Vísir - 13.10.1958, Blaðsíða 12
Bkkert blaJV «r bdýrara i áskrift en Vísir. j
Látið hanft faera y8ur fréttir *g annaS
Sestrarefni beirn — án fyrirhafnar af
ySar hálfa.
Sími 1-16-60.
VlSIR
Mánudaginn 13. októbcr 1938
Munift, aÖ þeir, sem gerast áskrifendar
j Ví«»s eftir 10. hvers mánaftar. fá biaftUf
ókeypis til mánaftamóta
Sími 1-16-60
Vissi enska þjóðin staðreyndirnar
iiyndi hún ekki styðja stjómina.
n
grein s IsBaði skozkra
þjóðernissÍEiiia.
í blaði skozkra þjóðernis-
‘sinná birtist í s.I. mánuði skel-
egg grein um fiskveiðadeiluna,
er ncfnist ,,Iceland Dispute“
(Islands-deilan).
Þar segir í upphafi, að það
'sé illt til þess að vita, að Eng- j
Jendingar, sem séu svo hreyknir
af að halda í heiðri kenning- j
!unni um heiðarlegan leik (fair,
play), skuli velja ríkisstjórnj
‘sína úr flokki þeirra, sem taki
jafn lítið tillit hagsmuna ann-
arra og reynd ber vitni.
\
! , 1
Erfitt —
Það er erfitt að gera sér í
hugarlund“, segir blaðið, „að
meiri hluti ensku þjóðarinnar
mundi hafa stutt stefnu stjórn-
arinnar og atferli gagnvart ís-
landi, ef hún hefði vitað allar
Staðreyndirnar“.
„ísland er hrjóstrugt land,
námulaust og án skóga og iðn-
aðar. Landbúnaðurinn tak-
markast við fjárrækt og mjólk-
urframleiðslu, sem vart nægir
til heimaneyzlu. íbúatala lands
ins er 159.000 (tæplega eins og
í Dundee) og þjóðin á afkomu
Sína algerlega undir fiskút-
iflutningnum.
Þá yrði ísland
óbyggilegt —
Ef fiskimiðin við ísland ger-
eyddust myndi ísland ekíki
Verða byggilegt. — Um 97 af
hundraði útflutningsins er fisk-
afurðir.
I
Andspyrnan
í London.
Ríkisstjórnin í London hefur
Írá.árinu 1952 stöðuglega reynt
að hindra, opinskátt og eftir
Stjórnmálalegum leiðum til-
raunir ísL ríkisstjórnarinnar til
|)ess að varðveita fiskstofninn
kringum eyna.
Árið 1950 og 1952 bannaði
íslenzka stjórnin togveiðar og
dragnótaveiðar innan fjögurra
mílna. Fjórar mílurnar miðast
«— að segja má — við línu sem
dregin er fyrir mynni hinna
stærri flóa og fjarða. Reglu-
gerðin frá 1952 grundvallaðist
á úrskurði Alþjóðadómstólsins
Tregur afli
Eyjabáta.
Frá fréttaritara Vísis.
Vestmannaeyjum í morgun.
Afli línubáta við Eyjar hefur
verið mjög tregur undanfarið,
enda stirðar gæftir.
Reknetabátar frá Vestmanna-
eyjum, sem undanfarið hafa
Stundað síldveifti í Faxaflóa og
við Reykjanesskaga, eru nú flest-
lr hættir og komnir heim. Munu
|>eir búa sig á línuveiðar hvað
flr hverju.
í Haag út af deilu Bretlands og
Noregs um fjögurra mílna fisk-
veiðilögsögn við Noreg. Reglu-
gerðin var samþykkt af al-
þjóðasérfræðingum.
Islenzka stjórnin fór nú eins
að til þess að varðveita fisk-
stofninn og íslenzkum togurum
var ekki leyft að veiða innan
þessá bánnaða svæðis. Fiski-
sæld hefur nokkuð aukist frá
1952.___
Hagsmunir
togaraeigenda.
Þetta hafið síðan þau áhrif,
að einkahagsmunir togaraút-
gerðarmanna í höfnum á Aust-
ur-Englandi framkvæmdu
áform sitt um löndunarbann á
íslenzka togara í ýmsum höfn-
um Bretlands.
Athygli ber að leiða að því,
að þetta var ekki bann, sem rík-
I isstjórnin setti. Að því er virð-
'ist getur hvaða iðnaður sem er
(nema vitanlega skozkir iðnað-
íir) sett upp sitt eigið viðskipta-
ráðuneyti algerlega óháð ríkis-
stjórninni, og sett innflutnings-
reglur.
| Nú liggur málið hinsvegar
þannig fyrir að reglugerð fs-
lands raunverulega bar þann
árangur, að það var enskum
togaraeigendum í hag. Og nú, í
samræmi við þá skoðun, sem
varð ofan á, á Genfarráðstefn-
unni, getur ísland fært út land-
helgi sína í 6 eða 12 mílur. En
aftur komu hótanir frá brezku
stjórninni og togaraeigendum.
