn vafi leikur á þvi,
*að brottrekstur þeirra mun
veikja sovézka landsliðlð, sem
tekur þátt í Evrópumeistaramót-
inu í Stokkhólmi. Þetta hafa
sovézkir íþróttafrömuðir án efa
gert sér Ijóst^ og því frestað
brottrekstrinum fram yfir lands
keppnina við Bandaríkin nýlega,
svo að þær gætu í þeirrr keppni
unnið nokkur stig fyrir land
sitt, þótt síðar stæði til að svipta
þær verðlaunum, en það hefur
Inú einnig verið gert.
Þegar lukt hefur verið brotin
þfisvar í röð innan ákveðlns
tinia, tilkynnir rafveitan, að hún
setji nýjan lampa í aðeins einu
sinni enn, eftir það séu íbúarriir
ábyrgir fyrir að framselja söku-
dólginn.
Hvernig lízt mönnum á þetta?
6. Ef „ófrður" eða aðrir les-
endur óska frekari upplýsinga
um götulýsingu í Reykjavík, geta
þeir snúið sér beint til Rafmagns
veitunnar.
Með þökk fyrir birtinguna."
Bergmál þakkar fyrir hressi-
legt bréf — og telur, að „ófróð-
ur“ hljóti riú að vera nokkru
íróðari.
í landskeppninni vann Pomo-
mareva kringlukastið en Zybina
varð önnur í kúluvarpinu, na-:st
á eftir Farlene Brotvn frá Los
Angeles. — 1 íþróttablaðinu
„Sovetski Sport“ er lítt greint
frá ástæðum fyrir brottrekstri
kvennanna, en Pomomarevu er
gefin „eigingirni" að sök, og
Zybina er sögð hafa hagað sér
„á þann liátt, sem ekki samrým-
ist siðfræði sovézki'a íþrótta."
Þess má geta í þessu sambandi,
að hún ásamt annarri kúluvarps-
stjörnu, sem sætt hefur sams-
i konar ámælum, neitaði á sov-
j ézka meistaramótinu í Tallinn í
s.l. mánuði að stíga upp á verð-
launapallinn, til þess að taka á
| móti öðrum og þriðju verðlaun-
um.
„Kéttmæt gagnrýniÁ
Hegðun þeirra „vakti rétt-
mæta gagnrýni meðal áhorfenda
og þátttakenda í keppninni,“
segja yfirvöldin. Iþróttakonurn-
ar hafa allar þrjár verið sviptar
verðlaunapeningum sínum frá
meistaramótinu í Tallinn, en
þeirri þriðju, T. Tyshkevich, hef-
ur samt verið leyft að taka þátt.
í Evrópumeistaramótinu.
„Hatta-Nína“.
Það varð á sínum tíma kunn-
ugt hvarvetna um heim, er
Ponomareva var tekin höndum i
Lundúnum í október 1956, sök-
uð um þjófnað á fimm höttum,
samtals að verðmæti um 70 krón
’ur. Hún skilaði höttunum aftur,
en varð sönn að sök og sektuo
um rúmar 200 krónur. Þessi at-
. burður- vai’ð lil þess, að íþrótta-
keppni þeirri milli Breta og
Rússa, er hún átti að taka þátt
í, var aflýst af hálfu þeirra síð-
arnefndu, en Ponomareva hlaut:
viðurnefnið „Hatta-Nína“.
I
.111 hegðun.
Svall ög brot á almennu vel-
sæmi leiddi til brottreksturs
nokkurra sovézkra knattspyrnu-
manna fyrr á þessu ári. Meðal
þeirra var Eduard Streltsov,
^miðherji, sem hefur verið fund-
inn sekur um nauðgun og dæmcl
^ur í tólf ára fangelsi. Margir
sovézkir íþróttafrömuðir hlutu
ámæli fyrir að hafa meðhöndlað
Streltsov of vægilega fyrir
minni sakir, áður en hann
framdi glæp sinn.
Dregið ur við'klptahömEum við
kínverska kommúnista.
15 IfjóSss' sem|?y5t.iija Gejkii? viðskipli, eire
Osndas'íkjasrserssi siija vsð sinn keip.
14 þjóðir í Atlantshafsbanda-
laginu auk Japana, sem setið
hafa á ráðstefnu i París að und-
anförnu, hafa nú samþykkt að
draga úr útflutningshömlum á
margvíslegum iðnaðarýarningi
■ til kínverska alþýðulýðveldis-
ins. N
Mynd þessi er af hljómsveit Andrésar Ingólfssonar. Lesendum j Meðal þeirra framleiðslu-
blaðsins gefst tækifæri til að taka þátí í léttri getraun. Hvarfvara, sem ’ eftirleiðis verður
er myndin tekin? Sá sem sendir Visi fyfstur rétt svar fær í Jieimilt að selja kínverskum
verðlauu tvo aðgöngumiða á tlansleik í Þórscafé, en þar leikur kommúnistum, eru flugvélar til
hljómsveitin einmitt um þessar mundir. annarra nota en hernaðar, flug-
vélahreyflar, ýmiskonar verk-
færi, rafstöðvar, eldsneyti og
sitthvað fleira.
Þessari ákvörðun hefur verið
fagnað í Bretlandi, þar sem út--
flutningshömlurnar hafa um
alllangt skeið verið taldar ó-
raunhæfar, en Bandaríkamennr
hafa ítrekað fyrri yfirlýsingar
um viðskiptabann við kínverska
alþýðulýðveldið,- Norður-Kóreu
og’ Norður-Viet-Nam.