Morgunblaðið - 10.09.1916, Side 1
'Sunmulag
8. krg'aragr.
10.
scpt. 1916
307
t51ubl»e
Ritstjóraarsimi nr. 500
Kitstion VUhjAimnt r 1.
GAIVILA BIO
Vmdetta
(Mr. Barnes frá New-York)
Skáldsaga í 4 þáttum — eftir Arch. Cleverin Gunther —
Efni myndatinnar þarf varla að lýsa, því það er svo þekt
að hvert barn kannast við Vendettu, sem var neðanmáls-
saga i ísafold fyr r nokkrum árum.
Myndin er leikin af Vitagraphs frægu leikurum i New-
York og Maurice Oostello leikur aðalhlutverkið sem Mr.
Barnes. — Sýningin stendur yfir á aðra klnkkustund. — Tölu-
sett sæti kosta 60, alm. 40 og barnasæti 10 aura.
Tltjja Lartd
Hlj ómleikar verða í dag
frá kl. 4—7 og 10Va—H1/*-
Lýðskólinn og barnaskólinn
F. U. ffl.
í Bergstaðastræti 3,
starfar með liku fyrirkomulagi og
áður næsta skólaár. Barnaskólinn
byrjar 1. október, en Lýðskólinn 1.
vetrardag eins og áður.
Nánari upplýsingar gefur
ísleifur Jónsson,
forstöðumaður skólans.
Kl. S1/^: Almenn samkoma.
Allir velkomnir.
Hérmeð tilkynnist vandamönnnm
og vinnm, að elsku litla dóttir okkar,
Lára Málfríður, andaðist þ. 8. þ. m.
9. sept. 1916.
Emilia og Magnús Kjærnested.
1
I
Erl. símfregnir
(frá fréttaritara Isaf. og Morgunbl.).
Erl. simfregnir
Kaupmannahöfn, S. sept.
Bandamenn hafa tekið
Omniecourt,
Bandamenn hata hand-
tekið 6900 I»jóðverja síð-
ustu dagana.
Russar sækja fram hjá
Halicz.
Þjóðverjar og Búlgarar
hafa tekið varnarvirki Rú-
mena hjá Tutrakan.
Shackleton hefir bjargað
leiðangursmönnum þeim,
sem eftir urðu suður í fs-
hafl.
Prófessor Ellinger heflr
stungið upp á því að reynt
sé enn einu sinni að mynda
samsteypnráðuneyti í Dan-
mörku. Vinstrimenn fylg-
ja honum að málum.
Otto Mönsted er dauður.
Opinber tilkynning frá brezku
utanríkisstjórninni í London.
London ódagsett,
Vesturstöðvarnar.
Vikan sem leið hefir á vesturstöðvunum
verið mjög hagstæð. Sunnudaginn 3. sept.
gerðu Bretar áhlaup snemma morguns ná-
lægt Maquet bóndabæ i áttina til Thiep-
val. Þar lenti Ástralíumönnum saman við
varalið [prússneska lifvarðarins, og tóku
nokkur hundruð fanga. Þeir hertu enn
áhlaupið tii Thiepval, náðu nokkrum vig-
girtum stöðum og unnu land austur af
Moquet bæ. — Bretar í hægri herlinuarmi,
sem gerðu áhlaup 'síðari hluta dagsins,
brutust gegnum Guillemont og 500 metra
til austurs. Töku líka Ginchy, en voru
siðar neyddir til að yfirgefa austurpart
þorpsins. Lengra suður frá brutust þeir
upp að Fallemont bóndabæ, og mættu þar
sigri hrósandi framkósnarliði Frakka. Um
kvöldið höfðu Bretar tekið varnarlínur óvin-
anna og komist áfram 800 metra á 5
kilóm. svæði. Öll gagnáhlaup rekin aftur,
og á mánudaginn unnum vér meira land
við Fallemont bæ. Um nóttina héldum vér
áfram i rigningarveðri, og fyrir miðjan
dag á þriðjudag 5. sept. vorum vér komn-
ir hér um bil milu austur af Guillemont
indarjnentsn.iOia
Kaupið Morgnnblaðið.
og vel inn i Lenze-skóginn. Um daginn
unnum vér niestan hluta skógarins og höld-
uni öliu landinu á milli hans og Ginchy
öðru megin og Fallemont bæjar hinumegin,
Þriðjudagsnóttina tókum vér allan skóginn
og voru Bretar þá tæpan kílóm. frá bæn-
um Cambles, sem Frakkar voru að sækja
til að sunnanverðu.
Taka Guillemont er merkasti viðburður-
inn á herlinu Breta, siðan Pozieres var
tekinn. Það var siðasti ðtekni staðurinn
á hinni gömlu annari herlinu Þjóðverja á
milli Moquet bæjar og samskeytanna við
herlínu Frakka. Var staðurinn varinn af
miklu kappi, en vegna þess hvað hann var
nærri samskeytunum á herlínunni, varð
hlé á allri framsékn bandaherjanna. —
Bretar tóku yfir 1000 fanga og stórskota-
lið vort vann óvinunum mikið tjón.
