Morgunblaðið - 27.09.1931, Blaðsíða 4
4
M 0 R G U N B L A Ð 1 t)
Heit svið fást á Uppsölum í clag.
Lágt verð.
BLÓM & ÁVEXTIR,
Hafnarstræti 5. Sími 2017.
Blómlauka.r. Melónur og græn-
meti frá Reykjum. Ýmislegt til
tækifærisgjafa.
Niðursuðudósir með smeltu loki
fást smíðaðar í blikksmiðju Guðm.
J. Breiðfjörð, Laufásveg 4. Sími
492.
Pjölritun. Daníel Halldórsson.
Hafnarstræti 15, sími 2280.
Fæði, gott, sanngjarnt verð. —
Kristjana Ó. Benediktsdóttir,
Laufásveg 2 J» Steinhúsið.
Kenni ensku. Heba Geirsdóttir,
Hverfisgötu 21. Sími 226.
Verkstæðispláss til leigu á Ný-
lendugötu 4.
Helaarspension Melbygaard Ka-
lundborg, Sjselland ved Skov og
Strand. Behagelig for Hvile og Rekrea-
tion. 1. Kl’s Pension fra 5 Kr. pr. Dag.
Bedste Referencer. Fru Harriet Brohm.
Notið ávalt
ZEBo
> Liquid
f/pte Poli.d>
'Jú iTívft
eða
gefur fagran
dimman gljáa
Heiðruðu
húsmæður
Munið að kaupa bestu og
þektustu kryddvörurnar í
baustmatinn, en þær eru frá
H.f. Efnagerð
Reykjavíkur.
Þórhallur Olafsson smjörgerðar-
maður, Skólavörðustíg 16, verður
50 ára 28. þ. m.
Bæjarverkfræðmgur hefir beðið
Mbl. að geta þess, að eftirlitsmað-
uj' vatnsveitunnar, Kristinn Valdi-
marsson, Norðurstíg 5, hafi síma
600.
Sjómannasítofan. Samkoma í
kvöld kl. 6. Allir velkomnir.
Landlæknisembættið. Þessir hafa
sctt um embættið: Jónas Kristjáns
son, Ingólfur Gíslason, Steingr.
Matthíasson, Georg Georgsson og
Vilmundur Jónsson. Fullyrt er, að
Vilmundur eigi að fá embættið, og
að. það hafi verið með í kaupsamn-
ingnum mdli Afturhaldsins og
Jóns Baldvinssonar á sumarþing-
inu síðasta.
Samgönguspjöll. Nýlega gerði
stórrigningu undir Eyjafjölliim og
í Mýrdal, og varð þá vatnavöxtur
mikill. Hljóp þá Bakkakotsá undir
Eyjafjöllum úr farvegi sínum og
tók sjer farveg nokkru austar, en
brúin er á þurru landi, eða því sem
næst. Hefir þetta orðið til stór-
baga bílaumferð á leið þessari, og
má búast við að leiðin teppist al-
veg í haust, ef ekkert verður að
gert.
Stór kartafla er til sýnis í glugga
Morgunblaðsins í dag. Hún er
ræktuð að Miðdal í Kjós og komin
af íslensku útsæði þaðan. Vegur
liún 950 grömm.
Frá Akureyri. Slátrnn sauðfjár
alment byrjuð. Kjötverð 1. fl. 80
—85 aura kg., 2. fl. 65—70 aura,
3. fl. 50 aura kg. Jafnaðarverð-
lækkun á fyrsta flokks kjöti 30
aurar á kg. Sláturverð kr. 1.00
■1.80 . (FB.).
Almennur kvennafundur verður
baklinn í Iðnó annag kvöld kl. 8y^.
Fund þenna boða í sameirdngu
Bandalag kvenna o'g Verkakvenna
fjel. Framsókn. Rætt verður um
vínveitingaleyfið á Hótel Borg; sjá
augl. í blaðinu.
Útvarpið í dag: Kl. 10 Prests-
vígsla í dómkirkjunni. Kl. 19 30
Veðurfregnir. Kl. 20.00 Grammó-
íónhljómleikar. Kl. 20.30 Samleik-
ur: Kunningjar eftir Peter Hansen
(Leikendur: Brynjólfur JÖhannes-
son og Þóra Borg). Ki. 20.55 Óá-
kveðið. Kl. 21.00 Veðurspá og
frjettir. Kl. 21.25 Dansmúsík.
