Morgunblaðið - 27.10.1929, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 27.10.1929, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIÐ Veriskrí: Matskeiðar 2ja turna 1,90 Matg'afflar 2ja turna 1,90 Desertskeiðar 2ja turna 1,80 Desertgafflar 2ja turna 1,80 Teskeiðar 2ja turna 0,50 do. 6 í kassa 2ja turna 4,75 Ávaxtaskeiðar 2ja turna 2,75 Rjómaskeiðar 2ja tuma 2,65 Áleggsgafflar 2ja tuma 1,75 Kökugafflar 2ja tuma 1,75 Sultuskeiðar 2ja turna 1,75 Kökuspaðar 2ja turna 2,50 Tertuspaðar 2ja turna 3,25 Súpuskeiðar 2ja turna 4,50 Kartöfluskeið 2ja tuma 5,00 Sósuskeiðar 2ja turna 4,65 Borðhnífar riðfríir 1,00 Ávaxtahnífar riðfríir 1,25 Skeíðar og gafflar, alpacca 0,75 Teskeiðar alpacca 0,40 do. aluminium 0.05 Gafflar aluminium 0,10 Kaffistell 6 manna 14,00 Þvottastell 12,00 Skólpfötur með loki 3,50 Barnadiskar með myndum 0,65 Barnakönnur með myndum 0,40 Dúkku—Matar—Kaffi— Þvottastell 0,75 Munnhörpur —r Úr — Dúkkur 0,25 Bílar, Hringlur, Fuglar 0,50 'Vaskaföt 1,35 Vasar 0,75 Pottar 1,25 Mjólkurfötur 1,95 Sleifasett 7 st. 3,00 og allskonar Búsáhöld og Postulínsvörur — Leikföng og tækifærisgjafir ódýrast hjá 1, Elm: inrai, Bankastræti 11. Um hinn flokkinn segir svo: Hinn flokkurinn, sem getið hef- ir sjer frægð, er glímuflokkur stúdenta, sem fór á norræna mótið í Kiel------ Þessar frægðarfarir íslenskra flokka, eru rjett á litið, meira virði en margan grunar. Því sann- leikurinn er sá, að það er besta leiðin til virðingar í augum annara þjóða, og þá um leið vissasta leiðin til sjálfstæðis út á við, að sýna að íslendingar geti eitthvað.---- Flokkarnir eiga því þjóðarþakkir skilið fyrir afrek sín.“ — Þetta er orð að sönnu. En hvað má þá segja um glímuflokk „Ár- raanns* ‘ ? Hann hefir borið hróður vorn víðar en menn grunar. í tvö ár var verið að vinna að undirbúningi þessarar Þýskalands farar. Reinhard Prinz, hinn góð- kunni Islandsvinur, undirbjó ferð- ina. Hafði hann lagt þar fram ó- trúlega mikið starf, sem íslending- ar geta honum seint fullþakkað. í 25 borgum á Þýskalandi sýndu fs- lendingar glímu og fimleika og fengu alstaðar svo mikinn hróður, að slíks munu varla dæmi. Nú koma glímumennirnir hing- að heim með Brúarfossi annað kvöld. Fögnum heimkomu hinna vösku drengja! Á. ó. narmaraplðtnr á hillur yfir miðstöðvaíofna nýkomnar af ýmum litum. Lndfig Storr, Laugaveg 15. Sit Jónasar Hallgrímaeonar fást hjá bóksölum. Matstofa stðdenta. það einnig svo á Mensu. — Allir skemtilegir menn eru velkomnir í stúdentahópinn, og við vonum, að allir þeir, sem áður borðuðu á Mensú, geri ökkur þá ánægju, að borða hjer hjá Friðgeiri. — Að minsta kosti er svo mikið víst, að maturinn er ágætur. Varhugavert kapphlaup nm vjelaaflið í íslenskum mótor- bátiun. Éins og kunnugt er, var Mensa acádemica lögð niður í vor. Var það að vonum mikill hnekkir fyr ir fjelagslíf stúdenta, og var brátt. sjeð, að við svo búið mætti ekki standa. Stúdentaráðið samdi því í haust við Friðgeir Sigurðsson bryta um matsölu til stúdenta. — Friðgeir