Morgunblaðið - 29.07.1928, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Nvkominn:
Gruyére-ostur,
„Créme de Gruyére aux Fleurs du Jura“
Öósum með 6 stk.
Laukur í pokum.
Að auglýsa i blöðum er nauðsynlegt og gott, — en að hlut-
urinn auglýsi sig sjálfur hvar sem hann sjest, er enn þá betra.
Hvaða bíll vekur á sjer mesta eftirtekt á vegum landsins?
Hvaða bíll er fegurstur á vegum landsins?
Svarið verður eitt og hið sama hjá öllum — ELCAR.
Hann vinnur best, hann er afar benzínspar enda er í honum
einn af bestu mótorum, sem markaðurinn hefur að bjóða: LYCOM.
Aðalumboðsmaður á íslandi:
P. Stefánsson.
Nýkomið:
Bjúgaldin (Bananar)
Kex og Kökur,
Sykup allskonar,
Rismjðly
Haframjðl,
Baunir, poleraðar.
Hálfbaunip,
Hveiti, fleiri teg. ódýrt.
Ávextip (þurkaðir).
Ávextip (niðursoðnir)
Ávaxtasuita
og margt fleira.
Heildverslun
Bardars Gíslasonar
Hðsmæður!
Siðjið setið um það
— besta, sain ep —
Vegna þess að þjer mun-
'■ uð þurfa hjálpar við hús-
móðurstörfin, þá leyfi jeg
mjer að bjóða yður að-
stoð mína.
Fröken Brasso.
Ðrasso ber sem quII
af eiri af öðrum
fægilegi.
Faw»s- ©g deig-
vjelai'nar
eru nú aftup komnap í
JÁRNVÖRUDEILD
BLENDED TEA
H. BenBdiktsssn S Go.
JES ZIMSEN.
Géfiösiisíi
af öllum fataefnum og fatatil-
leggi til 1. sept.
Guðm. Bf líikes*
Sfmi 8.
Laugaveg 21 Simi 658
Hiýiiaii
í sambygðum og sundurlausum
húsum. Áhrif herbergjaskipuiiar.
Sambyggingar eiga erfitt upp-
dráttar í kauptúnum vorum, nema
lóðaverðið fari fram úr öllu valdi.
Og þó hafa sambygðu húsin mikla
kosti fyrir fátækt fólk. Þannig
liggur það í augum uppi, að lóðin
hagnýtist mildu betur og að alla-
jafna má komast af með hálfu
minni lóð en gerist í sundurlausri
byggingu. Þá er það og angljóst,
að útveggir verða miklu ódýrari,
því helmingur þeirra verða ein-
faldir milliveggir milli húsa. Þriðji
aðalkosturinn er sá, að sambygð
hús eru miklu hlýrri en sundur-
laus, svo eldsneyti sparast stór-
um. Þessu atriði hafa menn ekki
veitt þá athygli sem skyldi.
Myndin, sem hjer fer á eftir, er
tekin úr: Das warme Wohnhaus
eftir R. Fliigge. Fyrsta myndin
sýnir litla íhúð með tveim stof-
um og eldhúsi í sjerstöku smáhýsi,
binar sömu íbúðina í sambygðum
húsahópum. Fliigge hefir nú reikn-
að hve mikil kol þurfi (í Þýska-
landi) til þess að hita íbúðina og
telst svo til, að kolaeyðslan sje:
1. Eitt hús fyrir sig 3200 kiló.
2. Tvö hús sambygð (stigar sam-
an 3100 kilo.
3. Tvö hús sambygð (stofur
saman) 2500 kilo.
4. Fleiri hús sambygð (stofur
saman 2200 kilo.
Það þarf þá þriðjungi minni kol
til þess að hita sömu íbúðina í
sambygðri húsaröð, en til þess að
hita hana í sjerstöku húsi. Þetta
er enginn smáræðis sparnaður. —
Aftur er munurinn eklci mikill, þð
2 hús sjeu hygð saman, en miklu
meiri ef fleiri eru.
Þá má og læra annað mikilsvert
atriði af myndum þessum: Af
göngum og stigum stafar kuldi.
Bæði sleppur hitinn út, þegar
gengið er um útidyr, og flestar
hurðir eru miklu kaldari en þjett-
ur veggur, auk þess ætíð nokkur
súgur með þeim. Þá leitar og heita
loft.ið ætíð u])j) um stigann, ef
hann stendur opinn, og getur vald-
ið raka í loftinu. Ef stigagöngin
liggi milli stofanna, sem hita skal
(2 mynd), verður húsið mun kald-
ara en ef stofurnar liggja saman
(S. mynd). Það er því óheppilegt,
að hafa dyr og stigagöng á miðju
húsi, nema það sje því stærra, en
þetta er þó algengt í nýju hús-
unum í sveitum og víðar. A þenn-
an hátt eru íbúðarherbergin slitin
sundur með köldum stigagöngum,
og íbúðin verður bæði kaldari og
óþægilegri en vera þyrfti.
