Morgunblaðið - 07.12.1930, Síða 11

Morgunblaðið - 07.12.1930, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ 11 AthUSÍO vörnsýningnnaidag hjá Hðrðlul ■ ■ ■ W* IIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIllllllllltlllllllllllllilllllllUllllllllllllllillllllUIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIII!HlllllllllllllliilUlllllllllllllllllllllllllllllllirH ™ ® 60—70 þús. hverfa ljettilega, áður en þetta alt er um garð gengið, og þá sannast best, | hvor okkar hefir haft rjettara fyrir sjer. Þessu kann að verða frestað um tíma, að einhverju leyti, til þess að blekkja al- menninjr, því ilt verður að verja fyrir þjóðinni margra mánaða legu skipsins hjer vegna við- gerða, en það kemur þó seinna verði, og lofa jeg að láta ekk hjá líða að benda jafnóðum á það. Hvað loftskeytaklefann snert- ir, sem framkv.stj. segir að til- vallin sje þar sem kortahúsið er, þá datt mjer nú ekki í hug, að heimskan gæti gengið svo langt — og það hjá gömlum skip- stjóra —, að taka þetta eina rúm sem til er miðskipa, og fyrir- byggja með því, að þar sje hægt að framkvæma leiðar- reikning, enda þá alveg óhjá- kvæmilegt, að útbúa annað her- bergi til þess, og kemur þá al‘ út á eitt, því að varla trúi jeg því, að á hækjum sínum haldi yfirmenn strandvarnaskipsins leiðarreikninga sína. Vottorðin haldlítil er reynir á ryðkassana. Framkv.stj. rjettlætir kaup sín með vottorði frá hr. um- ajónarmanni Hepz, úr firmanu Krosen & Overgaard. Mjer er ekki ljúft, að blanda fjarver- andi mönnum inn í þessa deilu, en ur þvi að framkv.stj. fanst óhugsandi að standa óstuddur af Dana í máli þessu, leyfist mjer væntanlega að spyrja: Hver úr , þessut þekta firma skoðaði fjrrir hann ,,Súðina“, og upp á hvers vottórð var hún keypt? Var það hr. Henz eða einhver annar? Krefst jeg þess, að framkv.stj. birti einnig þau vottorð, almenningi til fróð- leiks, og sjálfum sjer til sára- bóta. Er frajnkv.stj,; ;svo frámuna- lega fávís um starf sitt, að hon- um sje énn ókunnugt um það. að þrátt fyrir vottorð þessara manna, og þrátt fyrir vottorð flokkunarfjelagsins og öll þess' skírteini um h'S ný,.klassaða“ skip, gat „Súðin“ ekki haldið uppi ferðum lengur en fram í júnímánuð, eða um 3 mánaða skeið, án þess að endurnýja all- ar ketilpípur og allar eimsvala- pípur skipsins, auk ýmissa ann ara viðgerða, sem einn eða fleiri tugir þúsunda týndust í. Treystir hann sjer til að lá^a hr. Ólaf Sveinsson og hr. Ás- geir Sigurðsson votta það, að svo hafi ekki verið? Jeg bíð eftir því vottorði með eftir- væntingu. Var þetta honum ekki nægilegur skóli, til þess að vita, að vottorð, einmitt frá þessum mönnum, voru honum Iítil trygging? Það er til lítils að senda ryðkassana út í hina óblíðu ísl. vetrarveðráttu vafða innan í slíka pappíra; hinn fvrsti andvari sviftir þeim burt, ssvo að þeir standa naktir eftir fyrir augliti almennings, hróp- andi um fávísi þess manns, ^em |trúa verður öðrum betur en sjálfum sjer, af því að hann hefir tekið að sjer verk, sem hann ekki var fær um. Haepinn samanburður fyr'r framkvæmdastjórann á Sindra og Þór. Hvað viðvíkur „Sindra“, sem stjórnin átti kost á fyrir 120 þús. krónur, þá verður ekki komist hjá því, að reka þær blekkingar heim