Morgunblaðið - 27.04.1930, Blaðsíða 5
Sunnudaginn 27. apríl 1930.
Vika&u
20.—26. t príl.
Næstu viku á undan voru
hlýindi um land alt með hæg-
viðri. Hjelst sú veðrátta fram
til 21. apríl (2. páskadags).
— Þá snerist til norðanáttar
og varð úr hinn versti norðan-
garður, með fannkomu á Norð
ur- og Austurlandi svo og Vest-
fjörðum. Frost var þó lítið sem
ekkert í lágsveitum, en á Vest-
fjörðum var nokkurra stiga
frost. —
Á Austur. og Suðurlandi
hjelst norðangarðurinn fram á
fimtudag (sumardaginn fyrsta)
en á Vestfjörðum alt þangað til
A aðfaranótt laugardags.
Margir óttuðust að í þessu
páska- og sumarmálahreti
mundi ísinn koma upp að land-
inu. En engar fsfregnir fjekk
Veðurstofan á laugardag.. Þá
var þó bjartviðri og hefði átt að
sjást til íssins, ef hann væri
einhversstaðar nærri landí
Illviðri þetta, sem geysaði yf-
ir landið, náði iekki yfir langt
svæði. Á Jan Mayen var t. d.
hJý austanátt, og eins var gott
veður í Grænlandi. En vegna
þess hve garðurinn náði lítið
yfir Norðuríshafið, hefir hann
minni áhrif haft á ísrek. Storm-
ur var og austlægur, og því
minni hætta á að ísinn ræki
upp að landinu.
Enn helst uppgripaaflinn á
Selvogsbanka. þar eru nú togar-
ar allir að veiðum — við Hraun-
ið. Eftir illviðrin í vikunpi hefir
þar verið stórfeld aflahrota. T.
d. fjekk „Skallagrímur“ 30
„poka“ á þrem klukkustundum,
botnvarpan full eftir svo sejn
15 mín. tog. Fiskur er þar nú
með allra vænsta móti — en
ekki lifrarmikill.
Aflinn á öllu landinu var um
miðjan apríl talinn 197.000 sk-
pd. En fyrir 6 árum voru 200
þús. skippund talin meðal áfs-
afli. — Þegar 4 mánuðir ársins
eru liðnir, verður aflinn nálægt
% milj. skpd.
Um verðlag er ekkert hægt
að fullyrða, en verður engu
góðu spáð. Afli Norðmanna í ár
eins og hjer meiri en nokkru
sinni fyr.
Nú eru þingmenn flestir horfn
ir heim; og þingi frestað. Og
þjóðin lí'tur yfir þessi 50 lög
sem þegar eru afgreidd á af-
mælishátíðar-þinginu.
Þau eru þar ekki mörg stór-
málin. Mest ber þar á lítilfjör-
logum lagabreytingum og laga-
smíðakáki. Helst staðnæmast
menn við lögin um sveitabanka,
sem náð hafa fram að ganga
fyrir eindregna sókn stjórnar-
andstæðinga. Fiskiveiðasjóður-
inn komst á; en þau lög skemdi
stjórnarfylkingin stórlega, með
því að fella burtu rekstrarlán-
in. Það er gamla sagan. Rekstr-
arlán má stjórnarklíkan helst
ekki heyra nefnd, því þeir sem
hafa sósíalistiskt hugarfar ótt-
ast að upp af þeim jarðvegi
spretti efnalegt sjálfstæði ein-
staklinga. Frumvarp Halldórs
Steinssonar um aukna landhelg-
isgæslu náði fram að ganga, og
frumvarp Flugfjelagsins um!
M
Flugmálasjóð. Styrkinn til Flug-
fjelagsins reyndi Jónas frá
Hriflu að drepa á síðustu stundu
en tókst ekki.
Hin endanlega lausn hins
norðlenska skólamáls er og
tengd við þetta þing, með því
að samþykt voru lögin um
Mentaskóla á Akureyri. En eins
og kunnugt er, hefir þetta þing
ekki átt nema lítinn þátt í fram-
gangi þessa máls, er nú um ára
tugi hefir þokast að því fyrir-
sjáanlega marki — stofnun
Mentaskóla nyrðra.
