Morgunblaðið - 25.03.1928, Síða 5
Stmnudaginn 25. mars 1928.
Hjer með tilkynnist, að Jón HanssSon, skipstjóri, druknaði at
S.t. Lord Devenport, sem strandaði við Orkneyjar um síðustu lielgi.
Reykjavík, 23. mars 1928.
Fyrir hönd fjarstaddrar ekkju hans,
Systkini og vandamenn hins látna.
Jarðarfor móður okkar Ragnhildar Árnadóttur fer fram á þi-iðj u-
dag 27. þessa mánaðar frá Dómkirkjunni, og hefst með húskveðju á
heimili hennar, Ingólfsstræti 7, klukkan 1 eftir hádegi.
Fyrir mína hönd og systra minna
Sigurður Guðmundsson.
Jarðarför móður okkar og tengdamóður, Ingibjargar M. Bjarna-
dóttur, ljósmóður, fer fram frá heimili hennar mánudaginn 20. þessa
mánaðar klukkan 1 eftir hádegi.
Jenny Valgerður Daníelsdóttir. Helga Sigtryggsdóttir.
Gísli Jóhannesson, Daníel Jókannesson.
Móðir mín, Ingibjörg Jónsdóttir frá Digranesi, andaðist að heimili
sínu, Njálsgötu 64, 23. mars 1928.
Margrjet Magnúsdóttir.
Kveðjuathöfn fer fram í Dómkirkjunni yfir bróður okkar Þor-
steini sáluga Jónssyni frá Stóra-Ási þriðjudaginn 27. mars klukkan
SV2 eftir hádegi. 'Hafi einhverjir ætlað að gefa krans, er það afbeðið,
en óskað eftir að vetð þeirra renni í Landsspítalasjóðinn.
Guðrún Jónsdóttir. Hannes Jónsson.
Telefnnken
gefa best afkast.
Vel valdar.
Vorvðrurnar
ern nú sem óðast að koma.
Vandaðar. — Fjölbreytt úrval.
Káputau. Kjólatau, Silki.
Regnfrakkaefni, Prjónsilki, Crepe de chine.
Kvensjöl, Gluggatjaldadúkar.
Prjónakjólar og dragtir. Ullartauskjólar.
Sokkar fallegir, Kvennærfatnaður, Peysur
kvenna og barna. silki, ulla'r og baðm. barna.
Barnatreyjur, Ullar- og Silkigarn.
Regnhlífar, Regnslá, Gummísvuntur.
J
Þingiiöindi.
StiirnliFlfliim læEt&nIegst
í L íHlsbaakííiiii^u
Hækkun á
ðkófstiiaðí.
Vegna hinnar gífurlegu verð-
hækkunar á alskonar leðri,
hefir skófatnaður hækkað
mikið í verði erlendis og fer
síhækkandi ennþá.
Til þess að rýma fyrir nýjum
birgðum, seljum við næstu
daga leyfar af eldri tegund-
um af ýmiskonar skófatnaði
og sýnisliornapör (prufur) af
fínum kvenskóm o. m. fl. fyr-
ir mjög lágt verð, miðað við
það sem líkar tegundir kosta
næst þegar þær koma.
Notið tækifærið. — Kaupið
páskaskóna í
Núverandi bankaráð.
Talið frá vinstri til hægri Jón Árnason. Sig. Briem (formaður) Jónas
IJónsson, ráðherra, Magnús Jónsson dósent, Jóhannes Jóhannesson bæjar-
fógeti. Er því fleygt, að í ráði sje að fá hreinan jafnaðarmann í ráðið við
hlið tveggja eða þriggja Framsóknar-manna.
Aðalstræti 8. — Sími 775.
Á föstudaginn var, var Lands-
bankafrv. til 3. umr. í Efri deild.
Snjerust umræðurnar að þessu
sinni einna mest um bankaráðið og
útnefningu þess.
Samkv. 21. grein frv., á að kjósa
15 manna bankanefndina nú í
þinglokin, og á nefndin síðan að
kjósa 4 menn í bankaráðið. En
landsstjórnin á að útnefna banka-
fráðsformanninn; þann eina mann,
sem samkv. stjórnarfrv. á að hafa
völdin.
