Alþýðublaðið - 29.01.1958, Page 7
Miðvikudagur 29. jan. 1958
AlþýSublaðið
7
Mynd af dýragrafreitum
m r s
BRETAR hafa löngum verið
þekktir fyrir það, hversu mikl-
ir dýravinir þeir eru, og ferða-
menn verða þess varir af hin-
um mikla fjölda minnisvarða,
sem hafa verið gerðir dauð-
um dýrum. Þessir minnisvarð-
ar eru miög margbreytilegir.
Þeir geta verið skreyttar rúð-
úr í kirkjúm, grafsteinar í
kirkjugörðum eða jafnvel stytt
ur af dýrinu.
• Eins og vænta má, eru flest
þessara minnismerkja af hund-
um oe köttum. Meira að segja
er kirkjugarður í lllford, Es-
séx, sem gerður var af dýra-
spítala þar, og er hann ein-
göngu helgaður þessum heim-
ilisdýrum.
Minningu kattar eins hefur
verið sýndur viðeigandi heið-
ur. þar sem hann hvílir í kirkju
garðinum í St. Mary Redcliff í
Bristol, því að á staðnum er
miniimgarsteinn með þessari
einföldu áletrun: ..Kirkjukött-
urinn 1912—;1927“. í mörg ár
mætti köttur þessi kirkjugest-
um í dyrum kirkjunnar og
fylgdi þeim til sæta sinna. Að
launum var honum leyft að haf
ast við í kirkjunni á daginn, og
á nóttunni svaf hann oft í ræðu
! stólnum.
Það hefur verið vel séð fyr-
ir minningu hunda í steindu
gleri, t.d. er rnynd af einum
ásamt húsbónda sínum í kirkju
. S't. Anthonys í Lenton, Notth-
| inghamshire. Önnur er af hundi
sem fylgir umferðasala í St.
J Mary’s kirkjunni í Lambeth,
’ London. Sagan um þennan Lam
beth glugga segir, að umferða-
salinn hafi verið þarna á ferð
einhvern tíma á fimmtándu
öldinni, og hundur hans gróf
upp af tilviljun box með gull-
mynt. Umferðarsalinn gróf það
niður aftur og fór síðan og
keypti landið fyrir fáeina shill-
inga — og með því fjársjóð-
inn. Hann varð auðugur mað-
ur og síðar í lífinu gaf hann
kirkjunni álitlega fjárupphæð
með því skilvrði, að þessi rúða
yrði sett upp. Það vili svo
skemmtilega til, að London
County Iiall er nú staðsett á,
ekru „umferðasalans“.
Önnur fræg og áhrifamikil
saga er um hinn trygga
hund Gelert eftir að bund-
urinn hefði bjargað syni
prinsins frá úlfi. Sög-
una um Gelert er hægt að lesa
á hinni frægu gröf hundsins í
I Beddgelert í Caernavonshire,
I sem er eitt mest töfrandi þorp
í norður Wales.
Það er samt sem áður enginn
minnisvarði sem gefur tií
kynna, hvar gröf þekktasta
hunds veraldar er. Það er gröf
hins svarta og hvíta hunds sem
mynd er af á öllum hljómplöt-
um Hins Masters Voiee. Allt
sem vitað er, er það, að hann
var grafinn við trjálund í Eden
Street, Kington-uppon-Tham-
es, Surry fyrir sextíu árum.
NYJASTA kvikmynd Réne
Clair heitir Porte des Lilas.
Hún gerist í Parísarborg og er
eins konar hljóðlátur ástaróður
til borgarinnar og íbúa hennar.
! Aðalniutverkið ímýndinni,emn
lifsins lausamann, leikur hinn
frægu leikari Pierre Brassuer,
en vin hans ,,skáldið“ leikur
Georges Brassens. Lífið og and
rúmsloftið í Parísarborg er
gamalt og kært viðfangsefni
Clairs. Hann vinnur nú að gerð
annarrar mvndar, sem ekki er
sögð ósvipuð að efni, en hefur
lýst yfir því, að það verði síð-
asta kvikmynd, sem hann geri.
