Forvitin rauð - 01.10.1980, Síða 3
Áhrif skilnaðar á
f jölskyldumeðlimi fara,
að sjálfsögðu mikið
eftir því hvernig að
honum er staðið og hann
getur þegar til lengdar
lætur verið sú lausn
sem minnstan skaða hef-
ur í för með sér fyrir
fjölskylduna. Þar með
er ekki sagt að skiln-
aður sé alltaf eina
lausnin sem fyrir hendi
er því fjölskylduvanda-
mál geta, verið af mjög
ólíkum toga og þar er
engin ein lausn sem
gildir fyrir alla,.
Hann er samt sem áður
ein þeirra, leiða sem^
fyrir hendi eru og þótt
skilnaður sé í öllum
tilfellum sársaukafull-
ur fyrir þá sem málið
varðar getur það auð-
veldað fólki að gera
sér grein fyrir og vita
um þau vandamál sem
kunna. að koma upp meðan
á skilnaði stendur og
á eftir. Hér er ætlun-
in að fara. að no^kru
út í þau atriði einkum
með tilliti til barna.
Hvernig taka börn skilnaði?
Áhrif skilnaðar á
börnin fara mest eftir
því hvernig foreldrun-
um tekst að komast frá
honum. Það er ætíð
erfitt fyrir börn að
búa, í f jölskyldu þar
sem er stöðugt ósam-
komulag milli foreldra.
í slíku tilviki kynni
skilnaður að hafa í
för með sér minni
spennu fyrir alla aðila.
eftir að hann er um
garð genginn. Og þótt
börn eigi erfitt með
að tala um vanlíðan
sína gefa þau oftast
vísbendingar um hana.
án orða. Þau ^eta. ver-
ið uppspennt, att erf-
itt um svefn, farið
að pissa undir eða orð-
ið hrædd og óróleg, sem
gefur til kynna að þeim
líður ekki vel og að
þau hafa áhyggjur af
einhverju sem þau ekki
skilja. Barnið veit að
pabbi og mamma eru van-
sæl en ekki hvers vegna
- "er það kannski útaf
mér?" Skilnaður sem
leiðir til þess að for-
eldrarnir stuðla ekki
lengur að óhamingju
hvors annars getur því
orðið til að auka
öryggi barnsins. Það
er ekki aðallega' skiln-
aðurinn sjalfur sem
skaðar barnið heldur
fyrst og fremst þau
vandamal sem eru orsök
hans. Það er hverju
barni betra, að lifa. í
sátt og samlyndi með
einu foreldri en í úlf-
úð og illindum með
tveim.
Eigum við að fórna okkur
fyrir börnin?
Sambúð sem byggist
á £ví að foreldrar
"fórna" sér fyrir börn-
in leiðir sjaldan gott
af ser. Allar fórnir
krefjast einhverrar
borgunar sem síðan
bitnar á börnunum þegar
þau vaxa úr grasi. Þar
að auki kann hin svo-
kallaða fórn að vera
yfirhilming á ótta for-
eldranna við að breyta
aðstæðum sínum. Það
er erfitt að brjóta upp
vanabundið líferni og
eiga jafnvel líka á
hættu að hagurinn
versni. En þegar fólk
er ófúst að skilja get-
ur það einnig verið
vísbending um að það
vilji reyna að leysa
vandann og búa saman
við betra samlyndi.
Það fólk gæti þurft á
utanaðkomandi aðstoð
að halda, t.d. fjöl-^
skylduráðgjafa eða fél-
agsráðg^afa. Kannski
nægir lika einfaldlega
að tala hvort við annað
um tilfinningar sínar
og hvers það óskar af
hinu.
Hvernig segjum við
frá skilnaðinum?
Það fer að sjálf-
sögðu eftir því á hvaða
aldri barnið er hvað
því er sagt um skilnað-
inn. Áður en það verð-
ur þurfa foreldrarnir
sjálfir að hafa tekið
ákvarðanir í málum sín-
um. Það á ekki að tala
um skilnaðinn við barn-
ið sem hugsanlegan
möguleika. Það á held-
ur ekki að hóta skiln-
aði í bræðiskasti því
þá óttast börnin að sér
hvert rifrildi leiði
til skilnaðar. Þegar
foreldrarnir hafa tekið
sína ákvörðun eiga börn-
in að fá að vita um
það sem fyrst svo ekki
verði einhver annar til
að segja þeim frá því.
