Morgunblaðið - 13.10.1929, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Hversvegna eru Weck-niðursuðng'fis
betri en önnur?
Um það spyr enginn, sem borið hefir Weck saman við önnur
giös, og því síður, bafi baxm reynt bvortveggju.
Weck-glösin eru úr sterku, bólulausu gleri.
Weck-glösin eru því ekki brothætt og springa aldrei við suðu.
Weck-glösin eru með breiðum slípuðum börmum.
Weck-glösin eru lág eU víð, sjerstaklega vel löguð fyrir kjöt, svið,
kæfu, blómkál o. fl.
Weck-glösunum fylgir sterkur, þykkur gúmmíhringur, sem endist lengi.
Weck-glösunum fylgir sterkur, ábyggilegur lokari.
Weck-gúmmíbringir fást altaf sjerstakir.
1 ljelegum niðursuðuglösum getur maturinn skemst.
Weck-glösin bregðast aldrei og geta enst æfilangt.
Weck-glösin kosta þó lítið meir en önnur glös.
Weck-glös y2 kgr. með bring og lokara kosta 1,50.
---- 1 _ _ — — — —' 1,75.
'— iy2 — — — — — — 2,00.
---- 2 — — — — — — 2,25.
10.000 Weck-glös eru nú í notkun hjer á landi.
Weck-glösin fást altaf hjá umboðsmanni Weck og nú eru allar
stærðir fyrirliggjandi.
Laugaveg 49.
cvcrpch
Vesturgötu 3.
Baldursg. 11.
KarlmannaíatnaðDr.
Nokkrir karla og drengjafatnaðár verða seldir með
tækifærisverði. — Mjög mikið úrval af Drengjafataefn-
urn fyrir hálfvirði. — Fata- og Frakkaefni í stóru úr-
vali — mjög ódýrt.
Manchettskyrtur og Slifsi í stærsta og ódýrasta úr-
vali bæjarins.
Andrjes Andrjesson,
Langaveg 3.
BHiiBfiishátiðin og Reykvíkingar.
Hvað verður um undirbúning bæjarstjórnar Reykjavíkur?
rjettvísinnar. Jafnstór eða Stærri
sjóðþurð var fundin hjá útsölu-
manni Steinolíueinkasölunnar á
Seyðisfirði. Við honum var e'kki
hróflað!
Þeir lofuðu rjettlæti í embætta-
veitingu!
l>ar hefir pólitíkin ein ráðið, en
verðleikar engu (rektorsembættið,
varðskipin o. fl.) Saklausir menn
eru flæmdir úr embættum og
stöðum ti! þess að koma að póli-
tískum samherjum (áfetigisversl-
unin, póstafgreiðslumenn, fulltrú-
inn í dómsmálaráðuneytinu o. fl.)
Þeir lofuðu að minka; ríkisskuld-
irnar!
Spyrðubantl Framsóknar og só-
síalista hefir nú setið við stýrið
í tvö ár. Á þessu stuttu tímabili
hefir stjórnin útvegað sjer láns-
heimildir, er samtals nema nálægt
20 miljónum króna. Ennfremur
hefir stjórnin skuldbundið sig, f.
h. ríkissjóðs, að ganga í ábyrgðir
fyrir einstaklinga og fjelög fyrir
samtals 6y2 miljón króna. Þegiar
stjómin hefir komið öllu þessu
í framkvæmd, hefir hún sett nýtt
met í ríkisskuldum og fjárbrialli og
verðskuldar nafnbótina: skulda-
kónga-stjórnin.
Þeir lofuðu að standa á verði gegn
erlendu mútufje!
Nokltru eftir að þessir menn
voru teknir við stjórnartaumun-
um, sannaðist að innlendur stjórn-
málaflokkur er á föstu framfæri
hjá Dönum. Hvað gerði stjórnin
eða hennar lið? Hún reyndi að af-
saka athæfið og gaf styrkþegun-
um alræðisvald í landinu!
Hafa þá verið athuguð nokkuð
tvö höfuðvígin, sem núverandi
stjórnarflokkar höfðu aðsetur í
fyrir síðustu kosvningar.
Hvað stendur eftir?
Sjáifir hafa stjórnarliðar orð-
ið hræddir við iygamar og róg-
burðinn, er þeir dreifðu pt um
landið fyrir kosningarnar. Þeirra
eigin rógtungur megnuðu elcki
iengur að hylj’a nektina, og nú
standa þeir berstrípaðir frammi
fyrir alþjóð.
Að baki flokkanna eru „rústir
og eyðimörk“ — og svik.
Og „framundan eru fallin vígi“.