Þetta er fyrsta hlutverk Brass-
ens í kvikmynd, en hann er
annars kunnastur sem vísna-
skáld, hinn franski trúbadúr
nútímans. Oftlega semur hann
bæði ljóð og lag sjálfur og syng
ur síðan látlaust og skýrt. (I
myndinni Porte des.Lilas er það
söngur hans, sem skapar blæ
sýningarinnar). Stundum tek-
ur hann líka kvæði þjóðskáld-
anna og tónsetur. Þannig er
um ballöðu Villons um konurn
ar frá í fyrra og kvæði Aragons
um ástina ólukkulegu. Vísur
Brassens eru oft ádeila, stund-
um beizk eða gróf, stundum
um beizk eða gróf stundum glett
bregður oft upp stuttum falleg-
um myndum í lyriskari vísum
sínum, en samúðin með lítil-
magnanum, olnbogabörnum
þjóðfélagsins, er rauður þráður
í verkum hans. Á síðari áruni
hefur hann öðlazt töluverðar
vinsældir og eru til einar þrjár
plötur með flutningi hans á eig-
in vísum.
Ameriskur tóniistarniaður,
dr. Harald Johnson, sem dvalizt
hefur um skeið í Finnlandi,
fann nýlega í Sibeliusarsafn-
Barraud fjölskyldan í Liverpool | inu í Ábo (Turku), —
átti Nipper, en það var hund- i handritið að tveimur verkum,
urinn kallaður. Einn í fjölskyld
junni, Francis, var listamaður.
, Hann tók eftir því, að þegar
'leikið var á grammófóninn var
Nipper vanur að setjast og
. halla undir flatt og stara inn í
' hinn stóra og hornlaga lúður.
j Listamaðurinn sem hreifst af
þessari skemmtilegu sýn gerði
| af því málverk — án þess að
renna grun í, að myndin ætti
I eftir að verða vörumerki sem
sem ekki var lengur kunnugt
um. Annað hafði þó verið flutt
þrisvar sinnum árið 1902, það
er forleikur í a-moll, sem flutt-
ur var um leið og 2. sinfónían.
Var það hald manna til þessa,
að nóturnar hefðu týnzt. Hitt
verkið er atriði úr ballett, og
álítur Johnson, að það verk sé
samið 1908. Bæði þessi verk
verða bráðlega flutt í Helsinki.
Otvarpshljómsveitin flytur for-
þekkt væri af milljónum manna | leikinn undir stjórn Nils-Eric
um allan heim. Fougstedts í næsta mánuði, en
hitt verkið flytja sömu aöiljar
í aprílbyrjun.
—o—
BANDARÍSKA bassasöngv-
sranum og leikaranum Poul
Robeson hsfur verið boðið að
leika í Shakespeareleikhúsinu í
Stratford on Avon í sumar. Er
þar um að, ræða hlutverk Gow-
ans í Cymbelinu Shakespeares.
—o—
MEÐAL þeirra verka, sem
kgl. leikhúsið í Kaupmanna-
höfn hefur tekið til meðferðar
í haust er Fröken Júlía eftir
strind'berg. Sænski leikstjórinn
Alf Sjögberg, sá sem gerði kvik
myndina Fröken Júlía hér um
árið, var gestaleikstjóri, en
fremsta unga leikkona leikhúss
ins, Ingeborg Brams lék titil-
hlutVerkið. Þá hafa og verið
sýningar á De unges forbund
Ibsens, þar sem leikur Poul
Reumerts í einu hluverkinu
þykir mikill viðburður. Enn-
fremur má nefna Andbýling-
ana, stúdentavaudeville Hostr-
ups, en þar á Reumert einnig
eitt af sínum beztu hlutverk-
um. Loks var svo frumsýning
á En Idealist eftir Kaj Munk
um daginn, svo sem áður hefur
verið drepið á í þessum dálk-
um. Taka þátt í þeirri sýningu
margir beztu listamenn leilc-
hússins, Henrik Bentzon sem
Heródes, Else Höjgaard (Salo-
me), Karen Nellemose (Cleo-
patra), Astrid Villaume (Mari-
anne). Síðasttalda hlutVerkið
3ék Anna Borg síðast þegar
leikrit var flutt í konunglega
leikhúsinu, en nú fer hún með
hlutverk Alexöndru.
