Morgunblaðið - 27.04.1930, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Gerií pantanir ytíar á öllu ykkar girðingarefni hjá
okkur, það borgar sig áreiðanlega.
Höfum ávalt fyrirliggjandi gaddavír, sljettan vír, vírnet
til fjárgirðinga, margar teg. hænsnanet, refanet, net til
að girða með smábletti og lóðir. Net til að hafa í húsum
til að múrsljetta á. — Ennfremur allar tegundir af girð-
ingastólpum úr trje og járni, lykkjur og annað er þarf
til girðinga.
* •
Hafið það ávalt hugfast, að krónan, sem fer í óhag
stæð innkaup, er að óþörfu töpuð.
ffliólknrfjelag Reyijavíknr.
Byggingar-
elnl:
Við seljum eftirleiðis
flestar tegundir af bygg-
ingarefni svo sem:
Sement.
Timbur.
Þakjárn.
Þakpappa.
Saum, allar tegundir.
Steypustyrktar j ár n.
Vatnsleiðslurör o. fl.
Gerið svo vel að tala
við okkur og athuga verð
og skilmála áður en þjer
festið kaup á byggingar-
efni.
Mjðlkurfjelag
Reykjavfkur.
International flutningakílar.
eru þeir vönduðustu og bestu, sem nú eru á mark-
aðinum:
SIX SPEED SPECIAL (4-Cylinder) CHASSIS124”
burðarmagn 1250 kg., með batteríkveikjum, hjólrimum
úr málmi, með loftslöngum og sexföldu gúmmí 30x5” að
framan og aftan, frambretti með stuttu renniborði og
rykhlífum, rafljósum að framan og aftan, rafmagnsræsi,
straumvaka, rafgeymi, rafmagnshorni, verkfærum, hraða
mæli, nikkelhúðuðum vatnsgeymi og hemlum á öllum hjól-
um. — Verð hjer á staðnum kr. 4650.00. — Fást einnig
með Americán Bosch (ZR—4) eða Robert Bosch (FÚ—4)
segulkveikju.
MODEL S-26” (6-Cylinder) CHASSIS, 130”
burðarmagn 1500 kg., loftslöngur og sexfalt gúmmí 30
X5” að framan, en áttfalt 32x6” að aftan (fást einnig,
ef óskað er, með 32x6“ gúmmí að framan, én eru þá dá-
lítið dýrari). Annar útbúnaður eins og að ofan segir. —
Verð hjer á staðnum kr. 6400.00.
Myndlistar og nánari lýsing á vjel og öllum útbúnaði fæst
hjá okkur.
Mjög aðgengilegir borgunar skilmálar. — Ef þjer þurfið
að kaupa flutningabíl, ættuð þjer ekki að láta hjá líða að
tala við okkur og líta á bílana sem komnir eru.
EINKASALAR Á ÍSLANDI.
Mjðlbarfislag Reykjavíknr.
Ámnndi Ámnndason
iiskimatsmaðnr
f. 10. febr. 1850 d. 20. apríl 1930.
Góður Reykvíkingur, sæmdar-
maður í hvívetna, er til moldar
genginn, öllum bæjarbúum að
góðu kunnur. Dvalið hefir Á-
mundi hjer í bæ frá æskuárum,
en fæddur var hann á Sandlæk
í Eystrihrepp, og voru foreldrar
hans Ámundi Guðmundsson frá
Syðra Langholti og Guðríður
Guðmundsdóttir frá Sandlæk. —
Ungur kom Ámundi hingað, og
er æfi hans og æfistarf bundið
við sama blettinn, þar sem hann
hefir átt sitt eigið heimili rúma
hálfa öld. Árið 1876 flutti hann
til Reykjavíkur, en hafði áður
verið hjer við og við og stundað
sjóróðra. Hann átti því láni að
fagna þegar í æsku, að hlýða
forustu hinna gömlu, góðu Reyk
víkinga, er tóku daginn snemma
og voru framarlega í flokki
hinna starfsömu og bjartsýnu
manna. Meðal þeirra var einn
hinn merkasti borgari Reykja-
víkur um og eftir miðbik síð-
ustu aldar, Jón Þórðarson í
Hlíðarhúsum, einn hinna rösku
„Borgarabæjarbræðra". — Varð
Ámundi á vegum Jóns, og varð
lærisveinn hans í ötulleik og
vandvirkni, og má með sanni
segja, að í Hlíðarhúsum hafi
verið lagður grundvöllur undir
giftudrjúga framtíð Ámunda. —
Þangað sótti hann gæfu sína og
gleði; þar gekk hann að eiga Jó-
dísi, dóttur Jóns f Hlíðarhús-
um, hina ágætustu konu, og
margir eru þeir Reykvíkingar,
sem muna heimili þeirra hjóna,
muna þann myndarbrag, er þar
var yfir öllu heimilislífi.
Áttu þau hjónin eina dóttur,
Jónínu Jódísi, er gift var Geir
Sigurðssyni skipstjóra, en hún
andaðist 20. nóv. 1918, og var
við fráfall hennar mikill harmur
kveðinn að föður hennar, manni
hennar og börnum. Konu sína
misti Ámundi 5. ágúst 1914 eft-
ir 34 farsæl hjúskaparár. Er
þeirra hjóna minst með þakk-
læti og hlýjum huga, ekki síst
af þeim, er hjá þeim hlutu fóst-
ur, og áttu á æskuárunum skjól
hjá þeim merkishjónum.
