Morgunblaðið - 29.03.1914, Blaðsíða 6
686
MORGUNBLAÐIÐ
Stór útsala
Sápuhúsinu Austurstr.17
og
Sápubúðinni Laugav.40.
Prima grænsápa 13 aura pundið
Prima krystalsápa 17 og 21 aura.
Öll Ilmvötn, Sápur, Greiður, »Garni-
tur«, Svampar, Tannburstar, Hár- og
Fataburstar o. m. fl. er selt
langt undir verðmæti.
Allskonar tómir stampar seldir á kr. 1.25 pr. stk.
Útsalan stendur yfír að eins fáa daga.
Á 25 AURA
fást íalleg postulíns-bollapðr í
Verzlun Jóns Þórðarsonar.
Ef hann veit nokkuð mun hann
ganga að okkur með oddi og eggju.
Hann mun aldrei sleppa tökum á
okkur. — — Við höfnm unnið
saman í Berlín og eg lét hann leika
i mig vegna þess hvað hann var
viðfeldinn. Þá var eg að gera til-
raunir fyrir járnsteypuverksmiðju í
Bæheimi. — Hann var með mér
nótt og nýtan dag — hann stal
öllum uppgötvunum minum — hann
neytti þess að eg trúði honum —
þessum helvítis lygara. Og nú hafa
atvikin beint athygli þessa djöfuls
að okkur.---------Við erum glataðir.
— Eg skil það, mælti Fjeld. Hann
grunar alt en veit ekkert. —-----------
Láttu mig um að tala við piltinn.
— Gættu þín fyrir honum —
hann er enginn meðalmaður. Ef
hann hefir hugmynd um það að
hann geti aflað sér fjár, þá er hann
verri en hýena. Allir lestir eiu
fullþroskaðir í sál hans — hann
er samsteypt heild af glæpa-
fýsn og fágræðgi, enda er hann
fæddur í skolpræsunum í Buenos
Aires. — —
— Þá er hann ekki við þitt hæfi,
Erko litli. Vertu kyr hér, en eg
skal semja við piltinn. — Eg segi
að þú sért veikur í kvöld og bið
hann að koma seinna. — —
— En eg vil alls ekki tala við
hann.
— Þú skalt aldrei sjá hann fram-
ar, mælti Fjeld um leið og hann
gekk til dyra, en í andliti hans brá
fyrir kuldaglotti.
Erko horfði á eftir konum kvíða-
fullur á svip.
— Nú verður bardagi milli tigris-
dýrs og kyrkislöngu, tautaði *hann
fyrir munni sér. Heredia veit að
eg hefi fundið upp stálið, sem rauf
fjárhirzluna. Hann er hinnf'eini
maður, sem þekkir leyndarmál mitt
— og nú er hann hér. En hvað
örlögin geta verið hcrð.
Hann reis á fætur. slökti raf-
magnsljósið og læddist á eftir vini
sínum.
Mario Heredia hafði sezt í stærsta
stólinn í stofunni og Fjeld sá'þegar
að hann hafði valið sér hið hagan-
legasta og öruggasta sæti. Skugga
bar á andlit hans, en] annari hend-
inni hafði hann stungiðj niðurj í
kápuvasa sinn.
Verk matitiaföfiti
halda langbezt, ef þið kaupið þau hjá
Tf). Tf). & Co.,
Austurstræti 14.
Kven-olíupils
bezt og ódýrust í
Veiðafæraverzl. Verðandi.
Sími 288. Hafnarstræti 18.
VÁfPI^YGGINGA^ -
A. V. TULINIUS, Miðstræti
Brunaábyrgð og sæábyrgð.
Skrifstofutími kl. 12—3.
.mmuiMLUUum ii.
; C. Trolle.
. Allskonar sjó- og brunavátrygg-
I ingar. fcl
> Mannheimer — Nederlandene 1845 — -
■ Veritas Havari Bnreau Shipbroker J
J Talsimar 235 og 399 (heima). J
> Hverfisgötu 3. 4
ÍmmirimuiimiiiiH
Vátryggið hjá:
Magdeborgar brunabótafélagi
Den Kjöbenhavnske Söassurance
Forening limit
Aðalumboðsmenn:
O. Johnson & Kaaber.
Carl Finsen Austurstr. 5, Reykjavik.
Brunatryggingar. Heima 6 —7 i/v
Talsimi 331.
LrOGMBNN IBB
Sveinn Björnsson yfirdómsiögm.
Hafnarstræti 22. Simi 202.
Skrifstofutími kl. 10—2 og 4—6.
Sjálfur við kl. 11—12 og 4—5.
EGGERT CLAESSEN, yfirréttarmála-
flutningsmaður Pósthússtr. 17.
Venjulega heima 10—11 og 4—5. Sfmi 16.
Kaupið Morgunblaðið.
Auglýsið i Morgunblaðinu
— Erko er háttaður, mælti Fjeld
stillilega. En við vitum hvers vegna
þér eruð hingað kominn. Og þess
vegna getið þér alveg eins samið
við mig. Annars þætti mér vænt
um, ef þér vilduð gera svo vel og
hætta þvi að leika við skam-
byssuna í vasa yðar. Samræðurnar
eru aldrei eins eðlilegar og blátt
áfram, þegar annar maðurinn hefir
vopn til þess að leggja áherzlu á
orð sín. Er það Browning eða —?
Heredia hló.
— Þér hafið rétt fyrir yðnr, mælti
hann. Þér eruð maður eftir minu
skapi. Þér viðhafið engar vífilengjur,
snúið yður þegar að efninu. jæja
þá. Hvað mikið viljið þér greiða
mér fyrir það að þegja yfir þvi að
Ilmari Erko er hinn eini maður,
sem getur smíðað stálbora þá, sem
rofið hafa fjárhirzluna? — — En
eg þekki Erko. Hann er hugvits-
maður, en trúgjarn heimskingi. í
þessu máli hefir hann verið hamar-
inn en þér höndin, sem stýrði hon-
um. Það var laglega af sér vikið
— — * Eg þekki nokkra af félög-
um yðar í Berlín og París. — Þeir
mundu vilja gefa helming lífs síns
fyrir það að geta rofið eins vel jafn
ramgeran skáp og þennan. Eg þekki
einnig menn, sem gjarnan vildu
ganga í félag við yður og vísa yður
á skápa, þar sem mörgum miljónum
— já miljörðum, er hrúgað saman.
Rödd hans var hás og áköf.
— Þér sleppið aðalefninu, mælti
Fjeld kuldalega, og þér eruð of
æstur. Eg kannast fúslega við það
að hafa tekið féð úr bankanum. En
eg hefi ekki í hyggju að gefa öðr-
um nokkuð af því. Þér fáið ekki
einn eyri, signor Heredial
— En þér viðurkennið það að
hafa stolið þessari hálfu miljón og
að Erko hafi hjálpað yður til þess.
— Auðvitað. Þér hafið fyrir til-
un eina komist að þessu leyndar-
máli og ætlið að vinna yður inn fé
með því. En eg fullvissa yður signor
Heredía að þér fáið ekki einn eyri.
— Hvers vegna ?
— Vegna þess að það leyndar-
mál mun fara í gröfina með yður.
Það mun mjög alvarlegt atvik koma
fyrir yður, áður en þér hafið tíma
til að segja nokkrum manni frá
þessu.
Heredia leit undrandi á hann.