Því flokkarnir munu enn um stund
reyna að safna liðinu saman í
hin föllnu vígi — vígi lyga, róg-
burðar og svikinma kosningalof-
orða.
Fyrir fáum dögum var það sam-
þykt á fundi Alþingishátíðarnefnd-
ar að benda bæjarstjórn Reykja-
víkur á, að nauðsynlegt mundi
verða að gera ýmsar ráðstafanir
vegna þess fólksfjölda, sem koma
mun til bæjarins, um það leyti,
sem Alþingishátíðin fer fram, svo
sem að leita tilboða bæjarbúa um
hýsingu gesta og safna skýrslum
þar að lútandi, og ennfremur að
útbúa það húsnæði, sem bæjar-
stjórnin hefir yfir að ráða og
laust er, til afnota í þessu skyni.
Það er kunnugt, að bæjarstjórn
Reykjavíkur er ekki enn farin að
gera neinar ráðstafanir út af há-
tíðahöldunum að sumri, aðrar en
þær, að hún tekur á móti pöntun-
um á tjöldum á Þingvöllum. En
nú er það vitanlegt að Reykjavík
á og verður að setja sinn svip á
hátiðina og að þessi hátíðahöld
mæða me'ira á henni heldur en
nokkrum öðrum landshluta. Þótt
aðalhátíðahöldin fari fram á Þing-
völlum, þá fer meginþorri allra
hátíðargesta um Reykjavík og
fjöldi þeirra mun dvelja hjer dög-
um saman. Það mun því komið
mál til þess, að eitthvað sje ’farið
að hugsa fyrir því, hvernig Reykja
vík á að taka á móti gestum þess-
um, og jafnframt þarf að hugsa
um það, hvað Reykjavik þarf að
gera vegna hátiðahaldanna. Það er
því ekki nema gott, að hátíðar-
ne'fndin hefir mint bæjarstjórn á
það, að hún hefir skyldur í þessu
efni og þarf að fara að búa sig
undir að rækja þær.
En hvað er það þá, sem bæj-
arstjórn Reykjavíkur eða Reykja-
víkurbær þarf að láta gera? Það
er víst æði margt og rifjast auð-
vitað ýmislegt, upp smám saman,
en margt iiggur þó í augum uppi
nú þegar. Morgunblaðið hefir leit-
að álits framkvæmdastjóra hátíð-
arnefndar um þetta, því hann veit,
manna be'st, hvað helst kallar að.
Honum fórust orð á þessa leið:
Álit Magnúsar Kjarans.
— Um það leyti sem hátíðar-
nefnd kaus sjer framkvæmda-
stjóra, var það álit ýmissa að það
væri gert alt of snemma, hann
myndi ekki hafa neitt. að gera. En
jeg hygg, að nefndin sje öll á einu
máli um það nú, að sú ráðstöfun
hafi ekki verið gerð of sne'mma,
og að ærið verkefni hafi legið fyr-
ir fnamkvæmdastjóranum. Jeg get
þessa vegna þess, að ýmsir virðast
álíta, að það sje alt of snemt að
Reykjavík fari að igera neinar
ráðstafanir vegna hátíðahaldanna,
en það er herfilegur misskilning-
ur, sem kveða þarf niður. — Á
Reyk.javíkurbæ hvíla miklar skyld-
ur í sambandi við hátiðahöldin.
Fyrst og fremst er Reykjavík höf-
uðborg islands, aðsetur þings og
stjórnar, hæstarjettar og helstu
mentastofnana. í Reykjavík býr
fjórði hluti allra landsmanna og
hátíðahöldin fara fram svo að
segja við túngarðinn þar og heima.
Má búast við því, að þriðji hver
maður, sem verður á Þingvöllum,
sje Reykvíkingur. En alla hina má
skoða sem gesti Reykjavíkur, því
að þótt hátíðahöldin fari fram á
Þingvöllum, þá verður Reykjavík
þó miðstöð allra hátíðahaldanna og
sá eini landshluti, sem alt mæðir á
um móttökur gesta, bæði inn-
lendra og útlendra. Og þáð er
Reykjavíkurbær, sem á að koma
fram fyrir þjóðarinnar hönd gagn
vart útlendingum og það er undir
Reykjavík komið að mestu leyti,
hvert álit hinir útlendu gestir hafa
á þjóð|nni eftir að hafa verið hjer
á þúsúnd ára afmæli Alþingis.
Þjer spyrjið, hverjar ráðstafan-
ir jeg álíti að Reykjavíkurbær
þurfi að gera til undirbúnings há-
tíðinni. Það er nú æði margt. Jeg
skal drepa hjer á nokkur atriði.
