Vísir - 15.10.1958, Síða 4

Vísir - 15.10.1958, Síða 4
i Miðrikudaginn 15. október 195S Það er tekið að hausta hér heima, og lika í Grænlandi. Um- hleypingar, rok, rigning, okkur bregður við, eftir þetta yndislega sumar. Grænlandsflugin okkar í sumar voru oft í dásamlegu veðri, en mér sýnist annað vcrða upp á teningnum í þetta skipti. En „nú er komið hrímkalt haust, horfinysumar blíða", og því ber að taka. Flugáætlunin er Reykjavík Ikateq, Syðri Straumfjörður, Ikateq og hingað heim. Þann- íg er nú i Ikateq (skammt norðan við Angmagsalík) að alveg má telja vonlaust að kom- ast þangað. Við ætlum samt að athuga það, þvi það er alveg i leiðinni. Flogið í skýjum. Flugtak í Reykjavík laust eft- ír kl. 8 að morgni þ. 16. sept. — Við klifrum i 4000 feta hæð, og fljúgum í skýjum. Við erum venjulega sex í áhöfn, nú er einum íleira, hann er yfirvéla- maður Flugfélagsins, Brándur Tómasson. Auk hans er Sigurð- ur Haukdal II. flugm., Rafn Sig- tirvinsson „navro", Ásgeir Magnússon vélamaður og flug- freyjur þær María Jónsdóttir og Guðrún Einarsdóttir. Þetta er allt úrvals fólk, traust, vinnur vel og nákvæmt. Við Sigurður fögnum þvi, að hafa með okkur jafn reynda menn og þá Ásgeir og Rafn, en þeir hafa báðir flogið miklu lengur en við. — Við fljúgum í rigningu og súld. Sigurður er við stjórnvölinn. Eg legg til að við förum að lækka okkur og reyna að haldaokkurístjórnflugi imdir skýjum. Það tekst, en fljót lega dimmir enn. Við hækkum fiugið meira. Skyggni fer þverr- andi, mikil rigning, vindur að sjá á sjóinn allhvass norðaustan. Það grillir öðru hvoru í borgar- ísjaka, sem svamla í öldunum, blágrænir að neðan. Hálf er það kuldalegt. Rafn kemur með nýtt um, við höldum áfram upp I 12,500 fet. Það er ákveðið að sleppa Ikateq og halda áfram til Syðri-Straumfjarðar. Við er- um að komast upp á jökul, við sjáum það á radio-hæðarmælin- um, að landið undir fer ótt hækk- andi. Smáglæta öðru hverju, engin ísing, sem heitið getur, og við komust út úr skýjaþykkni, framundan er heiðríkja og ótak- markað skyggni. Fjöllin undir okkur eru óhugnanleg eyðimörk, sem ekki er hægt að lýsa með orðum einum. Eg vona þó, að við eigum ekki eftir að kynnast jöklinum of náið! Við sjáum ekkert nema jökul, lengi, lengi, hann er furðu sléttur þar sem hann er hæstur, en þeg- ar nær dregur ströndinni koma fram sprungur, sig, lón. Kring um fjöllin, sem standa upp úr, bæði á austur- og vesturströnd- inn hlykkjast skriðjöklar i sjó fram, mikið sprungnir og illúð- legir. — Það er bezta veður í Straumfirði brotið skýjafar, og gott skyggni. Við erum teknir inn á radar, það er mjög algengt, og þægilegt fyrir okkur. Við er- um „talaðir" niður, ef svo mætti segja. — Við lendum, eftir 4% klst. flug frá Reykjavík. Það sem næst liggur fyrir er að athuga veðrið I Ikateq, hvort nokkur breyting hafi orðið á til batnað- ar. En því fer viðs fjarri. Við verðum hér í nótt segir einhver, já, ég tek undir orð hans, og á morgun lika, hver veit. Sólfaxi er afhlaðinn, og hlaðinn aftur ýmsum varningi, við förum inn að borða. Það er steik, þeldökk- ur náungi, á nærskyrtunni einni, spyr okkur hvernig eigi að steikja, við viljum öll láta steikja lengi, nema tveir, þeir vilja hálfhrátt! En steikin er seig, já, Ásgeir lætur sitt af hverju