Morgunblaðið - 13.09.1931, Page 9
Sunnudaginn 13. september 1931.
^011-il-^v H- j
MHVUIV'IV
Verkin tala
Frh.. ----
A f engi smálin.
Ef heiðarlegur maður hefði
skrifað þennan kafla ritsins,
hefði liann birt útdrátt úr þeim
lögum og regiugerðum, sem sett
hafa verið um innflutning og út-
lát áfengis, tolla, tolleftirlitið,
sektir fyrir kbrot í þessum efn-
um o. s. frv. Og svo þær opin-
berar tölur, er sýna innflutning
og útlát áfengis árlega um til -
tekið árabil, hverjir það afhentu
á hverjum tíma, og fyrir hvaða
upphæðir.
Þetta mátti draga saman úr
stjórnartíðindunum og skýrslum
hagstofunnar. Og þegar það
var komið á einn stað, rjett og
skipulega niður, raðað, var al-
menningur einfær um að draga
af því rjettar ályktanir, bæði
um það, hvert stefndi um með-
ferð þjóðarinnar á þessum mál-
um, og hver áhrif breytt lög og
breyttar reglur hafi haft.
Ef svona hefði verið að farið,
hefði þetta kannske mátt heita
„skýrslur um nokkrar fram-
kvæmdir ríkisins“, og jafnvel
getað komið til mála, að stjórn-
ir. fengi eitthvert fje úr ríkis-
sjóði til útgáfunnar.
En höfundurinn hefir aðrar
skoðanir á þessu máli, eða ann-
an tilgang, en þann, að gefa al-
menningi rjettar og hlutlausar
skýrslur.
Nokkur dæmi skufu tekin
hjer, að eins af handa hófi, um
ráðvendni höf.:
Á blas. 154 er talað um ólög-
leg útlát lyfjabúða á áfengi.
Kemst höf. svo að orði: ,,að
þær úthlutuðu drjúgum meira
áfengi en þær gátu sýnt heim-
ild fyrir með innkomnum lyf-
sfeðlum“. Telur hann lyfjabúð-
ina á Seyðisfirði hafa gengið
lengst í þessu, því að hún hafi
„samkvæmt skýrslu er dóms-
málaráðuneytið Ijet gefa út“,
talið úthlutað áfengi 168S lítra,
en ekki haft áfengisseðla fyrir
meira en 81,5 lítra.
Hj'er eru ótvírætt bornar þær
sakir á lyfsalann, að hann hafi
selt ólöglega meginhluta þess
áfengis, er hann lét af hendi. —
En sannleikurinn í málinu er sá,
og mun höf. hann vel kunnur,
að læknirinn á Seyðisfirði (þar
▼ar að eins einn læknir, hjer-
aðslæknirinn), ritaði aldrei á-
fengislyfseðla á tölusett eyðu-
blöð, og taldi ekki að svo bæri
að gera samkvæmt lögum. —
„Laugavegs- og Reykjavíkur-
„apótek“ munu hafa slagað í
áttina á eftir“, þ. e.: um ólög-
lega sölu áfengis, segir höf.
Sá, sem þjetta skrifar, spurði
lyfsala Reykjavíkur-lyfjabúðar,
hvernig á því stæði, að hann
væri í þessu riti sakaður um
það samkv. skýrslu þeirri, er
dómsmáliaráðuneytið ljet gera,
að hafa afhent meira áfengi, en
htann hafði áfengisseðla fyrir.
Sagjði hann, að útlát lyfjabúðar-
innar og innkomnir og sýndir
áfengisseðlar hefðu sýnt ná-
kvæmlega sama áfengismagn.
En stjórnin hefði fengið fram
skekkju á þann hátt, að hún
hefði talið eðlisþyngd spir. cons.
sömu og vatns: 1 lítr. == 1000
gr. Mundi sá skýrsluhöf. ekki
hafa vitað betur. — En þessa
,-kekkju sagðist hann hafa bent
honum á, svo að í þessari seinni
,,skýrslu“ hlýtur að vera far-
:ð með vísvitandi ósannindi.
