Morgunblaðið - 19.07.1931, Qupperneq 8
MORGUNBLAÐIÐ
Þegar þið kaupið blautsápu
munið þá að biðja um Hreins
krystalsápu Hún fæst altaf
ný tilbúin, úr bestu efnum,
og hennar góðu þvottaeigin-
leikar eru löngu viðurkendir.
Islensk sápa fyrir Islendinga.
ESGEKT CLAESSEH
hœstarjettarmálaflutningsmaíStir.
Skrifstoía: Hafnarstræti 5.
8ími 871. Viðtalstími 10—12 f. h
Qkeypis viðgerðir
á reiðhjólum og grammófónum
'fær maður hvergi, en bestar og ó-
dýrastaí eru þær alt af í reiðhjóla-
verkstæðinu
„BALDUR"
Laugaveg 28 (bak við Klöpp).
NB. Öll verslunar hjól látin
ganga fyrir viðgerðum.
Híiar virir:
Sumarkjólatau
margir litir.
Svunitur og Sloppar.
Barnakápur
Bamasokkar
Kvensokkar
sterk og góð teg.
kr. 2 parið.
veisi. Vik.
Laugaveg 52.
20% afslðtt
gefum við næstu daga af
öllum dömutöskum og veskj
um t. d., leðurtöskum með
2 hólfum á 8.80 og ágætar
töskur með mörgum hólf-
um frá 3.50.
Notið tækifærið.
I Etnn i fiim
Bankastræti 11.
Erlings Pálssonar undir atkvæði,
en þá heyrðust raddir um að fella
niður ,síðasta hluta- hennar. Urðu
nú enn nokkrar umræður og tóku
ýmsir til máls og sumir oftar en
einu sinni. Að lokum var þó til-
lagan borin upp og samþykt ó-
breytt með öllum greiddum at-
kvæðum.
6. Fimleikamál. Frá Jóni Þor-
steinssyni fimleikakennara kom
svohljóðandi tillaga: „Fundurinn
felur stjóm Í.S.Í. að undirbúa
og gangast fyrir að haldið verði
hjer í Reykjavík landsmót í fim-
leikum vorið 1933. Skorar fund-
urinn jafnframt á öll fjelög innan
Sambandsins að styðja stjórnina
í þessu máli á þann hátt sem þau
jbest geta, en fyrst og fremst með
því að senda sem flesta vel æfða
þátttakendur bæði stúlkur og
pilta til að sýna á móti þessu.“
Tók þá flutningsmaður til máls
og kvað það vera mjög mikilsvert
að útbreiða fimleika, því hjer væri
um mikið menningarmál að ræða,
og þótti honum það vera drjúgt
spor í rjetta átt að halda fim-
leikamót og þá helst hjer í Rvík.
Þeir Erl. Pjetursson, Aðalsteinn
Hallsson og Ben. G. Waage tóku
í sama strenginn. Var þá tillagan
borin upp og samþykt með öllum
greiddum atkv.
7. Sundhallarmálið og tillaga
Sigurjóns Pjeturssonar .
Fyrst tók til máls Erl. Pjet-
ursson og mælti nokkur orð með
tillögu Sigurjóns þareð hann var
fjarverandi. G. Kr. Guðmundsson
skoiaði á fundarmenn að sam-
þykkja tillöguna með þeirri for-
sendu að sundhöllin yrði tekin í
notkun strax, en að íþróttamenn
skiftu sjer minna af því hvaðan
peningarnir til áframhalds bygg-
ingarinnar kæmu. Var nú ræt-t um
málið, fram og aftur góða stund.
Kom þá fram breytingartillaga frá
M. Stefánssyni og G. Kr. Guð-
mundssyni svohljóðandi: „Aðal-
fundur l.S.Í. skorar á Alþingi og
bæjarstjóm Reykjavíkur að ljúka
byggingu sundhallárinnar á þéssu
ári.“ Urðu nú nokkrar umræður
á ný, en að þeim loknum voru till.
bornar upp. Fyrst breytingartil-
l'agan, og var hún fekl með 13
atkv. gegn 7, en tiltega Sigurjóns
Pjeturssonar var samþ. með 17: 3
atkvæðum.
8. Blaðamál. Framsögumaður var
Erlingur Pálsson og skýrði hann
frá starfi nefndar þeirrar, er kos-
in var til þess að athuga útgáfu
íþróttablaðs á síðasta aðalfundi.
Kvað hann nefndina hafa komist
að raun um að I.S.Í. væri fjár-
hagsleg hætta búin af blaðaútgáfu
eins og nú stæði sakir. Hefði
nefndin komið að máli við fróða
menn í blaðaútgáfumálum og
hefði einn þeirra boðist til að
annast blaðaútgáfuna með því skil-
yrði að Í.S.Í. legði ákveðna fjár-
upphæð til blaðaútgáfunnar. —
Hafði nefndin athugað hvað blaða-
útgáfa myndi kosta, og komst hún
að raun um að á rjettum fjárhags-
legum grundvelli væri blaðaút-
gáfan kleif. Hefði verið gengið
út frá sölu á 100 eint, á 3 kr.
stk.
