Alþýðublaðið - 19.04.1958, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 19.04.1958, Blaðsíða 6
Alþýðublaðið Laugardagur 19- apríl 1958. Sfefán Júlíusson: 1 GARÐAR A ÁLFTANESI hafa löngum verið ein mesta jörð á Innnesjum, og í margar aldir þótti Garðaprestakall eitt af vildarbrauðum hér á landi. Vafalaust hefur það verið að miklu leyti vegna útræðis, en útræði hefur verið frá Görðum, Álftanesi og Hafnarfirði svo lengi sem sögur herma. Garðar, ásamt býlunum í kring, mynda heilt byggðarhverfi, sem ávallt er kallað Garðahverfi. Þessi býli eru öll gamlar hjáleigur frá Görðum, og hafa þau verið milli tíu og tuttugu. En ýmis önnur býli í Garðahreppi voru einnig eign Garðakirkju, enda lítur helzt út fyrir, að kirkjan hafi um eitt skeið átt mestan hluta hreppsins. Garðar á Álftanesi eru ekki nefndir í Landnámu, en um landnám á þessum slóðum seg- ir svo: „Ásbjöm hét maður Özurarson, bróðurson Ingólfs. Hann nam land 'milli Hrauns- holtslækjar og Hvassahrauns, Álftanes allt, og bjó á Skúla- stöðum.“ Um Ásbjörn segir ekki meira í Landnámu, en minnzt er þar á, að einn afkom andi hans hafi búið á Seltjarn- arnesi. Ekki er líklegt, að Ingólfur Arnarson hafi gefið svo nánum frænda sínum, sem Ásbjörn var, lélegt land, jafnvel þó hann hafi kosið að hafa hann nálægt sér. Þótt hraun hafi þá iverið í upplandi Ásbjarnar eigi síður en nú, hefur „Álfta- nes allt“ verið hlunnindaland, ekki sízt fyrir sjósóknara. Og öll holtin beggja vegna Hafn- 'arfjarðaihrauns og ein-s Garða- holt, hafa þá verið viði vaxin. Það furðulega í þessum fræð um er, að Skúlastaðir fyrirfinn ast hvergi í landnámi Ásbarn- ;ar Özurarsonar. Hsfur þstta ver ið mönnum ráðgáta löngum, og ýmsum getum hefur verið að því leitt, hver hafi verið land- námsjörðin. Hafa ýmsir viljað halda Bessastöðum fram, en aðrir hallast að minni jörðum og ómerkari. Allt frá því ég fór að leiða hugann að þessum efnum, hef- ur mér þótt einsætt, að Garðar væru landnámsjörðin. Þetta var aðeins leikmannstilgáta, dregin af aðstæðum og lands- lagi, en aldrei hef ég getað sleppt þessari hugmynd, þótt ýmsir hafi statt og stöðugt hald ið öðru fram. Sú gáta verður afiur á móti aMrei ráðin, hvern ig Skúlastaðir hafa breytzt í Garða, ef hér er þá ekki um einskæra villu að'ræða í Land- námu. Vera má einnig, að bær- inn hafi verið nefndur svo um skeið, og þá einmitt á þeim tíma, er höfundur Landnámu þekkti til. Eg áttí margar ferðir hjá Görðum í uppvexti rnínum á leið „fram á Álítanes“, en ég ólst upp í hrauninu nálægt miðju vegar milli Hafnarfiarð- ar og Garða. Aldrei taldi ég þá Garða vsra á Álftanesi, því að nssið var almennt talið byrja vestan Álamýrar og Selskarðs. Hins vegar sá ég þetta í bókum og þótti skrýtið. En þótt vegur Bessastaða vær.i þá þegar orð- inn meiri, en Garðar að setja ofan, fannst mér alltaf meira Jon biskup Vídalín, fædduj- í Görðum árið 1666 og prestur þar 1695—1698. til Garða koma. Mér þótti senni legt, að einmitt þar hefði frændi Ingólfs, landnámsmað- þannig yfir allt landnám Ás- bjarnar Özurarsonar, frá Hvassahrauni að Hraunsholts- læk, og þó heldur betur, því að enn eru býlin Vífilsstaðir, Hofs staðir og Arnarnes í Garða- hreppi. Hafa þessi býli vafa- laust fallið undir Garðakirkju síðar. Þegar Álftaneshreppi var skipt árið 1891 í Garða- og Bessastaðahrepp, hefur verið farið að líta á Bessastaðahrepp einan sem Álftabes, og þannig , er það í rauninni kallað nú, en hið foma Álftanes hefur verið milli Hafnarfjarðarbotns og Arnarvogs, eða vestan vegarins, j þar sem hann liggur frá Hafn- arfirði að Silfurtúni. Eins verð ur ekki fram hjá því gengið, að Bessastaðakirkja hefur jafnan