Morgunblaðið - 19.10.1930, Side 2
9
MORGUNBLAÐIÐ
1
Fyrirliggjandi frá Maconochie Bros. Ltd.
SULTUTAU:
Jarðarberjasultutau í gl. á 1 lb. og 2 lb.
Bl. ávexti 1 lb. og 2 lb. Appelsínu 1 lb.
P I C K L E S:
Mixed Pickles 20 oz. og 16 oz.
Pan Yan 20 «z. og 10 oz.
Pan Ýan sósa 8 oz.
Hafið hugfast að Maconochie’s vörurnar eru bestar.
Saltkjöt
Höfum fyrirliggjandi úrvals saltkjöt, bæði
um tunnum. —■ Aðeins lítið óselt.
heilum og hálf-
Eggert Kristjánsson & Go.
Símar 1317 — 1400 og 1413.
mi * RUBBER BXFORT CO„
Akru, Ohlo, U. 8. A.
Nú tekur að hausta og vegir að versna. Þurfa
bíleigeridur því að byrgja sig upp með ný dekk
Kemur þá til greina hvaða tegundir kaupa eigi.
Goodyear dekk eru tvímælalaust þau bestu og
liggja að því margar orsakir. Goodyear er leið-
andi firma í gúmmí-iðnaðinum, allar aðrar gúmmí-
verksmiðjur verða að keppa við Goodyear.
Höfuðkostir Goodyear dekka eru þessir: Þau
eru gerð eftir nútímans nákvæmustu vísindaþekk-
ingu og úr því besta efni, sem fáanlegt er. Þau
eru þar _af leiðandi mjög sterk, gerð þejrra og
iag þannig, að notagildi þeirra er 100%. Slitflöt-
urinn er breiðari en annara tegunda og liggja þau
því fastara á veginum, en það kemur í veg fyrir
hið óþægilega hliðarskrið og eykur mjög öryggi keyrslunnar. Þau
hafa alla þekta kosti en enga óþekta ókosti.
Ný sending kemur með hverri ferð og eru dekkin ávalt fyrir-
liggjandi í heildsölu og smásölu hjá
P. STEFÁNSSON,
aðalumboðsmaður Goodyear á íslandi.
Fundur presta
og söknarnefnda
stóð 3 daga í liðinni viku, 15.—
17. þ. m: Átján prestar, öll guð-
i'ræðideild háskólans, biskup-
inn og margt leikmanna úr alls
5 prófastsdæmum sóttu fund-
inn.
Aðalmál hans voru trúarjátn-
ingar og siðgæðismál, og urðu
miklar umræður um þau.
Þessar till. voru samþyktar:
1. „Þar sem vjer játum trú
vora á guð föður og á son hans
Jesúm Krist og heilagan anda,
og postullega trúarjátningin er
einingarmerki kirkju vorrar,
viljum vjer, að hún sje notuð
við skírn barna.
Vjer teljum, að kirkja vor
geti ekki verið játningarlaus, og
því sameinumst vjer um hina
postullegu trúarjátningu, með
því að kjarni hennar er í sam-
ræmi við Heilaga ritningu, enda
þótt orðalag hennar sje að
nokkru tímabundið.
En jafnframt viðurkennum
vjer þó, að enginn ytri ritaður
játningar-mælikvarði sje nægi-
legur vitnisburður um trúaraf-
stöðu manna án hinnar innri
persónulegu reynslu um samfje-
lag við guð í Jesú Kristi“.
2. „Fundurinn lítur svo á, að
það hljóti að liggja í hlutarins
jeðli, að enginn geti rjettilega
verið embættismaður í þjóð-
kirkjunni nje trúarbragðakenn-
ari í þjónustu ríkisins, nema
hann viðurkenni og viðhafi,
I samkvæmt gildandi helgisiða-
ibók, hina postullegu trúarjátn-
ingu.svo sem hún er og meðan hún
jer viðurtcend sem trúarrit af
hinni evangelisk lútersku þjóð-
kirkju vorri og löggiit sem slíkt
af ríkisvaldinu“.
