Morgunblaðið - 07.12.1930, Side 6

Morgunblaðið - 07.12.1930, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ * m löLseÍIÍíl Nýkomið: Mais, heill Maismjöl. Hestahafrar. Hveitiklíð. Hænsnafóður, blandað. Verðið er lægra en nokkru sinni áður. S e 1 j u m aismjol í 88 kg. pokum. Spyrjið um verð í síma 8, fjórar línur. H. Benediktsson i fio. Nú fyrlr jðlin þykir oss rjett, að minna á þá hluti, sem gott er að hafa vio hendina við jólabaksturinn og þess háttar. Jólakökumót. — Gyðingakökumót. — Sand- og Sóda- kökumót — Smámót allskonar. — Hringmót. Kleinujárn. íl. teg. — Kökurúllur — Sleifar — Skálar til að hræra í Deig og^farsvjelar hentugar til jólagjafa. Búðingsmót allskonar — ísmót — ísvjelar — Köku- hnífar. — Deig- og farssleifar — Kökumót í hakkavjelar íillar stærðir og ótal margt fleira, sem óþarfi er að telja upp, því allir rata í Zimsens járnvörudeild. Jafnframt er þar hið fjölbreyttasta úrv. af öllum búsáhöldum og verðið altaf samkepnisfært. lárnvfirudeild ]es Zimsen. Barnalakkskór, öklabanda og reimaðir á telpur og drengi, allar stærðir. Karlm.Iakkskór, hinir góðkunnu „Cinema“ lakkskór nýkomnir í öllum stærðum. Kven-Iakkskór, margar ódýrar móðins tegundir, einnig hinir þektu opnu „Cinema“ lakkskór. Skðblífar og Mlfarstígvjel, allskonar kven, karlm. og barna. SkoUúð Roykiovikur. Aðalstræti 8. niþingishátlðin 1930. (Eftirfarandi grein um Al- þingishátíðina er eftir sr. Frið- rik Friðriksson. Kom hún fyrsl út í mánaðarbiaði K. F. U. M. H'jer er hún nokkuð stytt, að því leyti, að sleppt er þeim k.afla, sem að mestu snertir starfsemi K. F. U. M., og er skrifaður sem einskonar innan- fjelagsmál. En vegna þess, hve hinar al- mennu hugleiðingar hins vin- sæla leiðbeinanda æskulýðsins, um Alþingishátíðina, eiga erindi tii fleiri en þeirra, -sem lesa Mánaðarblaðið, er greinin birt hjer). Þegar Ingólfur Arnarson fann öndvegissúlur sínar og reisti bú og byggð í Reykjavík, byrjar saga íslafids. Þegar Ulfijótur stóð ,,á eldhrauni upp, þar sem enn þá hún Oxará rennur“ og Alþingi var stofnað, þá byrjar saga hins | ísfenska ríkis og þjóðar. Síðan cru liðin 1000 ár og á hinum forna þingtíma var á þessu ári alþjóð Ulendinga stefnt saman til þess að minnast þessa atburðar og halda á sjálfum fæðingarstað þjóðarinnar hátíðlegt } úsund ára afmæli lienn- ar. Það var í alla staði viðeigandi og sjálfsagt. Hugir allra þjóðar- innar barna beindust að þessnm stað á þessum tíma. Fjórði liluti allrar þjóðarinnar kom saman á Þingvöllum. Þar að auki fjöldi manna af íslenskum ættum úr ’ann- ari lieimsálfu, og fjöldi af stór- tignum mönnmn víðsvegar úr löndum. Aldrei hefir í sögu þjóð- arinnar annar eins mannfjöldi saman komið á einn stað. Aldrei hefir verið teflt djarfara tafl um það hversu takast mundi. Margir voru fullir af kvíða löngu'á undan. ..íslands óhamingju verður alt af vopni“ og svo mun fara enn. hugsuðu’ margir og sögðu. Og ólnigur var í mörgum. En hafi nokkurn tíma verið nokk- uð hæft í þessu gamla svart- sýna orðtaki, þá sýndi það sig nú, að liamingja Islands hefir snúið vopnin úr höndum óham- ingjunnar, því flest alt það, sem menn hræddust og kviðu fyrii-. varð að engu, og hátíðin varð bæði stórfengleg og fögur. Jeg trúi því, að hún hafi orðið íslandi til sóma og verði því til ham- iugju. Það var undursamlegt að sjá dagana fyrir hátíðina hvei-nig stórborg var að rísa upp í óbygð- inni svo að segja. Það var tign- arleg og fögur sýn, að sjá ofan af gjárbörmunum hærri yfir tjalda liverfin, fannhvít, og líta yfir fjölda manna í fullri starfsémi, að undirbúa alt. Alls staðar var iíi', og starfsemi. Þegar tveim dög- um fyrir hátíðina fyltist lmgur áborfendanna