fjúka, hún er ólseig, en mjólkin er góð, það er þessi vél- framleidda mjólk, mér finnst hún sérstaklega góð. En út af Flugmenn og flugfrcyjur af Sólfaxa á leið út í v.b. Pálniar frá íslandi, sem þá lá við Grænlandsströnd. veður í Angmasalík og Ikateq. Þáð er enn verra en áður. Við erum komin hvert á sinn stað, og allar horfur á að klifrað verði fijótlega. Það er varla hættandi á það að fljúga nær ströndinni S þessari hæð, og i þessu skyggni sem enn fer versnandi. jFjölIin óhugnanleg eyðimörk. Eg bið Ásgeir að auka afl hreyflanna, og við hækkum flugið og erum þegar komnir í ský. Við beygjum af stefnu og klifrum suður í fyrstu, meðan Við- erum að komast upp fyrir hæstu fjðllin á ströndinni, beygi um síðan á Angmagsalík og klifr zim áfram. 9000 fet, enn í skýj- steikinni datt mér i hug sönn smásaga sem eitt sinn skeði á matsölustað í Reykjavik. Gam- all og einkar skemmtilegur starfs maður Flugfélagsins sat þar að. snæðingi, ásamt nokkrum félög- um sínum. Maturinn var ekki að hans óskum, svo hann spyr stúlk- una sem bar fram: „Er þetta kjöt af dauða hrafninum, sem fannst niðri í fjöru um daginn?" Stúlk- unni brá, byrsti sig og sagði „Á ég að sækja hótelstjórann, eða hvað?" Það stóð ekki á svarinu: „Já, hefur hann kannske dánar- vottorðið?" Stúlkan varð orðlaus og málið útrætt. Á að Ioka og kynda eða ...? Dagurinn líður óðfluga, veðrið V í S I R á austurströndinni skánar ekk- ert. Við bíðum, höngum, við eig- um að gista á danska hótelinu, þar er ágætt að vera, mjög viðkunnalegt og fæði prýðilegt. Við búum allir fimm saman í litlu herbergi, með sex kojum. Það er strax komin upp rimmá um gluggann. Þeir Sigurður og Ásgeir vilja loka glugganum og kynda ofninn, en við Brandur viljum opna gluggann og loka svo fínn, að hann er sem hveiti, og mjög ljós. Veðrið er fagurt, logn og sólskin. Við höldum heim á hótel, þar sem þau öll eru að raða saman spilinu, og er ekki bilbugur á neinum. Dagur- inn líður, og við göngum út á veðurstofu, spjöllum við dönsku veðurfræðingana um útlitið, það er heldur betra í fyrramálið, lítil sem engin von í dag. Er kvölda tekur er útlitið fyrir að halda leiðinni, eftir að ísingiri byrjaði. Við fylgdumst vel með ha^ðinni frá jöklinum á radio- hæðarmælinum, og biðum eftir því að jökullinn færi að lækka Auk þess fór hraðinn minkandi, það þýddi ekkert að klifra, í það fór mikil benzín-eyðsla, við urð- um líka að horfa í það, því ekk- ert benzín er í Ikáteq, og það á því að endast heim til Islands og betur. Eg ákvað því að þrjóskast svona áfram, það var líka stutt eftir niður af jöklinum, og þá gátum við byrjað að hækka okk- ur. Það er ekkert notalegt að fljúga þetta i svona skilyrðum, enda held ég að mönnum hafi ekki þótt það neitt spennandi, það var yfirleitt heldur lítið skrafað þennan hluta leiðarinn- ar. Að vísu var ekki hægt um vik, því við vorum allir með súr- efnisgrimur. Sólfaxi hefur oft áður háð erfiða baráttu yfir há- jöklum Grænlands, og á það sjálfsagt eftir, blessaður. ísinn brotinn af vængjunum. i Þetta er senn á enda, jökull- Á ílugi meðfram Grænlandsströnd. £hcm ^ncnaAcw, 0u$Atjcri: fyrir ofninn. Meðalvegurinn er farinn, ofninn er hafður í gangi, og glugginn opnaður. Brandur er mikið upptekinn. Já einmitt, hann hafði þá komist yfir, eða haft