Morgunblaðið - 21.09.1930, Side 11
11
MORGUNBLAÐIÐ
Vandræði Rnssa.
Iðnaður bolsanna að fara í
kaldakol.
Hrun liinna rússnesku atvinnu-
vega er nú augljóst orðið, segir
,,Daily Mail“ um síðustu mánaða-
mót. Verkamenn yfirgefa námurn-
ar, járnbrautirnar og verksmiðjurn
ar, hvað sem stjórnarblöðin segja.
Þau flytja greinir í hundraðatali
um skyldur verkamanna. Bn alt
kemur fyrir ekki.
Til stjórnarinnar í Moskva ber-
ast tilmæli frá fjölda mörgum stöð
tim um það, að vinda þurfi bráðan
bug að því að bæta úr eldsneytis-
skortinum. Annars stöðvist alt at-
vinnulíf.
iSamkv. því sem segir í Komso-
rnols Kaya Prawda þ. 24. ág. fer
kolavinnslan í 'námunum sífelt
minkandi* Hef ir stjórnin engin úr-
ræði fundið til þess að reisa rönd
við því. Stöðvist kolaframleiðslan
stendur hungursneyð fyrir dyrum.
Uppþot og órói er um land alt.
Bændur vilja ekki láta korn sitt af
liendi til forðabúra stjórnarinnar.
Matvælaprang fer vaxandi og verð
lag hækkandi. Menn reyna að
hrifsa til sín sem mest af reiðu
peningum. Hlýðni við stjórnarvöld
in er óðum að liverfa.
Stalin hefir gripið til þeirra ó-
yndisúrræða að láta taka 1000
verkamenn af lífi. Sendimenn
bankastjórnarinnar í öðrum lönd-
nm reyna hvað þeir geta til þess
að fá lán handa Rússum svo leyst
"verði vandræði þeirra í bili.
„Times" um Island.
Um Alþingishátíðina flutti heims-
blaðið „Times“ í London ritstjórn-
argrein um ísland. (Það hafði líka
frjettaritara á hátíðinni og birti
frá honum símfregnir daglega).
TSTiðurlag ritstjórnargreinarinnar
er á þessa leið:
— Síðan Island fekk aftur full-
weldi, rjett um stríðslok — það er
nú aðeins í konungssambandi við
Danmörk — hafa orðið stórstígar
framfarir þar. íslendingar eru nú
farnir að beisla vatnsaflið hjá sjer,
og hinir frægu hverir eru notaðir
til þess að hita upp hús— og er
það mjög liagkvæmt fyrirkomulag,
því að þá þarf enga ofna. 1
íslendingar flytja mikið út af
kjöti og fiski; eru þeir og Norð-
menn annálaðir fiskimenn.
En fyrst og fremst eru íslend-
ingar frægir fyrir bókmentir sín-
ar. Á gullöld sinni orktu þeir ljóð,
sem eru aðdáunarverð fyrir kraft
og orðsnild. Pyrstu þrjár aldirnar
var engu líkara en að ljóð og sög-
ur sprytti þar upp án þess menn
þekti höfunda. Sögumenn fóru um
landið og voru hvarvetna velkomn-
ir gestir. Sögðu þeir sögur af hetj-
unum, sem bygðu landið. Gengu
þær sögur mann frá manni, voru
síðan ritaðar og geymast enn. Bru
sumar þessar sögur snildarlega vel
samdar. Eru þær að mestu leyti
sannar, því að höfðingjarnir
geymdu vel allar ættarsögur sínar
og hjeldu fornum siðvenjum. Sem
sagnaritari ber Snorri Sturluson
höfuð og herðar yfir samtíðarmenn
sína .Vjer mundum lítt hafa þekt
hinar fornu norrænu þjóðir ef
hann hefði ekki ritað Eddu og
hina frægu Heimskringlu með sög-
um Noregskonunga.
Njálssaga hefir jafnan verið tal-
in eitthvert hið fremsta sögurit.
Hún er fjörlega og skipulega rituð
og mannlýsingar hennar eru fram-
úrskarandi; er hún áreiðanlega eitt
af meistaraverkum í forn-evrópisk-
um bókmentum.