af aðdáun yfir því verki, sem verið var að vinna, og fann að mikið var í vændum. Há- tíðin byrjaði að gagntaka mann. Og þegar áhorfandinn kom niður á vellina og sá starfsemina nær sjer, varð hann þakklátur þeim mönnum, sem lögðu svo mikið að sjer, að þeir varla fengu svefnfrið eða matfrið síðustu sólarhringana. Áhorfandinn fann á sjer, hvernig allir þessir starfsmenn þjóðarinn- ar alt. ofan frá yfirstjórn undir- bíiniligsins niður til unglinganna. sem voru á þönum í þágu starfs- ins. voru fylt.ir af einum amh: og einni hugsun: að alt skyldi vera tilbúið og alt til reiðu, þegar hinir miklu dagar rynnu upp. — Mjer fanst ]>að óhugsanlegt, _að alt þetta mikla og trúfasta und- irbúningsstarf yrði unnið fyrir gíg. — Það vakti enn lieitari bæn í sál 'minni um blessun Guðs yfir því öllu saman en hún liafði áður verið. — Þá var það líka mikil- fenglegt, að vera sem áhorfandi miðvikudaginn fyrir hátíðina, þeg- ar liin reista borg fór að fá lít', og tjaldborgirnar. tóku* að fyllast af hinum nýju íbúum. Hver aldan á fætur annarf kom ofan úr Al- mannagjá - og þúsundir manna gengu í þjettum straunn. eftir vegunum út í íbúðartjöldin. Stórir skarar af ríðandi fólki komu ofan af fjöllnnum og utan úr sveitun um. Borgin nýja á hrauninu mikla tók á nióti fjórða hluta heillar þjóðar og varð alt í einu. að Iiöf- uðborg ríkisins, aðsetur glæsileg- ustu fulltrúasveita erlendra ríkja og stófvelda. Allir vegir lágu ti! þessarar hvítu, nýju borgar. Áreið- anlega var mörgum órótt innan brjósts þá nótt. Hvernig reiðir öllu þessu af '? Ilvað ber morgun- dagurinn í skauti sjer? Hvað verð- ur úr öllum þessum undirbúningi, ef slagviður og dynjándi regn verður? Verður þá ekki umhorfs á Þingvöllum líkt og á vígvelli eftir beðinn ósigur? Hvað gagnar þá þetta alt samanf Ef Drottinn byggir ekki húsið, erfiða smiðirnir til ónýtis; ef Drottinn verndár eigi borgina, vakir vörðurinn til únýtis.“ — Margar þvílíkar hugs- anir liafa vakað í sálum fjölda manna. Svo rann morgundagurinn uyip, dumbungslegur í fyrstu, en glaðnaði svo til. I Álmannagjá, rjett hjá, þar sem hún Oxará felltir ofan í gjána, var reistur gnæfandi prjedikunarstóll og þar á grænum grundum milli hamra- veggjanna stóð mannfjöldinn, stærri og meiri en nokkru sinni áður hefir sjest á Islandi. Alt var fánum skreytt, nema hamravegg- urinn; liann þurfti þess ekki, og prjedikunarstóílinn, sem þannig óskreyttur rann betur inn í heild- arsvip hamranna, en hann mundi annars liafa gert. Þar stóð þjóðin með' þúsund ár í liuga. Það var kyrt, og hljót.t. Enginn gnýr, eng- in óp. engin fagnaðarlæti; engis jh eða þys. Engin húrrahróp hljómuðu, ér konungur og tign-. armenn ríkjanna gengu inn í hin i miklu dómkirkju þjóðarinnar. — Innst í kirkjunni var hvítur foss- inn sem altaristafla og úðamökk- urinn steig uþp eins og reykelsis- mökkur fyrir framan altarið. — Gráturnar vorn myndaðar úr þjettri lifandi girðingu af skát- tim, hamranna milli. Þar fyrir framan í kórnum fyrir innan prje- dikunarstólinn stóð tvísett röð af skrýddum prestum, ásamt biskupi landsins og þar næst konungur og fylgd hans og þar tók við hinn mikli söfnuður, þúsundir landsins barna. Þá hófst guðsþjónusfan. Hinn gamli sálmur: „Víst ertu Jesú kóngur klár“, steig upp sem hylling þjóðarinnar til konungs aldanna, konungs konunganna. Þá \ fjölbreytt úrval. V. B. K. )ön Biðrnsson 8 Co. Nú geta allir eignast falleg BólfteDDi því fjölbreytt úrval af þeim verður í desembermánuði selt með þægilegum afborgunarskilmálum, að það ætti að vera öllum kleíft að eignast þau. Notið tækifærið á meðan úr nógú er að velja. /

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.