Morgunblaðið - 27.10.1929, Blaðsíða 3
3
•totnand!: Vtlh. Fln»en.
KJelag 1 ReykJaTfk.
S.iv»i.Jðrar: Jðn KJartaneeon
Valtjr títefánaaon.
iuelíelng'aatjðri: S. Hat&erE.
•knfatofa Au*tttr»tr«etl S.
Ua! nr. 50».
i.c«!ý»lnKa»krtf«tofa nr. 708.
.tí*í maalmar:
Jðn KJartan»aon ar. 74*.
Valf.ýr Stefán»»on nr. ISÍ9.
E. ^tafbere nr. 770.
VaSrtfVkRjálð:
Xaaanlanð* kr. í.t'® á asánuB!
~ alanðx kr. í,8ð - ——
•ölu 1« aura elntak!fl.
Irlendar slmfregnir.
PB. 26. okt.
Stjónx&rmyridun í Frakklandi.
Prá París er símað: Forseti
Frakklands hefir falið Daladier,
formanni radikala flokksins, að
mynda nýja stjórn.
Kauphallarbrask.
Frá New York er éímað: Feikna
verðfall á hlutabrjefum varð í
kauphöllinni hjer í fyrradag, setn
«r mesti verðfalls- og œsingadag-
ur, er menn muna eftir í kaup-
höHinni síðan árið 1907. Alt var í
uppnámi á kauphöllinni um skeið.
19 milj. hlutabrjefa voru seldar
<og er talið að tapið vegna gengis-
Salls þeirra hafi numið miljörðxxm
idollara. Fjöldi gróðabrallara, stóðu
'dyppír og snauðir eftir.
Mikill mannfjöldi hafði safnast
saman fyrir utan kauphöllina, svo
jðll umferð stöðvaðist.
Loks heppnaðist bönkunum að
•döðva fallið, se*m virðiét vera af-
leiðing gróðabralls á undanförnum
vikum, þ. e. gróðabrallið hefir
valdið óeðlilegri verðhækkun, sem
«vkkt gat haldist til lengdar.
Ráðberra refsað.
Frá Washington er símað: Fall,
fyrverandi ínnanríkLsráðherra, hef-
ii' fengið sektardóm fyrir að hafa
þegið í mátur af olíukónginum
Doheny 100 þíis. dollara, en Fall,
hafði leigt Doheny nokkur af olíu-
svseðum ríkisins.
ítölsk blöð ræða banatilræðið.
Prá Rómaborg er símað: ítölsk-
Um blöðum verður tíðrætt um það,
að italski stúdentinn, sem sýndi
•talska krónprinsinum banatilrseði,
hafði komið frá París. Fascista-
blöðin eru afar gröm í garð
Prakka og segja, að erlendir flótta
nxenn, þeirra meðal andstæðingar
faseista, fái. stöðngt griðastað í
Prakklandi. Sum faseistablöðin
halla París „skóla fyrir konungs-
axox-ðingja".
Uppreisn gegn Rússastjórn.
Prá Moskva er símað: Frjetta
^tofa Rússlands tillcynnir, að rúss-
ne'slj yfirvþld hafi komist að því,
að stofnaður hafði verið fjelags-
skapnr súður í Kaxxkasus, til þ<jss
vinna að uppreist gegn ráð-
djórninni. Leiðtogarnir höfðu ver-
yfirforingjar í hvíta hernum og
v'ldu gera Riissland að keisara-
vMdi að nýju. Pjórtán leiðtogaixna
v°ru dæmdir til lífláts og voru
^ómnrnir þegap framkvæmdir.
Sjóslys á Michiganvatni.
Frá Milwaukee* 1 er símað: Ferja
^órst á Michiganvatni og drukkn-
u®n 52 menn.
2ÍORGUNBLAÐIÐ
Verslunarsknldir bænda.
Hvers vegna standa Tímasósíaiistar í vegi fyrir útrýming verslun&r-
skuldanna í sveitum?
I.
Sennilega er margur bóndinn
kominn á þá skoðun, að láns- og
vöruskiftaverslun sú, sem ríkjandi
er í sveitunum, sjé stærsta böl
landbúnaðarins. Skuldirnar þróast
og dafna vel í skjóli þessa óheil-
brigða verslunarfyx-irkomulags. —
Þessar skuldir hvíla nú sem mara
á bændum.