Ræðumaður drap á ýms fleiri
atriði viðvíkjandi blaðaútgáfu, og
var ræða hans hin fróðlegasta, og
bar þess Ijósan vott að nefndin
hafði kynt sjer málið rækilega.
Framsögumanni fanst það heppi-
legast að Í.S.Í. veitti ákveðna upp-
hæð 600 krónur til blaðaútgáfu,
en með því að öðrum nánari skil-
yrðum vildi Stefán Runólfsson
taka blaðaútgáfuna í sínar hend-
ur, og væri þetta einróma álit
nefndarmanna.
Hófust nú f jörugar umræður um
blaðamálið og tóku margir til máls
Barst þá svohljóðandi tillaga frá
Erlingi Pálssyni: „Fundurinn fel-
ur stjórn Í.S.f. að rannsaka tilboð
þau sem komið hafa fram um
útgáfu íþróttablaðs og felur stjórn
inn iað ráða fram úr því á við-
eigandi hátt.“
Urðu nú enn nokkrar umræður,
en fundarmenn voru nú farnir að
ókyrrast heldur og þreytast og
heyrðust háværar raddir um að
flýta umræðunum og bera tillög-
una upp. Loks kom 'að því, að
umræðunum yrði lokið og var þá
tillagan borin upp og samþykt
með öllum greiddum atkvæðum.
9. íþróttir og útvarp. Erlendur
Pjetursson flutti svohljóðandi til-
lögu: „Fundurinn fer þess á leit
við stjórn I.S.Í., að hún gangist
fyrir því, að komið verði á fræðslu
um íþróttir og fluttar íþrótta-
frjettir í ríkisútvarpinu.“
Forseti mælti nokkur orð um
íþróttir og útvarp, en að því
loknu var tillagan borin upp og
samþykt.
10. Enn kom fram tillaga frá Er-
lingi Pálssyni á þessa leið: „Að-
alfundur Í.S.Í. skorar á bæjar-
stjórn Reykjavíkur að gangast
fyrir því, að sundlaugin í bama-
skóla Reykjavíkur verði sem fyrst
fullgerð, svo hægt, verði að taka
liana til afnota í haust.“ Mælti
flutningsmaður nokkur orð með
tillögu sinni. Var hún síðan sam-
þykt.
Stóð þá forseti á fætur og
óskaði K. R. góðrar farar norður
í land, „Val“ til Kaupmannahafn-
ar og „Víking“ til Vestmanna-
eyja. Ennfremur gat hann þess,
að íþróttafjelögin ættu’ að hafa
íslenska listamenn í huga, er þeir
Ijetu smíða verðlaunagripi og
benti sjerstaklega á leirbrenslu
Guðm. Einarssonar listamanns, er
gæti líka brent áletranir á gripina.
Var nú fundargerðin lesin upp
og samþykt. Þá þökkuðu menn
fundarstjóra fyrir röggsama fund-
arstjórn, en hann þakkaði fund-
arritara fyrir störf hans.
Þá Iá eigi fleira fyrir fundin-
um og lauk honum þar með, eftir
að hafa staðið nálega 5 stundir.
Erlendur Pjetursson
(fundarstjóri).
Agnar Kl. Jónsson
(fundarritari.).
Tryg-gingar Þjóðverja
fyrir ríkisláninu.
Berlín 18. jiilí.
United Press. FB.
Vegna þess, að það hefir vakið
mikla mótspyrnu í Þýskalandi,
að tolltekjumar sje settar til
tryggingar skuldbindingum ríkis-
,ins, hefir verið hallast að því í
umræðum yfirleitt, að komið verði
á tóbakseinokun og verði tekjur
hennar notaðaT sem trygging fyr-
ir skuldbindingum ríkisins, það,
sem þær ná.
FABRIEKSMERK
Munið að þetta
erbesta og eftir
qeeðum ódýrasta
súkkulaðið.
Þegar þjer kaupið dósamjólk þá munið að biðja um nuiiii
Ipf? mýöpP
sSjSgBfiíi&éP , jnmBuSniJ a ' því þá fáið þjer það besta.
Hðfnm nýlega fengið
KartðflnmJBl
f sekkjnm á 50 kg.
H. Benediktsson 5 Go.
Sími 8 (fjórar línur).
Munið, að:
B. S. A. HAMLET OG ÞÓR FÁST
AÐEINS HJÁ SIGURÞÓR.
Ennfremur hefi jeg fengið nýja
U-gund af reiðhjólum „Stjaman".
Verð frá kr. 100.00—150.00.
V>rð á reiðhjólum og varahlutum
hvergi á landinu eins gott.
Vörurnar beint frá verksmiöjunum
X'arahlutir ávalt fyrirliggjandi.
Allir varahlutir seldir með óheyri-
lega lágu verði, t. d.: framhjól
kr 6.00. Torpedo fríhjól kr. 13.00.
Ratax kr. 12.00. Stýri frá kr. 4.00
SIGURÞÓR JÓNSSON.
Austurstræti 3.
%
eyeK*
PAPPÍRSVÖRUR, BESTAR.
EINKAUMBOÐSMAÐUR
HERLUF CLAUSEN.
Hjötfars,saxaðkjöt
KLEIN.
Baldursgötu 14. Sími 78.
Statesnin
er stérn orOtft
kr. 1.25
á borftift.