Útvarpið á morgun: Kl. 19.30
Hljómleikar (Þór. Guðmundsson,
K. Matthíasson, Þórh. Árnason,
Emil Thoroddsen). Kl. 20.50
Grammófónhljómleikar. Kl. 21.00
Veðurspá og frjettir. Kl. 21.25
Grammófónhljómleikar.
Hver er skólastjórinn? í Tím-
anum síðasta birtist auglýsing um
það, að Samvinnuskólinn verði
settur 1. okt. næstkomanda. Undir
auglýsingunni stendur að eins:
„Skólastjórinn". Vafalanst mun
mörgum forvitni á að vita, hver
„skólastjórinn“ er. Varla getur
það verið Jónas frá Hriflu, eftir
að hann er orðinn dómsmálaxáð-
herra aftnr. Um Þorkel Jóhannes-
son getnr heldur varla verið að
ræða, nema að sú tilgáta þessa
blaðs reynist rjett, að að Þorkell
fái Iausn frá „embætti“ sínu við
ur í vetur, verða tilbúið til notk-
unar nú um mánaðamótin. Verður
þarna eitthvert besta skólahús hæj
arins, riimgóðar og bjariar skóla-
stofur og gaugar, sjerstakar fata-
geymslur fyrir hvora hæð og í sam
bandi við þær þvottaherbergi og
vatnssalemi, einnig eitt á hvorri
liæg og sömuleiðis sams konar út-
búnaður sjerstakur fyrir kennara.
Stór kennarastofa er á fyrstn hæð
hússins og þar er einnig sjerstakt,
stórt herbergi fyrir söfn skólans,
vömsýnishornasafn og bókasafn
og skrifstofuvjelar og verður senni
lega lokið vig að koma þeim söfn-
um upp í næsta mánuði. Skólinn
fær nú einnig talsveri af nýjum
kensluáhöldum, sem notuð eru við
nýtísku verslunai'skóla erlendis.
Kennarar við skólann verða margir
hinir siimu og áður, og einnig nýir
menn, einkum í námsgreinum
þeim, sem við verður bætt.
Nú ríkir þögn um búafjeð. I
„Austfirðingi“ frá 19. þ. m.
segir svo: „Jónas Jónsson hef-
ir notað mál Þórðar Flygen-
rings til árása á andstæðinga
sína. — En Jónas hefir ekki
skýrt frá því hvernig hinn skip
aði skiftaráðandi búsins, Þórð-
ur Eyjólfsson — sá hinn sami,
sem Ijet siga sjer á læknana
— hefir beitt valdi sínu. Jón-
as hefir ekki sagt frá því, að
Þórður Eyjólfsson seldi úti-
standandi skuldir búsins, um
24 þúsund krónur, fjelaga Stef-
áns Jóhanns fyrir 15 hundruð
krónur. Og hann hefir ekki
skýrt frá því, að þessi fjelagi
Stefáns Jóhanns innheimti sam
stundis eina kröfu með 18
hundruð krónum. Hann fjekk
með öðrum orðum allar hinar
kröfurnar gefins og 300 krón
ur í viðbót, Hann hefir enn
fremur undanfelt að segja frá
því, að Barði Guðmundsson
fjekk 15 þúsund króna innbú
Þórðar Flygenrings fyrir 2800
kiónur. — Er þetta ekki dá
samleg meðferð búafjár?" —
í sambandi við frásögn þessa
má geta þess, að „Bláa bókin'
minnist ekki einu orði á þetta
mál.
UTSALA
befst á mánudaginu.
AUar vðrar verða seldar með
ófteyrilega Iágu verði.
------— Lítið í gluggana í dag.-
Giisfeinii Eviðifsson.
ÚTSALA!
Laugaveg 34.
ÚTSALAt
Verkamannaforingi
verkfallsbrjótur.
AJII með fslensknm skipnm! jfi
Kennaraskólann frá þeim degi nú
haust, sem skólinn tekur til
starfa aftur. Þorkell var, eins og
kunnugt, er, settur kennari yið
Kennaraskólann frá þeim degi í
vor, er skólinn liættí störfum.
