Morgunblaðið - 25.03.1928, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
“'““W
Siliurpletivörur
nýkomnar, svo sems
Vasar, Skálar, Kökuspaðar, Hnífar, Gafflar, Skeiðar, Com-
potskeiðar, Sultuskeiðar, paaleggsgaflar, Rjómaskeiðar,
Ávaxtahnífar, Kökugaflar, Saltkör, Sósuskeiðar, Sykur-
tengur, Strausykursskeiðar, 6 teskeiðar í kassa á aðeins
9 krónur. —
Hvergi ódýrara í borginni.
Verslunin Goðaioss,
Laugaveg 5. — Sími 436.
Hin árlega
skð-Atsala
byrjar á morgun.
Afsláttur af öllum S K Ó M 10. til 50%.
SkóTersInn B. Stefánssonar,
Laugaveg 22 A.
Tilbynning.
Þeir sam hafa pantað og þeir sem ætla að kaupa
legsteina frá Scharmong’, geri svo vef að tala við mig
sem fyrst.
Hefi fengið mikið úrval af steinum; einnig
Granit og Marmaraplötur áletrað af kunnáttumanni og
settir upp ef óskað er.
Pantanir sendar gegn póstkröfu út um land gegn
% verðs fyrirfram greiðslu.
Sígurður Jónsson
(hjá Zimsen.)
Stúdentaf ræðsla n.
Ibsens-minning
verðtur haldin í dag kl. 2 í Nýja Bíó.
1. Hljóðfærasláttur: Þórarinn Guðmundsson.
2. Inngangsorð: Próf. dr. phil. Sigurður Nordal.
3. Ibsen og ísland: Dr. phil. Guðmundur Finnbogason.
Miðar á 1 krónu seldir í dag kl. 1—2 í Nýja Bíó.
Best að auglýsa í Morgunblaðinu.
Allir ljúka upp einum munni og róma mjög allan
frágang á nýja Ford.
Verð hinna ýmsu gerða hans er sem hjer segir:
Phaeton 5 manna . . Kr. 3715.—
Fordor 5 — . . — 4890.—
Tudor 5 — . . — 4510.—
Vörufl. l'/a tonn . . — 3240.—
Hygnir kaupendur hafa ávalt keypt Ford.
Hefi fyrirliggjandi Touring Model 1927 og nokkra
notaða vagna.
Reykjavík 25/s 1928.
P> Stefánsson.
umboðsm, Ford Motor Co.
Sr. Jón G-uðnason á Kvennabrekku,
hefir fengið veitingu fyrir Prestbakka
í Hrútafirði.
Sr. Kristinn Stefánsson á Völlum í
Svarfaðardal, hefir verið skipaður
próf'astur í Kyjafjarðarprófastdæmi.
Ibsens-minning stúdentafræðslunn-
ar verður' í dag kl. 2 e. h. í Nýja Bió.
— Byrjar samkoman á hljóðfæraslætti
undir stjórn pór. Guðmundssonar
fiðluleikara. pá talar próf. Sig Nor-
dal nokkur minningarorð, en síðan
flytur dr. Guðm. Finnbogason lands-
bókavörður fyrirlestur um „Tbsen og
ísland“. Alþingi og landsstjórn er
boðið á samkomuna, svo og norsku
konsúlunum. — Eflaust verður þetta
mjög skemtileg samkoma, þar sem eru
svo snjallir ræðumenn og verður sjálf-
sagt ekkert sæti óskipað. Miðar verða
seldir við innganginn frá kl. 1, svo
sem auglýst er hjer á öðrum stað.
Heimdallur heldur f'und kl. 2 í dag
í G.T.hnsinu uppi. Eitt af merkustu
dagskrármálum þjóðarinnar á dagskrá.
Má búast við fjörugum umræðum.
f auglýsingu frá H/f. Nýja kaffi-
brenslan sem var í blaðinú í gær, mis-
prentaðist á einum stað, h.f. Kaffi-
brenslan, en átti auðvitað að vera H/f
Nýja kaffibrenslan.
Dr. Alexandrine fór hjeðan í
fyrrakvöld til Akureyrar með
fjölda farþega. Þar á meðal voru
þessir: Sjera Þorst-einn Jóhannes-
son og frú, Þormóður Eyjólfsson
konsúll Siglufirði, Sigurður Ölafs-
son yerkfræðingur, Jón Ólafsson
kaupm., Jón Gíslason, Gísli Ánd-
rjesson og Egill Gnttormsson
verslunarmenn, Sigfús Daníelsson
kaupm. ísafirði, Árni Gíslason
matsmaður, Helgi Hafliðason kaup
maður Siglufirði og Andrjes bróð-
ir hans, Helgi Zoega kaupm. Jón
Pannberg' kaupm. ísafirði, Guðjón
E. Jónsson bankam. Isaf., Prið-
rik Sæmundsson bóndi Efrihólum
Núpasveit og kona hans.
Brúarfoss fór í fyrrinótt
vestur og norður um Iand til
útlanda. Meðal farþega voru:
Snorri Sigfússon skólastjóri
Flateyri, Björn Hjaltested end-
urskoðandi, Mr. Hibble, . frú
H. Proppé, Karl Nikulásson
kaupmaður, Örnólfur Valde-
marsson kaupm. og frú, Jón
Björnsson kaupm. Þórshöfn,
Samúel Pálsson kaupm., Vil-
helm Erlendsson afgreiðslum.,
Pjetur Sighvats kaupm. Sauðár-
króki og frú o. m. fl. Til Kaup-
mannahafnar fór Eskildsen for-
stjóri.
Óþarfur milliliður. Tímanum er tíð-
rætt um „óþarfa milliliði“ í verslun.
pingmenn reka sig oft í; seinni tíð á
alóþarfan millilið í pólitíkxnni.
pegar rætt er um þingmál við Fram-
sóknarbændur, er oft viðkvæði hinna
skoðanasnauðu. „Hvað segir Tryggvi
um þetta?“ peir spyrja ekki um Jónas
dómsmálaráðh. eða skoðanir hans;
það betra tíl orðs rið „háttvirta kjós-
endur“, að þeir láti Tryggva segja
sjer fyrir verkum, en Jónas — sósa-
bróðir. En þeir gæta ekki að því, hin-
ir góðu Framsóknarbændur, að Tr. p.
er alveg óþaífur milliliður í þessu
efni — hinn 'áhrifalausasti forsætis- i
ráðherra, sem setið hefir hjer við'
völd — pví hann gerir og segir ekk-
ert annað en það sem dómsmáfarh.
vill vera láta.
fiatiihúð Reyklavíkur
Laugaveg 20.B. Sími 2184.
Gengið inn frá Klapparstíg.
Nýkomið mikið úrval af kvenhottum eftir
síðustu tisku. lfor- og súmarhattar úrs
flóka, strái, bangkok og silki, einnig
mikið af allskonar barnahöttum
og regnhöftúm. Fáum nýif með
hverri ferð ffrá úflöndum.
Verslið við okkur ef þið viljið vera ánægðar
með haffa ykkar þvi þeir er« vandaðir,
klæðilegir og ödýrastir í bænum.
Hattabúð Reykjaviki&i*.
REYKID
UDDENS
og safnið fallegu Ijós-
myndunum, sem fylgja
hverjum pakka.
Fóst alstaðar þar sem
tóbak er selt.