Ekki er heldur nauð-
synlegt að segja þeim
í smáatriðum hvers
vegna foreldrarnir ætli
að skilja enda myndu
smærri börnin varla
skilja. slíkt. Vanalega
eru börnin sér meðvit-
uð um vandamál foreldr-
anna. Kannski hafa
þau skellt skuldinni á
sjálf sig og þess vegna
verða foreldrarnir að
gera þeim ljóst að
skilnaðurinn eigi ekki
rætur að rekja til
þeirra. Jafnvel þegar
osamkomulagið tekur
til uppeldis barna og
annars slíks er það svo
að það er sjálft ósam-
komulagið sem er astæð-
an en ekki barnið.
Minnstu börnunum er
nóg að segja að mamma
og pabbi ætli að búa
sitt í hvoru lagi en að
að barnið muni að
minnsta kosti halda
sámbandi sínu við bæði.
Eldri börnum sem gera
sér betur grein fyrir
vandamálunum er hægt
að segja að það gangi
betur ef foreldrarnir
búa sitt í hvoru lagi,
það verði þá ekki rif-
ist o.s.frv. Áður en
foreldrar ræða við
börn sín um skilnaðinn
þurfa þeir líka að hafa
komist að samkomulagi
um hjá hvoru þeirra
barnið verður, að
minnsta kosti á næst-
unni. Eitthvert öryggi
varðandi samastað verð—
ur barnið að hafa þótt
ekki sé komist að end-
anlegri niðurstöðu
strax. Elstu börnin,
frá u.þ.b. 12 ára
hljóta. að fá að ráða
því sjálf hjá hvoru
foreldrinu þau vilja^
vera. Þetta er oft á-
kaflega erfitt val og
ekki öll börn sem
treysta sér til að
segja af eða á um það
sem þau vilja. Mörg
þeirra kjósa t.d. að
foreldrarnir haldi
áfram sambúðinni til
að þau losni við að
taka afstöðu til þess.
En þau þurfa fyrst og
fremst tíma til að
hugsa um hvað skilnað-
urinn hefur í för með
sér fyrir þau. Það
mikilvægasta er samt
ekki hvað þeim er sagt
heldur hvernig það er
sagt, þ.e. að^barnið
fái skilning á^því að
skilnaðurinn sé besta
lausnin fyrir alla.
Jafnvel þótt það sl
býsna erfitt fyrir það
um stundarsakir.
Poreldrarnir verða
samt að bera ábyrgð á
ákvörðun barnsins jafn-
vel þótt það sé hændara
að öðru þeirra og vilji
fremur búa hjá því.
Barnið á ekki að þurfa
að líða fyrir það að
hafa valið annað for-
eldrið umfram hitt.
Að búa hjá pabba
Enn er það sjald-
gæft að börn séu hjá
föður sínum eftir skiln-
að enda vinna ríkjandi
venjur og almennings-
álit á moti^því þótt
foreldrar séu sammála
um að faðirinn hafi
barnið fremur en móðir-
in. Verst er að í
slíkum tilfellum ligg-
ur móðirin oft undir
því ámæli að hún sl
"slæm móðir" og það
getur gert henni ákaf-
lega erfitt fyrir.
Ofan á það leggst
hræðslan um að barnið
haldi að henni sé sama
um það. Allt þetta
getur orðið til þess
að hún þorir ekki að
fara einungis eftir
því hvað barninu er
fyrir bestu. Og merki-
legt nokk bregst um-
hverfið ekki við á
sama hátt þegar um föð-
ur er að ræða í nákvæm-
lega sama tilfelliT
Á að skilja að systkin?