Verslunarskólinn verður settur
1, október og hefjast síðan inn-
tökupróf og standa yfir fyrstu daga
mánaðarins. Aðsókn a_ð skólanum
hefir orðið mikil og munu þegar
vera komnar rúmlega hálft annað
hundrað umsóknir. Breytingunum
á hinu nýja skólahúsi við Grund-
arstíg er nú að verða lokið og
mun það af húsinu, sem notað verð
Það er víst sjaldgæft að verka
mannaforingjar sje kærðir fyrir
það að vera verkfallsbrjótar, en
þó kom þetta fyrir í Berger
Vestfold í Noregi nú nýlega.
Fossekleven-verksmiðju var verið
að taka niður nokkrar vjelar, sem
seldar höfðu verið Solberg tóvinnu
veiksmiðju. í Fossekleven var
elckert verkfall, en í Solberg var
verkfall. Solberg .átti að greiða
kostnaðinn við þessa vinnu, og
einn af þeim, sem vann að því að
taka vjelarnar niður, var formað-
ur verklýðsflokksins þar á staðn-
n m, og tók þannig laun lijá fyrir-
tæki, sem verkbann hafði verið
lagt á. Enginn liafði neitt á mótí
]jví, en svo varð. honum það á, að
Iiann ýtti á eftir bíl, sem átti að
aka tíl Solberg naeð vjelar, og þá
var liann orðmn verkfallsbrjótur,
og fjelagar hans neituðu honum
um að greiða atkvæði við próf-
kosningn fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingar. Hann kom samt. sem áður á
fundinn, en þá gerðu hinir sjer
hægt um hönd og slitu fundinum
þegar í stað.
Hðal-sauðflðrslðtrBn
ársins er nú í fullum gangi. Höfum vjer því dáglega á boð-
stólum aíls konar sláturfjárafurðir.
Verð afurðanna er, fyrst um sinn, ákveðið sem hjer
segir:
Dilkakjöt, í heilum kroppum...kr. 0.70—0.95 hv. kg.
Kjöt af fullorðnu f je, í heilum kroppum kr. 0.60—1.00 hv. kg.
Mör ..............................kr..0t90 hv. kg,.
Dilkaslátur, hreinsuð............... kr. 2.25 hvert
Sauðaslátur, hreinsuð .............kr. 4.00 hvert
Slátrin send heim, ef tekin eru 3 eða fleiri í senn.
Svið, sviðin og ósviðin, ristlar, lifrar og hjörtu, alt.
með mikið lækkuðu verði frá því sem var s.l. ár. Sviðapönt-
unum er auðveld'ast að fullnægja í byrjun sláturtíðar.
Næstu daga koma dilkar úr Grafningi, Hvalfjarðar-
strönd, Skorradal, Lundarreykjadal, og fleiri ágætis fjár-
sveitum. Mun varla völ á betra kjöti til söltunar.
Tökum að oss að spaðsalta kjöt fyrir þá er þess óska.
Dragið ekki að senda oss pantanir yðar meðan nógu
er úr að velja, oft reynist erfiðara að gera öllum til hæfis
þegar líður á sláturtíðina.
Sjerstök vildarkjör til þeirra, sem kaupa slátur á
laugardögum.
Slátnrfjelag Snðnrlands.
Sími 249 (3 línur).
Uppboö.
Opinbert nppboð verður haldið í Aðalstrætí 8, fimtudaginn 1.
október næstkomandi kl. 10 árd. og verða þar seldar alls konar
bækur, íslenskar og útlendar, mikið af reikningsfrærslubókum,. svo
og pappírsvörum og ritföngum og mörgu fleiru.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Lögmaðurinn í Reykjavík, 26. sept. 1931.
Bjfiru Þórðarson.
Miólkbfbúðin i Þingholtsstræti 21.
Að gefnu tilefni leyfum við okkur að tilkynna, að efth'leiðis verður
mjólkurbúð okkar í Þingholtsstræti 21 að eins seld mjólk og mjólk-
urafurðir frá okkur sjálfum (sem áður hafa verið mistök á, án okkar
vitundar).
Enn fremur viljum við iýsa því yfir, að mjólkursala sú, sem nú
fer fram í Versluninni Þingholt, er oklcur alveg óviðkomandi, og í þá
aúð verður ekki látin mjólk nje mjólkurafurðir frá okkur.
mjólkurijelag Reykjavíkur.