Morgunblaðið - 23.02.1929, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
J lítoTHm IÖLSEM ((
Fnrðnljósið
fl
Kanill, heill,
Kanill, steyttnr,
Pipar, hvítnr og svartnr,
Kökndropar,
Gerdnft, Dr. Oetkers „Backin“,
Mnstarður,
Karry.
Fiskafli
á öllu landinu þann 15. febr, 1929.
Veiðistöðvar Stórf. skpd. Smáf. skpd. Ýsa skpd. Ufsi skpd. Samtais 15/, ’29 Samtals ,5/» ’28
Yestmannaeyjar 1.931 33 570 n 2.534 2.791
Stokkseyri n n n n 11 11
Eyrarbakki n n n n 11 11
Þorlákshöfn n n n n 11 11
Grindavik ........ 11 11
Hafnir 25 5 12 42
Sandgerði 1.186 52 74 n 1.312 714
Garðor og Leira 11
Eeflavik og Njarðvikur.... 1.950 94 109 n 2.153 1.063
Vatnsleysnströnd og Vogar . . n n n n 11 11
Hafnarfjörðnr (togarar) . . ... 405 160 n 2i0 775 11
do. (önnnr skip) .... 2.008 187 305 3 2.503 1.199
Reykjavik (togarar) 763 1.006 n 328 2.097 3.126
do. (önnnr skip) .... 4 440 627 407 20 5.494 2.280
Akranes 1.862 124 79 2.065 764
Hellissandnr 480 20 500 11
Olafsvík 85 105 5 195 11
Stykkishólmur ... ... n n n n 11 11
Sunrilendingafjórðungur . . 15.135 2.413 1.561 561 19 670 11.937
Vestfirðingafjórðungur . . . 3.771 1.170 353 14 5.308 310
Norðlendingafjórðunqur . . n n n 11 n n
Austfirðingafjórðunqur . . . n n n 11 11 n
Samtals 15. febr. 1929 .... 18.906 3.583 1.914 575 24.978 12.247
Samtals 15. febr. 1928 .... 9.233 1.343 549 1.122 12 247
Samtals 15. febr. 1927 .... 3 910 865 155 414 5.344
Samtals 15. febr. 1926 .... 10.349 718 573 188 11.928
Aflinn er miöaðnr við skippnnd (160 kg.) af fullverknðnm fiski.
Fiskifjelag íslands.
Innlimnn Ártnns
feld í bæjarstjórn með jöfn-
um atkvæðum.
Á bæjarstjórnarfundi fyrir hálf-
um mánuði var til umræðu tillaga
frá fjárhagsnefnd þess efnis, p,ð
borgarstjóra yrði falið að undir-
búa lagafrumvarp fyrir Alþingi
urn innlimun jarðarinnar Ártúns í
lögsagnarumdæmi Reykjavíkur.
Va.r samþykki Mosfellshrepps feng
ið fyrir því, með þeim skilmálum,
að bæjarsjóður greiddi hreppnum
10 þús. kr. í eitt skifti fyrir öll og
tæki auk þess á sig fátækrafram-
færi þeirra, er öðlast hefði sveit-
festi í Mosf(ellshrepp fyrir veru í
Ártúnum.
Urðu á þessum fundi allsnarpar
umræður um málið, einkum út af
því, að jafnaðarmönnum og Pjetri
Halldórssyni þótti 10 þús. króna
gjald of mikið fyrir þetta.
Málinu var þó vísað til 2. umr.
Sú umræða fór fram á bæjar-
stjórnarfundi síðastl. fimtudag, 'og
lyktaði þannig, að tillaga fjár-
hagsnefndar var feld með 6 atkv..
gegn 6. Þrír bæjarfulltrúar voru
fjarverandi, M. Kjaran, Guðrún
-Tónasson og Sig. Jónasson. Á móti
tillögunni voru Pjetur Halldórsson
•ng jafnaðarmenn, en með henni
íhaldsmenn, utan T. Líndal, sem
•greiddi ekki atkv.
Á fundinum kom fyrst fram
till. frá Stefáni Jóhanni, þar sem
hann lagði til, að málinu væri
frestað, vegna þess að annað laga-
frumvarp kæmi fram á yfirstand-
andi þingi, lílcs efnis, nm innlimun
Skildinganess í Rvík. En borgar-
stjóri sýndi fram á, að lijer væri
alt annað mál á ferðinni, og öðru-
vísi varið, m. a. vegna þess, að
aldrei fengist samþykki Seltirn-
inga á innlimuninni. Var sií til-
laga feld.
