Morgunblaðið - 07.12.1930, Side 3
MOTJGUNRLAÐTÐ
s
awMuumniiniiiitimiiiimiimiiimiimimimmimminii
TtlarQnnblaMð
| Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík
£ Ritatjórar: Jón KjartariHMon.
Valtýr Sletá.iiaaon.
= Ritstjórn og ar^reióala: '
Austursiræii «. — Sfmi 500. :
| Auglýsingastjórl: E. Hafberg. ~
| AuglýKinfeíHHk rifstofa:
Austurstræti 17. — Slmi 700. =.
: Heimasfmar: E
Jón Kjartansson nr. 742. =
Valtýr StefAnsson nr. 1220. E
E. Hafberg nr. 770. E
| Áskriftatíjald: E
§ Innanlands kr. 2.00 A mánutSi. =
s Utanlands kr. 2.50 á mánuói. =
5 í lausasölu 10 aura elntakift.
20 aura meft Lesbók. E
Lmmmiiiiiiiiiiiimiimimiiimiiimiimimmimmmim^
Eær brennnr.
Akureyri, 5. des. PB.
Meðt. 6. des.
Bærínn Syðrihóll í Kaupangs-
sveit brann í dag kl. 3—5. Var
það nýbygt steinhús,. en innan-
þiljur, loft og gólf úr trje. —
Nokkm var bjargað af innan-
stokksmunum og litlu af matvæl-
um. Kviknaði iit frá pípu. Bónd-
inn, Sigurður Sigurgeirsson, hefir
orðið fyrir miklu tjóni, enda þótt
bærinn væri vátrygður.
R 101-slysið. Rannsókn lokið.
London, 5 des. Mótt. 6. des.
United Press. — PB.
Rannsókn á þvr, hverjar orsakir
lágn til R 101-slyssins, er nú lokið.
Porseti rannsóknarnefndarinnar,
Sir .Tohn Simon, hefir tilkynt að
hann geti eigi að svo stöddu sagt
hvenær skýrsla nefndarinnar verði
tilbúin, en kvað nefndina sann-
færða um, að yfirforingjar á R
101 hefði í engu átt sök á hvernig
fór, —
Kolaverkfallinu lokið.
Glasgow, 5. des. Mótt. 6. des.
United Press. — PB.
Skoskir námumenn hafa sam-
þykt að hefja vinnu á mánndag.
la'jmkjör starfsmanna bæ^arins
Á síðasta bæjarstjórnarfundi tal
aði Ágúst Jósefsson um að starfs-
menn bæjarins hefðu orðið fyrir
vonbrigðum er þeir sáu, að á frum
varpi fjárhagsnefndar til fjárhags-
áætlunar fyrir næsta ár, var ekki
gert ráð fyrir neinum breytingum
á launakjörunum.
Nú hefði starfsmannafjelagið
gengist fyrir því, að gerðar hefðu
verið ákveðnar tillögur um nýja
tilhögun á launaflokkun starfs-
mannanna. Myndi fjelagið leggja
tillögur þessar fyrir fjárhagsnefnd
næstu daga, ásamt ýmsum upplýs-
ingum um launakjör fólks í þjón-
ustu einkafyrirtækja hjer í bæn-
um. Samanburður hefði og verið
gerður á.launakjörum starfsmanna
hæjarins og launakjörum meðal
annara þjóða., og horin saman dýr-
tíðin hjer og þar.
Fyrir hönd starfsmannafjelags-
íns vænti Ágúst þess, að fjárhags-
nefnd tækí þessar tillögur til at-
hugunar ,áður en gengið væri frá
fjárhagsáætlunínni.
Þýsknr togari
strandar,
óvíat hvar skipið er; sennilega
er það austast á Mýrdalssandi,
nálægt Álftaveri.
Mannbjörg.
(Eft!r símtali við Vík).
Á laugardaginn (6. þ. m.)
urðu menn í Vík í Mýrdal þes3
varir, að bál var kynt á Hjör-
leifshöfða á Mýrdalssandi, og
rjeðu menn strax, að þar myndu
vera strandmenn, því að engin
l>ygð er á höfðanum. — Gísli
Sveinsson sýslumaður bað bónd
ann í Fagradal að fara austur.
til að skygnast eftir hverjir
þarna voru.
Þegar sendimaður er kominn
nokkuð austur á sandinn, sjer
hann, að hópur manna er að
leggja frá Hjörleifshöfða, vest-
ur sandinn. Fer hann til mann-
anna, og eru þetta þýskir strand
menn, 13 talsins. Hann fylgir
svrandmönnunum heim að
Fagradal og fá þeir þar að-
hlynningu og hressingu.