1 þinglokin komu fram tvær
skemtilegar ályktanir, um að
losna við sæsímann og koma
upp talsambandi við útlönd, og
um endurheimt íslenskra hand-
rita. En frumkvæðið) að því
kom ekki frá stjóminni, frekar
en að öðru nýtilegu á þessu
þingi. Ekkert framfara, þjóð-
nytja- eða menningarmál, sem
nokkuð kveður að hefir núver-
andi landsstjórn borið fram og
barist fyrir á þessu þingi. En
hún getur aftur á móti „hælt
sjer“ af því að hafa svæft nokk-
ur merk mál fyrir andstæðing-
um, eða komið þeim fyrir katt-
arnef. Drepið var rafmagnsmál-
iS enn — þetta langstærsta vel-
f rðarmál sveitanna, svæfður
var samskólinn og tillagið til
sundhallarinnar. Á sömu leið
fór með heimavistir við Menta-
skólann. Enn brá stjórnarliðið
fæti fyrir rekstrarlánin handa
bátaútvegi og smáiðju.
Og framtíðarmöguleikar út-
varpsins voru stórskemdir með
því að útrýma sjerþekkingu úr
rekstri þess fyrirtækis, og
smeygja einokunarhöftum á
verslun útvarpstækja. Væntau
lega tekst áður en langt um líð-
ur að lækna þessa barnasjúk
dóma með því að færa útvarpið
í það form, sem fyrirhugað var
í fyrstu.
Tekið var upp það vinnulag
hjer við höfnina á þessari ver-
tíð,tíð, að vinna ekki að upp-
skipun á næturna. Komið hefir
fyrir að skip hafa tafist óeðli-
lega við þetta, eins og t. d. er
nokkur handtök voru óunnin
á tilsettum tíma við Esju, og
sósíalistabroddarnir komu í veg
fyrir að skipið kæmist úr höfn
það kvöld, þó farþegar væru
komnir á skipsfjöl.
En yfirleitt má telja að tog-
araútgerðinni hafi þetta verið
hagur. Vinnan gengur greið
ara í mörgum tilfellum en áður,
og verður því minni kostnaður
við afkast sömu vinnu en áður
var. Verkamenn verða á hinn
bóginn af hinu háa næturvinnu-
,k,aupi, en upptökin að nætur-
vinnubanninu eru frá þeim. Ef
þeir mega við því að missa háa
kaupið að dómi þeirra sjálfra,
þá ber það vott um betri hag
þeirra en ýmsir hafa látið í
veðri vaka.
Kaupdeila gaus upp í Vest-
mannaeyjum á dögunum, en er
nú lokið. Verkamannaflokkur-
inn þar klofnaði sem kunnugt
er í vetur. Kommúnistar mynd-
uðu þar sjerstakan flokk. For-
ingi þeii-ra er Isleifur Högnason,
er lengi hefir haft mikið sam-
band við Tímaklíkuna. Nú vildi
hann ákveða kaupið. En þá risu
Með E.s. „Selfoss"
íengum við mjög mikið af vörum. í gærkvöld voru teknar upp meðal annars:
Úrval af Blúndvefnum, Georgette og Crepe de Chine í kjóla, einnig allskona
önnur kjólaefni. — Gardinutau fjölda teg. — IVIatrosföt, Matroskragar og
U^pslög. Prjónaföt, Golftreyjur og Peysur fyrir börn og unglinga.
Hicjebuxur (Plusfour), Sportstakkar úr rúskinni, stormtaui og prjóni. —
Karlmanna narfainaður allskonar. — Manchettskyrtur feikna úrval.
Enskar húfur nýjustu gerðir. — Hattar í afar fjölbreyttu úrvali, o. m. m. fL
Verslimin Eyill Jacobsen.
