Alþýðublaðið - 01.04.1958, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 01.04.1958, Blaðsíða 11
Þriðjudag 1. apríl 1958. A1 þ ý 3 n b 1 a » 1 9 11 í DA-G er þriðjudaguririH, 1. apríl 1958. Slysavarðsíofa KeyKjavIltBr er opin allan sólarhringinn. Nætur- læknir L.R. kl. 18—8. Sími 15030. Eftirtalin apóíek eru opin kl. 9—20 alla daga, nema laugar- daga-kl. 9—16 og sunnudaga kl. 13_16: Apótek Austurbæjar (sími 19270), Garðsapótek (sími 34006), Holtsapótek (sími 33233) og Vesturbæjar apótek ísími 22290). Bæjarbókasafn fbuykjavíkur, Þingholtsstræti 29 A, sími 1 23 08. Útlán opið virka daga il. 2—10, laugardaga 1—4. Les- stofa opin kl. 10—12 og 1—10, laugardaga kl. 1-0—12 og 1—4. Lokað á sunnudögum yfir sum- armánuðina. Útibú: Hólmgarði 34 opið mánudaga, miðvikudaga og föstudaga ki. 5—7; Hofsvalls Sötu 16 opið hvern virkan dag nema laugardaga kl. 6—7; Efsts sundi 36 opið mánudaga, mið- vikudaga og föstudaga kl. 5.30— 7.30. FLUGFERÐIR Flugfélag fslands h.f.: Miliilandaflug; Hrímfaxi er Væntanlegur til Reykjavíkur kl. 16.05 í dag frá London og Glao- gow. Fiugvéiin fer til Glasgow, Kaupmannahafnar og Hamborg- ar kl. 08.30 í fyrramálið. — Innanlandsflug: f dag er áætl að að fljúga til Akurevrar (2 ferðir), Blönduóss, Egilstaða, -— Flateyrar, Sauðárkróks, Vestm,- eyja og iÞngeyrar. — Á morgun er áætlað' að fijúga til Akuréyr- ar, ísafjarðar og Véstmannaeyja. Loftleiðir h.f.: Edda kom til Reykjavíkur kl. 07.00 í morgun frá New York. Fór til Glasgow og London kl. 08.30. Hekla er væntanleg kl. 07.00 í fyrrarnálið frá New York. Fer til Stafangurs, Kaupmanna- hafnar og Hamborgar kl. 08.30. S KIPAFR£ T TIR Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á Austfjörðum á norð urleið. Esja fer frá Reykjavík á tnorgun vestur um land til Akur- eyrar. Herðubreið er á leið frá Austfjörðum til Reykjavíkur. — Skjaldbreið er væntanleg til Rvk í dag ao vestan. Þyrill er á leið frá Akureyri til Reykjavíkur,. — Skaftfellingur fer frá Reykja- vík á morgun til Vest-manna- eyja. Eimskipaféiag íslands h.f.: Dettifoss kom til Kaupmáuna hafnar 30.3. fer þaðan væntan- iega í kvöld 31.3 til Reykjavík- ur. Fjallfoss fer frá Hafnarfirði kl. 21.00 í kvöld 31.3. til Brem- en’, Hamborgar, Rotterdam og Hull. Goðafoss kom til New York 30.3. frá Reykjavík. Gull- LEIGUBÍLAR BifrtíiSastöð Steindérs Sími 1-15-80 —o— Bifreiðastöð Reykjavíkur Sími 1-17-20 SENDIBÍLAR SsndibílastöSm Þröstur Sími 2-21-75 EH3DCI foss er í Kaupmannahöfn. Lagar foss fór frá Vestmannaeyjum 26. 3. til London, Rotterdam og Ventsuils. Reykjafoss kom til Reykjavíkur 30.3. frá Hamborg. Tröllafoss fer frá Reykjavík ann að kvöld 1.4; til New York. — Tungufoss kom til Lysekil í morgun fer þaðan á morgun 1.4. til Gautaborgar, Hamborgar og Reykjavíkur. Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell er væntanlegi til Rotterdam í dag, Arnarfell er væntanlegt til Rotterdam í dag. Jökulfell er væntanlegt til New York 3. apríl. Dísarfell er í Reykjavík. Litlafell er í Rends- burg. Helgafell er væntanlegt til Akureyrar í dag. Hamrafell er væntanlegt til Reykjavíkur 4. apríl. Troja lestar sement í Álu- ’oorg til Keflavíkur. FDNDIU Lögfræðingafélag íslands, — Fundur til að ræða og ganga frá stofnun allsehrjarfélags ísl. lög- fræðinga verður haldinu í kennslustofu (1.) Háskóíans í dag, þriðjudag, 1. apríl kl. 17. Kveníélag Háteigssóknar, — Fundur í kvöid kl. 8,30 í Sjó- mannaskólanum. Kvenfélag Halgrímskirkjii — minnir félagslconur á aðalfund sinn í kvöld kl. 8,30 e. h: í fá- lagsheimili prentara, Hveríis- götu 21. Kvenfélag Laugarnessóknar. munið afmælisfundinn í kvöld í kirkjukjallaranum kl. 