Morgunblaðið - 18.05.1930, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
7
leykvíkiig
Hvai Ifiar sqirMhi?
Eitt af því yndisle'gasta, sem
mennirnir geta veitt sjer til
skemtunar eru ferðalög. Ekkert
ef jafn holt líkama og sál en aS
lyfta sjer upp frá hinu daglega
striti og starfi og teiga að sjer
hið hreina og hressandi fjallaloft
og njóta yndisleika náttúrufeg-
urðarinnar.
Engin þjóð í heimi er að lflrind-
um jafn auðug af náttúrufegurð
og heilnæmi en einmitt Islending-
ar. Hversu höfum við ekki verið
okkur þess lítið meðvitandit —
Þetta er nú samt stórkostlega að
breytast, ferðalög aukast ár frá
ári, óbygðirnar og fjallaloftið
kalla.
En við íslendingar athugum
ekki oft fyr en of seint hversu
sumarið okkar er stutt og vetur-
inn er kominn áður en varir. Dag-
inn er nú að lengja, hlíðarnar
grænka óðum, vegir e*ru að verða
þurrir og góðir yfirferðar. Því
ekki að fara úr bænúm strax í
dag?
Ferðalög útheimta fyrirhyggju
til fæðis og klæðis. Við vitum það
af eigin reynslu. Leggið aldrei
svo af stað, að þjer sjeuð ekki
vel birg af matvælum, hvort sem
um lePgri eða skemri ferð er að
ræða. Gerið annað, takið með yð-
ur gott nesti og það sem hentar
yður, hvergi er það jafn nauðsyn-
legt sem hjer, að vera vel útbúinn
vegna strjálbygðar, og það sem
hve’rjum manni ætti að vera fyrir
mesti, að vera sjálfum sjer nægur.
Yerslanir okkar geta nú eins og
fyr boðið yður það fullkomnasta,
hentugasta og ódýrasta, sem völ
er á yfirleitt í heiminum, af öllu
matarkyns til ferðalaga, og eins
og gefur að skilja, höfum við gefrt
okkar allra besta fyrir komandi
sumar.
Þjer skuluð einsetja yður að
ferðast mikið á komandi sumri,
og byrja strax. En leggið aldrei
af stað án þess að hafa' meðferð-
is nesti frá okkur.
Petta ágæta sement
selnr
Helldv. Oariars Gfslasonar.
Nýkomið
í eldhúsdagsumræðunum á þingi
var dómsmálaráðherra mjög víttur
fyrir ýms afskifti sín af Menta-
skólanum. Svör hans við þessum á-
kúrum voru einkum þau, að hann
las upp úr gömlum prótakollum
skólans, það sem minst var skólan-
um til gildis og frá tímabili, er
að því var komið að skifta um
skólameistara vegna óeirða í skól-
anum. Hins vegar ne'fndi liann
ekkert niðrandi dæmi úr sögu skól-
ans frá síðustu árum áður síðustu
skólameistaraskifti urðu. Þetta er
mjög ljóst dæmi um rökfestu J.
J. Hann reynir að fegra gerðir
smar með miður vönduðum frá-
sögnum um löngu látna menn. Með
?essu sannar hann auðvitað ekkekt
sjer í liag, því að ekki sóttu hinir
dauðu um rektorsembættið, er
Pálma Hannessyni var veitt það.
Ekkert ilt gat ráðh. sagt um þá
umsækjendur, sem hann gekk fram
hjá. Vörnin fyrir ráðstöfuninni var
fólgin í frásögnum af stjórn lát-
inna manna.
Pistla
r
!í
Við sömu umræður var af hálfu
J. J. upplýst, að gáfaður piltur
hefði fyrir skömmu verið fe'ldur
við gagnfræðapróf í Mentaskólan-
um, af því að hann hefði verið
ónýtur í stærðfræði. Þetta er marg
endurtekin gömul og ný saga
Þetta hefir átt sjer stað oft
Mentaskólanum og mun enn oft
eiga sjek stað, en J. J. breiddi sig
mjög yfir þetta um eitthvert rang-
læti og hældi sjer geysimikið yfir
því, að hann hefði komið í veg
fyrir, að lífsþráður þessa efnilega
pilts hefði verið skorinn sundur
Viðurkent e'r, að rjett var það
gert, en eins og J. J. var bent á
umræðunum, þá var honum skylt
að gera þetta og voru þetta þó
ekki nema smánarbætur fyrir alla
þá lífsþræði ungra, gáfaðra nem
enda, sem hann með lögldysu og
hörku hefði skorið sundur með því
að bægja fjölda ungmenna frá því
að sækja skólann. Þá var honum
ekki sárt, um „lífsþræðina"; þá
mátti skera þá sundur, þetta er
samkvæmnin. Hún er svipuð og
sagt væri: Það er hrópleg synd
i drepa e*inn mann, en ef 100
eru drepnir gerir það ekkert tfl.
8 cylindra bíllinn er nútíðar og framtíðar bíllinn, enda
<eppa flestallar bílaverksmiðjur heimsins að því, að breyta
framleiðslu sinni í það horf.
MARMON-verksmiðjurnar, sem eru yfir 70 ára gaml-
ar, hafa árum saman eingöngu framleitt 8 cylindra bíla og
hafa því meiri reynslu en nokkrar aðrar verksmiðjur í þvi,
að búa til þessa tegund af bílum.