Okkar þjóð, og fiskimenn
okkar sérstaklega, ættu að lýsa
yfir stuðningi sínum við ís-
lenzku ríkisstjórnina til vernd-
ar lífsafkomu íslenzku þjóðar-
innar, — og vinna að því, að sá
dagur komið, að við höfum
skozka ríkisstjórn, sem gerir
hið sama fyrir okkur.“
Pekingstjornm framlengdi
hléið um tvær vikur.
Þar með gefast ný tækifæri
tíl að ná samkomulagi.
na
Alþýðustjórnin kínverska til-
kynnti í gær, að hún hefði
framlengt um hálfan mánuð
þann tíma, sem ekki yrði skotið
á Quemoy úr strandvirkjabyss-
unum á Fukienströnd.
í tilkynningunni var sagt, að
þetta væri gert til þess að halda
mætti áfram að flytja birgðir til
almennings á eynni, og til þess
að andstæðingarnir fengju betri
tíma til að hugsa sitt ráð.
Þegar fregnin um þetta barst
til Washington hringdi John
Foster Dulles utanríkisráðherra
þegar til Eisénhowers forseta og
einnig ræddi hann við Green,
formann utanríkisnefndar öld-
ungadeildarinnar — en demo-
kratar hafa talsvert að athuga
við Formósustefnu ríkisstjórn-
arinnar, og sumir.eru henni al-
gerlega andvígir.
Eftir þessar viðræður var til-
kynnt, að Bandarikjastjórn fagn-
aði tilkynningu alþýðustjórnar-
innar,. vegna þeirra tækifæra,
sem býðst til að leita lausnar. 1
tilk. hennar voru þjóðernissinn-
ar hvattir til þess að semja við
hana og Bandarikjamenn enn
hvattir til þess að fara frá For-
mósu með allan sinn herafla.
Tekið var fram í tilkynningu
frá Washington, að það væri
alvarleg villa, ef ályktað væri, að
afstaða ríkisstjórnarinnar byggð
ist á því, að hún teldi afstöðu
sina hafa veikzt.
Vetður tauti komið
við Chiang-Kai-shek?
Augljóst er, að Chiang-Kai-
shek er þrándur í götu samkomu
lags og brezku blöðin i morgun
eggja nú Dulles á, að koma hon-
um til að láta af þrjózku sinni.
Þegar hefur komið fram, að
Bandarikin vilja, að hann flytji
a.m.k. á burt frá Quemoy og
Matsu mikið af herafla sínum,
og kynnu að fallast á að hann
flytti herliðið burt, ef öruggt
samkomulag næðist um For-
mósu.
Sú skoðun hefur mjög rutt sér
til rúms í Bandaríkjunum síðan
átökin hörðnuðu í sumar, að
ekki beri að halda til streitu vörn
þessara eyja, og menn viður-
kenna þá almennu skoðun um
allan heim, að þær tilheyri meg-
inlandinu.
Dagskrá F.í.
í dag.
Dagskráratriði á sýningu
Æskulýðsráðs Reykjavíkur
„Með eigin höndum“ annast
Ferðafélag fslands í dag.
Sýningin er til húsa í Lista-
mannaskálanum og er opin frá
kl. 2—6.30 e. h. í dag og frá kl.
8—10,30 í kvöld. 1 dag verður
sýnd kvikmynd, en í kvöld kl. 9
flytja þrír stjórnarmeðlimir
Ferðafélagsins erindi, þeir Jón
Eyþórsson, HaJlgrímur Jónasson
og dr. Sigurður Þórarinsson. Þá
verða ennfremur sýndar lit-
skuggamyndir af íslenzku lands-
lagi
crka leyst iír
Hveragerði.
Næg orka í borholunni til að hita alla
Reykjavík - Gcsið veldur óþægindum.
Á laugardaginn opnuðu verk-
fræðingar jarðhitadeildar raf-
veitna ríkisins borholu i Gufu-
dal i Ölfusi. Fæst úr henni meiri
gufuorka en dæmi eru til hér-
lendis og jafnast hún á við
stærstu gufholur á jarðhitasvæð
um erlendis, t. d. í Nýja-Sjálandi
og Ítalíu.