Ekki er hægt að
taka einhliða afstöðu
til þess hvort skilja
eigi að systkin eða
láta þau fylgjast að
við skilnað. Stundum
getur það verið auð-
veldara fyrir foreldri
að sjá um eitt barn eða
tvö. Einnig eru bæði
foreldrar og börn mis-
jafnlega hænd hvort að
öðru. Það sem mestu
máli skiptir þarf ekki
að vera að foreldri og
barn séu af sama kyni
(því vonandi finnast
aðrir fullorðnir í um-
hverfi barnsins) heldur
er aðalatriðið það
nána samband sem bindur
barn og foreldri saman.
Það getur verið erf-
itt fyrir barn^að yfir-
gefa systkinahójjinn.
Stundum kemur þó syst-
kinum það illa saman
að þeim er jafnvel
betra að búa sitt í
hvoru lagi. Dæmi:
Níu ára gamall strákur
sem átti tvær systur á
unglingsaldri fylgdi
pabba sínum eftir skiln-
að. Áður hafði honum
fundist systurnar hafa
hann útundan og var erf-
iður oft og ódæll. Það
hafði í för með slr að
báðir foreldrarnir voru
stöðugt ergilegir út í
hann. Eftir skilnaðinn
komst hann nær pabba
sínum og þurfti nú ekki
að keppa við systur
sínar um athygli for-
eldranna. Hann varð
því rólegri og öruggari
með pabba sínum.
Umgengnin við
„hitt“ foreldrið
Barnið verður að
finna það að foreldrið
sem það býr hjá ann
því þess að hafa ánægju-
legt samband við hitt
foreldri þess. Það er
hverju barni eðlilegt
að þykja vænt um báða
foreldra sína og því
getur orðið illa við
að finna að mömmu eða
pabba líkar ekki að
það láti væntumþykju
sína í ljós. Afleið-
ingin getur orðið sú
að barnið veigrar slr
við að hitta foreldrið
því það er auðveldara
að neita sér um að
hitta það en að burðast
með sektarkennd út af
því að manni þykir vænt
um einhvern.
Að standa við loforðin
Pátt veldur barni
eins miklum vonbrigðum
og að treysta á loforð
sem ekki erstaðið við.
Að bíða t.d. eftir for-
eldri sem síðan lætur
ekki sjá sig getur auð-
veldlega komið barninu
til að halda að foreldr-
ið kæri sig ekkert sér-
staklega um það. Vorr-
brigðin beinast síðan
gegn forráðamanni barns-
ins sem sjálfur verður
ergilegur fyrir hönd
þess sem síðan eykur
þá tilfinnin^ur barns-
ins að það se yfirgefið,
Mikilvægt er því að
lofa ekki meir en maður
stendur við ef samband-
ið á að vera traust.
Vill barnið ekki sjá mig?
Ef barn vill ekki
hitta það foreldri sem
flutt hefur frá því
getur það stafað af því
að barninu finnst það
hafa verið yfirgefið og
svikið. Það ræður ekki
við tilfinningar sínar
heldur afneitar þeim
og forðast foreldrið
til að komast ekki í
uppnám. Það má reyna
að tala varlega við
barnið og fá það til
að segja frá tilfinn-
ingum sínum og von-
brigðum. Eftir eitt
skipti ætti það að reyn-
ast auðveldara. Por-
eldrinu reynist^líka
auðveldara að sýna þol-
inmæði ef það gerir sér
gjrein fyrir því að and-
uð barnsins stafar af
of mikilli væntumþykju
- ekki of lítilli.
Margir foreldrar
hafa þörf fyrir að gagnr
rýna hvort annað eftir
skilnað og láta freist-
ast til að nota börnin
sem einskonar sendiboða
milli sín í þeim efnum.
Þetta er hins vegar
ákaflega erfitt hlut-
verk fyrir barnið sem
tekur á sig ábyrgðina
og oft kemst gagnrýnin
ekki áleiðis vegna þess
að barnið treystir sér
ekki til að bera hana
f ram.
Ný mamma eða nýr pabbi
Eftir skilnaðinn
kemur oft ný mamma eða
nýr pabbi inn í líf
barnsins. Slíkt hefur
í för með sér bæði
kosti og galla, svo
sem að þörf foreldris
fyrir annan fullorðinn
BW 14