Eftir því, sem Gísli Sveins-
son sýslumaður skýrði blaðinu
frá, veit skipstjóri ekki með
vissu, hvar skipið hefir strand-
að, efl sennilega er það austar-
lega á Mýrdalssandi, eða jafn-
vel suður af Álftaveri. Sagði
skipstjóri, að strandið væri ná-
lægt vitanum (á Hádegisskeri,
austan við Alviðruhamra). Skip
ið strandaði kl. um 9 á föstu-
dagsmorgun (5. þ. m.). Skip-
verjar biðu í 3 klukkustundir í
skipinu, því að ekki var viðlit
að komast í land. Síðan fór
einn skipverjanna með línu í
land, og hinir á eftir, á lín-
unni; gekk þeim vel að komast
í land; sumir flumbruðust eitt-
hvað. Biðu þeir nú nokkrar
klukkustundir í fjörunni, en
fóru síðan að leita bygða. í stað
þess, að leita til vitans, lögðu
þeir vestur sandinn og stefndu
á Hjörleifshöfða. Þeir komu í
Hjörleifshöfða kl. 10 á föstu-
dagskvöld, þreyttir og þjakað-
ir eftir langa og stranga göngu,
yfir margskonar torfærur. Eng-
in bygð er á Hjörleifshöfða, en
skipverjar komust í mannlaust
íbúðarhús þar, og þjuggu þar
um sig yfir nóttina. Þeir höfðu
luktir með og eldfæri, og gátu
því gert vart við sig næsta morg
un. —
Skipið heitir „Harvestehude“
frá Cuxhaven. Skipbrotsmönn-
um leið vel eftir volkið, og eru
nokkrir þeirra komnir til Vík-
ur. Voru þeir heppnir, að kom-
ast að mestu ómeiddir úr hinn’
erfiðu og hættulegu ferð yfir
Mýrdalssand.
Skipstjóri fer í dag austur,
til að leita að skipinu, og at-
huga, hvernig þar er umhorfs.
IV
Skipbrotsmenn verða innan
skamms fluttir hingað til Rvík-
ur. —
Það voru skipsmenn á „Har-
vestehude“, sem í október síð-
astliðnum björguðu skipverjum
á m.s. Ameta; reyndu Þjóð-
verjar einnig að bjarga Ametu,
en mistu skipið og fórust með
því þrír skipsmanna af „Har-
vestehude“. Væri vel við eig-
ðkeypls snðnsAkknlaði
til iölanna.
„Renommée“ er eitt af því besta suðusúkkulaði sem til andsins hefir flutst,
„Renommée“ er aðeins búið til úr bestu efnum.
„Renommée“ er jafngott til átu sem suðu.
Þeir sem einu sinni hafa reynt „Renommée“ taka það fram yfir alt annað suðu-
súkkulaði. '
Til að kynna þetta góða súkkulaði verður til jóla hver pakki’ af „Renommée“
suðusúkkulaði með álímdu númeri. Út á 100. hvern pakka varða afhentir ókeypis 5
pakkar af „Renommée“ suðusúkkulaði.
Á aðfangadag jólá verður dregið út hjá lögmanninum, 1 númer af 100, sem svo
gildir fyrir hvert hundrað af þeim númerum sem í umferð eru.
Þafi númer sem upp koma verða auglýst í dagblöðunum á aðfangadag og geta
þá þeir, sem rjett númer hafa, fengið hjá kaupmanni sínum 5 pakka af þessu góða
súkkulaði algerlega ókeypis, gegn því að afhenda númerið.
Kaupið því einn pakka af „Renommée“ suðusúkkulaði í dag og geymið númerið,
Ef heppnin er með getið þjer á aðfangadag fengið ókeypis 5 pk. af þessu góða súkku-
laði hjá kaupmanni yðar.
Biðjið kaupmann yðar um tölusetta súkkulaðið.
Heildsölubirgðir:
Gnðm. Gnðmnndsson, Hafnarstræti 15. Sími 1430.
Slærri og
betri
en þó ódýrarif. . . .
STUDEBAKER
Studebaker sex, með eldra verðinu
var sjerstaklega ódýr eftir gæðum. Nú,
með hinu nýlækkaða verði, er hann lang-
samlega bestu bílakaupin, sem gera hefir
mátt í síðastliðin 78 ár, sem Studebaker
(hefir starfað. Með þessum bíl hefir Stude-
baker sett nýtt met í ódýrum bílum. Þessi
nýi Studebaker bíll hefir að bjóða meiri
þægindi af mýkt, en algengt er, og er end-
ingarbetri og stærri. Hefir 70 H.K. Sex
cylindra vjel sem knýr bílinn með undra-
verðum hraða. Reynið hversu gott er að
aka í þessum nýja fyrirmyndar Stude-
bakerbíl.
Nokkrir vörubílar, V/2 tonn, koma
með Goðafossi. Komið og talið við mig
sem fyrst.
Egill Vilhjálmsson.
Grettisgötu 16—18. Sími 1717.
andi, að hinum þýsku skipbrots
mönnum yrði nú einhver sómi
sýndur, og þeim þakkað fyrir
hreystiverkið á dögunum.
Drifanda kaffið er drýgst.