Morgunblaðið - 31.12.1928, Side 9
Mánudag 31. desember 1928.
9'
MORGUNBLAÐIÐ
•tolnandt: Vllh. Flnsen.
CTtaefnndl: FJelag 1 Reykjavtk.
Kltatjfirar: Jfin Kjartanaaon.
Valtýr Stef&nason.
Analjalngaatjörl: E. Hafberg.
■krlfstofa Auaturstrœtl 8.
fllal nr. 500.
AuvlýalnKaakrifatofa nr. 700.
Halaaaslaaar:
Jðn KJartanaaon nr. 741.
Valtýr Stef&naaon nr. 1110.
B. Hafbers nr. 770.
AakrlftacJald:
Innanlands kr. 1.00 & m&nuOl.
Utanlands kr. 1.50 -
1 lausaaðlu 10 aura elntaklð.
Gleðilegs nýár
óskcxr mORBUHBLRÐIQ
lesönöum sínum.
Slðvarútvegurinn 1928.
Eftir Kristján Bergsson.
Síðan jeg kom til Fiskifjelags-
ins hefi jeg haft það fyrir venju,
ao skrifa um hver áramót stutt
yfirlit yfir liðna árið, frá sjónar-
miði sjávarútvegsins, til þess að
hægra sje að fá yfirlit yfir fram-
þróun lians. Væri síst ástæða tii
að láta það niður falla nú um
þessi áramót, þar sem þetta ár,
sem nú er nýlega liðið, er að
mörgu leyti eitthvert það ha])pa-
sælasta, fyrir sjávarútveginn, sem
lengi hefir komið, einkum þó fyrir
smáútgerðina. Alveg óvenjuleg
fiskganga liefir víðast hvar verið
á grunnmiðum. Á sumum stöðum
fyrir Norðurlandi, þar sem venju-
lega eru ekki stundaðar fiskiveið-
ar að vetrinum, má segja að' góður
afli liafi verið alt árið, þegar á
sjó hefir verið farið. Að vísu
hleypir þetta lieildaraflanum ekki
svo miltið fram, þar sem hjer er
aðeins um fáa báta að ræða; en
fyrir þá sem stunda veiðina, og
hjeruð þau, sem ,hennar njóta, er
vinningurinn mikill, þegar' aflast
þann tíma, sem vinnukrafturinn
er vanalega ónotaður.
Til þess að gera yfirlit þetta
ljósara, vil jeg taka hvern lands-
f jórðunginn fyrir sig, eins og verið
hefir undanfarandi ár, og fer þá
eftir sömu skiftingu með lands-
fjórðungana eins og er í aflaskýrsl
um Fiskifjelagsins, en þar er
Sandur, Ólafsvík og Stykkishólm-
ur talið með Sunnlendingafjórð-
ungi, en Reykjarfjörður og Stein-
grímsfjörður' með Vestfirðinga-
fjórðungi, Austfirðingafjórðungur
er talinn frá Skálum á Langanesi
til Hornafjarðar, að þeim báðum
stöðum meðtöldum.
<
j
Suðurland.
Þar byrjar vertíðin strax upp
út áramótum eins og vant er. Þó
höfðu nokkrir bátar farið út fyrir
áramótin og aflað allvel, svo
menn bjuggust við góðri vertíð,
eins og líka reyndin varð. Því
strax eftir áramótin var ágætis
afli, en notaðist illa, því fram
allán janúar voru sífeldir storm-
ar og töluverð sjókoma, en síð-
ustu daga af janúar gerði ágætis
veður, sem hjelst nokkurn tíma,
og var þá ágætis afli í öllum ver-
stöðvum í kring um Faxaflóa. —
í Vestmannaeyjum aflaðist. líka ail
vel á lóðir í janúarmánuði ,eftir
því sem þar gerist þann tíma árs.
^lestir togararnir stunduðu ís-
fiskveiðar í janúar og fram eftir
febrúar, og var ísfisksala agæt þá
mánuði. Eins og árið áður, var
sjávarhitinn fyrir ofan meðallag,
og má ætla, að það hafi haft sín
áhrif á fiskgöngurnar, og hvað
fiskur gekk víða og snemma upp
að landinu. Eins og árið áður virt-
ist hrygningarfiskur ganga lengra
norður eftir en vanalega. Veiði
togaranna var heldur rýr á Sel-
vogsbanka, og fyrir Suðurlandinu,
en aflinn betri út af Jökli og í
Jökuldjúpinu.
Það er enginn efi á, að við
gerum okkur of lítið far um að
rannsaka hita og seltu sjávaarins
kring um landið alt árið. Því væri
það gert stöðugft, svo að’ saman-
burður fengist um langan tíma,
gæti það eflaust orðið nokkur
leiðbeining um það, hvers við
mættum vænta um afla eða
göngu þorskfiskanna. Ætti varð-
skipum vorum, sem eru á ferð
flestan tíma ársins alt í kring um
landið að vera lítil töf að því, þó
skipverjar þeirra gerðu slíkar at-
huganir.
Eins og árið áður stunduðu Akra-
nesingar veiði sína að heiman frá
hinni nýju bryggju sinni á Lamb-
hússundi, en fluttu sig ekki til
Sandgerðis, með báta sína yfir
vertíðina eins og áður var. Hefir
það haft mjög mikla og góða þýð-
ingu fyrir útgerðina þar, síðan
þeir fengu þær hafnarbætur hjá
sjer, enda fjölgar nú bátum þar
töluvert.