II
upp verkamenn í Eyjum undir |
forystu Þorst. Víglundssonar og
töldu ísleif ekkert umboð hafa s
til þess að skifta sjer af verka- Hi
kaupinu. Sömdu þeir síðan um §§§
kaupið vinnuveitendur og hinir ^ =
svo nefndu „hægfara sósíalistar
En ísleifur og kommúnistar =
höfðu ekki annað upp úr krafs-j^§
inu en að sönnun fjekst fyrirjg
því, að allur þorri verkamanna =
í Eyjum vill ekki af ráðs- ^
mennsku þeirra vita.
Enn situr Níels Dungal að
Kleppjárnsreykjum í Borgar-
firði og starfar að rannsóknum
á lungnapestinni og bóluefnis-j
gerð. Hefir hann undanfarnar
vikur framleitt mikið af bólu-
efni til varnar gegn þessan!
skæðu veiki. Mestalt fje á sýk-j
ingaraldri frá Kjós og vestur
í Miklaholtshrepp hefir nú ver-
ið bólusett. Hefir hann fram-
leitt bóluefni í 50 þús. fjár.
Tilraunir hans hafa allar bent
til þess að bóluefni hans komi
að góðu haldi. Hann sýkti t. d.
einu sinni 53 kindur og voru 11
óbólusettar en 42 bólusettar. 5
d ápust af þessum 11 óbólusettu
en aðeins 2 af þeim bólusettu.,
En til marks um það hve J
veikin er skæð má m. a. getaj
þess, að ekki alls fyrir löngu
kom veikin upp í fjenu á Ána-
brekku í Borgarhreppi og dráp-
ust 30 kindur á tveim dögum.
Bóluefnið segir Dungal að sje
ekki hægt, að geyma lengi. —
Verði að nota það mjög skömmu
eftir að það er framleitt. En
mikil nauðsyn er á því, að Dun-
gal geti framvegis fengið sem
besta aðstöðu til þess að fram-
leiða þetta varnarmeðal sitt —
undir eins og veikin fer að gera
vart við sig aftur.
Snmar-
kjólaefni, margir fallegir litir, fallegt úrval,
verð frá kr. 1,35 mtr.
Morgunkjólaefni — fjöidi iita.
Ullarkjólatau — margir litir.
CHEVIOTIN þektu í karlmanna- unglinga-
og dömufatnaði.
Alt nýkomið í AUSTURSTRÆI1.
I Asg. G. Gunnlaugsson & Go.
Andamynd.
Nýlega vakti mikla athygli
mynd af Mussolini, er kunnur
pólskur málari málaði í dái
(trance). Myndin er öll mjög
merkileg. Fyrst og fremst vegna
þess að á henni kemur fram
greinilegur svipur Caesars. Svipur
þessi myndar nokkurskonar grunn
undir Mussolini, og á hann, sam-
kvæmt skýringum andatrúarmanna
að tákna það, að Caesar sje ldið-
beinandi einvaldsherrans.
Mynd þessi er nú geymd í gripa-
safni Mussolini, en það er fyrir
löngu orðið auðugt af allskonar
furðuverkum.
Hýkomið:
Fðtknettir
allar stærðir.
Ennfremur allskonar
önnur
fþróttaáhöld og
íþróttaklæðnaðnr.
1
tyataJMu/ifánaóort
Ahrenberg hemnr.
Ahrenberg var staddur í Noregi
nýlega, og skýrðu norslc blöð þá
frá því, að hann væri nú að undir-
búa aðra Atlantshafsferð og legði
líklegast af stað í hana um miðjan
maí. Hefir hann selt flugvje'l sína
„Sverige“, sjálfsagt í þeim til-
gangi að fá aðra nýja og stærri.
Hann mun ætla sömu leið og í
fyrra, eða máske fara eitthvað
norðax á bóginn ennþá. Um frekari
fyrirætlanir hans er ekki knnnugt,
þar eð hann harðneitar að tala við
biaðamenn.
Nýkemið:
Gardínutau
í mörgum gerðum.
Sumarkjólaefni.
Kápuefni.
Barnafatnaður
allskonar.
Nærfatnaður kvenna
í miklu úrvali.
llersl. Skðgafoss.
Laugaveg 10.