Versluuarskuldir bænda eny
víða meiri nú, en þær hafa verið
nokkru sinni áður. Margur bónd-
inn hefir orðið að veðsetja alt sitt,
fast og laust, til tryggingar þess-
um skuldum. Honum gagnar það
iítið, þótt hagfeldar lánsstofnan-
ir rísi upp landbúnaðinum til
lianda. Þessar stofnanir verða lok-
aðar fyrir bóndanum, se.m flæktur t
er í verslunarskuldum, því hann
hefir ekkert veð til.
Þetta ástand er gel-samlega ó-
þolandi. Bændur standa ráðþrota
og geta ekki risið undir hinu
þunga fargi. Ofan á skuldahrúg-
una safnast árlega okurvextir (7
—8%). Innlegg fátæks bónda gei--
ir oft lítið betur en að greiða
vextina af súpunni.
Þegar bændasynirnir ætla að
byrja búskap á föðurleifð sinni,
sjá þeir frámundan aðeins basl og
Vonlevsi. Skuldirnar, sem hvíla á
búunum, eru svo miklar, að þeir
sjá engÍB ráð til þess að geta orð-
ið sjálfstæðir borgarar í þjóðfje-
laginu. Vonleysið verður svo til
þess, að margur efnilegur bónda-
sonurinn gefst alveg^upp. Hann
flýr föðurleifðina og leitar til
kaupstaðanna í von um að fá þar
eitthvað betra.
n.
Verslunarólag það, sem enn er
rSkjandi í sveitunum, er leifar
löngu úrelts vérelunarfyrirkomu-
lags. En sorglegast er, að ýmsir
þeir menn, sem gerst hafa leiðtog-
ar bænda í verelunar- og viðskifta-
málum, hafa ekki aðeins orðið til
j>ess að viðhalda }>essu úrelta og
óheilbrigða ástandi, heldur hafa
þeir stórum aukið vandræðin.
Hinir pólítísku forkólfar kaup-
fjelaganna eiga mesta sök á ástand
inu. Þessir menn eru gerðir út af
sósíalistum, til þess að reyna að
vinna bændur til fylgis við sósí-
alista-stefnuna.
Markmið þessara grímuklæddu
sósíalista var fyrst, og fremst uið
stofna pólitísk kaupfjelög út um
bygðir landsins. Þeir lögðu aðal-
áhersluna á að ná sem flestum
bændum inn í kaupfjelögin og ríg-
binda þá þar á skuldaklafann. Um
hitt var minna hirt, hvort fjelagið
væri rekið á heilbrigðum grund-
velli sem verslxmarfjelag.
Og nú eru bændur farnir að
súpa seyðið af ráðsmetisku Tíma-
sósíalista og þeirra sendisveina. Nú
vildu þeir gjarnan fá frelsi sitt
aftur. En það er hægara sagt en
gert. Fjöldi bænda er rígbund-
inn á skuldaklafann og fá sig
hvergi hreyft. Og yfir þeim vofir
pólitískur refsivöndur ef þeir ætla
sig að hræra.
hi.
Þessi pólitíski skuldaklafi kaup
■ f jelaganna er ávöxtur hinnar
! hneysklanlegu sambxiðar bænda og
sósíalista. Með honum á að kúga
íslenska bændur til fylgis við só-
síalistastefnuna.
En þegar þetta er orðið ljóst
fyrir mönnum, ætti hitt einnig að
skýrast: hvers vegna svo erfið-
lega gengur að fá samþykt lög á
Alþingi, sem miða að því að losa
bændur1 * * * * af skuldaklafanixm.
A tveimur undanförnum þing-
um hafa Sjáifstæðismenn i*eynt að
fá samþykt frumvarp urn atvinnu-
rekstrarlán lianda bæiidum. Sje
slíkum lánum haganlega fyrir kom
ið, ættu J>au fljótlega að geta út-
rýmt skuldavCrsluninni að fullu
og öllu.
Þetta hafa sósíalistar og afleggj
ari þeirra, Tímamenn, sjeð, og þess
vegna hafa )>eir búugðið fœti
fyrir þetta mikla velferðarmál
bændanna.
Þegar bóndinn er laus af hinum
pólitíska skulda-klafa, er hann
crðinn frjáls maður. En þá er líka
hætt við, að sósíalista stefnan eigi
erfitt uppdráttar \ sveitum lands-
ins.
IV.