hefir nú sett á stofn mat- stofu sína í Kirkjutorgi 4 (2. hæð). Þar eru hin bestu húsa- kynni. Á borðinu eru töfl og tíma- rit, en stúdentar hafa flutt þang- að píanóið, sem var á Mensa. — Upplýsingaskrifstofa Stúdentaráðs ins hefir fengið þar herbergi til af- nota, og starfar hún þar. Morgunblaðið hitti Bergsvein Ól- afsson, formann Stúdentaráðsins, að máli í gær og spurði hann um þátttöku stúd nta í þessu fyrir tæki. — Stúdentaráðið á sama og eng- an þátt í fyrirtækinu. Það er ein- göngu Frið'geiri bryta að þakka. Við höfum aðeins samið við hann um fæði fyrir þá stúdenta, sem áður borðuðu á Mensa, og sem ekki h'afa útvegað sjer fæði ann- arstaðar. Við fáum að halda fundi okkar í borðsalnum, og við get- um einnig hittst þar, eins og áður á Mensu, til skrafs og ráðagerða. — Og upplýsingaskrifstofan? — Hún starfar eins og áður, máske með meiri krafti. Stúdentar geta fengið hjer allar veitingar; eh geta líka mætst hjer, án þess að kaupa nokkuð. Við lifum hjer að öllu leyti eins og á gömlu Mensu. Við getum skemt okkur hjer við söng og liljóðfæraslátt, setið og rabbað. saman. — Hjer borða fleiri en stú- dentar ? — .Tá, að sjálfsögðu, enda var Frá því fyrst að mótorbátar komu í notkun hjer á landi, hafa menn sífelt verið að auka vjela- aflið í bátum sínran, eftir því, sem efni og ástæður hafa leyft. í byrjuninni voru vjelarnar að- e'ins hjálparvjelar, Hkt og siður var í Danmörku, þar sem fyrstu vjelarnar voru keyptar. En fljót- lega urðu menn óánægðir með hjálparvjelarnar, tóku þær úr og settu aðrar stærri í stáðinn. Svo hefir það gengið koll af kolli. Það eru ekki nema örfá ár síðan það þótti afar kraftgóð vjel í bát, sem hafði 1% hestafl á móts við hverja smálest í bátnum. Þeg- ar svo vjelaaflið var apkið svo, að 2 hestöfl komu á hverja smá- lést í bátunum, bjuggust margir við, að þar mundi staðar numið, því hvergi í heiminum munu öfl- ugri vjelar vera notaðar í fiski- skip og fiskibáta, en sem því nem- ur. Hjer þykir þetta of lítið. Menn eru óánægðir með minna en 3 hest- öfl á hverja smálest og tæplega það, því til munu vera fiskibátar hjer á landi, sém vjelarnar hafa 4 hestöfl á hverja smálest í bátnum, og spursmál hvort. hámarkinu er þar með náð. Við þet.ta kapphlaup er ýmislegt að athuga. Fyrst og fremst virðist mjög ólíklegt, að bátur, sem bygð air hefir verið og þá látin í vjel með 2 hestöfl á hverja smálest, þoli það, að í hann sje sétt þriðj- ungi aflmeiri vjel síðar, eða jafn- vel helmingi aflmeiri. En jafnvel þótt skeð geti, að svo sterkbygðir bátar sjeu til, «r auðskilið, að bát- urinn verður alt annað skip en skipasmiðurinn ætlaðist til, þegar mikJu aflmeiri vjel er sett í hann, en upprunaléga er ráð fyrir gert. I öðru lagi er hjer um að ræða stórkostlega peningaeyðslu, sem kalla má að algerlega sje á glæ lcastað, því oftast mun örðugt að fá nokkurt viðunandi verð fyrir vjel, sem tekin hefir verið úr bát, jafnvel þó óslitin sje. Ein aðalástæðan fyrir því, að vjelbátaútvegurinn er ékki í