aftur. — Jeg leyfi mjer því að setja hjer glögga lýsingu af skipinu, og getur framkv.stj. sjálfur sann- færst um hana hjá German- ischer Lloyd hjer, hr. ólafi Sveinssyni. Menn geta síðan fljótlega gert samanburð á skip unum og verði. „Sindri" er smíðaður 1915, af velþektri þýskri togarabygg- ingarstöð. Er skipið orðlagt fyr- ir sjógæði, framar öðrum skip- um. Næsta ár (ekki þetta ár, eins ag framkv.stj. segir) á skipið að fara undir 16 ára „klassa“-skoðun, en við þá skoð un eru gerðar minstar kröfur um endurbætur og viðhaid, eða líkar og við 4 ára skoðun ina, einmitt af því, að 12 ára skoðunin, sem mestar kröfur eru gerðár við, er svo að segja nýlega um garð gengin. (Þá eldraun á veslings Þór eftir að reyna). Framkv.stj. áætlaði, að þessi skoðun myndi hafa að minsta kosti 60 þús. kr. kostnað í för með sjer. En á síðustu árum hefir skipið fengið eftir- fárandi endurbætur: Állar nlötur á milli gálga sitt hvorum megin um sjómálið, voru end- urnýjaðar 1928, vegna tjóns, er skipið hafði orðið fyrir. Á sama tíma var alt trje rifið innan úr fiskilestunum, alt járn á milli þilja var hreinsað og málað, bönd öll, sem nokkuð athuga- vert var við, voru endurnýjuð, og þiljur allar settar upp að nýju. Ennfremur var þá sett á skipið 400 fet af nýjum sHt- listum, sem ekki höfðu verið áð- ur. 1924 er Ys af botni skips- :ns alla leið að veltikili, ásamt tilheyrandi böndum og bo n- stokkum og tvíbotni, sett nýtt vegna tjóns, sem skipið fjekk á grunni. Þá er einnig endurnýj- aður má’mur í öllum aðallegum vjelarinnar. 1926 eru allar píp- ur settar nýjar í ketilinn og um helmingur allra stagbolta. 1928 er alt yfirhitunarkerfið endur- nýjað. Þá er einnig sett í skip- 'ð ný 5 k.w. fyrsta flokks ljós- vjel, ný loftskeytastöð af bestu gerð (lampasendari samskonar og Þór fær), nýtt alt Þ'ósakerf- ið með taugum, skiftiborðúm og lömnum, ný þilfarsdæla með koparvatnsenda, og ný sfýris- vjel. 1929 er settur á skipið nýr reykháfur og plötur allar ofan á ketilreisnina. 1927 er sett í það stór, góð togvinda. 1924 eru allar þiljur teknar niður, úr íbúðum, hreinsað og málað bak Hykomið: Kven- Samkvæmis- og Götuskór. Snjóhlífar, háar. Skóhlífar, tvílitar. Legghlífar, rjettir litir. Hússkór, ótal teg. Kárlm. „Columbus“ skór og stígvjel. Ristarhlífar. llelsingborg-skó- hlífar. Skíða- og Skautastígvjel. Barna- Mynda-flókaskór í fallegum litum. Lakk- Hælbanda- og Reima- skór. Snjóhlífar & Legghlífar. Altaf verður best að skifta við: Lárus 6. Lúðvígsson Skó verslnn. við þær og þær settar upp aft- ur. 1928 er mest alt framþil- farið klætt til hlífðar, var það þá eigi slitið svo, að krafist væri endurnýjunar, og síðan hefir ekki mætt á öðru en hlífð- arviði, svo að endurnýjun á þvi kemur ekki til greina við næstu skoðun. Samt sem áður áætlar framkv.stj., að akoðunin hafi 60 þús. kr. kostnað í för með sjer. Hún kemur svo sem fram 1 hverri myndinni á fætur ann- ari þekkingin hans á skipaút- gerð. Hvað skyldi hann þá á- ætla breytingarnar og viðgerð- ina á Þór, eða viðgerðirnar á Súðinni, sem árlega standa fyr- ir dyrum? Nei, sanníeikurinn er, að hann áætlaði ekkert um þennan kostnað, frekar en hann áætlar um kostnaðinn við hin skipin, sem koma svona yfir hann í virkileikanum