verið útkirkja frá Görðum, en í Görðum hafa margir höfuð- klerkar setið öld fram af öld. Hér verður ekki á nokkurn hátt leitazt við að rekja sögu Garða á Álftanesi. Samt langar mig til að stikla hér á stóru í persónusögu staðarins, þó að- eins eftir prentuðum heimild- um, enda nægir það til að sýná, Síðasta GarðakirKja, reist af' sr. Þórarni öoovarssyni 1880. Og FYRIR NOKKRU var ég beðinn að tala á samkomu i félagsihéimiiinu á Garðáhoiti var þess helzt óskað, að ég segði eitthvað frá Görðum á Álftanesi. Eg varð .við þeim tilmælum og flutti þar óskrifaða og sundurlausa pistla um staðinn eftir prentuðum heimildum. Nú hef ég hripað inntakið í rabbi þessu niður og birtist það hér. Aðeins vil ég taka það skýrt fram, að ég er enginn fræðimaður, og því ber ekki að líta á þetta sem ritgerð, heldur er hér á ferðinrii leikmannsþáttur um merkan stað. — S. J. urinn Ásbjörn Özurarson, vilj- að búa, Staðurinn blasir við sól og firði, að baki bungumyndað holt, skógi vaxið á landnáms- tíð; víðsýnt er og fagurt heima á staðnum, sér inn til fjalla, út á flóann og „fram á nes“. Þetta var kjörið bæjarstæði land- námsmanns. Auk þess eru Garð ar svo að segja í miðju land- námi Ásbjarnar, en Álftanesið hlýtur að hafa talizt byggileg- asta skákin í því. Og nafngift- in, Garðar á Álftanesi, virtist einmitt benda til þess, að höf- uðbólið ætti nesið allt. 3. Eitthvað á þessa lund voru æskuhugmyndir mín-ar um Garða s.em iandnámsjörðina, en nú hefur merkur fræðimaður í þessum efnum, Magnús Már Lárusson prófessor, í rauninni tekið af skarið. Hann segir sv.o |í grein, sem hann reit í síðasta jólablað Alþýðublaðs Hafnar- fjarðar: „Að vísu má leiða all- góð rök að því, að Garðar, hin týmla landnámsjörð Skúlastað- ir,. hafi snemma klofnað upp í fleiri smærri einingar •— —“. Fram til ársins 1891 var alit það land, sem nú er Bessastaða hreppur, Garðahreppur og Hafn arf jörður, einn hreppur, og hét hann Álftnesheppur. Náði hann hvert höfuðból og merkiskirkju staður jörðin hefur verið frá öndverðu. 4. Garðar á Álftanesi munu að- eins vera nefndir í einni íslend ingasögu, Hrafnkels sögu Freys goða, sem gerist um miðja 10. öld. Þar er sagt, að Þormóður búi í Görðum á Álftanesi. „Hann á Þórdísi, dóttur Þór- ólfs Skalla-Grímssonar frá Borg.“ Hrafnkatla mun yfir- leitt talin skáldsaga, skrifuð á ofanverðri 13. öld, en samt verð ur það ljóst af þessu, að höfundi hefur fundizt sjálfsagt, að í Görðum byggju merkismenn, sem tengdir voru sjálfum Mýra mönnum. í Sturlungu er Garða á Álfta nesi að minnsta kosti tvívegis getið. í Þórðar sögu kakala stendur svo: „Þenna vetur var Þórður Bjarnarson í Görðum með Ein- ari Ormssyni, frænda sínum. Hann hafði verit með Órækju í jReykjaholti at drápa Klængs ^Bjarnarsonar. I Orrnr Bjarnarson reið víð ítólfta mann í Garða til Einars. höndum. Leiddu þeir hann þá inn til stofu. Þórðr varð við alla vega sem bezt ok bauð fyrir sik allt þat, er hpnum sómði. En þá er hann sá, at Ormr vildi. ekki annat hafa en líf hans, þá beidd ist hann prestfundar. Ok svá var gert. Eftir þat var hann leiddr í ýtri stofuna. Lagðist Þórðr þá niðr -opinn ok bað þá hyggja at, hvárt honum blöskr aði nökkut. Ormr fekk þá mann til at höggva hann. Sá hét Ein- arr munkr. Eftir þat reið Ormr heim austr á Breiðabólstað.