1 öllum brimstöðvunum á
Reykjanesskaga, var ágætis afli og
alstaðar töluvert betri en árið áð-
ur, sem þó var talið mjög gott
ár. Að vísu hefir það hjálpað mik-
ið til, að nú er búið að setja
smávjelar í flesta árabátana og
hefir sii breyting haft mjög mikla
þýðingu.
Stærri línubátum (gufuskipum)
hefir fjölgað mikið á Faxaflóa nú
á seinni árum, og hafa þeir gef-
ist svo vel, að mikill áhugi er
vaknaður hjá mönnum fyrir þeirri
tegund skipa. Líklegt að þeim
fjölgi meira á næstu árum, enda
eru þeir að mörgu leyti hentugir
bæði til þorsk og síldveiða, þar
sem þeir geta fylgt veiðinni bet-
ur eftir, og stunduðu sumir þe'irra
þorskveiðar frá Siglufirði og
Vestfjörðum nú í haust með góð-
um árangri, eftir að síldveið'in
var úti.
í Vestmannaeyjum má heita að
verið hafi góð vertíð og um
tíma, var |>ar mjög mikill upp-
gripaafli en hvarf svo mjög snögg-
lega. Frá 1,—15. apríl veiddust
þar 14,790 skpd., á sama tíma 1927
8,812 skpd., en 1926 8,770 skpd. og
1925 5,700 skpd. Alls veiddust
þar í aprílmánuði 22,065 skpd. eða
rúmlega % af öllum þeirra vertíð-
arafla.
í Höfnum og Miðnesi var ágæt-
isafli, og er mikill hugur þar í
mönnum að auka útgerð sína. Eru
það lit% opnir mótorbátar, sem
reynast þar heppilegastir. Var þar
allgóður reitingsafli fram eftir
öUu sumri og hausti, en sá afli fer
að mestu leyti nýr til Reykjavík-
ur. Sömuleiðis haustaflinn frá
Stokkseyri og Eyrarbakka, en þar
var allgóð' veiði seinni hluta
haustsins, þegar á sjó gaf.. í Vest-
mannaeyjum var einnig allgóður
afli seinni liluta haustsins, og í
Faxaflóa var kominn allgóður afli
snemma í desembermánuði.
Síld fór að veiðast snemma í
maímánuði í Faxaflóa, og var eft-
ir það jafnan nægileg beita, en
bátar þeir, sem ætluðu að stunda
síldveiðar seinni part sumarsins í
Faxaflóa og fiska fyrir íshúsin
þar, fengu mjög lítið, og var því
megnið af beitusíldinni flutt suð-
ur frá Norðurlandi, eins og verið
hefir undanfarin ár. Aftur á móti
var allgóð síldveiði um haustið í
Ólafsvík og Grundarfirði, og kom
það' sjer vel, að Grundfirðingar
voru nýbúnir að koma sjer upp
myndarlegu frystihúsi með vjela-
frvstingu. Geta þeir því gert sjer
verðmæti úr þessari vöru, og trygt
sjer beitu fyrir útgerð sína. Er
hún heldur að aukast; enda ligg-
ur sá fjörður mjög vel við fyrir
fiskveiðar, og er líklegt, að þar
verði þegar fram í sækir ein aðal-
veiðistöðin við Breiðafjörð.
Vesturland.
Þar hefir árið verið mjög gott
og kom fiskur þar víða mjög
snemma upp að landinu, eins og
víðast. hvar annarsstaðar. Einkum
var óvenjugóður afli á Önundar-
firði fyrri hluta ársins. Færaskip-
ii: gömlu, sem nú eru óvíða eftir
nema á Vestfjörðum og Stykkis-
hólmi, hjeldu öll út yfir vorið og
sumarið, og fiskuðu yfirleitt mjög
vel.
Síld fjekst í lás við Isafjarðar-
djúp um miðjan maí, og eftir það
var þar altaf nægileg beita. Ann-
ars er ennþá mikið notaður kú-
fiskur til beitu á Vestfjörðum, en
hann er mjög vinnufrek og dýr
beita, enda oi'ðið' víða erfitt að
ná í hann. Kolkrabbi kom mikill
upp að Vestur- og Norðurlandinu
seinni hluta sumarsins, og fylgdi
honum fiskiganga, eins og jafnan
þegai' hann kemur. Var það tekju-
grein fyrir marga að fiska hann,
því íshúsin keyptu hann víðast
hvar. Á seinni árum hefir eftir-
spurn eftir kolkrabba aukist mik-
ið frá Suðurlandinu, og ótrúin,
sem sunnlenskir fiskimenn höfðu á
honum, að hann væri gagnslaus
beita, eí nú alveg horfin.
Steinbítsafli var mjög mikill fyr
^ GLEÐILEGS NÝÁRS &
^óska jeg öllum viðskiftavinum mínumgí
Sveinn Þorkelsson.
G LEÐILEGT NÝÁR!
Þökk fyrir viðskiftin á liðna árinu.
Mjólkv/rfjelag Reykjavíkur.
GLEÐILEGS NÝÁRS
óskar öllum viðskiftavinum sínum
G. Ólafsson & Sandholt.
m
&
G LEÐILEGT NÝÁR!
Þökk fyrir viðskiftin á liðna árinu.
S. Jóhannesdóttvr.