Alþýðublaðið - 20.03.1958, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 20. marz 1953
Alþý8nbla819
0
(- ÍÞréffir )
ð Hálogalandi í
Úrslit leikja uodanfarið
ÞAÐ voru háðir 4 leikir í
meistaraflokki karla á íslands-
mótinu í handknattleik um síð
ustu helgi. ÍR sigraði Þrótt
21:15, Valur sigraði Víking með
32:25. Þessir tveir leikir íóru
fram á laugardagskvöld. Leikur
ÍR og Þróttar var mun jafnari
en búizt var við, í hálfleik hafði
ÍR aðeins eitt mark yfir 11:10.
Sigur ÍR-inga var þó aldrei í
verulegri hœttu. Það gildir
svipuð umsögn um leik Vals og
Víkings, hann var ekki vel leik
inn, sérstaklega var áherandi
hvað vörn var léleg.
Á sunnudagskvöldið lék FH
g'egn Aftureldingu og Fram
gegn Ármanni. Þegar lið FH
hljóp inn í salinn, en í því eru
langflestir þeirra leikmanna, er
þátt tóku í heimsmeistarakeppn
inni, var ekki hægt að segja, að
móttökurnar væru innilegar,
sem flokkurinn hlaut eftir hina
vel heppnuðu för á heimsmeist
aramótið. Það var baulao á lið-
ið af miklum móði, eins og hér
væru á ferð einhverjir erkió-
vinir áhorfenda. Hvaða tilgangi
þjóna svona skrílslæti, og hvers
konar tegund af kurteisi er hér
á ferðinni? Það er staðreynd, að
Hafnfirðingar hafa verið stoð
og stytta handknattleiksins hér
á landi undanfarin ár og án
þeirra er vafasamt, að af för á
heimsmeistarakeppni hefði orð-
ið. Sú tegund af skrílslátum, er
höfð var í frammi að Há'oga-
landi s. 1. sunnudagskvöld er
blettur á íslenzkum íþróttaá-
horfendum, sem yfirleitt hafa
fengið á sig orð fyrir sanngirni
og prúðmennsku.
Snúum okkur aðeins að leikj
unum. Mosfellssveitarmenn
léku ágætlega í fyrri hálfleik
og munaði ekki nema 1, 2 og 3
mörkurn og í hléi var staðan
13:9. í seinni hálfieik fór að
bera á úthaldsleysi hjá Aftureíd
ingu og á fyrstu 10 mínútum
skorar FH 8 sinnum og Aftureld
ing aðeins 2. Leiknum lauk með
y.firburðasigri FH 28:17.
FRAM ÁRMANN 17:17.
Leikur Frarn og Ármanns var
jafn og býsna skemmtilegur, en
ekki að sama skapi vel leikinn.
Staðan í háMleik var 11:10 fyr-
ir Fram, en Ármenningum tókst
og þá leika Valur og Ávniann
og KR og Þróttur KR í meist-
araflokki karla, einnig leika ÍR
Fram í 2. flokki karla og verð-
ur það vafalaust skemmtilegur
leikur. Árm'ann FH letka í 3. fl.
karla B.
Meisl'aramóf íslands í
mnan
húss.
Karl Benediktsson átti góðan
leik gegn Ármanni á sunnudag.
að jafna metin á síðustu mín.
leiksins sem lauk með jafntefli
17:17.
f , , , "nr'
IJRSLIT LEIKJA
UNDANFARIÐ:
2. flokkur kvenna: Ármann-
KR 2:1. FHÞróttur 5:2.
3. fl. karla A: Fram KR 14:7.
Ármann Haukar 33:2. Fram
Víkingur 14:8.
3. fl. karla B: Ármann Hauk-
ar 9:7. Víkingur Valur 8:8.
2. fl. karla A: Ármann Vík-
ingur 12:4. Þróttur KR 12:8.
2. fl. karla B: Fram ÍR 7:7.
1. fl. karla: Þróttur KR 8:7.
Fram Valur 15:9. Ármann Vík-
ingur 19:9. FH Ármann 26:9.
Þróttur Valur 8:8. Víkingur KR
15:6.
1. fl. kv.: KR Víkingur 7:1.
í kvöld heldur mótið áfram
MEISTARAMÓT íslands í
frjálsíþróttum (innanhúss) fer
fram í íþróttahúsi Háskólans
næstkomandi sunnudag. Á
laugardag verða undanrás>r í
þeim greinum, þar sem fleiri en
sex keppendur em skráðir.
Einnig verður þá keppt í stang
arstökki,, úrslit, og verður sú
keppni háð í ÍR-húsinu við Tún
götu og hefst kl. 3.