Eins og kunnugt er, var aðal
starf Ámunda fiskimatsstarfið,
og má með sanni segja, að hann
hefir gegnt því með heiðri og
sóma í hálfa öld. Það starf
styður að sannri þjóðarheill. Sje
það vanrækt, veldur sú van-
ræksla þjóðarböli. En fyrirvand
virkni og samviskusemi fiski-
matsmannanna græðir landið
stórfje. Er það áríðandi, að til
þessa starfs veljist hinir hæf-
ustu menn. Á því er enginn vafi,
að Ámundi gekk ávalt með ó-
slciftum huga að þessu starfi og
leysti það af hendi með hinni
mestu kostgæfni. Kom það skýrt
í ljós á 80 ára afmæli Ámunda
á liðnum vetri, hve hann var
elskaður og virtur af stjettar-
bræðrum sínum, enda varð af-
mælisdagur hans hátíðisdagu-
starfsbræðranna, sem glöddust
með afmælisbarninu á heimilinu
í Hlíðarhúsum, þar sem Ámundi
hofir um áratugi. veitt heimili
forstöðu og hin síðustu æfiár
átt heima Kjá tengdasyni sínum.
Ámundi var vel kyntur mað-
ur, dagfarsgóður, grandvar og
prúður í umgengni allri. Áður
fyr var hann oft á sumrum í
fylgd með útlendingum, er ferð-
uðust hjer um land, og luku
þeir lofsorði á dugnað og hag-
sýni Ámunda. Var hann t. d.
fylgdarmaður dr. Ehlers, er
rannsakaði holdsveikina og
kynti sjer hag holdsveikra
manna víðsvegar hjer á landi.
Sömuleiðis var hann fylgdarmað
ur Daníels Bruun, og hafði
Bruun hinar mestu mætur á Á-
munda, og lýsir honum svo í
ferðabók sinni „Tværs over Kö-
len“: „Ámundi var rólegur mað-
ur og áreiðanlegur; hjá honum
var alt í bestu röð og reglu;
altaf var hægt á honum að
byggja“.
Glögt er gestsaugað, og út-
lendingurinn kom fljótt auga á
hina góðu kosti Ámunda, og
þessa kosti í fari hans kannast
Reykvíkingar svo vel við.
Margir eru þeir, sém muna
hinn skyldurrækna og trúa
mann, sem stundaði starf sitt
með gleði og alúð, til sæmdar
stjett sinni, og til heilla bæjar-
fjelagi, landi og þjóð.
Minning Ámunda í Hlíðarhús-
um geymist og mun seint fyrn-
ast.
B.
Fermingarbirn
1 Dómkirkjnnui.
P i 11 a r :
Haraldur Biríksson.
Gunnlaugur Jónatansson.
Jón Guðm. Þorst. Jóhannsson.
Skúli Ólafsson.
Hartvig Nielsen.
Ólafur Ólafsson.
Haukur Jóhannsson.
Egill Gestsson.
Kristinn Hafliðason.
Erlendur Jónasson.
Sigurður Kr. Hjaltested.
Jóhann Kr. Hannesson.
Sigurgeir Steinsson.
Sigurjón Guðmundsson.
Ögmundur Jóh. Guðmundsson.
Hörður Markan .
Sigurður Sigurðsson.
Arent Haukur Óskarsson.
Friðþjófur Aðólf Óskarsson.
S t ú 1 k u r
Ingveldur S. Filippusdóttir.
Sólrún Anna Jónsdóttir.
Bergljót Ólafsdóttir.
Sigríður Magnea Jakobsdóttir.
GuðlaUg Ágústa Ágústsdóttir.
Ásta G. Guðbrandsdóttir.
Gerður Jónasdóttir.
Guðríður M. Helgadóttir.
Ragnheiður Magnúsdóttir.
Gunnþórunn Hannesdóttir.
Sigríður M. Sigurðardóttir.
Fjóla Laufdal.
Ragnheiður Guðmundsdóttir.
Svana I. Þorbergsdóttir.
Áslaug Hrefna Sigurðardóttir.
Ólafía S. Sigurbjömsdóttir.
Sigurlaug A. Jóhannesdóttir.
Fanney Þórðardóttir.
Jóna S. Karvelsdóttir.
Guðrún Guðmundsdóttir.
Helga H. Andersen .
Sigríður Hansdóttir.
Guðný Þ. Árnadóttir.
Karlotta Ólöf Gissursdóttir.
Alda Rannveig Hannah.
HjeraðsskóUnn
að Reykjum í Hrfitafirðl
Úr Hrútafirði er blaðinu skrif
að: Strandasýsla hefir lagt 20
þús. kr. til hjeraðsskólans að
Reykjum, en V.-Húnavatnssýsla
15 þús. kr. Ófrjett enn hve ríf
Austur-Húnavatnssýsla verður á
fje til skólans. En eftir því sem
frjettist þaðan, eru menn skól-
anum hlyntir.
Ráðgert er að byggja nú í sum
ar fyrir 40—50 þús. kr. og
bæta við síðar. Sýslunefnd
Strandasýslu kaus þá Halldór
Júlíus . sýslumann og Krist-
mund Jónsson kaupfjelagsstj. í
byggingarnefnd, en sýslunefnd
V.-Húnavatnssýslu hefir kosið
þá Þorstein Einarsson að Reykj
um og Eggert Levý að Ósum í
nefndina. Ráðuneytið skipaði
t' rtnann nefndarinnar Hannes
Jónsson alþm., en Þorstein Ein-
arsson varaformann.
Til þess að standa fyrir skóla
smíðinni hefir nefndin ráðið ó-
laf Jónsson á Borðeyri. Efnið
er pantað í bygginguna.