Á bls. 155 birtir höf. tölur, er
eiga að sanna, að lyfjabúðir og
lteknar hafi „fyrir strangari á-
kvæði og bætt eftirlit“, minkað
hina ólöglegu áfengissölu. Að
því er lyfjabúðirnar snertir, er
skýrslan svona:
Afhent lyfjabúðum frá áfeng-
isver^lun ríkisins:
Árið 1922
— 1923
— 1924
— 1925
— 1926
— 1927
— 1928
— 1929,
— 1930
25159 kg. spir.
23302 — —
24629 — —
23030 — —
18366 — -
15685 — —
14694 — -
702.8 — —
6959 — —
um þetta er á bls. 152. Þar
segir hann, að hið röggsamlega
oileftiriit í tíð núverandi
stjórnar hafi „fækkað mjög til-
raunum til að tollsvíkja vörur“.
„Bendir eftirfarandi skýrsla um
toll af vörum er tollþjónarnir í
Reykjavík fundu og tollsvíkja
átti, nokkuð í þá átt“, segir höf.
-Skýrslan er svona:
Árið 1926
— 1927
— 1928
— 1929
— 1930
kr. 11056.21
— 12853.37
— 18941.22
— 31764.00
— 24808.27
Ef þessi skýrsla sannar nokk-
uð, þá sannar hún það, að
tollsvikatilraunir hafi farið
mjög í vöxt á þessu árabili.
í fljótu bragði virðist hjer
um mikla lækkun að ræða, og
er ekki von að ókunnugir átti
sig á að öðruvísi sje. En hjer er
að eins um vel útreiknaða blekk
ingu að ræða.
Svo er mál með vexti, að áð-
ur blönduðu lyfjabúðirnar sjálf-
ar svo að segja öll þau lyf, sem
vínandi er í, og keyptu vínand-
an ómengaðan, fyrrum frá út-
löndum, en hjá Áfengisverslun-
inni, eftir að hún tók í sínar
hendur innflutning alls vínanda.
Þegar nú farið var að takmarka
það áfengi, sem lyfjabúðirnar
máttu fá, hætta þær að meátu
að búa til þessi lyf, og í stað
þess að panta efnin í þau, panta
þær þau nú tilbáin. Er því sá
vinandi, sem í þeim er, nú ekki
talinn með því áfengi, sem lyfja
búðh-nar fá. Greiðist og enginn
áfengi'stollur af þessum vín-
anda.
Hjer við bætist það, að allur
iðnspíritus o,g spíritus á átta
vita var áður tekinn í lyfjabúð-
um samkvæmt áfengisbókum og
ávísunum. En nú er þetta alt af-
hent beint frá Áfengisverslun-
inni.
Af þessu stafar það, að á-
fengisútlát lyfjabúðanna fara
smáminkandi til ársloka 1928,
en þá snöggminka þau. En ein-
mitt þá um áramótin, hverfur
afhending á spíritus til iðnaðar
og áttavita béint undir Áfengis-
verslunina. Afhenti og Áfengis-
verslanin spíritus í þessu skyni
árið 1928, fyrir kr. 8198.00, en
árið 1929 fyrir kr. 26941.00.
Áfengi það, sem lyfjabúðirn-
ar nú afhenda og á skýrslur
kemur, er mestmegnis eftir
lyfseðlum um ómengað áfengi
og í lyfjaskrínur skipa.
Þau dæmi sem hjer hafa ver-
ið tilfærð sýna ekki aðeins, að
höf. þessa kafla er ófyrirleit-
inn rógberi, heldur einnig á-
ræðinn rökfalsari af skýrslu-
gjafa að vera. Kemur fram í
því allmikið klækjavit, og því
er það dálítið einkennilegt, að
sumstaðar notar hann tölur svo
fábjánalega, að þær afsanna
gjörsamlega, það sem hann ætl-
ar að sanna rneð þeim. Dæmi
Það er einkenni á þessum
,,skýrslu“-höfundi, að hann fell-
ir sjálfur allar ályktanir af
skýrslum sínum, í stað þess að
láta lesandann sjálfan álykta.