8,30. — Kvikmyndasýning o. fl. Leikfangahappdrætti Hrings- ins viðkomandi kaffisölunni í fyrradag. Upp komu þsesi núm- er: 1) Dúkkurúm, 806, 2) Stór dúkka, 254, 3) Dúkkuhús, 407, 4) Dúkka, 627, 5) Vörubíll, 815, 6) Vörubíll, 887. — Vinniiig- anna má vitja í Garðarstræti 44 milli kl. 3 og 6 í dag. Happdrætti Háskóla íslands. Dregið verður í 4. flokki fimmtu daginn 10’. apríl. Vegna páska- hátíðarinnar verða færri sölu- dagar en venjulega, og er rétt að benda á, að ekki eru nerna 2 virkir dagar frá páskum þangað til dregið verður. Fiúkirkjusöfnuðurinn í Haín- arfirði. Er fluttur á Hávallag. 25. Séra Kristinn Stefánsson. J. IVEagnús Bfarnasons Nr« @S I ÍRIKUR HAMSSON Skáldsaga frá Nýja Skotlandi. II S V \ s $ FARFUGLAR. Þeir, sem ætla að dvelja í Heiðarbcli um páskana. vin- samlegast tilkynmi þátttöku sína í kvöld kl. 7—8 á skrif- stofu féiagsins, Lindarg. 50. þangað til hún var fiögur. Eg varð því að sætta mig við að bíða rúma hálfa þriðiu klulcku -stund, því að ég gat ekki fanð fyrr en með síðari lesti'nni, sem ætlaði til Trúró. Ég setti mig niður á bak við kistusta-flann, þar sem farang- urinn minn var. Þar var skuggi og lítil umferð, og gat ég séð þaðan á klukkuna. Alltaf hafði ég augun á klukkunni. Vísarnir voru sein- fara, þótti mér. en samt þokaði þeim 'áfram. Klukkan varð fjögur. Þá lagði lest af stað til Trúró. Klukkan varð hál-f- fimm, og önnur lest af stað til Annapolis. Klukkan sex kom lest frá Antigonish. Eg sat enn á sama stað og hreyfði mig ekki en hcrfði stöðugt á klukkuna, eins og líf mitt lægi við því, ef ég liti af henni eitt einasta augnablik. Fólkið kom og fór, ökrumennirnir komu með fulla vagna af fólki og flutningi og fóru með eins mikið aftur. Menn hlupu til og frá og köll uðu og æptu. Sumir óku hjól- börum með kistum á, aðrir hentu kistum og töskurn upp í vagnana eða köstuðu farangri úr þeim. Menn komu hlaupandi | með töskur í höndunum, kóf- sveittir og aðfram komnir af mæði. Allt var á ferð og flugi. Svo varð dauðaþögn litla stund, og það sást aðeins einn og einn maður á gangi. Svo allt í einu var múgur og margmenni kom ið á ný, og ekkert hein’ðist fyr ir cipi og köllum og skrölti. Ég sat alltaf- á sama stað. Klukkan sex og tíu mínútur fór lest af stað til Pictou, og fimm mínútum síðar kom lest in frá Point Lávis. Tvisvar gekk lögregluþjónn .skammt frá mér, en tók ekki eftir mér. Ðn mér var ekki rótt á meðan hann var á reiki í kringum kistuhlaðann, sem ég sat á bak við. Klukkan varð loksins hálf- sjö. G.ufuvélin var fyrir nokkru komin fyrir lestina,. sem atti að fara til Trúró, og sem átti að -koma við í Shubenacadie, og íjöldi fólks var þegar kominn inn í vagnana. Allt í einu hringdi stór bialla fyrir utan dyrnar á stofunni, þar sem far bréfin voru seld, og um leið hreyfðist vélin og öll lestin seig hægt af stað. Ég hlj.óp með töskuna ntína og pokann, þaðan sem ég hafði setið svo lengi, og komst með herkjumunum upp í vaaninn, sem var næstur þeim aftasta í lesinni, rétt í því að iestin var að skríða út undan hvelfingunni á vagn- stöðvaskálanum. Ég hefði farið miklu fyrr inn í vagninn, hefði ég ekki séð, að lögregluþjónn var- á ferð fram og aftur með lestinni, frá því að fyrsti far þeginn fór þar inn og þangað til að lestrn hreyfðist. Hann hefur hlotið að hafa séð mig, þegar ég hljóp eftir gagnstétt- inni á eftir lestinni, og hefur sjálfsagt ekki þekkt mig, en í myndað sér, að ég væri einn af þeirn unglingum, sem alltaf eru „á eftir tímanum“ og hafi verið heldur seinn að ná mér í farseðil. Ég settist í eina auða sætið, sem til var í vagninum. Tösk una og pokann lét ég undir bekkinn. Það var strax komið töluvert skrið á