Þá kom fram tillaga frá Haraldi
Guðmundssyni þess efnis, að borg-
arstjóra yrði falið að undirbúa
lagafrumvarp um innlimun Ártrins,
án þess að bæjarstjórn samþykti
fyrir sitt leyti, hvað hún vildi
gefa fyrir fríðindi þessi. Taldi
hann, að Alþingi ætti helst að á-
kveða um það. En andstaða manna
gegn þessu endurgjaldi til Mos-
fallshrepps — 10 þús. kr. — væri
miðuð við það, að upphæð þessi
væri þannig reiknuð, að hún værí
,,kapitaliseraðar“ útsvarstekjur
þær er fengjust á Ártúnum.
En þetta er í raun og veru á
misskilningi bygt. Að meirihl. fjár-
hagsnefndar vill að bærinn leggi
•fram 10 þús. kr. tíl þess að fá
Ártún innlimað, kemur fyrst og
fremst til af því, að það er fyrir'-
sjáanleg nauðsyn, að bærinn noti
í framtíðinni sandnámu þá, sem
er í Ártúnslandi, en meðan Ár-
tún 'er í Mosfellshreppi, getur
hreppurinn lagt það útsvar á þá
starfsemi, sem honum sýnist.
»
1 blaðinu í gær var sagt frá
,;furðuljósi“, sem „fanst“ vestur í
oæ og var sá, sem hafði hleypt
því á stað, beðinn að gefa sig
fram.
Það stóð ekki á því.
Maðurinn kom til blaðsins þegar
í gær, og skýrði því frá öllum
málavöxtum.
Hann kvaðst aðeins hafa- sent
þetta eina ljós frá sjer, og gert
það í þeim tilgangi að ganga úr
skugga um hvort furðuljós þau,
sem sjest hafa í allan vetur víðs-
vegar um land, væri af manna-
völdum. Til þess að hita og lýsa
belginn hafði hann bómull vætta
í bensíni. Slepti hann belgnum á
Ránargötu og segir að hann muni
hafa farið svo sem 50 metra í loft
upp og ekki verið lengur á flugi
en svo sem 2—3 mínútur, enda er
stutt leið þaðan sem belgnum var
slept og vestur á Holtsgötu.
Það sem Angantýr Hróbjartsson
sagði um ljósið að sjer hefði virst
það vera 200 m. yfir sjávarmál, þá
er það ágiskun, en ilt í myrkri að
ákveða hæð og f jarlægð.
Maður er því enn engu nær um
það hvaðan „furðuljósin“ stafa,
Sú gáta er óleyst. Að vísu hefir
maður vestan af fjörðum. sagt
Morgimblaðinu að hann viti til
þess, að útlendir togarar sendi lík
ljósmerki og þetta upp í loftið.
Kveðst hann hafa sjeð þýskan tog-
ara senda frá sjer ljósmerki á
Onundarfirði í vetur, seinni hluta
nætur. Hefði hann haft taug við
það. Eftir nokkurn tíma dó Ijósið
og skildi togarinn þá belginn eftir
og festina við. Þegar birti af
degi sást belgurinn svífa í lofti
enn, þótt ljóslaus væri, en hvarf
þegar fram á daginn kom.
Sami maður sögist hafa sjeð
nokkru seinna en þetta var —
snemma í janúar — ljós koma svíf-
andi utan af hafi. Var það marg-
litt, stundum eins og rauður kross,
stundum rautt, blátt eða hvítt. —
Horfði hann á það í 20 mínútur,
en þá hvarf það. Segist liann hafa
sjeð slík Ijós á sveimi í lofti 3—4
sinnum og ávalt hafa ætlað að
þau væri frá útlendum togurum.
Ofsi ÚlafsTFriðrikssonar
og óheilindi stjórnar sjómanna-
fjelagsins.
Á sjómannafjelagsfundi 9. þ. m.
tók maðurinn minn, Ásgeir Páls-
son, til máls og krafðist þess, að
stjórn Sjómannafjelagsins leitaði
sátta í kaupdeilunni, og semdi svo
fljótt, sem auðið yrði, svo kaup-
deilunni yrði sem fyrst lokið.
Út af þessu tók þá til máls 01-
afur Priðriksson. Vítti hann, með
miklum þjósti, ummæli mannsins
míns; kvað verkfallið ekki hafa
staðið lengi — en verkföll væru
ein af bestu uppfyndingum mann-
kynsins — og ljet orð falla í þá
átt, að maðurinn minn mundi eyða
kaupi sínu í áfenga drykki. Jafn-
framt sagði hann, að það væri
ekki nýtt, að einstaka sjómaður
skærist úr leik, því útgerðarmönn-
um hefði ávalt tekist að stinga
nokkrum þeirra upp í afturendann
á sjer.