Keppnisgreinar mótsins eru
sex: langstökk, hástökk og þrí-
stökk án atrennu, kúluvarp, há-
stökk með atrennu og stangar-
stökk ög er það breyting, því a8
hingað til hafa aðeins stökk.á’n
atrennu verið talin meistara-
mótsgreinar. í dag er síðasti
möguleiki að afhenda þátttöku
tilkynningar, en þeim skal kom
ið til Benedikt's Jakobssonar, í-
þórttahúsi Háskólans.
TRESMIÐAFÉLAG REYKJAVIKUR
og
MEISTARAFÉLAG HUSASMIÐA
félag-anna verður haldin í Sjálfstæðishúsinu föstu-
daginn 21. jnarz kl. 9 e. h.
Góð skemmtiatriði.
Aðgöngumiðar verða seldir í skrifstofu Trésmiða-
félagsins, Laufásvegí 8, fimmtudaginn 20. og föstu-
daginn 21. marz.
Skemmtinefndirnar.
ARSÞING ÍBI.
ar
Verðlækkirn
792 keppendur í EM.
í GÆíR var tilkynnt í Stokk-
hólmi, að 792 íþróttamenn frá
26 þjóðum tækju þátt í Ev-
rópumeistaramótinu næsta
sumar, 580 karlar og 212 kon-
ur. Þiessi tala getur þó breytzt
þrem vikum fyrir mótið, en
fyrir þann tíma verða að ber-
ast endanfegar þáttt.ökutii-
kynningar. Grikkland er eina
landið, sem ekki hefur enn gef
ið upp fjölda sinna þátttak-
enda. Sé reiknað með þjálfur-
um, fararstjórum, nuddurum,
læknum o. s. frv. verða gestir
mótsins alls 1027.
Albanía og Liohtenstein hafa
tilkynnt, að þau muni ekki
senda keppendur í mótið.
RÚSSAR FJÖLMENNASTIR
Rússar senda fjölmennasta
hópinn, 48 karla og 32 konur,
en einnig 6 fararstjóra, 8 þjálf
ara, 2 nuddara, einn lækni og
3 aðra, alls 100. Svíar senda 45
karla og 24 konur, auk þess 9
fararstjóra, 4 þjálfara, 1 nudd-
ara og 4 aðra, Pólland sendir
alls 83, þar af 12 þjálfara, síð-
an koma Frakkland 64, Eng-
1-and 63 og Noregur og ítalía 57
hvort land. ísland hefur til-
kynnt 17 keppendur.
14. ÁRSÞING íþróttabanda-
lags ísfirðinga var haldið á fsa-
firði dagana 21.—24. f, m.
Þingið sátu 14 fulltrúar frá
5 félögum.
Fundarstjóri var kosinn Sig-
urjón Halldórsson, Tungu, og
fundarritarar þeir Guðmundur
Framhald á 2. síðu.
Radion
Vaskepulver
Wegol
Burnius
kr. 3,65 pakkinn
— 3,45 —
— 5,90 —
6,70 —
Notið tækifærið og kaupfö
þvottaefni á gjafverði.
Útvcga frá Vestur-Þýzkalandi og öðrum löndum:
S K I P OG BÁTA
af öllum gerðum og istærðum.
Ennfremur alls konar
VELAR O G ÁHÖLD
Leitið tilboða.
ATLANTOR
DR. MAGNÚS Z. SIGURDSSÖN,
Hamburg, 36/Colonnaden 5.
Verð staddur á Hótel Borg, Reykjavík til 25. þ.m.
Matsveinafélag S.M.F.
ÁllsherjaratkvæðagreiSsla
urn kjör fulltrúa Matsveinafélags S.M.F. á 10. þing
Sambands matreiðslu- og framrei'ðslumanna fer fram
í iskrifstofu félagsins, Hverfisgötu 8—10, frá 1.—22.
apríl næstk. Kjósa skal 5 fulltrúa ,og 5 til vara. Hverj-
um lista skulu fylgja skrifleg meðmæli a. m. k. 10
fullgildra félagsmanna. .Framboðsfrestur er til 30. marz
næstkomandi.
Reykjavík, 20. marz 1958.
KJÖRSTJÓRN MATSVEINAFÉLAGS S.M.F.
r. aBiiyi •diiirrifc ■ í t.
M.s. „Gullfoss”
fer frá Hafnarfirði föstudaginn 21.
þ. m. kl. 21,00 til
Hamborgar,
Gautaborgar — og
Kaupmannahafnar.
Farþegar eru beðnlr að koma til
skips eigi síðar ,en kl. 20,30.
H.f. Eimskipafélag íslands.
12