Þetta o*g þvílíkt kann að þykja
smámunir, en það er þó undir slík-
um smámunum komið, hvort hús
reynast góð eða ill.
G. H.
—• ^ <Sg> ^ ••••
Signrðnr SkagialdL
Söngur í Gamla Bíó 27. þ. mán.
Nú eru liðin allmörg ár, frá því
er Sigurður Skagfeldt söng hjer
i fyrsta skifti, „ólærður“. Hygg
jeg, að flestum þætti rödd hans
fögur þá, og svo hefir mönnum
fundist jafnan síðan, er hann hef-
ir sungið hjer í bæ. Enn er þó
nokkur ljóður á röddinni (sem
laga má), því að hún er eklti jöfn-
uð eða fægð til þrautar. Kemur
það berlega, og nær því eingöngu
í ljós, er hann syngur veikt. —
Piano-tónar hans eru misjafnir,
stundum innihirgðir,- stundum flá-
ir og að jafnaði nokkuð fjarri því
að vera tærir. En í sterkum og há-
um söng birtir yfir og gerist þá
röddin einatt glæsileg mjög. Það
er sennilega þetta, sem Þjóðverj-
arnir hafa vilst á, þeir, sem kallað
hafa Sigurð hetju-tenór. (Sbr. Yið-
tal í Mbl. 26. þ. m.) Ætti þó að
vera óþarft að villast á slíku um
rödd, sem er jafnvel bagalega
máttlítil á neðri hluta tónsviðsins.
Nei — Sigurður er Ijóðrænn tenór
og hefir altaf verið það. En hann
er jafngóður fyrir því. — Lært
hefir hann nú margt og mikið til
gagns. Hljóðbrigði leggur hann
mikla stund á og iðkar pianissimo-
söng af kappi. Er það harla lofs-
vert í sjálfu sjer. Þess eins er að
gæta, að sú viðleitni verði ekki
ávana — eða öfgakend.
Geta mætti sjer til, að síðustu
námsár Sigurðar hafi verið þreng-
ingatímar að mörgu leyti. En —
á misjöfnu þrífast börnin best. Sú
tilgerð er nú að hverfa, sem spilti
söng hans stundnm áður fyrri.
Er hann eðlilegri en var og stór-
um næf því að geta heitið full-
komlega listrænn. Með þroskaðri
smekk og reynslu fæst það von-
andi, sem á vantar.
Af viðfangsefnum söngvarans
má nefna Bæn úr „Rienzi“. Fór
Sigurður að ýmsu leyti prýðilega
með það lag, þó að sönglínan
slitnaði um of, vegna ýkjamikillar
viðleitni í því að flytja sönginn
stílhreint (í „deklamatoriskum“
Wagnerstíl). Hitt voru lög eftir
R. Strauss, Hugo Wolf, Loft. Guð-
mundsson og að síðustu lög úr
óperettum eftir Lehár. Fjell þetta
alt í góðan jarðveg. Áheyrendur
klöppuðn ósleitilega, en söngvar-
inn kvittaði fyrir með aukalögum.
Emil Thoroddsen ljek undir og
gerði það vel, svo sem vænta mátti
Sigf. E.
Goðafoss fór' hjeðan til Vestur-
og Norðurlandsins kl. 12 á mið-
nætti. Meðal farþega voru: Hallgr.
Hallgrímsson, verslm., Kristján
Einarsson, kaupm. og frú, Sigur-
jón Ólafsson, útg.m., Beinteinn
Bjarnason útg.m., Jón Sveinsson
bæjarstj. á Akureyri, Sig. Skag-
ifeklt, söngvari, Jón S. Loftsson,
kaupm., Kristinn Guðmundsson dr.
Kristinn Jóhannesson og frú frá
Patreksfirði, Gnðbr. Hákonarson
vjelstj. og frú og margir fleiri.
Hvíflr iÉkar
yrir mélara, bakara og
werslunarmenn
og
Hvítar haxur
nýkomið i
Austurstræti 1.
Nýkomlð:
N ankinsf atnaður,
allar stærðir,
Enskar húfur,
afarfjölbr. úrval,
Leður- og gúmmíbelti,
Vinnuvetlingar,
fjölda teg.
Slitbuxur,
allskonar,
Khakiföt,
Khakiskyrtur,
Reiðbuxur,
Reiðkápur,
Stormjakkar,
Vattteppi,
Strigaskór,
hvítir, með hrágúmm-
sólum,
Nærfatnaður,
alskonar,
Olíufatnaður,
gulur og svartur.
lin .liuilr.
Jarðepli
i heiidsfilu ódýrt
Tin hreint
Tin (lóðningartin 50%)
Blý í blokkum
Blý i plötum.
Lang lœgsta vstrð í
bnnum.
Gamalmennaskemtun verður
haldin á Sunnudaginn kemur, 5.
ágúst, á sama stað og tíma og vant
er. Forstöðun fndin vonar að bif-
reiðaeigendur, kaupmenn, söng-
rnenn o. fl. leggist á eitt um aS
gera gamla fólkinu daginn sem
skemtilegastan.