Morgunblaðið - 29.07.1928, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
MORGUNBLAÐIÐ
Stofnandi: Vilh. Finsen.
TJtgefandi: Fjelag- í Reykjavík.
Ritstjórar: Jón Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Auglýsingastjóri: E. Hafberg.
Skrifstofa Austurstræti 8.
Sími nr. 500.
Auglýsingaskrifstofa nr. 700.
Heimasímar:
Jón Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Askriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánutSi.
Utanlands kr. 2.50 - ----
I lausasölu 10 aura eintakitS.
Erlsndar símfrEgnir.
Kaupm.höfn, FB. 28. júlí.
Lundborg fagnað.
Frá Stokkhólmi er símað:
Lundborg og fleiri sænskir flug
menn, er verið hafa norður á
Spitzbergen til þess að taka
þátt í björgunartilraununum,
fóru frá Narvik á sömu járn-
brautarlest og Nobile og fjelag-
ar hans. Voru þeir hyltir af
fjölda manna á mörgum braut-
arstöðvum. Nobile var hvergi í
Svíþjóð sýnd nein andúð, en
sumstaðar samúð.
Frá Bretlandi.
Frá London er símað: Álit
ríkisráðstefnu, sem kölluð var
saman til þess að ræða um sam-
kepni loftskeyta- og símafje-
laga, hefir verið birt. Leggur
ráðstefnan til, að höfð verði
sameiginleg stjórn fyrir öll loft-
skeytafjelög og símafjelög
Bretaveldis, og að stofnað verði
fjelag, sem ráði yfir öllum
breskum loftskeytastöðvum og
símalínum. Ráðstefnan álítur
nauðsynlegt, einkum á ófriðar-
tímum, að ríkinu sje trygt eft-
irlit með öllum símaleiðunum.
-----<m»—-—
Bíil yfir Halðadal.
I gærkvöldi komu þeir fjelag-
ar Jónatan Þorsteinsson og
torkell Teitsson til Borgarness.
Höfðu þeir farið hjeðan alla
leið á bíl, um Þingvöll, norður
á Hofmannaflöt, og sem leið
Hggur norður Kaldadal. Þeir
íóru hjeðan á föstudagsnótt kl.
voru komnir upp á Kalda-
dalsveg um hádegi, og einhvern
tíma seinnipartinn í gær komu
teir heilu og höldnu niður í
Sorgarfjörð. Nánar af ferðalag-
Hiu hefir Morgunblaðið ekki
Hjett ennþá.
Híllinn , sem þeir fjelagar hafa
ekið í þessum tveim vegakönn-
únarferðum, er nýr Whittled-
Overland bíll.
—----—-----------
Rannsóknirnar við Laugamar.
Hitinn hefir haldist hinn sami í
borunarholunni undanfarna daga.
\ atnsmegnið sem streymir upp úr
olunni er og óbreytt. Vatnsmagn
auganna hefir ekki minkað. í
Þessari viku verður sennilega byrj-
að að bora þriðju lioluna. Verður
*un sennilega gerð norður undan
Laugunum. Þar var eitt sinn all-
s or hóll úr hverahrúðri og laut
ínður í hann miðjan,, rjett eins og
par hafi verið goshver. Hóllinn
etir verið notaður í ofaníburð, og
oi nú aðeins vottur eftir þar sem
j«ann Var. Bæjarbúar fvlgja rann-
'Soknum þessum með mikilli at-
tiygli sem eðlilegt er.
Eins og frá hefir verið skýrt
hjer í blaðinu, sendi Tryggvi
Þórhallsson forsætisráðh. kaup-
fjelagsstjóranum á Borðeyri
símskeyti, er lesið var upp á
Hvammstangafundinum þ. 26.
júní síðastl. I símskeyti þessu
lýsti Tr. Þ. því yfir, að miðstjórn
Framsóknarflokksins hefði ekki
verið boðið á fund þennan. —
Stjórnarblaðið Tíminn endurtók
nokkru síðar sömu staðhæfingu
og fullyrti, að miðstjórn Fram-
sóknarflokksins hefði ekki verið
boðið á neinn þann fund, er
miðstjórn Ihaldsflokksins boðaði
til á Norðurlandi.
Það varð hlutskifti Ólafs Thors
alþingismanns, sem sæti á í
miðstjórn íhaldsflokksins að
tala við forsætisráðherrann og
bjóða miðstjórn Framsóknarfl.
á þessa fundi. Ólafur er nýkom-
inn til bæjarins, og í „Verði“
er út kom í gær, sendir hann
Tr. Þ. opið brjef, þar sem hann
skýrir frá því, sem þeim fór á
milli áður en fundirnir voru
auglýstir.
Eftir að Ólafur hefir lýst
viðskiftunum við forsætisráð-
herra, þar sem hann — ekki
einu sinn — heldur fimm sinn-
um hafði rætt þessa fundi við
Tr. Þ., og skorað á miðstjórn
Framsóknar að mæta á fund-
unum, en forsætisráðherra af-
þakkað boðið, kemst hann þa nn-
ig að orði í niðurlagi brjefs
síns til Tr. Þ.:
„Nú þykir mjer kynlega við
bregða, er þú í nefndu skeyti
gefur í skyn, að ykkur hafi alls
eigi verið boðið á þessa fundi,
og lætur blað þitt „Tímann"
marg-endurtaka þetta.
Hafði jeg þó raunar eigi að
eins boðið ykkur, heldur bæ&i
beðið ykkur að mæta og skorað
á ykkur að gera það. Og þetla
gerði jeg ekki aðeins einu sinni
heldur 5 sinnum.