Fyrstur talaði
Jón porláksson. Hann komst m. a.
að orði á þessa leið.
Við 2. umræðu þessa máls geyrndi
jeg mjer að tala um eitt atriði máls-
ins, breytingar þær, sem stjórnin ætl-
ar að gera á skipun núverandi banka-
ráðs.
Eftir breytingartill. þeirra, sem
mcirihl. ber fram um þetta efni, á að
kjósa í bankanefndina nú á þessu
ári, og í bankaráðið síðan, en lands-
stjómin útnefnir formann.
Bankaráð það, sem nú situr, er
skipað samkvæmt lögunum frá í fyrra,
og eru allir bankaráðsmennirnir skip-
aðir til ákveðins tíma; hinir þing-
kjörnu 4 og formaðurinn. Eru tveir
þingkjörnir skipaðir til 4 ára og tveir
tii 2 ára. En formaðurinn er skipað-
ur.til 3 ára.
Hvergi er á það minst í frv. þessu
er hjer liggur fyrir, að umboð þess-
ara manna eigi að falla niður.
pegar litið er á þá þögn, liggur
næst að halda, að ætlast sje til, að
ákvæði um nýjar kosningar í banka-
ráð, eigi ekki að koma til greina fyr
en jafnóðum að sæti losnar í banka-
ráðinu.
En jeg hafði grun um, að tilætlun-
in væri, að sópa núverandi bankaráði
út, til þess að geta haft þar manna-
skifti eftir geðþótta núverandi lands-
stjórnar. Vildi jeg því ekkert um
þetta fullyrða fyrri en fjármálaráð-
herra sagði frá hvaða skilning hann
legði í ákvæði þessi.
En hann hefir látið hjer þá skoðun
í ljós, að sjálfsagt væri, að .ný kosn-
ing og útnefning færi hjer fram.
Snma' skilning hefir Jón Baldvins-
,son sýnt og ennþá ákveðnari.
‘ Sem kunnugt er, er það viðurkend
grundvallarregla um landsstjórnir og
(löggjafarþing, að þó mannaskifti verði
á þingi, þá er, þingið ákveðin stofnun,
! sem gerð er sú sjálfsagða krafa til,
að sjerhver ákvörðun sem þingið gerir,
og bindandi er gagnvart öðrum, á að
standa óhagganleg, eins og um væri
að ræða skuldbinding einstaklinga.
Hjer hefir þingið gert bindandi
samning við hina þingkosnu 4 banka-
ráðsmenn; bindandi gagnvart Lands-
(bankanum, sem fengið hefir þessa yf-
j irstjórn, og bindandi gagnvart þessum
mönnum, sem í bankaráðinu eru
i pað myndi setja alveg óvenjulegan
í blett á Alþingi, ef það nú ætlaði að
^víkja frá þessari sjálfsögðu grundvall-
arreglu.
pingið getur altaf breytt lögum, og
samið ný. pað er rjett.
En flest lög eru þannig, að þau gefa
engum einstaklingum rjett fram yfir
aðra. En sje svo, að Alþingi gefi ein-
staklingum einhvern rjett með lög-
um, þá verður sá rjettur ekki af þeim
tekinn, frekar en að menn geta rift
samningum.
Alþingi getur ekki, sóma síns vegna,
komið fram sem óorðheldinn einstak-
lingur. Jeg þykist vita, að slíkt verði
ekki samþykt.
En borin er fram tillaga hjer, sem
fer fram á, að svo verði gert.
Og um skipun bankaráðsformanns-
ins er hið sama að segja.
pví það sem ein stjórn gerir, og
hindur með samningi gagnvart ein-
staklingum, verða eftirfarandi stjórnir
að halda.
Landsstjórnin getur ekki skift um
bankaráðsformann fyr en tími núver-
andi formanns er útrunninn. Ef nú-
verandi formaður leggur niður starf
sitt, verður varamaður hans að taka
sætið.
Jeg vil vona það, að
menn ætli ekki' að innleiða hjer þann
sið, að ný stjórn þurfi ekki að binda
sig við loforð þau, er fyrverandi
stjórn hefir gert.
pyí sje það áform þingmeirihlutans,
þá er hann blátt áfram að reyna að
gera landsstjórnina ómerkari en hún á
að vera, má vera.
