Tíminn - 07.04.1965, Side 2

Tíminn - 07.04.1965, Side 2
2 TiMINN MIÐVIKUDAGUR 7. aprfl 1965 Þriðjudagur, 6. aprfl. NTBBerlín. — A-Þýzkaland lokaði í dag þjóðvegunum milli Vestur-Berlínar og Vestur -Þýzkalands annan daginn í röð til þess að mótmæla fundi vestur-þýzka þingsins, sem hefst í V-Berlín á miðvikudag- inn. Vegunum var lokað í fjórar og hálfa klukkustund. Sovézkar herþotur flugu í dag inn yfir Vestur-Berlín og renndu sér yfir flugvöllinn, Tempel Hof„ í aðeins 250 m. hæð. Ludwig Erhard, kanslari V- Þýzkalands, kom í kvöld með flugvél til V-Berlínar til þess að sitja fundi þingsins, sem forseti þess, Eugen Gestenmai er, mun setja á morgun. Willy Brandt, borgarstjóri, mun einn ig halda ræðu. NTB-Moskvu. — Izvestija, blað sovézku ríkisstjórnarinnar, skrifar í dag, að fundur vest- ur-þýzka þingsins í V-Berlín gæti leitt til óþægilegra vandræða, en skilgreindi ekk ert frekar við hvað var átt. Þá hefur það vakið undrun manna, að tveir af háttsettustu hershöfðingjum Sovétríkjanna eru komnir til Austur-Berlínar, þeir Andrei Gretsjko, aðstoðar varnarmálaráðherra, og Kon- stantin Versjinin, yfirmaður flughersins. NTB-Houston. — Geimfararnir Walter Schirra og Thomas Stafford voru f gær valdir til þess að fara út í geiminn með tveim Gimini-geimförum f haust. Geimförin eiga að mæt- ast f geimnum. NTB-Saigon. — Hörkubardag ar geisuðu í dag milli suður- víetnamískra hermanna og Viet Cong-manna um 710 km. suðvestur af Saigon. 135 her menn stjórnarinnar féllu í bardögunum, sem hófust á sunnudag. Talið er að Viet Cong hafi misst 121 mann. Bar izt er á mýrasvæði og hrís- grjónaökrum. NTB-Teheran. — Utanríkis- ráðherrar CENTO-ríkjanna koma saman til fundar á mið- vikudaginn, og verður m. a. rætt um Kýpurdeiluna, NTB-Colombo. — 11 menn, sem verið hafa ákærðir fyrir að hafa skipulagt byltingu á Ceylon í tið Sirimavo Bandar anaika, voru í dag dæmdir í 10 ára fangelsi NTB-Aþenu. — A. m. k. 30. 000 manns urðu heimilislaus í jarðskjálftunum í suðurhluta Grikklands á mánudaginn Er þó talið, að þessi tala geti verið ennþá hærri 17 létu lífið og 203 særðust NTB-New Vork. - Sérstök stofnun Sameinuðu þjóðanna, sem á að vinna að því að finna nýjar leiðir í heimsviðskiptun- um með það fyrir augum að fullnægja þörfum vanþróaðra ríkja, kom saman til síns fyrsta fundar í dag. Stofnun þessi — Trade and Develop- ment Board — hefur fulltrúa frá 54 löndum. Brezku fjárlögin lögð fram í gær. I- Aðalverkefnin eru: . JAFNVÆGI í UTANRÍKISVIÐ- SKIPTUM OG ÖR HAGVÖXTUR NTB-LONDON, þriðjudag. James Callaghan, fjármálaráðherra Bretlands, sagði í neðri deild brezka þingsins í dag, að rfldsstjórnin mundi leggja ný gjöld á sígarettur, drykkjarföng og bifreiðar þegar í stað til þess að draga úr neyzlu heimafyrir. Jafnframt boðaði hann nýjar ráðstafanir til þess að draga úr fjárfestingu erlendis og auka fjárfestingu Breta í sínu eigin landi, en með þessu vonaði hann, að ríkisstjórninni tæk- ist að koma á jafnvægi á greiðslujöfnuðinum við útlönd. Þá boðaði Caliaghan nýja skatta og kvað