Brondur verða að skilja það, að
viðrdsnarstarfið í sveitunum bygg
ist að miklu eða mestu leyti á
þvi, hvort það tekst að útrýma
hinni illræmdu skuldaverslun og
skapa heilbrigt viðskiftalíf í sveit
unum. Takist það, mun nýtt blóm-
legt tímabil renna upp í sveitun-
um. En takist það ekki, og fái
hinn pólitíski skixldaklafi áfram
að halda bændum í fjötrum, er
hætt við að viðreisnarstarfið verði
unnið fyrir gíg.
Farsóttir og manndauði
í Reykjavík.
Vikan 13,—19. okt.
(í svigum tölur næstu viku á
undan)j
Hálsbólga 98 (78). Kvefsótt, 76
(48). Kveflungnabclga 2 (4). —
Barnaveiki 1 (?) (0). Gigtsótt 1
(2). Taugaveiki 0 (2). Iði*akvef 34
(26). Hettusótt 17 (11). Taksótt 1
(5). Rauðir hundar 2 (0). Umferð-
argula 2 (1). Erythema nodosum
2 (1). Impetigo 4 (0). Hlaupabóla
0 (1). Munnbólga 0 (1).
Mannslát 9 (8).
C4. B.
Maður druknar.
FB. 26. okt.
Frá Vestmannaeyjum er símað:
í gær fjell maður útbyrðis af vjel-
bátnum Hax*pan og drukknaði. —
Báturinn var að koma undan Eyja-
fjöllum og var á leið hingað, er
slysið vildi til. Maðurinn hjet Guð-
jón Ólafsson og var um þrítugt.
Bæjarstjórn Aknreyrar hefir
samþykt að leyfa Olíuverslun ls-
lands að reisa olíugeyma á Akur-
eyri.
Tveim börnnm
bjargaö úr lffsháska.
Klukkan rúmlega hálftólf í gœr
urðu menn á Slökkvistöðinni varir
við, að tveir drengir höfðu dottið
niður um ís á miðri Tjöminni, um
70 metrum fyrir sunnan hólm-
ann. Svo er ís háttað þar, að
rximur helmingur Tjamarinnar er
lagður heldum ís, en mikið af syðri
hluta hennar var ekki lagður í
fj7rradag. Var þar krap mikið
þegar lygndi í fyrrakvöld, og mun
það hafa frosið um nóttina. Dreng-
irair tveir, Egill Pálsson, 6 ára að
aldri, til heimilis á Nönnugötu 14,
pg Erlendur Sigurgeirsson, 5 ára,
til heimilis á Óðinsgötu 28 B, höfðu
farið að heiman um kl. llj^- Þeir
munu hafa farið beint niður á
Tjörn til að prófa ísinn.
Þegar brunaverðirnir urðu varir
við slysið, tóku þeir til að reyna
að bjarga, en það var Crfitt mjög,
vegna jxess, að drengirnir voru tölu
vert fyrir framan fasta ísspöng,
um 16 metra. Voru um 8 metrar
á milli þeirra. Um leið og bruna-
verðirnir þustu út til að bjarga,
bar þar að Egil Vilhjálmsson,
framkvæmdastjóra B. S. R. Hann
tók við stiga, er einn þeirra hjelt á
en sá fór aftur inn til að ná í
bjarghring. Fóru síðan síðan nokkr
ir skemstu leið út að vökinni, en
aðrir fóru suður að íshúsi til að
ná í bát þann, sem hefir verið not-
aður á Tjörninni. Settu þeir bát-
inn fram á ísinn, en er þeir vom
skamt frá landi, brotnaði ísinn und
an bátnum, og skipaði því Pjetur
Ingimundarson slökkviliðsstjóri
svo fyrir, að einn skyldi fara rneð
bátinn, og var jjað x-eynt. En ís-
inn hjelt ekki að heldur, og kom
því báturinn ekki að notum.
Nú víkur sögunni til Egils. —
Hann hljóp raeð stigann fram að
skörinni og lagði hann út á ís-
hroðann. En stiginn náði ekki
nógu langt, enda seig hann þegar
niður úr ísnum. Egill varð því að
vaða gegn um íshroðann. Leðja
cr mikil í botninum, og því sein-
legt að komast áfram. En þó fór
svo, að hann komst brátt að yngi*i
drengnum, Agli. Var þá Karl
Bjamason brunavörður kominn
fram á spöngina me'ð bjarghring.