líkt og skúr úr heiðskíru lofti, og sem hafa þau áhrif á hann, að hann þorir ekki einu sinni að kann- ast við það fyrir sjálfum sjer. Að sögn hans sjálfs vildi hanh kaupa Sindra, en hann fjekk því ekki ráðið. Hann skort' bæði þekkingu og þor til að hnekkja þeim sögum, er ráð- herra voru bornar ,um skipið. og tók síðan þann kostinn, sem bæði fyr og síðar, að meta meira úmmæli og álit annara en rannsókn og. visku sjálfs sín. En leyfum framkv.stj. samt að tala, því öllu er enn óhætt í samanburði við Þórskaupin. — Látum hann hafa sett 60 þús. kr. í Sindra; hann kostaði samt sem áður ekki meira en Þór kostar hjer á höfninni óviðgerð- ur og óbreyttur. „Sindri“ var stærra og be'tra skip, hann var velþekt, innlent skin, og ef þess- um 60 þús. kr. hefði verið fyr- ir komið með nokkuru viti í skipinu, hlaut hann að verða miklu betur útbúið skip en Þór er nú, og þó aðeins jafndýr eða varla það. Er yfirleitt unt að hirta sjálfan sig betur en þetta? Myndi nokkrum heilvita manni hafa komið það til hugar, að láta Sindra af hendi ef'ir slík- ar endurbætur fyrir Þór eins og hann er nú, án þess að fá mikið fje á milli, til hvers svo sem nota skyldi skipið? Iðlahaiarinn opnaðnr. Höfum nú.fengið fallégt úrval af allskonar leikföngúin. þar á meðál fallegu tinhermennina. Þess utan var Sindri ekki ein asta skípið hjer í flotanúm, sérr var á boðstólum. Það mátt velja þá, og það má Velja enn úr meira en helmingnym af togaraflotanum ísl. fyrir það verð, sem Þór kemur tll með að kosta, er hann er tilbúinn að fúllu til starfs síns. Drápsklyf jarnar. „Drápsklyfjar“, sagði Bólu- Hjálmar, er hann teymdi heim úr kaupstaðnum baggalausa bykkjuna; „loforð annarsveg- ar, svik hinsvegar“. Drápsklyfj- ar eru það þegar á þjóðinni, að reiða „Súðina“ annarsvegar, „Þór“ hinsvegar og herra fram- kvæmdastjóra Pálma Loftsson ofan á milli. ólánssöm og o' magnlaus er sú þjóð, sem ekki megnar að ausa slíkum byrð- um af sjer. Gísli Jónsson. fvanaar Gnonarson skáld Heiðursmerki. I | Stjórn konunglega skurðlækn- inga liáskólans í London hefir ný- lega gert dr. Banting í Toronto að heiðursfjelaga sínum, í viður- kenningarskyni fyrir það, að hann fann upp „insulin", sykursýkis- meðalið. Nýkomin er eftir hann stór . bók og góð: Jón Arason. Lýst er þar öllu lífi Jóns frá vöggu til grafar, og auðvitað kóma þar margir menn við sögu. Af Is^ landssögu, er vjer lærum í skól- um, fáum vjer hugmynd um þerman merkilega biskup, vandamenn hans og aðra, sem koma fram á sama sjónarsvið. Þær hugmyndir breytast tölu- vert við lestur þessarar bókar. Jón Arason virtist yíirgangs- seggur og hálfgert hrottamenni þótt hann auðvitað hefði marga góða kosti, en eftir lestur þess- arar bókar er hann orðinn frið- samt göfugmenni, vitur atorku- uaður og þjóðhetja, brennandi • af áhuga fyrir ættjörð sipni og trú. Ari og sjera Sigurður breyt- ast og mjög til hins betra, og yf irleitt er flestum íslendingum borin vel sagan. Jeg býst nú ekkj við, að hver pennadráttur þarna sje sannsögull, en svo skemtilega og skáldlega er sag an sögð, og svo eðlilega frá öllu gengið, að lesandanum dettur naumast í hug, að rengja neitt af því, sem skáldið setur á sjón-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.