Tíminn - 07.04.1965, Blaðsíða 16

Tíminn - 07.04.1965, Blaðsíða 16
Tækið sem þið sjáið aftan á bílnum hér á myndinni fyrir neðan er steypndæla, sú fyrsta sinn- ar tegundar sem flutt er frá Bandaríkýunum til Evrópu. Eru eigendur þessa tækis þeir Þórður Kristjánsson og Þórður Þórðarson byggingameistarar og Benedikt Magnússon frá Vallá, en Jó- hannes Bjamason verkfr. aðstoðaði við kaupin. Getur dæla þessi dælt steypu upp í 30 metra hæð, eða upp á tíundu hæð húsa, og um hundrað metra vegalengd, sem er mjög þægilegt þegar erfitt er að komast að sjálfum vinnustaðnum. Steypudælan afkastar um 20 rúmmetrum á klukkutíma, og er nýting stevpuefnisins mjög góð með noktun hennar. Þá er ótalinn sá kostur dælunnar, að hún útilokar algjörlega slysahættu sem annars er mikil fyrir hendi þegar notaðir eru kran- ar við að hífa steypuna frá steypubílum og upp á hæðir húsa. Ætti þessi dæla að geta sparað byggingakostnað nokkuð, auk allra þæginda sem hún veitir við steypuvinnu. (Tímamynd K.J.) EIGNASKA 77- UR HÆKKADUR Þrefalda á gildandi fasteignamat viS áiagningu eigna- skatts tii að mæta framiagi ríkissj. til húsnæðismála. TK-Reykjavík, þriðjudag. Stjómarflokkarnir halda áfram að sá út álögum á landsmenn við meðferð mála á Alþingi. Meiri- hlutinn í heilbrigðis- og félags- málanefnd hefur nú lagt fram þá breytingatillögu, sem ætla má að verði samþykkt, við frumvarpið um húsnæðismálastofnun, að 40 Hádegis- klúbburinn kemur saman í dag á sama stað og tíma. Framsóknarkonur Félag Framsókn- arkvenna heldur fund i dag mið- vikudag í Tjamargötu 26, og hefst hann kl. 8.30. Halldór E. Sigurðsson al- þingismaður flyt ur ræðu. Stjómin milljón króna framlaginu til Bygg ingarsjóðs ríkisins úr ríkissjóði skuli mætt með hækkun eigna- skatts, þ. e. að eignaskatt skuli miða við þrcfaldað gildandi fast- eignamat. Breytingatillaga meirihlutans er svohljóðandi um þetta efni: „Framlag úr ríkissjóði, að fjár- hæð kr. 40 þús. Til þess að mæta þessum útgjöldum skal miða eignaskatt við gildandi fasteigna- mat þrefaldað. Þetta gildir þó ekki fyrir þá skattgreiðendur, sem eiga lögheimili á sveitabæj- um“. Til skýringar á síðustu setning- unni er rétt að taka fram, að þeir sem búa í sveitum, fá ekki lán úr Byggingasjóði ríkisins, heldur Stofnlánadeild landbúnaðarins. Karl Kristjánsson benti á það í dag við 2. umræðu um frum- varpið, að hér væri um mikla meinloku að ræða. Laumað væri ákvæði um hækkun eigna- skátts inn í frumvarp um húsnæð- islán. Hækkun eignaskattsins ætti að sjálfsögðu að gera með breyt- ingu á lögum um eignaskatt. Hér væri um viðbótarálögur að ræða til viðbótar mörgum öðrum. Álög- Framhald á 14. síðu. D0NW00D VERÐUR El BJARGAÐ EJ—Reykjavík, þriðjudag. Björgunartilraunum við brezka togarann Donwood, sem strandaði við Heima- klett fyrir nokkru, hefur nú verið hætt af hendi vá- tryggingafélagsins. Norska björgunarskipið Akkiles hef ur gefizt upp við að ná tog- aranum út og fór heim til Noregs s.l. laugardag. í fyrstu var talið, að ó- möguíegt væri að ná togar anum út, og vildi Landhelg isgæzlan m.a. ekki taka það verk að sér. Norskt björgun arfyrirtæki taldi aftur á móti, að hægt væri að bjarga togaranum og sendi hingað björgunarskipið Akkiles, sem gerði ítrekað ar tilraunir, en án árangurs. Nú hafa þeir gefizt upp, og hefur vátryggingafélagið hætt við allar frekari björg unartilraunir. Vont veður er nú við Vest mannaeyjar, og fréttaritari Tímans þar sagði í dag, að Donwood fengi margar slæmar skeUur nú, þar sem hann liggur strandaður við