í nýja leikhúsinu er sýndur
Vals nautabananna eftir Jean
Anouihl í hugkvæmri sviðsetn-
ingu Sam Beskow. í aðalhlut-
verkum eru hinir vinsælu leik-
arar Bodil Kjær og Mogens
Wieth. í Folketeatret var ný-
lega frumsýning á „Frá borði
til borðs“ (Separate Tables) eft
ir Terence Rattigan. Ebbe Rode
og Birgitte Federspiel leika að-
alhlutverkin. Á Alléscenen er
leikinn gamanleikur eftir Soya,
Afdöde Jensen; leikurmn þótti
diarfur og hefur valdið deilum.
Loks má geta þess, að í Ridder-
salen er nýbvrjað að sýna nýja
ieikritið hans Johns Patricks
um ríku konuna góðu, sem hald
in er briáluð. Leikurinn er kall-
aður á dönsku De kloge og de
gale.
Aðeios fjórir róðrar á hálfum mánuði'
frá Olafsfirði: og allir farnir í versla veðri
Langvarandi illviðriskafli og mikil ófærð
Fregn til Alþýðublaðsins
ÖLAFSFIRÐI í gær.
STÖÐUGAR ógæftir hafa
verið hér á Ólafsfirði, og lengi
hafa menn ekki farið á sjó á
fitlum bátum. Vélbáturinn
Stígandi, sem er 78 tonn að
stærð, hefur heldur ekki farið
nema 4 róðra á nærri hálfum
shánuði, sökum þess að ekki
hefur verið fært. í þessi fjög-
ur skipti var einnig hið versta
veður, svo að hann fór stutt,
og afli var tregur.
Mikill snjór er kominn, enda
hefur verið langvarandi ill-
yiðra- og hríðarkafli, og færð
.íjrðin afleit. Kyngdi svo niður
fönn í logni aðfaranótt laugar-
| dags, að við lá, að allt teppt-
ist. M
Félagslíf
Þjóðdansfélag
Reykjavjkur.
Sýningarflokkur og
barnaflokkar.
Munið æfingar í dag.
Ðr. Fuchs
Framhald af 4. síðu.
þungu vélknúnu farartsikjum
mjög að komast áfram. Þótti
leiðangursmönnum það þó mun
betra viðureignar en allir skafl
arnir, sem tafið töfðu för þeirra
síðustu átta hundruð kílómetr-
ana.
Þegar á sjálft heimskautið
kom, sýndi það sig að nokk-
urs ósamræmis gætti hvað
snerti tímareikning leiðangurs-
manna og' Bandaríkjamanna
þeirra, er dvöldust í heim-
skautsstöðinni. Brezku leiðang'
ursmennirnir fóru nefnilega
eftir brezkum meðaltíma, og
töldu sig koma á skautið að
kvöldi þess 19. janúar, en þá
var morgun og 20. janúar hjá
þeim í stöðinni. Sáu Bretarnir
sér loks ekki annað fært en
taka upp nýsjálenzkan tíma.
Tveim dögum áður en leið-
angur Fuchs bar að skautinu,
komu þeir Hillary og banda-
ríski leiðangursforinginn Du-
fak flugleiðis til stöðvanna á
suðurskautinu frá aðalstöðvun-
um við Macmurdosundið.
Héldu þeir til móts við þá dr.
Fuchs og tóku síðan á móti hon
um og félaögum hans eins og
bezt varð á kosið.
í suðurskautsstöðinni skildu
þeir leiðangursmenn eftir
þyngstu farartæki sín, eins og'
áður hafði verið ráð fyrir gert,
og’ héldu með dálítið léttari far
aiTbúnað áleiðis til Scottstöðv-
arinnar. Fara veður rú mjög
versnandi suður þar, og má
gera ráð fyrir að dr. Fuchs og
leiðangursmenn hans fái sig
fullreynda áður en þangað
kemur. En þeþ* eru orðnir
reyndir og hertir fyrir glímuna
við örðugleikana, — og þeir
hafa sýnt. það og sannað að þeir
gefast ekki upp fyrr en í ful.ia
hnefana, jafnvel þótt þeir hafl
neyðst til að gefast upp á því
að ferðast eftir brezkum með-
altíma um suðurheimskauts-
svæðið.