Morgunblaðið - 13.09.1931, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
^ammniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinii^1
S H.1. jLrrakor, K*yhj»Tl>i =
= Hltatjðrjir: Jön Kjartanaaon.
Valtýr StfilAnaaon.
= Rltatjðrn oc alKraiBala:
▲uatnratrastl >. — fllaol 100.
H A.UKltalnKaatjörl: JL Hafbara.
§ AuKl?alniaakrlfatota:
Auaturatrntl 17. Blml 700.
S Halaoaalatar:
Jðn Kjartanaaon nr. 741.
Valtýr Stefánaaon nr. 1110.
H. Hafberc nr. 770.
= 4akrlftaajald:
= Innanlanda kr. 2.00 á aaánuBl.
= Utanlanda kr. 1.50 á atánuBl.
= f lauaaaðlu 10 aura alntaklB.
10 aura ataB Laabðk
ÍVIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
Meðferð ð embættum.
Það hefir oft verið bent á
undarlega meðferð stjórnarinn-
ar á embættum og veitingum
Jþeirra. Hjer skulu nú nefnd
nokkur dæmi, sem lítt eða ekki
befir áður verið minst á.
1.
Er Lárus H. Bjarnason hæsta-
rjettardómari varð 65 ára síð-
astl. vetur, ljet stjórnin hann
fá lausn, án þess hann sækti
am, og vitaskuld með fullum
launum, því að svo er fyrir
mælt í lögum. L. H. B. er sem
ungur maður, og eflaust hefir
hann ekki tapað sjer enn and-
lega hið allra minsta. Það kostar
ríkissjóð um 10000 kr. á ári að
spyrna honum úr rjettinum, en
það þykir stjórninni lítils um
vert. Á 10 árum verða þetta
samt 100000 krónur, og er þá
ótalinn sá skaði, sem því er
samfara, að svifta rjettinn á-
gætum, þaulreyndum dómara.
2.
Allir vita, að landlæknisem-
bættið er lofað Vilmundi Jóns-
syni lækni og alþm. á ísafirði.
Samt er því slegið upp, en lang-
líklegast er, að enginn sæki,
vegna þess, að þeir sem hug
kynnu á því að hafa, vita um
loforðið. Það er nú orðið all-
títt að embættum sje lofað fyr-
irfram, rjett eins og um versl-
unarvöru væri að ræða. Það var
svo sem auðvitað, að ekki liði á
löngu, þangað til að Vilm. væri
rjettur feitur biti, enda á hann
það skilið fyrir þægðina á þingi
í sumar.
3.
Sýslumannsembættið í Snæ-
fells- og Hnappadalssýslu hefir
ekki verið auglýst laust, en þó
er sagt og mun satt vera, að
það sje veitt jafnaðarmanninum
fyrverandi, Jóni Steingrímssyni
frá Akureyri, en svo undarlega
brá við, að við síðustu kosning-
ar lýsti hann því yfir, að hann
væri stjórnarsinni. Hefir því far-
ið um hann svipað og Berg
Barðastrandarsýslum. og Svein-
björn Högnason Breiðabólsstað-
arklerk og Steingrím skólastjóra
á Hólum, að embættin hafa stjak
að við sósíalistasannfæringunni
og ýtt henni yfir í Afturhaldið,
nema alt eigi að teljast ein hjörð
með einum hirði.
Morgunblaðið er 12 síður í dag.
Auglýsingar kvikmyndahúsanna
eru á 5. síðu.
£ AUt með (slensknm skipnm! tfj|
Há fsárs gálgafrestur.
Skýrsla Layton-nefndarinnar.
Á Lundúnafundinum í sumar
var skipuð nefnd til þess að at-
huga fjárhag Þjóðverja. Nefndin
hefir nú lokið störfum. Skýrsla
hennar var nýlega birt. Sir Walter
Layton, útgefandi „Eeonomist' ‘
hefir samið skýrsluna, og allir
nefndarmenn, 10 merkir fjármála-
menn, hafa skrifag undir hana.
