Alþýðublaðið - 29.05.1958, Side 6

Alþýðublaðið - 29.05.1958, Side 6
6 Alþýðublaði® Fimmtudagur 29. maí 1958 ( Utan úr heimi ) UPP ÍJR heimsstyrjoldinni síðari var fjórða franska lýð- veldið sett á laggirnar. Til þessa dag's hefur það siitið út tuttugu og fjórum ríkisstjórnum,------ stjórn Pijmlins er hin tuttug- asta og fimmita. Hver ríkisstjórn hefur setið að jafnaði sex til sjö míánuði, þá hefur henni ver- ið steypt af stóli, og eftir nokk. urra vhkna þjark verið mynduð ný stjórn, skipuð að m'estu sömu mönnum og voru í fráfarandi stjórn, en skipt um forsætis- ráðíherra. Þetta gefur strax til kynna, að allar ríkisstjórnirnar hafi að mestu stuðzt við sömu flokka eða. flokkssamsteypur. Segja má, að á franska þing inu séu hér um. bil tvö hundruð þingmenn ólýðræðislegra flokka til hægri og vinstri. — Stjórnin hefur því orðið að fá ! meirihluta hjá þrjú hundruð af , hinum fjögur hundruð þing-! mönnumi lýðveldisflokkanna, —' en þetr skiptast í fimm stórar flokkasamsteypur og marga smáihópa. Þetta hefur leitt til þess að sérhver ríkisstjórn hef- ur orðið að halda sér fast við eihhverskonar miðstefnu, og lítt getað sveigzt til hægri eða vfinstri. Allar ríkisstjórnirnar hafa þannig stuðzt við hinn tvpiska miðflokk, róttæka eða vinstri-radikala. Tvær ástæður hafa einkum valdið því, að franskar ríkis- stjórnir hafa yfirleitt ekki set- ið nema rúmt misseri. í fyrsta lagi hafa flokkasamsteypurnar mjög mlismunandi afstöðu til þjóðmálanna. Þær geta komið sér saman um lausn knýjandi vandamiála, en þegar ný vanda- mál svo skapast þá springur venjulega samstarfið. Þá verð-. ur að leita samninga á ný um | Maurice Thorez. aðra samsetningu þingmeiri- hluta, — og þannig hefur þetta gengið koll af kolii. í öðru lagi: Flokkasamsteyp- urnar og þingflokkarnir eru mjög sundurlaus'.r og enginn agi innan þeirra. — Meðlimir þeirra eru sammála um viss grundlvallaratriði, en þegar greidd eru atkvæði um tiltekin mál, þá hefur hver og einn René Coty. frjáisar hendur um hvernig hann notar atkvæði sitt. Fyrir . u.tan kommunista og fasista, —j bá e::u jafnaðarmenn eini flokk uiinn, sem í flestum tilfellum I koma fram sem heild við mikils | verðar atkvæðagreiðslur. 1 Flestir þingflokkarinir eru svo ’ lauslega tengdir ínnbyrðis, að þingmenn eru stöðugt að fær- ast milli þeirra og er því alltaf um nýja og nýja möguleika að ræða. Margir þingmenn eru ekki kosn'.r af listum flokkanna, heldur eru þeir valdir eftir af- stöðu sinni til bæjarmála á hverium stað. Fjöldi beirra eru „ciháðí.r“ frambjóðendur og erf- itt að segja hvar þeir skipa sér í fylkingu á þingi. Þeir ganga að vísu flestir í einhvern h’nna stærri þing.flokka, en eru þar ótryggir og óútreiknanlegir. — Þetta á einkum við um þá f.mm tíu og tvo þingmenn, sem kosn- ir eru af landssvæðum Frakka í Afríiku. M'eð þ^ssar staðreyndir í huga er flokkaskiptingin í franska þinginu eins og hér fer á eftir. F'lokkarnir eru taldir upp með tilliti til afstöðu sinn- ar, þanríig að byrjað er á flokk- unum lengst til vinstri. Konamúnistar, 150 þing- menn. — Jafnaðarmenn, 100 þingmenn. ■— Kaþólski flobk- urinn (MRP), ca. 80 þingmenn. — Róttæk*r og. skyldir flokk- ar, ca. 95 þingmenn. — Sósíal- republikanar (áður flokkur de Gaulles), 20 þingmenn. — Ó- háðir (hægrimenn), ca. 100 þingmenn. — Poujadistar og aðrir flokkar lengst til hægn, ca. 45 þingmenn. — Loks eru nokkrir þingmenn, sem standa utan við alla flokka og flokks- brot. En alls eiga 595 menn sæti á þinglnu. RÍKISSTJÓRN PFLIMLINS | hefur, r aunar á mjög hæversk- , an hátt, sett þeim æðstu mönn- um í Alsír úrslitakosti, þeim Salan herforingja og hernaðar- aðstoðarmönnum hans. Þeir verði að brjóta á bak aftur vald og áhrif þeirra öfgamanna, sem halda vilja áfram línuna frá Alsír og krefjast valdatöku D.e Gaulle í Frakklandi. Til endur ■gjalds heitir stjórnin því að síyðja herinn og yfirmenn hans í Alsír unz. styrjöldinni lýkur. Ríki.sstjórnin hefur enn taum hald á öllu, heima fyrir að minnsta kosti, og Gaulle hers- höfðingi bíður bolinmóður þess að sér bjóðist tækifærið. Og nú nálgast óðum sá tími að tjaldið verði dregið upp að þriðja og síðasta þætti í þessum sögu- lega lieik, — og sviðið verður