I 3. a. „í sambandi við umræð-
ur þær, sem orðið hafa um sið-
gæðismálin, telur fundurinn sjer
skylt að benda á þá hættu, sem
uppvaxandi kynslóðinni stendur
af hinum sívaxandi vindlinga-
reykingum og beinir eindreg-
inni áskorun til allra ráðandi
manna í landinu og þá sjerstak-
lega þeirra manna, sem hafa
með höndum uppeldismálin, svo
sem presta og kennara, auk
foreldranna sjálfra, að beita
sjer af megni gegn þessari skað-
Jegu nautn.
b. Ennfremur skorar fundur-
inn á skólanefndir landsins að
ganga betur eftir því, að fyrir-
mælum fræðslulaganna sje
hlýtt að því er snertir fræðslu
um skaðsemi áfengis og tó-
baks.
c. Fundurinn telur óleyfilegt
að börnum og unglingum innan
16 ára aldurs sje selt eða af-
hent tóbak.
4. Fundurinn beinir þeirri al-
varlegu áskorun til allra
presta og kennara, að þeir- gerí
sitt ítrasta til þess að varðveita
æskulýð vorn ;fyrir siðspillandi
ritpm, svo sem með því að koma
í veg fyrir að þau verði keypt
í lestrarfjelögum, og stuðla til
þess með ræðum og ritum, að
vakin sje öflug mótspyrna gegn
öllu ljelegu lesmáli, jafnt í
blöðum sem bókum, en að sama
skapi greitt fyrir útbreiðslu á
góðum ritum.
5. a. Fundurinn telur útiveru
kaupstaðarbarna síðla kvelds
stórhættulega fyrir þau, bæði í
’íkamlegu og andlegu tilliti, og
þvetur alla þá, sem unna æsk-
unni velferðar, að stuðla að því,
eftir megni, að komið verði í
veg fyrir þann hættulega ósið.
b. En telur nauðsynlegt, að
glögg ákvæði þar að lútandi
sjeu í öllum lögreglusamþykt-
um kaupstaða vorra, og þeim á-
kvæðum sje framfylgrt.
6. Þar eð fundurinn álítur,
að ekkert velfei’ðarmál þjóðar
vorrar sje kirkju landsins óvið-
komandi, og að eitt af undir-
töðuatriðum menningarinnar
sje fólgið í bættum húsakynn-
um alþýðu, þá telur fundurinn
það æskilegt, að prestar lands
vors og sóknarnefndir beiti á-
hrifum sínum til góðs einnig á
því sviði.
7. Þar eð það er vitanlegt, að
sumar kvikmyndir hafa haft
siðspillandi áhrif á unglinga,
þá skorar fundurinn á Alþingi
að setja nýja löggjöf, er tryggi
það betur, að einungis verði
sýndar göfgandi og fræðandi
kvikmyndir.
8. Þar sem vitanlegt er, að
kynferðissjúkdómar hafa aukist
upp á síðkastið með þjóð vorri,
þá lætur fundurinn ljós þá
eindregnu ósk, að heilbrigðis-
stjórn landsins taki alvarlega
í taumana gegn þessu voða böli.
9. Fundurinn telur það lífs-
nauðsynlegt fyrir kristilegt og
siðferðilegt uppeldi æskulýðs-
ins, að prestar landsins og sókn-
arnefndir stofni i söfnuðum
sínum kristilegt fjelag fyrir
unga menn og konur, þar sem
því verður við komið, eða bjóði
öðrum ungmennafjelögum sam-
vinnu sína til þess að auka
kristileg áhrif á æskuna, fram-
tíð þjóðarinnar. — Ennfremur
að presturinn sjái um, að haldn-
ai verði barnaguðsþjónustur,
þar sem því verður við komið.
— Þá telur fundurinn það og
æskilegt, að |e}nn sjerstakur
messudagur á árinu sje helg-
aður æskunni, og óskar þess, að
næsta prestastefna taki það mál
til íhugunar“.
10. „Fundurinn lýsir gleði
sinni yfir þeirri fregn, er hon-
um hefir verið flutt, að lausu
prestaköllin skuli nú verða aug-
týst til umsóknar, og stjórnin
muni ekki bera fram frumvarp
um presta fækkun“.
Ýmsir fundarmanna lýstu þvi
við samsætið á föstudagskvöld-
'ð. að þessi sjötti sóknarnefnda-
fundur hefði verið með þeim
allra bestu.
S. Á. Gíslason.
Göðu börnin.
] mars 1929 skýrði Tíminn frá
því, að Magnús Torfason sýslu-
maður í Árnesþingi hefði sótt um
laiisn frá embætti. Gat blaðið þess,
að Jausnarbeiðni væri fram komin
vegna þeirra víta, er yfirvaldið
fjekk í Hæstarjetti fyrir meðferð
á gæslufanga í sambandi við rann-
sókn sakamáJs.