1 skýrslunni er fyrst gerð grein
fyrir skuldum Þjóðverja. Á árun-
um 1924—1930 jukust skuldir
þeirra um 18,2 milja.rða marka. Á
sama tímabili greiddu Þjóðverjar
10,3 miljarða í kernaðarskaðabæt-
ur. Þær voru aðallega greiddar
með erlendum lánum. í árslok
1930 voru erlendar skuldir Þjóð-
verja samtals 25,5 miljarðir marka.
En Þjóðverjar áttu 9,7 miljarða
erlendis, hreinar erlendar skuldir
námu því 15.8 miljörðum.
'Þjóðverjar hafa á undanförnum
árum fengið mörg erlend lán með
stuttum uppsagnarfresti. Lánar-
drottnarnir sögðu mörgum af þess-
um lánum upp, þegar menn fóru
að efast um borgunargetu Þjóð-
verja. Á fyrstu 7 mánuðunum á
þessu ári, fluttu útlendingar 3%
miljarð marka heim frá Þýska-
landi og var það orsök greiðslu-
vandræðanna í Þýskalandi. Litnd-
únafundurinn skoraði á erlenda.
banka, að segja ekki upp lánum,
sem þeir hefðu veitt Þjóðverjum.
Bankarnir hafa nú lofað, að
stuttu lánunum, 5—6 miljörðum
marka, verði ekki sagt upp fyrsta
hálfa árið frá 19. þ. m. að telja.
Layton nefndin álítur nauðsyn-
legt að stuttu lánunum verði
breytt í lán til langs tíma. Enn
fremur telur nefndin nauðsynlegt
að Þjóðverjar fái erlent lán til
langs tírna, til þess að bæta upp
það blóðtap, sem þýskt atvinnulíf
varð fyrir í suma.r, þegar pening-
arnir streymdu burt frá Þýska-
landi.
En nefndin hefir komist að
þeirri niðurstöðu, að ekki sje hægt
sem stendur að útvega Þjóðverjum
erlent lán til langs tíma. Ástæð-
urnar til þess eru aðallega tvær,
segir Layton. í fyrsta lagi geta.
Þjóðverjar ekki fengið lán á með-
an óvissar horfur í utanríkismál-
um valda stöðugri ókyrð og erfið-
leikum í innanlandsmálum Þjóð-
verja. „Sambúð Þjóðverja við aðr-
ar þjóðir verður að byggjast á
vingjarnlegri samvinnu og gagn-
kvæmu trausti“. En á hvaða
grundvelli á samvinnan að byggj-
ast? Á grundvelli Versalasamn-
ingsins, segja Frakkar. En flestir
utan Frakklands munu þó efast
um að það sje rjettur grundvöllur.
„Mjer er ekki um að segja það“,
sagði Briining nýlega, „en það
kemur aftur og aftur fram, a.ð
Versalasamningurinn er viðreisnar
starfinu í álfunni til fyrirstöðu“.
I öðru lagi, segir Layton nefnd-
in, eru liinar miklu byrðar, sem
hvíla á Þjóðverjum, því til fyrir-
stöðu, að þeir geti fengið lán.
Enn fremur verða menn að gæta
þess, a.ð viðskiftakreppan og fjár-
hágsvandræðin í öðrum löndum
hljóta að aukast, ef Þjóðverjar
neyðast til að auka vöruútflutning
og takmarka vöruinnflutning að
miklum mun, til þess að geta sta.ð-
ið í skilum við aðrar þjóðir.
„Allar þjóðir varðar það miklu,
ag Þjóðverjar þurfi ekki að grípa
til slíkra ráða“ segir Layton-
nefndin. Hún segir þannig óbein-
línis, að endurskoðun á Young-
samþyktinni um hemaðarskaðabæt
urnar sje nauðsynleg. Eftirtekt
vekur að fulltrúi Frakka í nefnd-
iuni hefir skrifað undir þetta at-
hugasemdalaust.
Nefndin kemst þannig að þeirri
niðurstöðu, að efnahagslegar og
fjárha.gslegar horfur í Þýskalandi
sjeu svo óvissar, að ekki sje hægt
að útvega Þjóðverjum lán til
langs tíma. Stuttu lánin hafa þó
verið framlengd um % ár, eins
og þegar hefír verið sagt. En hinn
19. febrúar falla stuttu lánin í
gjalddaga. Fyrir þann tíma þarf
því að útvega Þjóðverjum lán eða
framlengja stuttu lánin að nýju.