Mjer ber ekki, ómentaðri konu,
að fella neinn dóm um orðaval eða
smekkvísi þessa manns í ræou eða,
riti. Hinu hlýt jeg harðlega að
rnótmæla, að maðurinn minn eyði
kaupi sínu í áfenga drýkki. Lýsi
jeg þau ummæli hjermeð tilhæfu-
lau.saii rfppspuna, og ummælin al-
gerlega ómakleg. Jafnframt þessu
vil jeg geta þess, að maðurinn
ininn hefir verið í mörg ár í Sjó-
mannafjelaginu, greitt þar fjelags-
gjöld skilvíslega og í engu brotið
í bág við' reglur eða hagsmuni
fjelagsins. Hann hefir ekki, mjer
vitanlega, gert sig sekan í annari
yfirsjón en þeirri, að láta í Ijós
skoðun, sem kemur í bág við
skoðun kommunistans Olafs Erið-
rikssonar og líklega stjórnar fje-
lagsins einnig. Jeg hefi litið svo á
í fákænsku minni, að fjelag sjó-
manna væri bróðurlegt fjelag, er
eingöngu hefði hagsmuni sjómann-
anna fyrir augum. Nú skílst mjer,
að ávalt hljóti að verða skiftar
skoðanir um það, hvað sje fyrir
bestu og hvað ekki. Það virðist
því ekki vera vel viðeigandi, að
hlaupa upp á nef sjer og ráðast, á
fjelagsbróður fyrir það eitt, að
hann álítur verkfallið böl, vili
bera friðarorð á milli og óskar
sátta. En fjelagsstjórnin þagði við
þessu og ljet það viðgangast, að
kommúnisti rjeðist með hrottaskap
og ósönnum brígslyrðum á trygg-
an fjelagsbróður. Þess hefði mátt
vænta, að formaður fjelagsins
hefði hreyft andmælum, En svo
var ekki.
Mjer er sagt, að ávalt þyki þeim,
er Iaun þiggja, launin of lág, en
þeim, sem þau borga, of há. Þess-
háttar andstæður skilst mjer muni
vera erfitt að jafna. En síst munu
ofstopamenn eins og Olafur Erið-
riksson og hans líkar, vera vel
fallnir til þess að bera sáttarorð
á milli, leiðrjetta misskilning og
jafna kaupdeilur.
Stefanía Benediktsdóttir,
Bergstaðastræti 34 B.
margar stærðir.
Falleg og ððýr
fást í
Vðruhúsinu.
Sott hús
ðskast keypt. Útborgnu tðln-
verð.
Tilboð í loknðn umslagi
mrkt. „Gott hús“ sendist
A. S. í.
Údýrt:
Molasykur 0.35, Strausykur 0.30,
Hveiti besta teg. 0.25, Haframjöl
0.25, Hrísgjón 0.25, Rúsínur stein-
lausar 0.75, Sveskjur 0.50, Hangi-
kjöt frá 0.60, ísl. Smjör 2 10,
Harðfiskur 0.75.
Versl. Fíllinn.
Laugaveg "9. — Sími 1551.
Kjðt.
Saltkjöt í tunnnm og lansri
vigt, vernlega feitt.
Von og Brekkustfg 1.
Ver kfæri:
Áskornn.
Á næsta vori verður í sambandi
við fermingu ungmenna, hafin fjár-
söfnun um land alt til hjálpar
bágstöddum börnum. Munu prest-
ar gangast fyrir henni hver í sínn
prestakalli og ýmsir fleiri verða
þeim til aðstoðar. Opinber skila-
grein verður gerð fyrir fje því,
er' safnast, og nánar skýrt frá þvi
síðar, hvernig því verður varið.
En markmiðið er að vinna að
því, að bágstödd börn hjer á landi
megi eignast góð heimili. Þjóðin
má ekkert mannsefni missa.
Yjer, sem kosnir höfum verið í
nefnd til þess að vinna að þessn
máli, leyfum oss að heita á
alla landsmenn að bregðast vel við
fjársöfnun þessari og minnast, orða
Krists: „Svo framarlega, sem þjer
hafið gert þetta, einum þessara
minna mínstu hræðra,\ þá haíið
þjer gert mjer það.“
í febrúarmánuði 1929.
Bjarni Jónsson, dómkirkjuprestur,
Reykjavík,
Guðm. Einarsson, prestur, Mosfelli,
Hálfd. Helgason, prestur, Mosfelli,
Ól. Magnússon, próf., Arnarbæli,
Þorst. Briem, prestur, Akranesi,
Ásm. Guðmundsson, dósent, Rvík,
(ritari nefndarinnar).
Koparplötur,
Koparstangir,
Vjelareimar,
Boltar.
Vald Poulsen
Morgunblsðið
fsest & Langavegi 12
ifi
Sængurdúkar,
tÆ Fiðnrhelt Ijereft
ffíy Rekkjnvoðaeini
^ Rúmteppi
Sængnrver,
Lðk
Fiðnr
Húlidúnn
fsl. æðardúnn
Rúmstæði
Rúmdýnnr.
Lægst verð.