Grænlandsfarið ,Quest.‘
Eimskipið „Quest“, Grænlands-
farið, sem flutti ensku flugleið-
angursmennina til Grænlands í
sumar, kom hingað í gær, til þess
að taka hjer ýmsa hluti og vörur,
som leiðangursmennina vanhagaði
um. En þeir ætla að hafa vetur-
sttu í Grænlandi svo sem almenn-
ingi er kunnugt.
Með skipinu hingað var Cozens
flugliðsforingi.
Hann segir svo fbá, að nú þeg-
ar hafi allmerkilegar flugrann-
sóknir verið leystar af hendi og
engir sjerstakir örðugleikar orðið
því til hindrunar.*
Aðal-aðsetur leiðangursmanna ,er
!0 mílur sunnan við Angmagsalik,
við fjörð nokkurn, serm nú hefir
hlotið nafnið „Quest“-fjörður, þar
eð hann var nafnlaus áður.
„Quest“ mun fara hjeðan til
Grænlands 26. þ. m. og verða á
ákvörðunarstaðnum þ. 30. þ. m.
Skipið dvelur aðeins einn dag
í „Quest“-firði, meðan verið er að
afferma það, en heldur að því
búnu til Noregs.
------——
Daghðk.
I.O. O.F. 3 = 1129228. XX.
Veðrið (laugardagskvöld kl.
17) : Lægðin um Bretlandseyjar
liggur nú um austurstr. Skot-
lands og er ennþá djúp (735
mm.), en er að fyllast upp og
þokast lítið eitt NA eftir. Yfir
Grænlandi er loftþrýsting hins-
vegar há, einkum norðan til.
Hjer á landi er yfirleitt austan-
átt, en þó hvergi hvöss, og rign-
ingarveður um alt land. Úti fyr-
ir V-landi er áttin porðlæg, en
yfir SV-landinu er smálægð, er
veldur þar breytil. vindstöðu og
talsverðri úrkomu sumstaðar.
Hitinn er 7—11 stig og nokk-
urnveginn jafn um alt land.
Veðurútlit í Rvík í dag: A
eða N-gola. Góðviðri en sennil.
smáskúrir.
Slysavarnafjel. kvenna held-
ur fund mánudaginn 22. þ. m.
Fjelagið var stofnað síðastl. vor
og er þar af leiðandi ekki búið
að ná þeirri útbreiðslu, sem all-
ar ástæður mæla með, að slík-
ur fjelagsskapur sem þessi, fái
hjer í aðalmiðstöð siglinga
þessa lands. Alla þá, sem vilja
styðja starfsemi fjelagsins, og
gerast meðlimir þess, þætti
stjórn þess vænt um að sjá á
fundinum. I Reykjavíkurdeild
iSlysavarnafjelags Islands varð
þátttaka kvenna mjög lítil, og
var því_ stofnuð þessi sjerdeild
fyrir konur, til þess að gera ít-
arlegri tilraun til að fá konur
til að taka þátt í því mikla
starfi, sem óunnið er hjer á
sviði björgunarmálanna. — Er
reynsla fengin fyrir því í öðr-
um löndunii að konur vinna
mikið starf í þarfir björgunar-
málanna. Er engin ástæða til
þess að vantreysta því, að hið
sama verði reyndin hjer, ef al-
mennur fjelagsskapur kvenna
kæmist á. Á fundinum, er hald-
Hotið FORDSON dráttarvielina.
Vjelanotkunin ryður sjer til rúms um allan
heim, einnig á íslandi.
Vjelarnar eru margfalt mikilvirkari og af-
kastameiri en manns og hestaaflið og vinna
þeirra mörgum sinnum ódýrari og betri.
Fordson dráttarvjelin er veltiþing fyrir land-
búnaðinn og ýmsan iðnað. Hún var fyrsta vjelin,
sem íslenski landbúnaðurinn tók í þjónustu sína.
Með notkun hennar kom fyrst skriður á jarð-
vinslu á íslandi í stórum stíl.
Fordson dráttarvjelin er til margra hluta nyt-
samleg: Með henni má plægja, herfa, sá, slá,
binda, flytja heim og draga þungar sátur upp
í háar hlöður.
Fordson er besta og ódýrasta dráttarvjelin í
notkun, sem nú er völ á.
FORD MOTOR COMPANY A/S - SYDHAVNEN, KOBENHAVN V.
Umboðsmenn Fords á íslandi:
P. Stefánsson, Sveinn Egilsson,
Reykjavík.
Hlifið hestunum.