Heimaklett. I Krefjast 810 þúsund kr. fyrir 720 flugstundir JHM-Reykjavik, þriðjudag. Eins og skýrt hefur verið frá hér í blaðinu, stendur nú yfir verkfall hjá þeim flugmönnum Loftleiða, sem fljúga hinum nýju Rolls Royce-vélum félagsins. Samningafundir hafa staðið yfir hjá viðkomandi aðilum þar til í gærkveldi, en þá slitnaði upp úr viðræðum. Torfi Hjartarson, sátta- semjari ríkisins, tjáði blaðinu, að engir nýir fund-ir hafi verið boðað- ir. Ekki hefur komið til samninga- viðræðna um jafnháar launakröfur hér á landi áður. Óhætt er að segja að hliðstæð laun meðal flug- manna þekkist ekki í nágranna- löndunum, það er að segja á Norð- urlöndunum og í Bretlandi. Flugmennirnir, sem nú hafa um 450—500.000 krónur í árslaun að öllu meðtöldu, vilja nú fá hvorki meira né minna en 810.000 króna árslaun fyrir flugstjórn, sem er algert met í launakröfum hér á fslandi. Þessi umbeðnu laun eru hærri en laun flugmanna hjá stóru flugfélögunum SAS og BOAC. Ef flugmennirnir koma þessum geysilegu kröfum í gegn, þýðir það, að flugstjórarnir á Rolls Royce vélum Loftleiða fengju 67.500 krónur á mánuði í laun fyrir 60 stundir. Blaðið hefur það eftir' góðum heimildum, að stjórn Loftleiða sé mjög undrandi á slíkum kröfum, og að samningar komi til með að verða all erfiðir og langir. Hinar tvær Rolls Royce vélar Loftleiða, sem taka hvor um sig 160 farþega, eru nú stanz er- lendis, önnur í Evrópu en hin í Ameríku. Þetta verkfall er mjög erfitt fyrir Loftleiðir, þar sem aðal ferðamannastraumurinn aust- ur yfir Atlantshaf er rétt að byrja. Eftirfarandi fréttatilkynning um verkfallið barst blaðinu í dag frá Vinnuveitendasambandi íslands: Hinn 27. maí 1964 voru kaup- og kjarasamningar undirritaðir af flugfélögunum og Félagi íslenzkra atvinnuflugmanna og skyldu þeir gilda til 1. febrúar 1966. Var það gert með þeim fyrirvara af hálfu Loftleiða að samningar tækjust innan eðlilegs tíma varðandi Rolls Royce 400 flugvélarnar, sem þá höfðu enn ekki verið teknar í notkun. í sl. ágústmánuði hófust viðræð- ur milli fulltrúa áhafna á Rolls Framhald á 14. siðu. GAMALL SIÐUR ENDURVAKINN í NESKIRKJU Lýst með hjónum KJ—Reykjavík, föstudag. | Hér áður fyrr var það algengt hann hefði farið til prestsins til !að lýst væri með hjónaefnum og að ræða um hina væntanlegu Sjaldgæfa tilkynningu gefur aðivar það þá gert á sama hátt og hjónavígslu, og hefði þá borið á líta þessa dagana á aðaldyrum | nú, með upphengingu lýsingar, góma milli þeirra hin gamla hefð Neskirkju í Reykjavík. Er þetta eða þá, sem er öllu eldra, að prest að lýsa með hjónaefnum. Síðan lýsing með ungum hjónaefnum ur lýsti með hjónaefnum af stóli hefði verið gengið úr skugga um sem hyggjast ganga i heilagt þrjá sunnudaga í röð. Séra Frank að lýsing væri enn í fullu gildi, og lijónaband 17. aipríl n. k. Halldórsson tjáði blaðinu að sér þeir síðan ákveðið að hafa þann Séra Frank Halldórsson undir- væri síðast kunnugt um lýsingu háttinn á fyrir hjónavígsluna. ritar þessa lýsingu, sem hljóðar á hér árið 1950 á dyrum Dómkirkj Hér er gamal] siður endurvak- þá leið að brúðhjónin ætli að unnar. Lýsingin þarf að vera uppi, inn, sem fleiri hjónaefni eiga á- ganga í hjónaband 17. apríl og viti á kirkjudyrum í þrjár vikur, og1 reiðanlega eftir að fylgja, því nokkrir meinbugi á þvi eru þeir kemur í stað leyfisbréfs. hvað er það ekki sem ungt fólk beðnir að hafa samband við Frank tekur upp á til þess að vera frum sem allra fyrst. Brúðguminn tjáði blaðinu að legt.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.