Gufusúlan er um 60 metra há
og gufuorkan um 80 tonn á
klukkustund. Mælingar sýna, að
á 400 metra dýpi renna að hol-
unni 100 lítrar vatns á sekúndu
og hitastigið er 212 gráður. Tel-
ur Gunnar Böðvarsson verkfræð-
ingur, að hitaorka holunnar
nægi til að hita upp öll hús i
Reykjavík.
„Eg vil taka það fram“, sagði
Gunnar Böðvarsson er Vísir
ræddi við hann í morgun „að
þessari fyrstu áætlanir eru ó-
vissar og það sérstaklega að því
er snertir rennslið til holunnar.
Næstu vikur verða gerðar mæl
ingar á þessu, en holunni verður
lokað. Gufugosið hefur valdið
ýmsum óþægindum í nágrenn-
inu, svo sem ýsingu á síma og
rafmagnsþráðum, og auk þess er
hávaðinn óþægilegur, í nágrenni
gufuholunnar.
Ekki er hægt að segja fyrir
um hversu lengi er hægt að fá
gufumagn úr þessari holu. Við
gerum ráð fyrir að slik hola
dugi í fjögur ár i mesta lagi.
Kísill og kalk sest í veggi hol-
unnar og stíflar hana og auk
þess er jarðhiti á þessum slóð-
^ um breytilegur. Er holan þá bci'-
uð upp að nýju.
Þessar boranir, sem við erum
að framkvæma eru fyrst og
fremst gerðar í rannsóknarskyni
og hafa almennt gildi, en þarna
er sem sagt fyrir hendi orka
sem hagnýta má til rafvirkjun-
ar og annarra þarfa.“
Að því er Vísir frétti frá Se!-
fossi í morgun hefur gufugosið
valdi tjóni á síma og rafstrengj-
um. Hlóðst svo mikil ísing á
símalinu að hún slitnaði og
staur brotnaði. Hávaðinn lætur
í eyrum Hveragerðinga, sem heil
sveit þrystiloftsvéla flygi yfir
húsin. Gufuna hefur lagt upp í
Kamba og hefur sezt ising á veg-
inn í frostinu.
Nýr ambassador
Norðmanna hér.
Norðmenn liafa skipað Bjarne
Börde ambassador sinn á Is-
Iandi.
Ekki hefur enn verið ákveð-
ið hvenær hann tekur við því
embætti.
Bjarne Börde er um sextugt
og hefur gengt ýmsum þýðing-
armiklum störfum, einkum á
vettvangi viðskipta- og at-
vinnumála. — Síðastliðin 6 ár
hefur hinn nýi ambassador
verið aðalræðismaður í San
Francisco.
Veitingahússgestir reknir
út sökum ölæðis.
Fen/u fremur mikið um ölvun
Keykríkinya um helgina.
Mikið bar á ölvim á götum
bæjaiins mn síðustu lielgi og
tók lögreglan allmarga drukkna
menn, sem ýmist röskuðu næt-
urró manna eða til ama og leið-
inda á almannafæri.
Hefur það verið venja á und-
anförnum árum að ölvun hefur
færzt allmjög í vöxt um helgar á
haustin frá því sem verið hefur
á sumrin. Virðist svo ætla að
verða ennþá.
Hinir ölvuðu menn, sem lög-
reglan tók um helgina, voru ým-
ist fluttir í fangageymsluna eða
heim til sín og hafði lögreglan
í morgu að snúast, einkum á
laugarcilgpkvöldið. Það kvöld
voru m. a. gestir eins veitinga-
hússins hér í miðbænum reknir
út sökum ölæðis og drykkjuláta
og veitingahúsinu lokað um
stundarsakir. Þá tók lögreglan
einnig fjóra menn ölvaða við
akstur.
Frá slökkviliðinu.
Slökkviliðið var hvatt að Álf-
hólsvegi á föstudaginn vegna
ert hafa orðið.
Á laugardaginn var slökkvi-
liðið kvatt tvívegis á vettvang. 1
öðru tilfellinu að fólksbíl, sem
stóð á Rauðarárstíg, en þar var
eldurinn fljótlega slökktur og
skemmdir litlar. Þá komst eldur
í spunavél teppagerðárinnar við
Grensásveg, en búið var að
slökkva þegar slökkviliðið kom
á staðinn.
Umferðarmál.
Á föstudagskvöldið varð har,-
ur árekstur tveggja bifreiða á
mótum Grensásvegar og Hrauns
gerðis. Fólksbifreið ók þar aftan
undir pall kyrrstæðrar vörubií-
reiðar og varð fyrir mjög mikl-
um skemmdum.
Á laugardaginn varð maður
fyrir bifreið móts við Vesturbæj-
arapótek á Hofsvallagötu. Mað-
urinn var fluttur í sjúkrabifreið
í slysavarðstofuna, en reyndist
lítið meiddur og var leyft að
fara heim til sin.