“ Þessi atburður gerðist árið 1243. Af frásögninni má fá ýms ar upplýsingar um staðinn. Bóndinn, Einar Ormsson, er Svínfellingur að ætt, afkom- andi Flosi Þórðarsonar, eða Brennu-Flosa. Voru þeir Svín- fellingar mikils háttar menn, enda ein merkasta ætt á Sturl- ungaöld. Er því fullvíst, að Garðar hafa verið stórbýli, er svo ættgöfugur maður bjó þar. Þá kemur frarn að kirkja er á staðnum, og þar er prestur. Ekki er líklegt, að kirkjan hafi verið nýreist, enda má gera ráð fyrir, að kirkja hafi mjög fljót- lega verið reist á þessu forna höfuðbóli. Hins vegar er bónd- inn ekki prestur, heldur hefur hann prest, en það var stór- bændasiður á fyrstu öldum. kristninnar á landi hér. Á öðrum stað í Sturlungu, ísleridingabók, stendur svo: „Gizurr jarl reið suðr á Kjal- arnes ok gisti í Görðum á Álfta nesi at Einars bónda Ormsson- ar. Var honum þar vel fagnat ok var þar nokkurar nætr.“ Þessi atburður gerðist árið 1264. Eru nú liðin tuttugu ár frá því, sem um getur í fvrri tilvitnunni, og enn er Einar maður Ormsson bóndi í Görðum. Ekki síðasta þarf frekar vitnanna við um það, að hann hefur verið stór- bóndi, því að varla hefur Gizur jarl gist nema á höfuðbólum. háfi skipt á Görðum og annarri jörð, t.d. á Seltjarnarnesi, nerna Einar hafi vérið kvséntur inn í ættina éða tengdur henni á ánn an hátt. ■ j 5. Garða er ekki mikið getið í prentuðum heimildum á næstu öldum, en þó koma þeir allmik ið við sögu í deilumálum Staða- Árna biskups Þorlákssonar við leikmenn á ofanverðri 3. öld. Þessar deilur voru sem kunn- ugt er urn það, hvort kirkjan skvldi eiga jörðina, þar sem, hún stóð, og aðrar jarðir, sem undir kirkjustaðinn lágu. I Árna biskups sögu eru Garðar ávallt kallaðir Garðastaður, og eru þeir nefndir í sömu andrá og merkustu kirkjustaðir lands ins á þeirrj tíð. Settust leik- menn og klerkar á jörðina á víxl, eftir því hvorum veitti batu.r, Áma'biiiskupi'eðiaforingjái leikmanna, Hrafni Oddssyni. Þessir atburðir hafa gerzt eftir daga Einars bónda Ormssonar. Gara má fastlega ráð fyrir því, •að prestur hafi verið ábúandi í Görðum frá því staðamálum lauk fyrir 1300 til ársins 1928. En átökin um Garða síðast á 13. öld benda til þess, að kirkj- an hafi þá þegar átt nokkurn hluta jarðaxinnar og fleiri jarð ir í kring. Og upp úr þessu tóku kennimenn að gérast hér- aðshöfðingjar o,g stórbændur. Kómu þeir þar síð um kveldit í þann tíma, er þeir Einarr ok Þórður ætluðu at ganga til baðs. Tóku þeir Ormr Þórð þar 6. Árni stiftsprófastur Helgason, prestur í Görðum 1825—1858. Ekki er þess getið, hvernig Ein ar fékk Garða til ábúðar, enda skiptir það ekki máli fyrir það efni, sem verið er að leitast við að draga hér fram: Garðar á Álftanesi voru mikið höfuðból á Sturlungaöld. Vera má, að ætt Ásbjarnar landnámsmanns Um siðaskiptin situr í Görð- um sr. Einar Olafsson, umboðs Skálholtsbiskups, þ.e. kaþólska biskupsins, Ögmundar Eálssonar, og hins fyrsta lúterska, Gizurar Einars sonar. Þá átti Skálholtskirkja orðið víða ítök, enda segir Magn ús Már Lárusson prófessor í fyrxnefndri grein, að Skálholts kirkja hafi eignazt nokkrar iminni jarðannaí Álftaneshreppi þegar um 1200, Einar Ólafsson var fyrst prestur í Nesi við Sel- tjörn, siíðan í Laugarnesi, en fluttist þá að Görðum og var þar prestur í 21 ár, eða þar til hann gerðist ráðsmaður í Skál- holti árið 1552. Það er eftirtafc anlegt, að hann sækir að Görð- um frá Nesi og Laugarnesi, en báðar þessar jarðir voru vildar setur fyrr á tímum. Eftir siðaskipti sitja margir frægir klerkar Garðastað, og verða nú heimildir auðugri. Hér verður þó aðeins hlaupið á nokkrum staksteinum, ella yrði of langt að rekja. Fyrst skal getið tveggja nafnkunnra feðga, sr. Þorkels Arngríms- sonar og Jóns biskups Vídalíns. Sr. Þorkell var sonur Arngríms lærða Jónssonar, sem einna frægastur var íslendinga á sinni tíð, vegna vináttu við og embætti fyrir Guðbrand bisk- up Þorláksson og varnar- og kynnisrit hans á latínu um ís-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.