Skora jeg nú á þig, að sýna
hver drengur þú ert, og segja
hispurslaust alt sem þú veist
sannast um þetta mál, og fella
ekkert undan“.
Er nú eftir að vita, hvaða
drengskaparfórn Tr. Þ. leggur
næst á altari Hriflu-Jónasar.
firelaar ag efnamenn.
Aðalatriðið fyrir jafnaðarmönnum
er ekki að auka vellíðan manna,
heldur hitt, að sjá um að engum
líði betur en þeim sjálfum. Öreigar
með 10 þúsund króna tekjur. —
Einherjar í Valhöll.
Ræða eftir Trygger fyrverandi
forsætisráðherra Svía.
Sænskir jafnaðarmenn komu
ekki ails fyrir löngu fram með'
frumvarp um það, að hækka erfða-
skattinn, svo meiri jöfnuður kæm-
ist á eignir manna.
I tilefni af frumvarpi þessu
hjelt Trvgger, fyrverandi forsæt-
isráðherra, ræðu í þinginu, þar
sem hann lýsti undrun sinni yfir
því, að jafnaðarmenn skyldu telja
það tímabært nú að ætla sjer að
jafna eignir manna. Svo milda
Heimsins mesta gersemi
fyrir minst verö!
Til þess að vita hvernig á því stendur, að allir þeir, sem eiga
hinar nýju Essex-bifreiðar, halda því fram að engin kaup í heimi geti
maður gert betri, en að fá sjer Essex-bifreið, verðið þjer sjálfir að
reyna Essex bifreiðar, sjá hvað þær eru fallegar og hvað þær eru
framúrskarandi í akstri, sparsamar og þægilegar.
Hin nýja Essex-bifreið, Super-Six — kraftmeiri, stærri, rúmmeiri
og fegurri en aðrar Essex-bifreiðar — á meiri vinsældum að fagna
um allan heim en nokkur önnur sex „Cylindra* ‘ bifreið, enda á hún
það skilið.
4 dyrn
lokaöur vagn:
Kr. 5.150.00.
fjárhagsörðugleika ættu Svíar við
að etja, að hann áleit, að þarfari
væri aðrar hugleiðingar.
Jafnaðarmenn halda því fram,
að efnahagur manna verði dæmd-
ur eftir því, hvernig hann er í
samanburði við efnahag annara.
Aðalatriðið virðist því eigi vera
fyrir þeim, að meðbræðrum þeirra
líði vel, heldur hitt að enginn sje
efnaðri en annar. Jafnaðarmenn
líta því þannig á, að menn geti vel
lifað ánægðir í fátækt, en líði illa
í sæmilegum efnum, ef menn fá
tækifæri til að bera sig saman við
aðra sem efnaðri eru.
En þeir gæta ekki að því, að
vellíðan manna og lífsánægja verð-
ur eigi metin eftir auratali. Fleira
skapar ánægju en fje. Eða hve
mikils virði meta háttvirtir jafn-
aðarmenn heilbrigðan líkama,
skarpar gáfur, óþrjótandi starfs-
löngun, viljaþrek, kjark, óbifan-
legt jafnaðargeð o. s. frv .
En þar sem lífsskoðanir jafnað-
armanna ráða, megna þessir eigin-
leikar ekki að auka lífsánægju
manna, ef þeir eru þannig settir,
að þeir sjái aðra menn, sem betur
eru efnum búnir en þeir sjálfir.
Fyrir slíkt fólk er hinn hreini
bolsivismi eðlileg firlausn. — Að
minsta kosti eiga slíkir menn eigi
betra skilið.
Öreigar með 10 þúsund króna
árstekjur.
Jafnaðarmenn gera sjer mikið
ómak við að gera greinarmun á
öreigum og efnamönnum. En þeira
tekst það ekki ætíð sem best. Af
skýrslum þeim, sem þeir hafa not-
að um eignir manna og tekjur í
Svíþjóð, liafa þeir komist að raun
um að 1.488.844 öreigar hafa haft
3.545.801.160 kr. árstekjur, eða
2381 kr. að meðaltali. 608.382
riRK & RtTBBKR EXPORT CO.,
Akran, Ohlo, TJ. S. A. j
Besta sönnunin íyrir gæðum Goodyear bíladekka felst
i eftirfarandi tölum:
110.000.000
hefir fabrikkan siðastliðið starfsár búið til fram yfir það
sem nokkur önnur fabrikka hefir framleitt á sama tima.
Á sömu dekkum hefir bill hér á landi keyrt 20.000
kilómetra.
Af fjárhagslegum ástæðum nota allir
hagsýnir menn aðeins Goodyear.
Hefi ávalt fyrirliggjandi flestar stærð-
ir, og get útvegað allar stærðir með mjög
stuttum fyrirvara.
P. Stofðns«on.
Umhoðsmaður fyrir Goodyear á íslandi.
Svertingiar
(Lakkfis)
Bordap,
Stengupy
Pokap,
Komnir aftur i heildsölu.
Borövogir,
Decimalvogir,
Messinglóð alsk.
járnlóö ailsk.
Mæliker,
Mjölausur-
JÁRNVÖRUDEILD
JES ZIMSEN.
Regnfrakkar,
Ferðajakkar
Sportbuxur
Sportsokkar
Sporthúfur
Sportbelti
Enskar húfur
fyrir fullorðna og drengi
Manchetskyrtur
Bir.di
Flibbar
Ferðatöskur
Kvenreiðf ataef ni
Kvenkápuefni
(ryktau
blátt og mislitt)
Drengjafataefni
margar tegundir.
Matrosahúfur
drengja.
Öll smávara til sauma-
skapar og margt, margt
fleira.
GUÐM. B. VIKAR
Laugaveg 21. Sfmi 658