Hann kastaði hringnum til Egils,
og lyfti Egill drenghnokkanum
upp á hringinn, og gátu þeir verð-
irnir dregið hann í land.
Hinn rírengurinn var sunnar í
vökinni. Var hann mjög aðþrengd-
ur og lcominn að drukknun. Eftir
mikið erfiði náði Egill til hans.
Var þá drengurinn alveg búinn að
missa kjarkinn, og mátti ekki tæp-
ara standa, að honum yrði bjarg-
að. Egill lyfti honum á bak sjer
og tók að bi*jótast gegnum íshroð-
ann til lands. Var nú fleygt til
hans káðli'og batt hann kaðlinum
um sig. Voru þeir dregnir varlega
að ísspönginni. En þegar að spöng-
inni kom, reyndist mjög erfitt að
ná þeirn upp, því að_ fætur Egils
vom fastir í leðjunni, en spöngin
ótrygg, svo hún hjelt illa manni.
Slökkviliðsstjóri kallaði þá til Eg-
ils og bað hann áð nota sjer borð,
sem lá á ísnum. Gat hann skotið
því undir sig, og dróu þeir
slökkviliðsmenn hann þannig upp,
með aðstoð tveggja lögregluþjóna,
sem voru við björgunina.
Herra
Kamban
og kveniólkið i Bvík.
Ólafur Fríðríksson
endurtekur fyrirlestur sinn
i dag kl. 3 í Gamla Bíó.
Aðgöngumiðar 1 kr„ seldir
við innganginn frá kl. 1 e. h.
Egill var afar máttfarinn að
björguninni lokinni. Hann hafði
bruflað sig á höndum ríð að brjót-
ast gegnum íshroðánn. Egill og
drengirnir vorn færðir inn á
Slökkvistöð. Þeir hrestust brátt.
Foreldrar drengjanna voru sóttir;
færðu þeir þeim þur föt. Var þeim
síðan ekið heim í sjúkrabifreið-
inni og þeir háttaðir. Egill var
máttfarinn mjög, er hann kom
upp xir vatninu, og hjelt kyrru
fyrir á Slökkrístöðinni, þar til
hann hafði náð sjer að fullu. Var
hann þá fluttur heim. Honum leið
ágætlega í gærkvöldi.
Ekki er minsti vafi á því, að
Egill Vilhjálmsson hefir' þaraa
með snarræði og dugnaði bjargað
lífi Erlendar litla. En þetta atvik
ætti að verða til þess, að fram-
vegis yrði höfð meiri aðgæsla við
Tjöraina, en veríð hefir hingað tiL
Er það stórfux'ða, að eigi hefir
hlotist stórslys af háttalagi baraa
á Tjörainni, þegar þau hafa í hóp-
um þyrpst út á ótryggan ís. Lög-
reglan þarf að festa spjöld um-
hverfis Tjörnina og banna umferð
um hana, þegar ís er ótryggur. —
Hættuleg ferð. I færeyska blað-
inu „Tingakrossurí ‘ er sagt frá
því, að fiskiskipið Queen Victoria
hafi nýlega komið úr íslandsferð.
1 óveðrinu þann 29. sept. misti það
stýrið. Gerðu skipverjar neyðar-
stýri ixr messanbómunni og sigldn
með þrí áfram. Þegar þeir voru
pkomnir á móts við Mykjunes í
Færeyjum, fengu þeir hvassviðri
á i-ióti, og mistu þeir þá alla stjcro.
á skútunni. 4. okt. fann togari
einn þá og dró þá til hafnar. —
Þetta sama óveður gerði einnig ó-
skunda í Miðvági. Rak fiskiskip
þar upp á hafnargarð og laskaðist
milcið. Það var nýkomið frá Is-
iahdi og fult at' fiski. Tók það
langan tíma, áður en fiskinum yrði
bjargað undan veðrinn.
Til Strandarkirkju frá N. N. 2
kr. H..S. 10 kr. H. J., Hafnarfirði
10 kr. Gamalli konu 20 kr. Ónefnd-
um 20 kr. J. S, G. 5 kr. B. 5 kr.
K. A. 10 krí. Ónefndum 25 kr. N.
N. 20 kr. Óla 10 kr. Jónu 10 kr.
Kormákí 5 kr. V. G. 5 kr.
Morgunblaðið er 12 siður í dag
auk Lesbókar.