Jón Baldvinsson hjelt hjer á dögun-
um pistil um pólitík, flokkapólitík,
sem væri, og hlyti að vera alstaðar
og í öllu.
Hann viðurkendi að‘ frumvarp það.
sem hjer er á ferðinni, sje flutt í þeim
ákveðna tilgangi að ná yfirstjórn
bankans í hendur stjórnarflokksins,
útvega stjórnarflokknum fleiri sæti en
lwnn hefir nú í bankaráðinu.
Jeg vil segja, að vel færi á því, ef
stjórnarflokkurinn væri ekki eins
óðfús að jötunni,
eins og hann virðist vera hjer, og
hann þyldi bið þá, sem á verður,
samkvæmt lögum þeim, sem þessir
sömu menn ágreiningslaust samþyktu
fyrir ári síðan.
í fvrra vildi núverandi stjórnar-
flokkur að formaður bankaráðs yrði
kosinn til þriggja ára. Nú, þegar þeir
hugsa sjer sjálfir að útnefna í stöðu
þessa, leggja þeir til að hann sje kos-
inn til fímm ára.
Mjer gæti staðið á sama um það,
þó núverandi stjórnarflokkur fengi
meirihluta í bankaráðinu. En það er
alvarlegt mál, ef taka á hjer upp siði
sem brjóta niður alla virðingu fyrir
stjórn og þingi. En það er gert, ef
þing og stjórn á að rifta gerðum
samningum og löglega gefnum lof-
orðum.
Virðing ríkisins heimtar, að loforð
‘standi örugg nm trúnaðarstöður, sem
veittar eru um ákveðið árabil.
Sje við þvi hreyft, er kastað blæ
óheiðarleika vfir þing og stjórn.
Á okkur hvílir sjerstök ábyrgð, sem
skipum Alþingi þessi fyrstu ár eftir
að sjálfstæðið er fengið. Við eigum
Skðriduft
og
Hvottaduft
best og ódýrast.
Fæst allstaðar.
ÍAðalumboðsmenn:
Sturlaugur Jónsson & Co.
R E Y N I Ð
okkar ágætu
Egg
Matarbúð Sláturfjelagsins
Laugaveg 42. Sími 812.
að skapa fordæmin. Ef við förum í
þessum efnum inn á villustigi þá fell-
ur ekki aðeins ábyrgð á okkur fyrir
þau mistök, heldur einnig fyrir þ*u,
; sem gerð verða í framtíðinni.
Reynslan í Evrópu sýnir, að þeirri
þjóð vegnar best, sem fæst hefir laga-
ákvæði um stjórnarathafnir, en flest-
ar og fastastar stjórnarvenjur.
i Bretar hafa í raun og veru enga
, stjórnarskrá. Peir hafa fastar ákveðn-
1 ar stjórnarvenjur, sem þjóðin þekkir
• og veit að fylgt verður.
Við, sem nýlega höfum öðlast sjálf-
| stæðið verðum að skapa þær góðu
I venjur, sem eftir 'á að fara í fram-
tíðinni.
Og er þá fyrst. að fuUkomin orð-
! heldni haldist hjá þingi' og stjórn þó
, mannaskifti verði.
Hvað sem annars verðnr nm frum-
varp þetta, ætla jeg því að vona, að
allir geti orðið sammála um að breyt-
ingartillagan við 21. gr., er fer fram
á fullkomið brot á orðheldni þings
og stjórnar verði feld.
Útaf ræðu þessari spunnust langar
umræður. peir Magnús Kristjánsson
(og Jón Baldvinsson urðu fyrir svörum.
Fór M. Kr. dálítið undan, í flæmingi,
að því er útnefningu í bankaráðði
snertir, sagði að það gæti farið svo
að hankanefndin útnefndi sömu menn-
ina og nú væru, og það gæti verið
að stjórnin hagaði útnefningu for-
manns eftir því hvernig kosningin
færi, o. s. frv. En viðvíkjandi óorð-
heldni þings og stjórnar gat hann
litlum rökurn beitt. Reyndi að taka
dæmi frá niðurlagningu tóbakseinka-
sölunnar og því um líkt.
: 1