meiri blóma hjer á landi, en raun ber vitni, er einmitt hin tíðu vjela- skifti í bátunum. Allur ágóði út- gerðarinnar fer í ný og ný vjela- kaup, svo segja má, að rjómann af íslensku mótorbátaút.gerðinni fleyti erlendar vjelaverksmiðjur. Það er ékki meiningin með lin- um þessum að gera tilraun til að hefta eðlilega framför í rekstri innlendra vjelbáta. Það er ekki ver ið að amast við því, að menn setji öflugar vjelar í báta sem þeir láta smíða; heldur er verið að benda á hættuna, sém lífi manna getur stafað af því, að aflmiklar vjelar eru settar í gamla báta, og fjár- \\rm H.P. SAUCE LimiteÖ, Birmingham. Frá ofangreindu firma höf- um við fyrirliggjandi: H. P. Sósu, Tomato Ketchup, Worchester Sósu Mixed Pickles Piccalilly Malt-edik Tökum einnig á móti pönt- unum til afgreiðslu beint frá firm^nu. ■5 m BOTTJ nr oeroat .lý c.v-- H. OLAFSSON & BERNHOFT. Sími 2090. I »1111 ■ ■ 11 SUÐUSÚKKULAÐI, ÁTSÚKKULAÐI, „OVERTKÆK*, KONFEKT, KAKAO Þessar vörur eru heimsfrægar fvrir gæði. KLÖPP SELUB: Stór koddaver til að skifta í tvent á 2,25. Sængurveraefni á 4,75 í verið. Mjög góðar Kvenbuxur á 1,75. Ullar-kvenbolir á 1,10. Fajlegir Náttkjólar frá 3,90. Silkiundirkjólar frá 4,45. Kvensvuntur, afar mikið úrval. Fermingarskyrtur á drengi, ódýrar og fallegar. Geysi mikið úrval &f bindum. Silfur- kassar með teskeiðum og kökuspaða seljast mjög ódýrt. Skoðið kjólaefnin, sem seljast svo ódýrt. Allar eldri vörur seljast með mikið lækkuðu verði. KLÖPP, Langaveg 21. Drífanda kaffið er drýgst eyðsluna, sem slík skifti hafa ó- hjákvæmilega í för með sjer. Það er auðsætt, að verði engar sjerstakar ráðs/afanir gerðar til þess að fyrirbyggja kapphlaupið um vjelaaflið í mótorbátunum, er stór hætta á ferðum. Það virðist sjálfsagt, að skipa- skoðunarmenn ríkisins ættu a£ hafa vald til þess að ákveða há- mark vjelaafls í hvem bát, sem fara ætti eftir styrkleika og bygg- ingarlagi bátsins. Hafi skipaskoð- unarmexm ríkisins ekki slíkt vald að gildandi lögum, verða þeir að fá það. Það heyrist aldrei talað um, að skoðunarvottorði með skipi eða bát hafi verið neitað fyrir þá sök, að vjelin væri bátnum ofviða. — Aftur á móti hefir það heyrst, að hátar hafi verið sprengdir af of- keyrslu í stormi, og legið við líf- tjóni manna; það virðist því full ástæða, að þetta mál sje tekið til rækilegrar yfirvegunar af skipar eftirlitinu og öðrum sem hlut eiga að máli. J. E. B. Stangarstökk. Hinn 6. október var haldið •þróttamót í Þrándheimi og þar var sett nýtt Noregsmet í stang- arstökki. Gerði það Charles Hpff. Hann byrjaði með því að stökkva 3.50 metra, svo 3,75 m., þá 3,90 m. og svo 4.05 m. Veittust honum ölí þessi stökk leikandi 1 jett. Svo var stökkfærið hækkað upp í 4,28 m. og fór hann þar yfir við fyrstu tilraun, en reyndi ekki hærra. Heimsmet, í stangarstökki (sem þó mun ekki viðurkent), á Ame- ríkumaðurinn Sabin Carr, 4,32 m. Munar minstu, að Hoff hafi náð því. íslenska jnetið er 3,25 metrar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.