nauðsynlegt að taka skattalöggjöfina til algerrar endurskoðunar. Callaghan talaði í tvo tíma um fjárlögin, sem eru hin fyrstu sem stjórn Verkamannaflokksins hefur lagt fram í Brétlandi í 14 ár, og felast í þeim ýmsar aðgerðir til þess að leysa efnahagsvandræði Bretlands. Fjárlögin þýða samtals 164 mllljón punda skattahækkun, t en það er um það bil sú upphæð, sem búist var við. Callaghan lagði áherzlu á, að aðalverkefnið væri að skapa jafn- vægi i utanríkisviðskiptum Breta, sem voru óhagstæð um 745 millj. punda í fyrra. Neyzla innanlands verður að minnka um 200 milljón ir punda. Þetta verður gert með því að hætta við fyrirhugaða smíði TSR 2, sem er sprengjuflug vél, sem fer hraðar en hljóðið. Þýðir þetta 35 milljón punda sparnað á ári, en hingað til hefur smíði.,. þessarar yélar kostað Bret^,lg5:,wtltUÁpi? punda. Hærri flutningsgjöld munu huka tekjur ríkiains um aðrar 35 millj. punda, en afganginn, 164 milljónir, í innanlandsneyzlunni verður að fá með auknum sköttum og gjöldum- . Fjárfestingar í útlöndum til langs tíma verða minnkaðar um a. m. k. 100 milljónir punda í ár, sagði Callaghan, sem boðaði einnig algjöra endurskoðun skatt kerfisins, endurskoðun, sem mun taka niörg ár. í ræðu sinni kom hann fram með eftirtalda nýja ' skatta: Tekjur af öllum eígnum, sem seldar eru, verða skattlagðar. Fáar undantekningar eru frá þessari reglu, en sú þýðingarmesta er að sala eigna eða vara, fyrir minna p en 1000 pund eru skattfrjáls. Þessi Færeyingar vilja breyt- nýi skattur gefur ríkinu 125 millj ón punda tekjur á ári. Tekjur af ríkisskuldabréfum eða öðrum verðbréfum með föstum vöxtum verða hér eftír ékki skattfrjáls. Undantekningar eru þó góðgerðar stofnanir, lífeyrissjóðir og erlend ar stofnanir. Skynditekjur af sölu, þ. e. tekj- ur, sem eru fengnar á einu ári frá 6. apríl í ár að telja, skattleggj ast sem venjulegar tekjur, en slíkar tekjur, sem fást á meira en einu ári, verða skattlagðar með 30%. Tekjur fyrirtækja verða skattlagðar samkvæmt lögum um fyrirtækjaskatt. Cr/ aghan sagði, að fyrirtæki fengju ekki lengur að skrifa miðdegisverði og aðrar móttökur fyrir viðskiptavini sína, aðra en útlendínga, sem frádrátt á skattskýrsluna. Hann gagnrýndi einnig bilastyrk fyrirtækja. Sagði harín, að hér eftir fengju þau ekki 30% afskrift ; íýrst'a árið. Það eina. sem fyrihækiii fá, 'er viss árlegur styrkur. Menn með Jazzkvöid í Súlnasalnum A.F.S.-félagið i Reykjavík — samtök skólanema. sem dvalizt hafa í Bandaríkjunum á vegum American Field Service — efnir til jazzkvölds í Súlnasal Hótel Sögu n- k. miðvikudag, 7. aprfl, kl. 9 síðdegis. Þarna munu koma fram tvær íslenzkar jazzhljómsveitir undir stjórn Gunnars Ormslev og Arnar Ármanns, en auk þess mun leika 13 manna hljómsveit af Keflavík urvelli. Kynnir kvöldsins verður Ólafur Stephensen. háar tekjur fá einnig að finna fyrir nýrri ákviirðun í sambandi við skattinn; hér eftír geta þeir ekki dregið samningsbundnar gjaf ir til stofnana frá tekjum sínum né heldur talið stimpilgjöld í sambandi við eignasölu sem frá- drátt. Þetta