Atján mánuðir eru liðnir síðan
sljórnarblaðið skýrði frá lausnar-
beiðni sýslumannsins í Árnessýslu;
þó hefir eklci heyrst, að Magnús
Torfason sje enn farinn úr em-
bætti. Og embættið hefir aldrei
verið auglýst. Hvað veldur?
Þegar það vitnaðist, að Magnús
Torfason hef'ði sagt af sjer vegna
vítanna, er hann fjekk í Hæsta-
rjetti fyrir meðferðina á gæslu-
fanganum, lcom ýmsum til hugar,
að stjórnin hefði ráðlagt Magnúsi
að biðjast lausnar. Það var öllum
ljóst. að verlcnaður Magnúsar
Torfasonar var þannig, að hann
mátti ekki sitja áfram í dómara-
sadi.
En hvað gerist?
Þegar vörður rjettvísinnar í
landinu verður þess var, að trúr og
tryggur flolcksbróðir hafði gerst
sekur um stórkostleg afglöp í em-
bættisfærslu, afglöp, sem að lögum
varða embættismissi, tekur hann
sjer dómsvald í hendur og segir:
Þú skalt hreinn verða af verknm
þínum, kæri floklisbróðir; þú skalt
áfram sitja í dómarasæti og liækka
i tigninni, þegar.færi gefst.
Og Magnús Torfason settist aft-
ur I dómarasætið.
„Gnllfosscc
fer í dag‘ klukkan 6 síðdegns
til útlanda: Leith, Noregs og
Kaupmannahafnar.
EDINBORfiAR
flanelin,
best og ódýrnst,
nrvals litir.
EDINB0RG.
\ /t
Þúsundir manna
þjást af hægðaleysi. —
— Fyrstu einkenn-
^ N \ um hægðaleys-
is veitir fólk oft.
1 enga athygli. —
^ Þau eru: Höfuð-
verkur, þreyta, andremma og
nabbar á liúðinni. En ef þau eru
látin daukast, þá verða afleiðing-
arnar alvarlegai'.
Ilægðaleysi má aldrei vanrækja.
Það eitrar líkamann. Ráðið bót á
því með því að eta Kellogg’s All-
Eran, sem er hin ljúffengast.a
fæða. Læknar mæla með því vegna
þess að það verkar í samræmi við
eðli lífsins. Borðið tvær matskeið-
ai daglega — í þrálátum tilfellum,
með livenú máltíð.
All-Bran er 100% bran og sje
þess neytt reglulega er þar með
fengin sú fylling sem nauðsynleg
er meltingarfa*mnum. Borðið það
með kaldri mjölk, ávöxtum eða
Irnnangi. Notið það við matartiJ-
búning. Blandið því í annan kom-
n.at. Það þarfnast engrar snðu.
Þannig er f^rið að, þegar „góðu
börnin“ eiga í hlut — pólitísku
börnin Jians Jónasar frá Hriflu.
Afbrot þtjirra verðiir dygð, sem
ber að launa. Þessu boðorði hefir
Jónas lýst í Tímanum 1922. Hanu
nefnir boðorðið: „Heimspeki leti-
garðsins“ og lýsir því þannig:
„Ef ernbættismaður stendur sjer-
staldega illa í stöðu sinni, fær
liann marga krossa og hækkar
tigninni“.
Samkvæmt þessu boðorði er
Tryggvi Þórhallsson nú orðinn
stærsti ,,krossberi“ þessa lands og
Magriús Torfason aftur sestur
dómarasæti í Árnesþingi.
Tveir Svertingjar
voru nýlega teknir af lífi með
rafmagni í Ohicago, fyrir morð,
sem þeir höfðu framið í sambandi
við bankarán. llm 300 menn horfðu
a aftökuna. Annar Mvertinginn
var tæringarveikur og hreif raf-
magnið svo ilía á hann, að liann
dó eklci fyr en eftir þrjár mínútur.
Tók harui lit svo hræðilegar kvalir
að það leið vfir marga sem horfðu
a þá skelfingarsjón.
Vetrarfrakkar
Dexer
eru nýkomnir.
Þeir érn
Klæðskerasaumaðir.
Vandaðir að efni.
Fallegir litir og snið.