Marmon-bíllinn „Model R“ er alveg einstakur í sinni röð
bæði hvað verð og gæði snertir. Vjelin hefir 77 bremsuhest
öfl (þó aðeins skattskyldur af 24 hestöflum), vinslan er þvi
framúrskarandi og áreynslan lítil, en það hefir aftur í för
með sjer miklu minna slit á vjel og vagni og fyrir því end-
ist hvorttveggja miklu lengur en ella. Vjelin er útbúin með
gangmýkir, olíuhreinsara, benzinhreinsara og benzinspar-
ara, enda tiltölulega mjög sparneytin. Yfirvagninn er alt i
senn, fallegur, rúmgóður og þægilegur og hinn vandaðasti
alla staði. Stýrisumbúnaður allur hinn traustasti og þó
sjerlega snotur. Innilokaðar bremsur, af bestu tegund, á
öllum hjólum. Fjaðrirnar sjerlega langar og þýðar og
þannig frá þeim gengið, að vagninn fjaðrar jafnþægilegá
hvort sem hann er fullur af fólki eða með ökumanni einum,
enda er Marmon þekt að því, að búa til þýðustu bílana, en
fjöðrunum er þannig fest, að miklu auðveldara er að stýra
bíl þessum en áður hefir þekst.
Þetta, að Marmon-bíllinn „Model R“ er smíðaður af
Mormon-verksmiðjunum, að hann er með 8 cylindra vjel,
að hann er ódýrasti 8 cylindra bíllinn sem enn hefir verið
búinn til, hefir vakið alveg sjerstaka eftirtekt og aðdáun á
bíl þessum víðsvegar um heim.
Kaupið MARMON-bíla. Marmon-verksmiðjurnar eru
löngu heimskunnar fyrir að búa aðeins til það besta.
Aðalumboðsmaðtur á Islandi:
Halldór Eiriksson,
Reykjavík.
Sími 175.
Einnig kom það fram í umræð-
nm þessum, að í rektorstíð Pálma
Hannessonar hefir það komið fyrir,
að einn hekkur Mentaskólans hefir
neitað að sækja kenslustundir kjá
einum kennara. Mun því kensla
hafa fallið niður langan tíma. Víst
er og, að skólanemendur hafa hald
ið fund, boðið sumum kennurum
og þar á meðal rektor á hann og
síðan haldið harðar ádeiluræður á
þá á fundinum. Margt fleira mætti
nefna, en þetta e'r nægilegt til að
sýna, að ástandið í skólanum hefir
versnað en ekki batnað.
Knmmislöngnr 3 8”, 1/2” og 3/4”.
Á. Einarsson <& Fnnk.
Drífanda kaffið er drýgsl
Við bæjarstjórnarkosningarnar
hjer í bænum í vetur var breidd
út af hálfu Framsóknarmanna sú
kosningasaga, að Knud Zimsen
borgarstjóri hefði sölsað undir sig
e'ða sólundað með einhverskonar
óreiðu um miljón kr. af bæjarfje.
Þetta varð til þess að Helga P.
Briem bankastjóra var falið að
athuga þetta og kom þá í ljós, sem
vænta mátti, að sagan hafði við
ekkert að styðjast og litu allir á
þetta sem kosningabeitu, er fyrir-
litin var eftir verðleikum. En borg
arstjóri vildi láta ritstjóra Tímans,
sem bar ábyrgð á sögunni, hljóta
majtlega refsingu fyrir mannorðs-
spjöllin og höfðaði meiðyrðamál á
hendur honum: En hvað gerir rit-
stjóri Tímans þá? Jú, hann biður
dómsmálaráðherra að fvrirskipa
sakamálsrannsókn gegn borgarstj.
Og það stendur ekki á því. J. J.
fyrirskipar rannsóknina og fær
málið í heUdur lögreglustjóra. Síð-
an er liðinn talsverður tími og
sagt er, að enn sje. ekki byrjuð
rannsóknin, og veit enginn hvað
veldur. — Rannsóknarfyrirskipun
þessi hefir vakið almennan að-
hlátur í bænum, en í raun rjettri
er þetta ekki hlæilegt. — Það er
þvert á móti alvarlegt og sorglegt,
er heiðvirðir menn e'ru settir undir
rannsókn til þess að tefja það,
að höfundur ástæðulausra meið-
yrða fái makleg málagjöld. En eins
og kunnugt er, notar J. J. ákæru-
vald sitt til einkahefnda fyrir
sjálfan sig og þá er ekki nema
stutt skref yfir í þá óhæfuna, að
nota það einnig tfl einkahefnda
fyrir vini sína.
Eins og fyrri daginn eru varð-
skip ríkisins höfð í sífeldum snatt-
ferðum. Fyrir skömmu tók J. J.
„Ægi“, og hafði hann í vikuferð
um Vestfirði til fundahalda vegna
landskjörsins og nú hefir hann enn
tekið varðskip, sem á að flytja
hann hafna í mflli á Austur- og
Norðurlandi og stendur sú fefrð
líklega um hálfan mánuð. Skipa-
ferðir eru mjög tíðar um þessar
mundir, svo að þetta er algerður
óþarfi, en er vitaskuld þægilegra
og ódýrara fyrir ráðherrann, en
ríkissjóð hlýtur þetta að kosta
tugi þúsunda og óbeint tap að
auki, sem enginn getur metið. Ein-
um Sjálfstæðismanni hefir J. J.
boðið með sjer og einn jafnaðar-
mtður er auðvitað sjálfsagður. Þá
hefir J. J. neitað a|5 láta Ólaf
Thors alþingismann fá far á slrip-