Tíminn - 07.04.1965, Blaðsíða 1
HANDBÓK
VERZLUNARMAMN A
ÁSKRIFTARSÍMI
16688 16688 16688
HANDBÓK
VERZLUNARMANMA
ÁSKRIFTARStim
16688 16688 16688
GREIÐA 1000 KR. Á MINÚTU
I<5S>-Reykjavík, þriðjudag.
Bótagreiðslur tryggingafélaga
eru alltaf að aukast, sem þýðir
hækkuð iðgjöld. Stærsta trygg-
ingafélag landsins, Samvinnu-
tryggingar, greiðir að sjálfsögðu
mestar tjónabætur og námu
greiðslurnar árið 1964 samtals
122 miOjónum.
Vitanlega þarf að inna mikla
vinnu af höndum til að af-
greiða allan þann fjölda mála,
sem koma til kasta trygging-
anna. Vinnustundirnar í eins
stóru fyrirtæki og Samvinnu-
tryggingum eru því margar og
reiknað í mínútum er um fjall-
háar tölur að ræða. Vegna þess
hve tjónagreiðslurnar eru orðn
ar háar, en þær fara stöðugt
vaxandi með aukinni dýrtíð og
auknum umsvifum, gerði ein-
hver glöggur maður í fyrirtæk-
inu það að gamni sínu, að
reikna út hverju tjónagreiðsl-
urnar næmu á hverja unna
mínútu í fyrirtækinu. Hann
komst að þeirri niðurstöðu, að
eitt þúsund krónur væru greidd
ar á hverri mínútu, sem unnin
væri í fyrirtækinu.
Árekstrar ero tíðir í Reykjavík, eins og fólk bezt veit af fréttum, og fer þeim stöðugt fjölgandí. 'Hér er mynd af árekstri sem varð á gatna'
'
mótum Miklubrautar og Grensásvegar á hinu mikla slysa og árekstrarári 1964. Þrir slösuðust, og báðir bílarnir skemmdust melra og minna. Hvað
skyldi þessi .eÍJDÍ árekstur hafa kostað tryggingafélögin? (Timamynd KJ.)
HALLI TRYGGINGANNA FRÁ 1964 KEMUR EKKINIÐUR Á TRYGGINGARTÖKUM
SKILDU 33% EFTIR
IGÞ-Reykjavík, þriðjudag.
Hækkanir þær, sem tryggiinga
félögin hafa séð sig tilneydd að
boða á iðgjöldum af bflatrygging
um í ár, hafa komið mörgum bfla-
eigendum á óvart. Hafa trygginga
félögin legið undir ámæli fyrir
þessar hækkanir. Hins vegar er
það staðreynd, að nauðsynlegt hef j
ur orðið að hækka iðgjöldin, |
í
30% í
bónus
IGÞ-Reykjavík, þriðjudag.
í viðtali, sem Tíminn átti
við Ásgeir Magnússon, fram
kvæmdastjóra Samvinnu-
trygginga í dag, upplýsti
hann m. a. hver væru ið-
gjöldin af tryggingum bíla
til einkanota, þeirra, sem
hefðu ekki orðið valdir að
neinu tjóni og fá því 30%
afslátt bæði árið 1964 og í
ár.
Iðgjaldið af tryggingu
bíls af meðalstærð var árið
1964 krónur 2100.
Iðgjald af sama bíl í ár
verður 3710.
Iðgjald af tryggingu
amerísks bíls, stórum, var
árið 1964 krónur 2520.
Iðgjald af sama bíl í ár
L ' rður 4760.
L- P
vegna hækkana á ýmsum sviðum,
Iðgjaldahækkunin er verðbólgu-
fyrirbæri, eins og aðrar hækkanir
í landinu.
Hún stafar líka af auknum bfla
kosti í landinu og tjónaaukningin
hér á sér að því leyti hliðstæðu
við skyndilega aukningu bíla hjá
öðrum þjóðum. Þegar t. d. inn-
flutningur bfla var gefinn frjáls!
í Danmörku fyrir nokkrum árumj
fylgdi ör fjölgun tjóna í kjölfariðj
og jafnframt hækkun iðgjalda.
