Alþýðublaðið - 14.03.1958, Side 3
Föstudagur 14. marz 1958
AlþýSnblaSlS
S
Alþgðublaðiö
Otgefandi:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Auglýsingastjóri:
Ritst j órna rsí ma r:
Auglýsíngasirai:
Afgreiðslusími:
Aðsetur:
Alþýðuflokkurinn,
Helgi Ssemundsson.
Sigvaldi Hjálmarsson.
E m i 11 a Samúelsdóttir.
1 49 0 1 og 14902.
149 06.
14900.
AlþýÖuhúsiS.
Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hveríisgötu 8—10.
Þar §em engin œð er tíl
MORG-UNBLA£)I-Ð hefur lengi Mtið hjá líða að svara
þeirri kurteislegu og tímabæru fyrirspurn, hver séu úr-
ræði Sjáltfstæðisflokksins í efnahagsmlálunum. Loksins í
gær fæst það til að ræða málið og játar þá, að engin fram-
tíðarúrræði séu fyrir hendi í þeim herbúðum. Morgun-
blaðið segir, að Sjálfstæðismenn hafi aldrei lofað neinum
töfrabrögðum, sem hægt væri að lækna með allar m'ein-
semdir efnahagslíifsins. Og síðan bætir það við: „Sannleik-
urinn er auðvitað sá, að engin „varanleg úrræði'*, sem
leysi vandamlál efnahagslífsins umi alla framtíð af sjálfu
sér, eru til.“ Hér þarf ekki frekari vitna við: Sjálfstæðis-
flokkurinn er eins staddur í efnahagsmálunum eftir og
fyrir strandið sællar minningar.
Þetta um töfrabrögðin orkar raunar tvímaelis. Ein-
hverjir kunna að minnast þess, að ,einu sinni ætlaði Ól-
afur Thors að ieysa Vanda efnalhagsmálanna með einu
pennastriki. Hann þóttist í þá tíð luma á hókus pókus.
Reynslan varð hins vegar sú, að hann sigldi þjóðar-
skútunni i strand aneð þeim afleiðingum, að Framsókn-
arflokkurinn gafst upp á samstarfi við iSjálfstæðisflokk-
inn vegna úrræða'leysis hans í efnahagsmálunum. Þetta
er ástæð'uilaust að rifja upp. Þjóðin iman tilburði Sjálf-
stæðisflokksins. Hann greip till biáðabirgðaráðstafana
og neyðarúnæða og bað íslendinga að bíða framtíðar-
lausnarinnar. Ólafur Thors og Bjarni Benediktsson sögð-
ust vera uppteknir við annað um istundarsakir, en kváð-
ust koma henni í verk einhvern daginn. Framtíðar-
lausnin er hirns vegar ófundin enn. Ólafur og Bjarni
leituðu hennar í heilum sínum árum saman, en komu
að tómum kofunum. Og enn er þetta ástand óbreytt.
Bjarni játar þessa andlegu fátækt Sjálfstæðisflokksins
í Staksteinium Morgimblaðsins í gær. Þar sem engin æð
er til |ekki er von að Mæði.
Bjarni Benediktsson reynir að afsaka Sjálfstæðisflokk-
inn misð þeirri fullyrðingu, að múverandi ríkisstjórn kunni
engin ráð í elfnahagsrr.élunum, en þykist niú svo sanngjarn
í vonleysi sínu, að taka fram, að engin „varanleg úrræði“
séu til. Um þetta veit hann að sjálfsögðu ekkert. Rííkis-
stjórnin hefur áreiðanlega ekki trúað 'honuim fyrir einu
eða neinu um afstöðu sína og fyrirætlanir. Hitt veit Bjarni
mætavel, að iSjiálfstæðiaflokkurinn hefur ekkert til ariái-
anna að leggja. Hann þekkir sjálfan sig og sitt heimafólk.
Og auðvitað er tilgangslaust fyrir hann að hafa í frammi
síendurteknar >en marghraktar blekkingar utm stefnu ríkis-
stjórnarinnar í efnahagsmálunum. Það er staðreynd, að
hún hefur riáðið ólíkt betur við dýrtíðina og' verðbólguna
en Sjálifistæðiismenn í valdatíð sinni. Vandi ihennar er hins
vegar sá að bæta úr önglþveitinu, sem Ólafur Thons og
Bjarni B'enjedikts'son létu eftir sig í íslenzkum efnahags-
mlálum. Þjóðarskútan hefur óneitanlega laskazt við strand-
ið, og viðgerðin tekur sinn tíima.
Morgunblaðið isegir í Staksteinum Bjarna Benedikts-
sonar í gær, að eina úrræðið í efnahagsmáilunum sé, að
þjóðin hagi sér af viti, miði eyðslu s'ína og kröfur til
lífsins við getu sína og arð framlleiðslu isinnar. Svo er
því bætt við, að Sjálfstæðismenn hafi margbent á þetta.
En hafa ekki Sjállfstæðismenn verið við völd á Islandi
löngum stundum frá því að síðari heimsstyrjöldin hófst?