veitir ríkinu tugi milljóna í tekjur. Hann vildi ekki segja nákvæmlega hversu hár fyr irtækjaskatturinn yrði, en taldi, að hann myndi að öllum lík indum ekki fara yfir 40%. Callaghan sagði, að stofnaðir yrðu svonefndir póstsparibankar sem veitir 5% vextí á innlagt fé. Sagði hann, að mikil þörf væri fyrir aukinn spamað í Bretlandi, en landið ætti að geta staðið und- ir endurreísnar- og endurnýjunar áætlunum sínum. Aðalatriðið í dag væri að ,koma á jafnvægi í viðskiptunum við útlönd, og yrði að takmarka einkaneyzlu þar til þetta tæklst. Veigamestu verk- efni okkar eru að koma á viðun andi greiðslujöfnuði og auka hag vöxtinn sagði hann. Bílaskatturinn mun hækka úr ESJUFERÐIR Framhald at 1. síðu Ameríkuríkjum almennt. — Það virðist, sem þeir komi hingað oft eingöngu til þess að fara þessa einu ferð, ságði Guðjón', — og að henni lokinni fara þeir austur aft- ur. Við vorum til dæmis að bóka núna fyrir skömmu fjölskyldu frá Jamaica, þrennt, sem ætlar að koma hingað og fara hringferð með Esjunni út á þessa grein í New York Times. Maður sér af þessu, að þetta blað er alveg stór- kostlega voldugt. Hringferðir Esjunnar eru eigin- lega allt árið, en ferðamanna- straumurinn byrjar ekki fyrr en í júní eða júlí. Ferðin tekur sex og hálfan til sjö daga, og er til skipt- is farið vestur um og austur um land. Skipaútgerðin hefur einnig gefið farþegum kost á að fara smá ferðir í landi á meðan skipið hef- ur viðdvöl í höfnum. Fyrir austan er farið upp á Fljótsdalshérað og þegar skipið er á Húsavík eða Ak- ureyri gefst tækifæri til þess að fara í Mývatnssveit. Esjan tekur um 148 farþega í kojur. 1800 kr. íslenzkum í 2100 kr., sígarettupakkinn hækkar um 3 krónur, Whisky eða Gin um 24 kr. pr. flösku, öl um 60 aura pr. hálfan líter, sterkt vín um 9 kr. og létt vín um 6 kr. pr. flösku. Persónufrádráttur hækkar, bæði fyrír einstaklinga og hjón, um 2400 kr í ár, þannig, að ein- staklingur greiðir ekki skatt af fyrstu 26.400 krónunum og hjón ekki af fyrstu 38.400 kr. Brezku fjárlögunum var vel tek íð víðast hvar í dag, svo og vel í New York, Washington, hjá EBE í Brussel og í bankaheimin um í Sviss. Eru fjárlögin talin sterk og skref í rétta átt. KRUSTJOFF FramhalO al l síðu. á kommúnismann og hinn endanlega sigur hans. En þér eruð kapitalisti og auð- vitað trúið þér á kapitalism- ann. Og samt sem áður verð um við að lifa saman í friði. — Það leit út fyrir að Krust- joff ætlaði að segja meira, en kona hans, Nína, tók um arm hans og sagði: — Við verðum að fara. — Fréttaritari Politiken bæt ir við: — Hanp lét eftir sig stuttan pólitískan boðskap. Boðskap, sem frekar en allt annað' vitnar um, að hann trúir ennþá á hæfileika sína sem stjórnmálamaður, á hæfileika sína til þess að leiða eina af stærstu þjóð- um heimsins. En eftir liggja ósvaraðar margar spurning- ar og spurningamerki, því að hann vildi ekkert segja um, hvernig hann var sett- ur frá völdum og hversu hart hann barðist gegn því, né heldur hvaða álit hann hefur á eftirmönnum sínum og hvernig líf hans er nú