Staða Breta eftirtveggja rnánaða orustu
er þvi þessi:
1. Þeir hafa fekið allar aðalvarnarlinur
Þjóðverja, þ. e. fyrsfu og aðra linuna.
Línur þeirra eru því nú að eins bráða-
birgða umbúnaður á bersvæði sem i
engu fær jafnast á við skotgrafa víg-
girðingar og ýmsan jarðgröft, sem
þeir voru búnir að leggja í tveggja
ára vinnu.
2. Bretar hafa nú unnið hærri staðina
alls staðar og horfa nú niður á stöðv-
ar Þjóðverja.
3. Þeir hafa dregið alt varalið, sem
Þjóðverjar gátu teflt fram, inn i orust
urnar og leikið það grátt.
Orustan við Somme er nú að verða
Þjóðverjum eins skaðvæn hringiða eins og
Verdun-viðureignin. Hvað eftir annað hafa
blöð Þjóðverja boðað það, að nú væri
sókn bandamanna að þrotum komin. En
hún hefir þvert á móti þokast stöðugt
fram á við með stærðfræðislegri nákvæmni.
Staðir sem herstjórn Þjóðverja hefir lýst
yfir að væri mjög áriðandi að halda, hafa
verið teknir af þeim og þeir aldrei náð
aftur. Bandamenn hafa því mjög svo
áþreifanlega haft fram vilja sinn gegn
óvinunum.
Fra Austur-Afriku.
Klukkan 9 að morgni mánudags þann
4. þ. m. gafst Dar-es-Salaam höfuðborg
Þjóðverja i Austur-Afríku upp fyrir Bret-
um. Borgina tóku sjóliðssveitir með að-
stoð hersveita, sem voru á suðurleið með
ströndinní frá Bagamayo. Aðalher óvin-
anna var horfinn frá aðaijárnbrautinni
— som var skilin eftir svo að segja
éskemd — og upp í Ufuguru-fjöllin suður
af Krogoro. Miklar rigningar voru og
vatnavextir, en þrátt fyrir það brutust
hersveitir upp í háiendið, en lið van De-
venters gætti vestur takmarkanna. Að
sunnan er her Northleys hershöfðingja á
norðurleið. — Þegar þetta er sett i sam-
band við fali Dar-es-Salaam, þá sézt að
lið Þjóðverja er nú krept inni á tiltölu-
lega litlu svæði, sem stöðugt þrengist.
At'greiftslasimi cr, ðOO
NÝJA BÍÓ
Gamanleikur leikinn af Nordisk
Films Co., af fínustu grinleik-
œ urum Dana, þeim sniliingunum
Carl Alstrup, Oskar Stribolt,
Lauritz Oisen, Frederik Buck.
————
Bezt uð auglýsa i Morgunbl.
Húsnæðisleysið.
Bæjarstjórnin er nú farin að
láta það mál til sín taka meir
en áður — og er betra seint en
aldrei. Var það mál til umræðu
á síðasta bæjarstjórnarfundi. Bar
Þorv. Þorvarðarson fram tillögu
um að bæjarstjórnin feldi dýr-
tíðarnefndinni að semja frumvarp
til laga um hámark húsaleigu
og koma því á framfæri við
landsstjórnina. Var sú tillaga
samþykt. Benedikt Sveinsson
bar fram tillögu um að skora á
borgarstjóra að setja á stofn hús-
næðisskrifstofu um nokkurn tíma,
til þess að greiða fyrir mönnum,
er húsnæði vantar. Var sú til-
laga einnig samþykt. Loks sam-
þykti fundurinn tillög'u frá Ág.
Jósefssyni um að láta rannsaka
hvort ekki væru til húsrúm í
bænum, er gera mætti nothæf til
íbúða fyrir fjölskyldur. Verður
varla annað sagt en að bæjar-
stjórnin samþykki ekkihittogann-
að í þessu máli. Borgarstjóri hefir
jafnan haft hug á því að greiða
fyrir mönnum, sem í vandræð-
um hafa verið með íbúðir, en
fulltrúarnir meiga þó tæplega
búast við því, að borgarstjóri geti
gert alt. Það er megnasta hús-
næðisekla í bænum — og úr
henni verður ekki ráðið með
öðru móti en því, að gera mönn-
um sem auðveldest að byggja
hús. Fæstir eru svo efnum bún-
ir, að þeir geti reist hús án þess
að fá lán út á það. Ætli bezta
ráðið út úr öllum þessum vand-
ræðum sé ekki að athuga
grandgæfilega veðdeildarlánskjör-
in í Landsbankanum, — og reyna
að fá því breytt, sem þar er
ábótavant. Það er ekki ótrúlegt,
að einmitt veðdeildarbréfin og
markaðsleysið fyrir þau, sé einna
mesti þrándurinn í götu fyrir
byggingu bæjarins.