Tíminn sneri sér í dag til Ás-j
geirs Magnússonar, framkvæmda-j
stjóra Samvinnutrygginga, og!
spurði hann um ástæðurnar fyrir
iðgjaldahækkuninni og ástandið í
þeirri tryggingarstarfsemi sem
varðar bíla. Eins og kunnugt er,
hafa Samvinnutryggingar haft
algjöra sérstöðu sem tryggingafyr-
Ásgeir Magnússon
irtæki frá stofnun þeirra. Þær j
tóku upp ,bónus,“ kerfið, sem varð j
til þess að önnur tryggingafélög I
sáu sig tilneydd að gera slíkt hið*
sama. Þessi „bónus“ þýðit nú
þrjátíu prósent afslátt af iðgjöld
um þeirra, sem engum tjónum
valda, og fría tryggingu ellefta
árið, eftir 10 ár án tjóns. Sam-
vinnutryggingar greiða einnig arð
af tekjuafgangi sínum, sé hann
fyrir hendi, til tryggjenda, og hafa
önnur tryggingafélög einnig orðið
að taka það atriði upp, þótt í
annarri mynd sé. Þannig hafa þær
frá upphafi haft forustu um trygg
ingar, er séu til hagsbóta fyrir
tryggjendur.
Þegar Ásgeir var spurður um
þetta, sagði hann: — Eins lengi og
ég man eftir hafa öll trygginga-
félögin notað sömu iðgjöld. Sam-
vinnutryggingar hafa greitt tekju
afgang þegar afkoma trygginganna
’.eyfir það, og þannig er um öll
Framhald á 14. síðu.
PANTA HRINGFERÐIR ÚT
AFGRE1NÍN.Y. TIMES
FB-Reykjavík, þriðjudag.
Útlendingar virðast stöðugt vera
að fá meiri og meiri áhuga á ferð-
um hingað til lands og fjöldi ferða
manna þessara tekur sér far með
ms. Esju í hringferð kringum
landið. í vetur hafa borizt fjöl-
margar fyrirspurnir og pantanir
fyrir sumarið, og er þar jafnt um
fólk að ræða vestan hafs og aust-
an.
— Blaðamaður New York
Times kom hingað í fyrra og fór
með Esjunni austur um land til
Húsavíkur og skrifaði eftir þá
ferð grein í blaðið, sagði Guðjón
Teitsson forstjóri Skipaútgerðar-
innar í dag. — Greinin kom í blað-
inu í janúar síðast liðnum og út
á þessa einu grein hafa komið tug
ir fyrirspurna, og þar með margar
ákveðnar bókanir farþega.
Ekki sagðist Guðjón halda, að
hér væri neitt frekar um Vestur-
íslendinga að ræða heldur en aðra
Bandaríkjamenn, og menn frá
Framhald á 2. síðu.
NTB-Kaupmannahöfn,
þriðjudag.
Nikita Krustjoff, fyrrum
forsætisráðherra Sovétríkj-
anna, rauf í gær tveggja
mánaða þögn sína um stjórn
mál og ræddi stuttlega við
Moskvufréttaritara danska
blaðsins Politiken og
sænska blaðsins Dagens Ny-
heter. Viðtalið átti sér stað
á listasýningu einni í
Moskvu, þar sem Krustjoff
var í tæpan klukkutíma
ásamt eiginkonu sinni, Nínu
Petrovnu, lífverði og leið-
sögumanni.
— Heimurinn verður að
læra friðsamlega sambúð —
sagði Krustjoff og hann
hélt áfram: — Tilraunir
til þess að leysa deilur með
vopnum er aðferð, sem verð
ur að heyra fortíðinni til.
Annars endar það með
skelfingu. Það byrjar alltaf
smátt, eins og í Víetnam og
endar með algerri eyðingu.
Þess vegna óska ég heimin-
um friðar.—
Það var fyrst í lok heim-
sóknar sinnar í listasafnið,
að Krustjoff fékkst til þess
að tala við fréttaritarana.
Rödd hans var alvarleg, en
hann brosti og augun leiftr
uðu eins og svo oft áður,
þegar hann hélt óvæpta
blaðamannafundi í Kreml.
Hann talaði fyrst hægt og
lítið eitt hikandi, en s#tnna
talaði hann hraðar. Orðróm
ur um að Krustjoff var í
safninu breiddist fljótt út
og brátt söfnuðust margir
forvitnir gestir í kringum
hann.
— Ég er kommúnisti —
sagði Krustjoff. — Ég trúi
Framh. á bls. 2.
Nikita Krustjoff
— eftir tveggja mánaða þögn