Og hvernig hafa þeir reynt iað koma þessu viti fyrir
þjóðina? Sjálfstæðisflokkurinn ber omeginábyrgð á dýr-
tíðinni og verðbólgunni. Ólaifur Thors líkti henni á sín-
um tíma við blóðrásina í mannsilkamanum og virtist
halda, að blóðþrýistingurinn ætti að vera sem mestur.
Og þar er stefnu Sjálfstæðisfloikksins í efnahagsmálun-
um rétt lýst. En ,nú igerast forustumenn Sjálfstæðis-
flokksins svo djarfir að fordæma ríkisstjórnina og stuðn-
ingsflokka hennar, þó að þeir isjálfir hafi ekkert til imál-
anna ,að leggja.
.Sjálfstæði'sflokkurinn gefur í skyn, að íslandi og íslend-
ingum, sé fyrir beztu, að þeir lcomi'st aftur tll valda og ráði
sem mie'stu. Sú bariáttuaðferð er út >af fyrir sig skiljanleg.
En er slíkt ekki til of mikilis mælzt söimu dagana og Morg'-
unblaðið viðurkennir, að Sjiálfstæðisflokkuirinn kunni eng'-
in rláð í efnahagsmiálunum? Til hvers væri að trúa strand-
kapteininum fyrir skipinu?
( Utan úr heimi )
sætt mikilli gagnrýni innan lagsmálum.
flokksins, meðal annars af hálfu Þeir segja sjálfir svo frá að
fvrrverandi ríkisráðsmeðlima,! þeir vi-lji gerast súrdeigið í
sem óttast að Bretar tapi sjálf- j flokknum. Hingað til hafa þeir
stæðu frumkvæði í utanríkis j lítið látið uppi um sérafstöðu
málum og hernaðarmálum fvr- sína í stjórnmálunum, nema
ir að vilja gerast „óháðir“ I'hvað þeir krefjast þess skilyrð-
INNAN BREZKU verkalýðs-
hreyfingarinnar hefur sjálfs-
tortímingarklíka nokkur löng-
um látið til sín taka og jafnan
reynt að snúa hverjum sigri
samherja sinna í ósigur. Yfir-
leitt er þarna um að ræða öfga-
hugsjónasósíalista, sem telja
það flekka skjöld flokksins, ef
nokkurt tillit er tekið til raun-
hæfra aðstæðna og gengið til
samkomulags við andstæða rík-
isstjórn á þeim grundvelli í
einhverju máli. Sú klíka, sem
nú er uppi, hefur valið sér
„Sigur sósíalismans“ að kjör-
orði, og láta sig litlu skipta þótt
klíkusigurinn mundi tákna ó-
sigur verkalýðsflokksins, þar
sem skipulögð starfsemi þess-
arar klíku innan flokksins hef-
ur hresst upp á vonir aðaland-
stæðinganna, íhaldsflokksins,
meira en nokkuð annað.
Hingað til hefur flest gengið
í mót þeim íhaldsmönnum.
Verkalýðsflokkurinn hefur unn
ið í hverri skoðanakönnun að
undanförnu með 6—8%, og
hvert kjördæmið á eftir öðru
af íhaldsmönnum í undangegn-
um aukakosningum til þings.
Kosningarnar í Rochdale urðu
íhaldsflokknum meiri ósigur en
nokkur stjórnarflokkur hefur
áður beðið á þessari öld, er
frambjóðandi hans varð sá
þriðji í röðinni að atkvæðum,
mun lægri en frambjóðandi
frj'álslynda flokksins.
En jafnvel þótt verkalýðs-
flokkurinn ynni kjördæmið var
það atkvæðasigur frjálslynda
flokksins, sem gleggst segir til
um stjórnmálaástandið á Bret-
landi í dag. Enda þótt íhalds-
flokkurinn virðist standa mjög
höllum fæti, og enda þótt frjáls
lyndi flokkurinn hafi sennilega
endurheimt þau atkvæði, sem
hann tapaði um skeið fyrir að
sitja hjá við síðustu og næst-
síðustu kosningar, kveður nijög
lítið að því að íhaldsflokkur-
inn hafi tapað atkvæðum til
verkalýðsflokksins. Þeir íhalds
menn, sem óánægðir eru sitja
heldur heima, eða greiða jafn-
vel einhverjum milliflokki at-
kvæði sitt, — ef til vill frjáls-
lynda flokknum, — en alls ekki
frambjóðendum yzta hægri
armsins, enda hafa sumir beirra
fengið svo fá atkvæði í auka-
kosningunum að undanförnu
að beir hafa tapað tryggingar-
fénu. Við síðustu skoðanakann-
anir hefur og komið í ljós að
þeim fer sífjölgandi sem kjósa
vilja frjálslynda, en um leið
einnig þeirra óákveðnu og hef-
ur tala þeirra komizt upp í
tuttugu prósent.