Ford Motor Company
tekur ábyrgð á öllum
sýnilegum smíða- og efn-
isgöllum, og ber umboðs- ®
mönnunum að skifta um
slíka hluti eigendum að
kostnaðarlausu.
n
inn verður 22. þ. m., kl. 8,30
síðd. í K.-R.-húsinu, eru aílir
velkomnir, sem kynnast vilja
fje.laginu eða styðja það í starfi
sínu.
Ekki sparnaðarráðstöfun. —
Þess var nýlega getið hjer í
blaðinu, að stjórnin væri hætt
að greiða yfirfræðslumálastjór-
anum mánaðarlaun þau, sem
hann hefir hingað til haft. Þótti
þetta ótrúlegt mjög og trúðu
fáir; síst trúðu menn því, að
þetta væri gert af sparnaðar-
ráðstöfun. Njú upplýsir Tíminn,
að Sigurður Einarsson eigi að
taka við öðru starfi „hjá
kenslumálastjórninni“. Hvaða
starf þetta er, segir blaðið ekki
og ekki heldur, hvaða laun Sig-
urður fær í hinni nýju stöðu.
Það var svo sem auðvitað, að
stjórnin væri ekki tekin upp á
þeim skramba, að spara ríkis-
fje!
Jónas kominn heim — Jónas
farinn aftur. Þetta eru stand-
andi klausur í stjórnarblöðun-
um. Þannig segir Tíminn frá
því, að Jónas hafi komið heim
á laugardagsnótt úr „för sinni
um Norður- og Austurland“, en
Alþýðublaðið getur þess næsta
dag, að Jónas sje farinn austur
að Laugarvatni til þess að
standa fyrir hinni árlegu haust-
vígslu skólans. — Jónas virðist
hafa komið sjer vel fyrir við
ríkissjóðs-jötuna. Hann hefir 12
þús. kr. laun og auk þess frítt
uppihald ýmist á varðskipum
ríkisins eða í stjórnarbílunum.
Samkoma verður haldin kl. 6
í dag í Sjómannastofunni. All-
ir velkomnir.
Pálmi Hannesson hefir verið
skipaður rektor Mentaskólans.
Rjettirnar fara nú að byrja.
Á mánudaginn (morgun) eru
Þingvallarjettir, Hafravatns-
rjettir og Kjósarrjettir á þriðju
dag, Brekkurjettir (í Norður-
árdal) og Kollafjarðarrjettir á
miðvikudag. Þverárrjettir í
Borgarfirði og ölfusrjettir eru
á fimtudaginn, en Skeiðarjettir
og Landrjettir á föstudaginn.
Valtýr Stefánsson ritstjóri
Morgunbl. fór snöggva ferð
norður í land í gær.
Eigendaskifti eru nú orðin að
Kaffibrenslu Reykjavíkur og
Kaffibætisgerðinni Sóley. Hefir
Gunnlaugur Stefánsson kaupm.
í Hafnarfirði keypt þær af Jóni
Bjarnasyni. Heitir kaffibrensl-
a.n og kaffibætisgerðin nú:
Kaffiverksmiðjan Sóley,
Anna Fía giftist, þriðja bindi
hinnar skemtilegu sögu Anna
Fía, er nýútkomið. Er þetta
bindi, svo sem hin fyrri, mjög
vandað að frágangi, og þýð-
anda og útgefanda til sóma. —
Bókarinnar verður getið nánar
hjer í blaðinu ínnan skams.
Viðeyjartogarnir. Ari fór á
ísfiskveiðar í gærkvöldi. Þor-
geir skorargeir og Kári Söl-
mundarson fara á ísfiskveiðar
í þessari viku, Á síldveiðunum
í sumar fjekk Ari 13.169 mál
síldar í bræðslu, Þorgeir skor-
argeir 3000 tn. í salt og um
2700 mál í bræðslu; Kári Söl-
mundarson fjekk um 3400 tn.
í salt og 3700 mál í bræðslu.
Hjúskapur. t dag kl. 4,20 (d.
t.) verða gefin saman í hjóna-
band í Sunby-kirkju í Khöfn:
frk. Rósa Sveinsdóttir og Haa-
kon Petersen kaupm. Heimili
þeirra verður Sönderf jordsgade
5 IV.
Fiskurinn í Vestmannaeyjum.
í símfregn frá Eyjum á dögun-
um var þess getið, að mikið af