Morgunblaðið - 13.10.1929, Blaðsíða 8
8
MORG ÖNBLAOIÐ
i
í
I
FLIK FLAK skemmir
ekki þvottinn, fer ekki
illa með hendurnar.
Jafnvel, ull, silki og lit-
uð efni má þvo í Flik
Flak, án þess að
hætta sje á skemd-
um, ef gætt er nauð-
synlegrar varúðar.
I. Brynjólfsson & Kvaran.
Aletruð bollapör, nýkomin.
Haminfíjuósk á afmælisdaginn — Til pabba — Til mömmu —
Td ömmu — Til vinu — Til frænda — Til hamingju — Bestu óskir
— Qleym mjer ei — Pabba bolli — Mömmu bolli — Prá mömmu —
Prá pabba — Einnig ýms kvenna og karla nöfn — og Vatnsgiös meÖ
stðfum.
K. Einarsson & Bjðrnsson.
Efnalaug Reykjavikur.
Laugaveg 32 B. — Sími 1300. — Símnefni: Efnalaug.
Hreinsar með nýtísku áhöldum og aðferðum allan óhrein-
an fatnað og dúka, úr hvaða efni sem er.
Litar upplituð föt, og breytir um lit eftir óskum.
Eykur þægindi! Sparar fje!
Kaupið Góðar, Öðýrar Vörur
Við seljum: Stór og falleg IMvanteppi á 13,90, Blá og bleik Sæng-
qjrvtgíflBfni á 5 krónur í veríð; Stór koddaver til að skifta í tvetat á
Áfarmikið úrval af mjög góðum Kvenbolum frá 1,35. Kvenbuxur
frá 1,75, Kvenskyrtur á 1,90, Qóðir silkisokkar á 1,95 parið, Karl-
■tannasokkar á 75 aura. Góð nærföt á karlmenn, góð og ódýr. Brúnar
viiwnflkyrtur 4 4,95, Blá verkamanna-vinnuföt, vel sterk, sem allir
*ttu að skoða. Stór bómullarteppi á 2,45. Ullartreflar og Silkitreflar,
é<á|rrt úrval. Hvítar Manehettskyrtur á fermingardrengi 6,90. Við höf-
■M fengið gífurlelga mikið úrval af fellegum bindum, sem seljast afar-
•dýrt. Kvengolftreyjur og Telpupeysur við allra hæfi. Skoðið fallegu
ádýru kjólaefnin, sem seljast svo ódýrt. Alullar Prakkaefni á karl-
atem og drengi. Svo gefum við ofan 4 þetta lága verð silfurkökuspaða
■00 hverj'nin 20 króna kanpum. Allir sem vilja fá mikið fyrir litla
penihga, koma befina leið í KLÓPP, Laugaveg 28.
Fyrirliggjandi:
Blikkfetur, 3 stærðir.
Blikkbalar, 3 stærðir.
VERÐIÐ MJÖG LÁGT.
Eggert Kristjánsson S Co.
Sfmar 1317 og 1400.
Geir Ivarssou.
Dánarmiuuimj.
F. 13. apr. 1840. D. 8. jan. 1928.
Kveðja ekkjuimar.
Geir ívarsson.
Jeg hef fengið það sár
eftir sextíu ár —
að mig svíður í hjartað á meðan
það hærist.
En á reynslunnar tíð,
J gegnum starf, gegnum stríð,
er það styrkur í voniuni og trúnni
sem lærist.
Jag kvaka þjer saknaðar kveðj-
una mína,
því kvöldsólar geislarnir ennþá
injer skína.
Og jeg signi þig rótt,
það er rósamt ag hljótt
kringum rekkjuna liinstu, sem
geymir nú leyfina þína.
Þ ii ert. elskan mín góð;
það var orð mitt og ljóð,
þegar ástin og vonirnar tengdu
okkur böndum;
þá var gróandans tíð
og í geislunum fríð
voru gullin, sem hamingjan inti
af höndum;
þá spruttu okkur rósir í blikinu
bjarta,
við bárum þær áfram ag vöfðum
að hjarta;
l>ó að oft væri bratt
var þó göfugt og glatt,
ag það gafst ekki tóm til að horfa
um öxl eða kvarta.
i
Þú ert elskan mín góð;
það var ætíð mitt ljóð,
þegar önnin og þreytan að dyr-
unum barði.
Pyrir samhuga dáð
urðu samhuga ráð,
er við sýndum, ef rauuirnar þyrpt-
ust að garði.
Og guðlegi mátturinn greiddi okk-
ur veginn,
og gaf okkur heilsu og sálarlegt
megin.
Þú ert elskan mín góð;
það var unaðar Ijóð,
það var ávarpið beggja, er leidd-
umst við sextuga teiginn.
Þú ert elskan mín góð;
það var umhyggju ljóð,
þegar ellin og krankleikinn væng-
ina stýfði.
Gegnuni samvinnu strit,
gegnum sorgir og slit
var það sáttin við guð og við
mennina, er hlífði.
— Svo bíð jeg við kvöldgeislans
vinsemdar varma,
í voninni horfi til árroðans bjarrna.
— Þú ert elskan mín góð —
verður eilífðar Ijéð,
þegar opnast mjer hliðið og vin-
irnir fallast í faðma.