Fyrst og fremst þarf að sjá
ferðamönnum fyrir húsnæði, með-
an þeir dvelja hjer í bænum. Þetta
er skylda, sem bærinn kemst alls
ekki undan. Reykjavík græðir á
komu þessara manna alira, því að
hver og einn, sem hingað kemur,
skilur hjer eftir meira og minna
fje. Það eru engir ölmusugestir.
Að vísu veit, jeg vel, að takmörk
eru fyrir því, hvað Reykjavík gef-
ur tekið á móti mörgum gestum,
og þess vegna hefir hátíðarnefnd-
in tilkynt' öllum skipafjelögum, er
hingað ætla að senda farþegaskip
þá, að skipin verði að vera bústað-
ur farþega meðan. á. hátíðinni
stendur. Þetta er auðvitað neyðar-
úrræði, því að hagur væri að því,
cf gestirnir gætu verið í landi, því
að þá keyptu þeir hjer húsnæði og
fæði, en þeir peningar, sem fyrir
það fara, verða að renna til skipa-
fjelaganna, vegna þess að Reykja-
vílí getur ekki hýst og fætt alla
sem koma. Skipafjelögin erlendu
hafa ákveðið, að skemtiskipin skidi
liggja hjer fram yfir hátíðina, svo
að Reykjavík hefir engan vanda
af farþegum þeirra. En lúngað
streymir grúi manna með áætlun-
ar- og strandferðaskipum og land-
veg, og hvar á að út.vega þeim
mönnum næturstað? Það er ekki
verkefni hátíðarnefndar að sjá
fyrir því. Það kemur í hlut bæjar-
stjórnar Reykjavíkur.
Að sjálfsögðu mun fjöldi bæjar-
búa þrengja að sjer um þetta leyti
og leigja ferðamönnum herbergi til
gistingar. Bæjarstjórn verður að
vera milliliður milli þeirra, sem
herbergi vilja leigja, eða selja
fæði, og fe'rðamannanna, sem á
hvorutveggja þurfa að halda. Þarf
áður en langt líður að safna upp-
lýsingum um það hve mikið mun
til af slíku húsrúmi í bænum. Enn
fremur þarf að vita hvar hægt er
að taka á móti útlendingum, og þá
hverrar þjóðar. Auðvitað hrekk-
ur ekki það húsnæði, sem hæ.gf, er
að fá handa ferðamönnum á heim-
ilum. Bærinn verður því að útbúa
til gistingar það húsnæði, sem
hann hefir yfir að ráða, svo se)m
barnaskólahúsin. Þar má koma
fjölda manns fyrir, og hjá hátíðar-
nefndinni getur bærinn fengið
leigð rúm og rekkjuvoðir. Það er
ekki í mikið ráðist þótt bærinn
trygði sjer það í tíma, því að
f
i
9
»
í
9
5.
u
o
*
»
*
ðll kopiering og fram-
kSllnn afgreidð stras
daginn effiir. Það ger-
ir þessi
Lof tnr.
Fnllkomnnsta, áhðld
sem til ern á landinn.
0!ÍT.-.
Silvo
SilfurfægilSg-
ur er notaður
á silfur, plett,
nickelo.s.frv.
Gjörir alt 6-
blæ-lallegt.
Laeknirain:
Hafið hugfast æð borða Kelloggf;
AIl Bran
daglega, og þá mun heilsu yðar
borgið.
ALL-BRAN
Ready-to-eat
Alao mahera of
KELLOGG’S
CORN FLAKES
Sold by «// Grocera—in iho
Rod »nd Green Packafio
-«5«'
Jónas Hallgrímsson skipar enn-
þá öndvegissess á skáldabekk þjóð-
arinnar. Rit hans ættu að vera til
á hverjú íslensku heimili-
kostnaðinn endurgreiða þeir, sem
gistingarinnar njóta.
En fari nú svo, að húsnæði á
heimilum og húsnæði það, er bær-
inn á sjálfur, hrökkvi ekki, sýnist
rnjer ekki úr vegi að tjaldbúðir
yrði re'istar á Austurvelli. — Á
Þingvöllum verða menn að búa
í tjaldbúðum. Hví skyldi þeir ekki
eins geta gert það hjer í Reykja-
vík?
Annað, sem bærinn verður að
sjá fyrir í tíma, er það, að hjer sje
nóg vanhús. Menningarbær getur
ekki látið sjer það sæma, að gestir
sínir, innleúdir og útlendir, verði
að hlaupa inn í hús hjá fram-
andi fólki með beiðni um það að
ljá sjer kamar. Hjer þarf að koma.
upp 100 salernmn, að minsta kosti.