Nokkrum mánuðum seinna, þ. 1.
júlí, er Hoover-greiðslufresturinn
á enda. Þjóðverjar verða þá aftur
að greiða hernaða.rskaðabætumar,
nema Youngsamþyktin verði end-
urskoðuð áður eða greiðslufrestur-
inn framlengdur. -Og nii stendur
veturinn fyrir dyrum. Alment er
búist við að komandi vetur verði
hinn mesti kreppu- og neyðar-
vetur á síðustu 100 áram. í Þýska-
landi er búist við að 7 miljónir
Þjóðverja verði atvinnulausir,
þegar kemur fra.m á veturinn.
Layton nefndin leggur mikla
áherslu á það, að ríkisstjómirnar
verði innan fárra mánaða að skapa
skilyrði fyrir fjárhagslegri hjálp
td Þjóðverja. Þær verði a.ð ljetta
af þeim þyngstu byrðunum og
skapa gagnkvæmt traust í stjórn-
mála- og viðskiftalífi þjóðanna.
Og hjálp sje nauðsynleg innan
skamms, ekki eingöngu vegna
vandræða-nna í Þýskalandi, heldur
líka vegna kreppunnar í öðram
löndum.
Khöfn í sept. 1931.
P.
Hlutaveltuskemtun K. R.
verður víst mjög glæsileg.
Feikna fjöldi ágætra muna,
verður þar á boðstólum fyrir
50 aura, því fjelagar K. R.
hafa gengið vel fram í því að
útvega og gefa góða muni á
hlutaveltuna.
Þar eru birgðir af nauðsynja-
vörum, kolum, olíu, vefnaðar-
vörum og ótal mörgum gagn-
legum hlutum. Einn drátturinn
bar þó af öðrum. Er það sá er
gildir sem farmiði hjeðan til
bústaðar hins margumtalaða
breska forsætisráðherra í Down-
ing Street í London. Ekki er
þess getið hvort K. R. útvegar
þeim er dráttinn hreppir samtal
við ráðherrann.
Amast við MacDonald.
London 12. sept.
United Press. FB.
Fulltrúaráðsfundur verka-
manna í Seaham-harbour, kjör-
dæmi Mac-Donalds, hefir sam-
þykkt yfirlýsingu þess efnis,
að fundarmenn sje samþykkir
þeirri áskorun fulltrúaráðsins,
að skora á Mac-Donald að segja
af sjer þingmennsku.
EVERYpDAY
dósamjólkin
hefir áunnið sjer almenna hylli
fyrir framúrskarandi gæði.
Kappkostið að nota dósamjólkina,
sem ber nafnið
NESTLÉ.
VERÐIÐ STÓRLÆKKAÐ,
Nú geta allir hlegið!
Sjö skopsögur
heitir b6h, sem komin er á markaBinn. Hún er eftir MAEK
T W AIN, hiB heimsfræga skopsagnaskáld og sennilega fyndnasta
mann, er uppi hefir veriS. Hann hefir skrifaB skemtilegri sögur en
nokkur annar rithöfundur, enda hafa bækur hans náö ótrúlegri út-
breiðslu, — veriö þýddar 4 flest tungumál veraidar og selst I tugum
eöa hundruðum miljóna eintaka. — Þessi bók er ágætt sýnishorn af
sögum hans, og hefir inni atS halda sjö sprenghlægilegar sögur. —
Þýöingin er eftir PÁL, SKÚLASON ritstjóra Spegilsins, sem sagöur
er fyndnastur allra núlifandi íslendinga — og er hún afbragös góö.
Svo þunglyndur maður er ekki til, að hann ekki
veltist um af hlátri, er hann les „Sjö skopsögur“.
PALMOLIVE
Fæst alls staðar.
Það kemur
ölltun saman um að
þessi handsápa
hefir öll þau efni
sem best hafa
reynsit til blönd-
unar á góðrd
handsápu.
þess vegna nota
allir