H. H.
Einn af þeim, sem nýlega er til
moldar hniginn, er hinn háaldraði
sæmdarmaður Ögmundurj Ögmunds
son á Sogni í Ölfusi. Hann var
fæddur á Bíldsfelli í Grafnings-
sveit 6. des. 1844. Foreldrar Ög-
mundar sáluga voru: Ögmundur
á Bíldefelli, merkur bóndi á sinni
tíð, d. 1866, Jónsson silfursmiðs á
Bíldsfelli (d. 1817), Sigurðssonar
á Litlahálsi (á lífi 1783) Jónsson-
ar bónda á Hvoli í Ölfusi (1706
eða lengur) Ögmundssonar, og
þrýtur hjer karllegg þann, svo full
komlega sje víst aftur í tímann
að telja. Móðir Ögmundar í Sogni
en kona Ögmundar á Bíldsfelli,
var Elín Þorlálísdóttir frá Plögu í
Skaftártungu, Jónssonar eldra á
Hjörleifshöfða í Mýrdal, Ólafsson-
ar bónda á Hjörleifshöfða (1721)
Ólafssonar.
Ögmundur sál. ólst upp á Bílds-
felli með foreldrum sínum, en 25
ára gamall fluttist hann þaðan og
byrjaði búskap á Kotströnd í Ölf-
usi, þar bjó hann tvö ár, þá eitt ár
í Selvogi, svo 29 ár á Yxnalæk og
síðast bóndi í Sogni til 1910. En
það sem þá var eftir æfinnar,
dvaldi hann sama staðar hjá dótt-
ur sinni og tdngdasyni, að mestu
þrotinn að kröftum og heilsu, þar
til hann andaðist 16. ág. sl., 85 ára
að aldri. Snemma á sínum búskap-
.aráruiu kvæntist hann heitmey
sinni, Guðrúnu Ingimundardóttur
frá Króki í Grafningi, Gíslasonar,
er var komin frá Gísla biskupi
Jónssyni í Skálbolti.
Mun Ögmundur, þá er hann
fjekk Guðrúnar, hafa haft í hyggju
sína óborna afkomendur, ef nokkr-
ir yrðu, að fá þeim sem best móð-
erni, enda gekk slíkt að óskum,
því hún var hin mesta sæmdar-
kona, en er nú látin fyrir nokkr-
um árum. Þau eignuðust 7 börn,
en 3 þeirra eru enn á lífi, öll bú-
sett og mjög vel gefin á margan
hátt.
A yngri árum sínum var Ög-
mundur fríður maður sýnum, rjóð
ur í kinnum og vel fallinn í and-
liti, snotur í vexti, ljettur og lip-
ur í öllum hreyfingum. Sjóróðra
stundaði hann fram eftir æfinni
og þótti ávalt me'ð bestu vermönn-
um, sakir lagvirkni, kapps og
dugnaðar. Til fróðleiks -og bóka
var hann eins og títt er um óment-
aða alþýðumenn, því hann var
ekki til menta settur í æsku. Smið-
ur góður eða fjölhæfur á ýmsar
listir kvaðst hann ekki vera, ljet
og jafnan lítið yfir sjer og var ó-
sýnt. um alla sjálfhælni. — Yíns
neytti hann lítils, eða nær ekki,
og þó allra síst, að hann drykki
við sleitur. Af hrottaskap og stór-
yrðum var hann gjörsnauður, en
Jítillæti, Ijúfmensku, hógværð og
mildi átti hann í ríkum mæli. Hús-
bóndi var hann hinn be'sti, eigin-
maður og faðir. Allir unnu honum
af heilum hug, er nokkuð til hans
þektu; allir virtu hann, alstaðar
var hann velkominn, öllum vildi
hann vel, allir dáðu pruðmensku
hans, og öllum þótti heiður að hon-
um. Er því góður drengm- til graf-
ar genginn, þar sem var Ögmund-
ur í Sogni.
„Einn af þeim gömlu.“
Allir þurfa alð eignast Rit Jón-
asar Hallgfímssonar.
Takiö þaö
nógu
snemma.
Bíðid Md með <#
taka Fersói, þangað
bér eruð orðio lamnm
Rrrsatni og IubIwm hah ikillwl»Q
A löfænn og svekkja RbaHMIai. M fw •Í'
bm 6 taugaveíkleo, mqi Of
§igt ( vöBvntn og HTfawil h—. ovofaúofal oq þoovte
og of fljóhtm eUUlióloiko. /
Byrjiö því straks I dag «0 soh
bmíbeldur þann lílskraft mm Bkmmémm þeifoMt
Fersól B. er heppflogfyd» þé eem Mh
—IfingarOröugleika.
Varist effirfflrfngtf.
Fæsl hiá héraöslækimxÐ, tyböhni'ðg
Saumur,
1—1 %—2—3—4—5—6 ’ ’
Þaksaumur,
Pappasaumur,
Þakpappi „Víkingur“
Ofnar og eldavjelar,
Þvottapottar
Eldf. steinn og leir
fyrirliggjandi hjá
C. Behrens, sími 21»
iómenii!
Það er allra álit, að smekk-
legustu og bestu fötin, saum-
uð eftir máli, sjeu frá Guðm.
B. Vikar, Laugaveg 21. —
Ábyrst að fötin fari vel. Af-
greidd á 2—3 döguin.
Gnðm. B. Vikar
Laugaveg 21. Sími 658,
Kl. 10 f. h. j
og kl. 3 e.h. :
ferð anstnr í Fljðtshlið •
• alla daga. Z
Afgreiðslusímar 715 og 716. Z
Bifreiðastöð l
Reykjavíkur. :
Líkkistnr
ávalt tilbúnar.
Hvergi vandaðri frágangur nje
lægra verð. Sje um útfarir.
Tryggvi Árnason,
Njálsgötu 9. Sími 862.
Best að auglýsa í Morgunbl.