Minnkandi atkvæðafylgi í-
haldsmanna hefur aukið mjög
,sundrungu innan flokksins, er
hófst fyrir alvöru í fyrra þegar
Salisbury lávarður gekk úr
stjórninni í andmæla skyni við
þróun málanna á Kýpur, og sex
fulltrúar flokksins í neðri mál-
stofu þingsins neituðu að virða
samþykktir hans varðandi gang
mála á Miðausturlöndum. Síð-
asta og alvarlegasta sundrung-
aráfallið var það er Peter
Thormeycroft og tveir aðrir fjár
málaráðherrar gengu úr stjórn
inni þar sem þeim þóttu útgjöld
ríkisins of há.
Nú hefur stefna stjórnarinn-
ar í varna- og utanríkismálum
Bandaríkjamönnum í kjarn-
orkumálum. Þá stóð Selwyn
Lloyds sig ekki betur en það í
umræðunum á þingi um utan-
ríkismálin að fjöldi samflokks
þingmanna hefur krafizt þess
að annar verði látinn taka ráð-
herraembætti hans. Þá hafa og
hin nýju húsaleigulög mjög orð
ið til að auka óánægju og sundr
ungu innan flokksins, þar sem
fjöldi fólks stendur á götunni
þeirra vegna.
En verkalýðsflokkurinn
brezki hefur ekki grætt eins og
ætla mætti á allri þessari sundr
ungu og óánægju. Til þess er
þeirra eigin sundrung mönnum
í alltof fersku minni. En tvö
síðustu árin, eða síðan Hugh
Gaitskell tók við forystunni,
hefur mikið áunnizt hvað það
snertir að skapa einingu innan
flokksins um fasta og greini-
lega stefnu, bæði í innanríkis-
og utanríkismálum. Uti á landi
er þó enn margt manna, og
raunar í flestum kjördæmum,
sem sakna hins gamla og eyði-
leggjandi stríðs innan flokks-
ins um vmis óraunhæf hugsjóna
atriði. Og það er til þeirra sem
þessi nýja sundrungaklíka inn-
an flokksins skýrskotar fvrst
og fremst.
Af þeim á að gizka tíu flókks
mönnum, sem gerst hafa þátt-
takendur í stjórn samtakanna
eða klíkunnar, eru nokkrar
gamlar eftirlegukindur frá
vinstri öfgasósíalistum, svo sem
Zilliacus og Silverman, hinir
flestir úr hinni gömlu sundr-
ungardeild Bevanista. Enginn
beirra hefur reynst þess um-
kominn að láta til sín taka á
sviði stjórnmála, en þó hefur
lan Mikardo oft sýnt að hon-
um er ekki alls varnað í skipu-
islaust að Breíar hafni öllum
kjarnorkuvopnum. Það er ein-
mitt sú afstaða þeirra, sem veld
ur flokksleiðtogunum mestum
kvíða, þar sem almenningsálit-
ið hefur snúizt mjög gegn vetn
issprengjunni. Fer það ekki
neitt eftir flokkslínum, og minn
ir mest á friðarhreyfingu þá
sem gekk eins og fárviðri yfir
Bretland nokkrum árum eftir
fvrri heimsstyrjöldina.
En flokkssíjórnin óttast líka
að frávillingar kommúnista
reyni að smeygja sér inn í þessa
klíku og hagnýta sér hana til
fullnægingar sjúklegri undir-
róðursfýsn sinni. Slík þróun
mundi ekki auka flokknum at-
kvæði neins staðar en hins veg
ar draga mjög úr atkvæðafylgi
í mörgum kjördæmum.
Enn sem komið er hafa
flokksleiðtogarnir látið sér
nægja að aðvara klíkuforsprakk
ana við því að gerast flokkur
innan flokksins, — það er að
segja að skipuleggja almennt
hreyfingu, er gangi gegn
flokksstefnunni. Nú mun bað
valda úrslitum hvernig klíkan
bregzt við hinni nýju yfirlýs-
ingu frá verkalýðsflokknum og
verkalýðssambandinu varðandi
kjarnorkuvopnin. I þeirri yfir-
lýsingu er því mótmælt að
Bretar hafni vetnisorkuvopn-
um skilyrðislaust. Fari svo að
klíkan gerist andsnúin þessari
vfirlýsingu, sem bæði flokkur-
inn og sambandið hafa gerzt
aðilar að eftir langar umræður,
má búast við að þess verði
sterklega krafizt að forsprökk-
um hennar verði vikið úr
flokknum, áður en hrevfingin
um þá er tekin að gerast um-
svifamikil um of.
Denis Healey.
ak¥&
r | a
áðalfundur
Verkakvennafélagsins verður n. k. sunnudag 16. marz
kl. 2.30 e. h. í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Sýnið skírteini eða kvittun við imiganginn.
Stjórnin.
INNILEGAR ÞAKKIR
sendi ég öllum þeim, isem söfnuðu ,giöfum og pen-
ingum mér til handa, -— og sérstaklega þakka ég
Kvenfélagi Garðaþrepps, er hafði
forgöngu um söfnun þessa.
3. marz 1958.
MARÍA SIGURÐARDÓTTIR,
Steinsholti.
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
£