Er það auðvelt hverjum manni,
ef skýrslur eru rjettar og glögg-
ar. En höf. treystir því sýnil.
ekki að lesandinn, ef hann er
þar einn um, muni komast að
þeirri niðurstöðu, sem hann vill
vera láta, sem sje þeirri, að fyr-
ir áhrif núverandi stjórnar hafi
vínnautn minkað í landinu, og
menn öðlast meiri virðingu fyrir
lögum og því orðið löghlýðnari
en áður var, meðan Sjálfstæðis-
mannastjórn var við völd. Þess
vegna eru ,,skýrsiur“ hans sum-
part blekkingar og rökfalsanir,
og ályktanirnar rangar og vill-
andi. T. d. segir hann á bls.
152 að síðan 1927 hafi vín-
nautn í landinu yfirl. minkað.
Á sumum stöðum um Yg eða alt
að %“. Þessi fáránlega staðhæf-
ing er ekki rökstudd með öðru
en því, að útsala vína frá Á-
fengisversluninni hefir mikið
aukist (Samkv. skýrslum Hag-
stofunnar seldi Áfengisverslun
ríkisins Spánarvín fyrir 673.931
kr. meira árið 1929 heldur en
árið 1928) og á sama tíma hafa
sektir fyrir ólöglega innflutt
áfengi hækkað úr kr. 37775.00
i kr. 82915.19. Virðist þetta ó-
neitanlega benda í þá átt, að
vínneyslan hafi aukist en ekki
minkað.
Einhvers staðar í þessu riti
er talað um það, að ræktun hafi
stóraukist í tíð núverandi stjórn
ar. Er um þetta talað, eins og
öll ræktun sje beinlínis verk
stjórnarinnar. En þess er ekki
getið, sem þó er vissulega um
ræðuvert, að engri ræktun hefir
fleygt jafn stórkostlega fram á
þessu tímabili og ræktun áfeng-
isgerilsins. Getur það varla
verið tilviljun að höf minnist
ekki á heimabruggunina, þegar
hann talar um áfengisnautnina
og áhrif og framkvæmd bann-.
laganna, svo mikið sem af þeim
iðnaði er látið. Er af mörgum
talið, að þessi iðnaður hafi far-
ið svo í vöxt í tíð núverandi
stjórnar, að áfengi sje nú brugg
að á öðru hverju heimili eða
jafnvel hverju heimili í sumum
sveitum landsins, og sje jafnvel
hafin fullkomin samkeppni um
vörugæði.
Þá hefði ekki verið ófróðlegt
að fá skýrslu um eitrunarstarf-
semi stjórnarinnar. Þar hefir
þó orðið sú uppskera, að vel
Fegurstu kvikmyndaleikkonur heimsins halda húðinni
mjúkri með hinni ágætu
LUX handsápu.
Lux handsápan er skilyrði til
þess að fá mjúka og fíngerða
húð. Kvikmyndaleikkonur nota
hana til að viðhalda fegnrð
sinni. Lnx sápan gefnr frá sjer
indælan ilm, freyðir vel og hefir
mýkjandi ákrif á húðina, og
gerir hana hvíta og fallega.
Lnx handsápan, hvít sem mjöll,
og ilmar af angandi blómum.
„Stúlka sem hefir sljetta og fal-
lega húð, þarf ekki að óttast kið
livassa auga ljósmyndavjelar-
íin-ar. Jafnvp1 hin minsta mis-
fella í húðinni fær ekki dnlkt
fyrir hinum næmu augum ljcp-
mynda Mersins. Lux handsápan
er nauðsynleg hjálp til þess áð
lialda húðinni sljettri og fal-
legri“, segir kin heimsfræga tal-
myndaleikkona
Úts-öluverð 65 aurar.
Yiand SAPA
vJ!
X l T 47 - IO
1%
LEVER BROTHERS LIMITED. PÖRT SLINLIGHT. ENGLAND.
Dilkaslátnr
fást hjer eftir daglega, og verða send heim til kaupenda
ef tekin eru 3 eða fleiri í senn.
Enn fremur fást svið, mör, ristlar og lifur.
Dragið ekki að senda oss pantanir yðar, því oft er
ómögulegt að fullnægja eftirspurninni, þegar líður á slát-
urtíðina.
Verðið mikið lækkað frá því sem var síðast liðið ár.
SlðtuiUelag Suðurlands.
Sími 249 (3 línur).