með sér, eitthvert tímarit með einhverjum einkar skemmti- legum sögum, hann bókstaflega lítur ekki upp. Menn eru farnir að gjóta til hans augum.Brandur hefur orð á því, að sá sem sé í kojunni fyrir ofan sig sé kom- inn með trjónu, hann langi svo í tímaritið. Eg held þó að Ásgeir hafi komist yfir heftið næst, og árangurinn varð einn heljarmik- ill draumur, sem ég er þó búinn að gleyma út á hvað gekk. Nýr dagur 17. sept. Sama veð- ur í Ikateq, engin breyting, útlitið ekkert í dag Veðrið hér aftur á móti er svalt, en gott. Við setjumst inn í stofu á hótel- inu. „Danskir" lána okkur myndaþraut. Það er tekið til að raða þesu, önnur er komin sam- an eftir um það bil 3 klst. held ;g, en hitt, sem Ásgeir var með, 'pví lauk eitthvað um miðnætti! Hvílík seigla, þau voru öllíþessu nema ég, ég hafði ekkert út- hald! Leitað að' rjúprim eða refum. Við fórum í göngutúr, ég Brandur og Guðrún, og ætluðum nú mest að skoða bílakirkjugarð, en aðgangur var bannaður, svo við notuðumst við kíkinn hans Brands. Annars var landslagið mikið skoðað í sjónaukanum. Brandur leitaði ákaflega að rjúp- um og refum, en efst í fjöllun- um var grátt af snjó, og hann vildi helzt ganga þangað, en við aftókum það með öllu. Landið þarna er lyngi vaxið, jafnvel lágu kjarri, með berum jökul- núnum klöppum i milli, sand- flákum og fjöllum. Sandurinn er morgundaginn dágott. Við förum að sofa um miðnætti eftir okk- ar klukku en klukkan hér er að- eins 21. ísing sezt á vélina. Enn nýr dagur 18. september. Veðrið á austurströndinni er skaplegt, við ákveðum að fara. 1 ýmsu þarf að snúast fyrir brott för, það tekur lika talsverðan tima. Farþegarnir okkar koma um kl. 13. Við hefjum flug stuttu seinna. Sigurður flýgur fyrri hlutann. Við áætlum um 2% klst. til Ikateq. Flugskilyrðin yfir jökl inum sýnast ætla að verða góð, svo langt sem við sjáum. Fyrst klifrum við i 10.500 feta hæð. Þegar inn á miðjan jökul er komið hækkum við flugið i 13.500 fet, og byrjum að renna inn í ský. Við vorum smástund milli skýjalaga, en síðan i skýj- um og byrjaði nú þegar ising að setjast á vélina. ísing er einn versti óvinur okkar ekki síst þegar fiogið er yfir 8—9000 feta háu landi, eins og jöklinum þarna. Flugvélin var þung, gekk illa inn lækkar óðum, og við erum fljótlega komnir út yfir strönd- ina, og byrjum að lækka okkur, og brjóta ísinn af vængjunum. Við og við sjáum við niður í ísbarða og hrikalega fjállatoppa og rétt áður en við komum yfir Angmasalik komum við alveg niður úr skýjunum. Flugvöllur- inn í Ikateq, ef flugvöll skyldi kalla, er skammt norðan við Angamagsalík, við tökum stefnu þangað. Úti fyrir ströndinni er að sjá austan rok, en lítill vind- ur inn á fjörðunum. Þó er eitt- hvað misvinda að sjá á stöku stað. Við sleppum að mestu við ókyrrð, eða þangað til við vor- um á lokastefnu fyrir lendingu, þá fengum við það óþvegið. skiptist á niður- og uppstreymi, og vindgustur sem gerðu aðflug- ið og lendinguna erfiða. I Ikateq beið. eftir okkur stór Helicopter, sem tók farþeg- ana og flutti þá til eyjar sem heitir Kulusuk, og er rétt við Angmasalik. Þar eru Bandaríkja- menn að byggja flugvöll, og var meiningin að við Sigurður fær- Frh. á bls. 10. Sólfaxi er lentur í Ikateq.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.