sama og í fyrsta þætti, — Alsír. Spurningin er hvort vfir- xnenn hersins þar muni viður- kenna vald stjónarinnar, eða halda; fast við kröfu stjórn- málaleiðtoganna í Alsír um það að De Gaulle taki við stjórnar- taumunura. Atburðimir í Alsír, þegar kröfumenn réðust á stjórnar- bygginguna og útnefndu örygg- isnefndina sem æðstu stjórn í Alsír, áttu beinlínis því hlut- verki að gegna að hræða þjóð- Jþingið frá að viðurkenna stiórn ipflimlins. Evrópumenn í Alsír hafa lengi verið þeirrar trúar ' að þeir ættu úrslitaorðið í öll- um hernaðarmálum og gætu fellt hvern forsætisráðherra og ríkisstjórn, sem ekki vildi á- byrgjast framhald miskunnar- Jausra- styrjaldar í Alsír. Þeir jbvinguðu. stjóm Mollets til að ! breyta um stefnu í febrúar 1956, þegar þeir tóku á móti honum með grjótkasti, og þeir hafa síðar sýnt að þeir hika ekki við að beita slíkum ráð- um. j Hingað til hafa þeir ekki hik að við að gera opinbera upp- reisn gegn lýðveldinu. Á með- an það lét að vilja þeirra þótt- ust þeir geta hangið í mála- myndahjónabandi við ríkis- stjórnina í París. Þeir voru á móti írumvarpi Mollets um heimastjórn í Alsír. Þeir voru líka á móti hinu útvatnaða frumvarpi sem að lokum var samþykkt, þar sem það gerði of lítinn greinarmun á rétti Araba og Evrópumanna. Þeir voru ekki heldur sérlega fylgj- andi Lacoste, sem átti að koma því í framkvæmd. En Lacoste gerðist skilyrðislaust fylgjandi styrjöldinni, og þeir sáu sjálfir um það að samþykkt frumvarps ins hefði engin áhrif. Uppreisn- armennirnir í Alsír samþykktu það ekki hvort eð var, og sjálf- ir létust þeir geta breytt því þegar styrjöldinni væri lokið. Að þessu sinni hafa þei- grip ið til aðgerða, sem jafngilda uppreisn. Þeir hafa sett á lagg- irnar öryggisnefnd, sem lýst hefur yfi- því að hún mund.i ekki hlýðnast fyrirskipunum Pflimlinstjórnarinnar, og tjáð sig fylgjandi valdatöku De Gaulle. Orsaki- þess arna er að rekja til þróunar málanna á Frakklandi. Svo var að sjá sem fólk þar heima væri orðið þreytt á styrjöldinni og hægt og rólega sigi í samkomulags- átt. Það var kunnugt að Pfliml- in var raunhæfur stjórnmála- maður og höfðu þeir þegar ill- an bifur á honum, sem harðast stóðu móti öllu samkomulagi og málamiðlun. Framhald á 4. síðu. Flokkarnir hafa nok.kurnveg- inn þingnienn í hlutfalli við atkvæðamagn sitt. Poújadistar fengu þó fleíri atkvæði en þing- mannatala þeirra bar vott um, og MRP fékk mokkrú fleiri þing sæti en vera átti samkvæmt at- kvæðamagni. Með kommúnistum eru tald- ir þlngmenn Framsóknarflokks- ins, en þeir hafa jafnan staðið saman á þingi. Foringi þing- flokks þtlrra er Jacques Duclos, 62 ára að ald.ri, en formaður flokksins, Maurics Thorez hef- ur sökum vanheilsu ekki getað sinnt þingstörfum undanfaxin ár. ForingJ jafnaðarmanna er Guy Mollet, 52 ára, —■ hann er nú aðstoðarforsætisráðherra. Aðrir ráðherrar flokksins eru Jules Moch, innanríkisráðherra, Albert Gazier, upplýsingamála- ráðherra og Max Lejenne, fáð- herra án sfjórnardeilda". Moch og Gazer eru báðir miklir and- stæðingar Lacost og stefnu hans í Alsírmólunum. Lejenne er hlynntur þjóðernisrembing; Lacostes. MRP, — lýðveMishreyfingin, er flokkur, sem byggir á sömu forsendum og hirí;r Kristilegu Sósííalistaflokkar annars staðar í álfunni, þar sem kaþólska kirkjan á sterk ítök. Flokkur- inn var upphafle.ga mjög hæg- risinnaður, en hefur færzt mjög ti] vinstr( á seinni árum. Hefur það orðið jafnhliða því, að stofn andi og fýrsti foringi flokksins Georges B,Ldault hefur einangr- azt og Pierre Pflimlin fengið meiri völd í flokknum, og er hann nú formaður hans. Varnar málaráðherrann í stjórn Pflim- Guy Mollet. lins, de Chevigné, er úf MRP. Rlnir 95 þingmenn rót,tækra, eru klofnir í fjóra hópa. Meðal forystumanna þeirra eru F’elix Gaillard Maurice Bourjés- Maunoury og Maurice F’aure, | sem er ,,Evrópuráðherra“ í nú- ' verandi stjórn. Mendés ■í’rance, fyrrum forsætisnáðlherra. kem- ur nú lítt við sögu. Stuttu eftir síðustu kosning- ar klufu fjórtán þingmenn sig" úr flokknum., foringi þeirra var André Morice, sem var varn- Framhald á 8. KiSu. „Ertu viss um, að við höfum ekki gleymt neiiiu, elskan?“

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.