í dag. Krustjoff var frísklegur í útliti og lítið eitt sólbrennd ur. Hann gekk um sali safns ins klæddur í dimmblá föt, hvítri skyrtu og með blátt silkibindi með rauðum fer- hyrningi í. ingar á Heimastjórn- arlögunum Aðils-Khöfn, þriðjudag. Hákon Djurhuus lagði í gær fram fyrir hönd færeysku lands stjórnarinnar tillögu um víðtækar breytingar á lö'gunum frá 1948 um heimastjórn Færeyja. í tillögu landsstjórnarinnar seg ir m.a. að í framtíðinni skuli Færeyingar, sem ferðast til ann arra landa, hafa vegabréf, þar sem þeir eru sagðir Færeyingar án þess að nokkuð sé minnzt á sam- band þeirra við Danmörku. Fær- eyingar skuli ekkj lengur eiga þingmenn í danska þjóðþinginu. Færeyski fáninn skal viðurkennd ur eins og ríkisfánar annarra ríkja Færeyingar eigi sjálfir að gera samninga við erlend ríki um mál, s«m einungis smerta Færeyjar. Að lokum er lagt til. að grein sú i umræddum lögum, sem kveður á um, að landsstjórnin skuli strax senda ríkisumboðsmanninum til- kynningu uni samþykktir sinar. skuli faUa niður. Sparar eUsneytískosaað bíla um allt að helming KJ—Reykjavík, oriðjudag Fyrir nokkru kom á markað inn i Bandaríkjunum nýtt kerfi sem spara á eldsneytiskostnað bif reiða ailt að 50% Agúst Jónsson Laugavegi 19 hefur fengið umboð fyrir kerfi þetta hér á landi, sem nefnist, DYNATRON og eru þeg ar fyrirliggjandi hjá honum sett i flest allar gerðir bifreiða. Kerfi þetta, ef kerfi skyldi kalla þvi í raun og veru er þetta að- eins Sérstök skrúfa sem skrúfuð ar i útrennslisgatið á olíupönn unni, og lítill sívalningur sem komið er fyrir á leiðslunni milli benzíndælunnar og blöndungsins, er mjög auðvelt að koma því fyr I ir. Sá sem fann upp þessa aðferð Ivið að minnka eldneytiskostnaðinn heitir Winthrop A. Johns, banda- ríkjamaður og var áður eldflauga sérfræðingur Fann hann upp þessa sparnaðaraðferð af algjörri tilviljun. þegar hann vann að því að finns heppilegt eldsneyti fyrir eldflaugar. Má segja með þessa uppgötvun eins og svo margar aðrar t. d. penisilínið að þær verða fyrir algjöra tilviljun Uppgötvunin byggist á því að i þessari skrúfu sem skrúfuð er i olíuponnuna er ..magnhetta" sem dregur ti) sín ýmis óhreinindi sem ailtai eru t olíunni, og einnig járnsvarf og flísar sem annars myndu fara með olíunni um véiina Sívalningurinn sem xornið er tyrir a letðsluna milli benzindælunnar og biönd- jungsins hefur inni að halda fast |og fljótandi efni sem gerir það I að verkum að benzínið nýtist I miklu betur, og bíllinn fær meiri | kraft. DYNATRON kerfið endist í 50 þúsund mílur eða jafnlengi og venjuleg bílvél endist. DYNA- TRON kerfið fer að verka strax og það er sett i bílinn, en hve mikið það sparat benzímð ter eft ir bifreiðinni sjálfri, ástandi henn ar og hvernig henni er ekið. DYNATRON kerfið hefur verið sett i bifre'ðir hér á landi og hef ur árangur aí þvi verið mjög iá- kvæður. Þó er einnig hægt að setja það i dráttarvélar og diesel- hrevfla Ágúst Jónsson L,augaveg 19 gefur allar upplýsrngar um kerfið.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.