lestina ,og mér þótti þetta nýja ferðalag mitt ekki byrja svo illa eftir allt og allt. Ég ahifði að sönnu orðið að fara burtu úr borginni huldu höfði, og þurfti mikla stillingu og þolinmæði að bíða í skúmaskoti á vagnstöðvun- um, en ég var líka svo að segja alveg óhultur nú, af því ég var kominn á járnbrautar- liestina, og járnbrautarlestin komin á brunandi ferð í áttina til Shubenacadie. Þegar lestin var komin í gegnum bæinn Richmond, sem er örstutt fyrir norðan Halifax, þá kom farstjórinn inn í vagn- inn, sem ég var í, og tók við farbréfunum af farþegunum. Það var stór maður, rauð- skeggjaður. „Farbréfið!" sagði hann, þeg ar hann kom að mínu sæti. „Ég hefi ekki farbréf“, sagði ég. „Peninga þá“, sagði far- stjórinn. „Kcmst ég fyrir hálft far gjald“? sagði ég. „Hvað ertu gamall?“ „Fjórtán ára“, sagði ég. „En ég er svo lítill, að margur tólf ára gamall drengur er ekki minni“. „Hvert ætlarðu?11 „Til Shubenacadie“, sagði ég. „Hálft fargjald þangað er fjörutíu cents“. „Þú kemst ekki nema helm inginn af leiðinni fyrir þessa upphæð", sagði hinn rauð- skeggjaðí farstjóri. „Ég geri mig ánægðan með að standa á tröppunum fyrir ut an, ef þú vilt gera. svo vel að leyfa mér að vera á lestinni hinn helminginn af leiðinni fyr ir ekkert“, sagði ég. „Ekkert?“ sagði farstjórinn og hló kuldahiátur. „Ég skil ekki það orð“. „Það orð ér þó til í orðahók Websters“, sagði eineygur mað ur, sem s-at gagnvart mér, og lagði sterka brennivínslykt út úr honum og ýfir um til mín. „En það orð er ékki til í orða bók félags Intercolonial-járn- brautarinnar", ,sagði farstjór- inn þóttalega. „Það er illa farið“, sagði ein eygi maðurinn, „því að það fé lag getur aldrei látið svohljóð andi reglugjörð birtast í skjöl um sínum: Engan skal flytja fyrir ekkert“. „Það mundi stíla reglugjörð ina þannig: Engan skal flytja á vögnum félagsins, nema fyr- ir fulla borgun út í hönd“, sagði farstjórinn og lýsti sér dramb í rödd hans. „Þú spilaðir þar út bezta spaðanum jiþínum, 'kun-ningji“, sagði eineygi maðurinn. „En hvernig ferðu að með yfirlýs- inguna þá arna: „Ekkert getur komizt í samjöfnuð við félag vort“?“ „Við mundum segja: „Félag vort er makalaust“, sagði rauð skeggjaði farstjórinn. „Þar snuðaðir þú mig aftur, kunningi“, sagði eineygði mað;- urinn. „En ekker-t er eins illt og að hafa ekkert til að borga fyrir sig, þegar maður ferðast með járnbrautum þess félags, sem ekki skiltir hvað orðið ekk er-t þýðir“. Rau,3|s!ke(ggjaði faústjóriirn ■ svaraði nú engu, en hélt áfram. - að taka á móti farseðlunum, og að því búnu fór hann yfir í næsta vagninn. ~ Af því að fararstjórinn hafðf tekið við tuttugu centunum af mér, og hafði ekki þverneitað, þegar ég bað hann að leyfa mér að vera á lestinni alla leið til Shubenacadiei þó að ég gæti ekki borgað meira, þá hélt ég, að hann mundi sjá aumur á mér og verða við bón minni. Lestin brunaði áfram. Hún stöðvaðist sem snöggvast í Bed ford, sem er lítið þoxlp við botn inn á Haliifax-ífirðinum. Hún stóð þar sem Annapolis-járn- brautin liggur út frá Intercolon. ial-brautinni. Liggur hi’n síð- arnefnda braut í gegnum Sbubenacadie-þorpið. Eftir að hafa farið þrjár eða fjórar mílur norður fyrir Windsor-Junction, stöðvaðist. „Við, vinur minn og ég,“ hróp-aði Zorin, „höfum komið til þess að bjarga Grunol .frá ó- vinunum.“ „En hvað getum við gert?“ spurði Antar, „gegn slíku hervaldi sem Shastar hef ur?“ Zorin varð ísmeygilegur á svip. „Þið verðið að ganga í lið með mér . . . ég mun leiða þjóð þína til sigurs,“ sagði hann slælega. Antar kinkaði kolli. „Komdu, þú verður að segja- þjóð minni frá þessu.“

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.