Morgunblaðið - 08.12.1931, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Hugltsingadagbúk
m
Geymsla. Reiðhjól tekia til
geymslu. Örninn, Laugaveg’ 20 A-
Sími 1161.
FISKSALAN,
Sími 1262.
Vesturgötu 16.
Nudd og rafmagnslækningar.
Fótlækningar. Geng h.eim til sjúk-
linga. Ingunn Thorsteinsen, Bald-
ursgötu 7 (Garðshorn). Sími auto-
mat 14.
Vetrarkápur, barna, seldar með
10—25% af'slætti. — \'erslunin
Skógafoss, Laugaveg 10.
Das schöne Heim, 5. hefti. árg.
29—30 óskast. Súni 713.
Bílkeðja tapaðist í gær hjer í
bænum. Skilist gegn fundarlaun-
<um á skrifstofu Jes Zimsen.
Grammófónviðgerðir. Aage Möll-
er, Ingólfshvoli, 1. hæð. Sími 2300.
lönína Duðdj. Hegadóttir
F. 21. júní 1893. D. 27. júní 1931.
Lampaskermaverslunin, Ingólfs-
hvoli, 1. hæð. Stöðugt nýjungar.
Nýstrokkað
smjðr
frá mjólkurbúi okkar,
er nú ávalt á boðstól-
um í öllum okkar mjólk
urbúðum, svo og versl-
uninni LIVERPOOL og
útbúum hennar.
Mjólkurfjalag Reykjavíkur.
Eitthvað til að gala af)
Jónína var fædd á Hreimstöðum
í Norðurárdal, dóttir Helga Árna-
sonar og Helgu Bjarnadóttur frá
Skarðshömrum. Jónína var ung
tekin til fósturs af ömmu .sinni
Kristínu Guðmundsdóttur á Skarðs
hömrum, og dvaldist svo hjá henni
þar til hún var 9 ára, þá fluttist
hún til Reykjavíkur, og var þar
hjá Guðrúnu Pálsdóttur, móður
síra Friðriks Friðrikssonar, þar til
hún var 21 árs. Á því heimili naut
hún ágætrar mentunar, sem varð
henni drjúgt og gott veganesti.
9. okt. 1915 giftist Jónína Niku-
iási Halldórssyni trjesmið í Reykja
vík, og hyrjuðu þau búskap þá
um haustið í liúsinu Bræðraborgar
stig 17, og var það lieimili henna
upp frá því.
Þau hjónin eignuðust 7 börn og
eru 6 þeirra á lífi, öll ung.
Heimiii þeirra hjóna var sönn
fyrirmynd, þar ríkti ætíð friður
og gleði, var því mjög ánægju
legt að koma til þeirra hjóna, enda
var þar oft gestkvæmt. Allir hinir
mörgu vinir hennar í Borgarfirði
munu ekki hafa komið svo til höf-
uðstaðarins, að þeir litu ekki inn
hjá Jóninu, og öllum har saman
um að það væri eins og að koma
foieldrahús, að koma á heimil
þeirra hjóna, svo var Jónína hugs
unarsöm um þarfir gesta sinna
Hún var a'lt af jafnkát, frjálsleg
og ræðin. Yfirleitt var framkoman
öll hin skemtilegasta. Og voru þau
lijónin mjög samtaka, um að gera
heimilið aðlaðandi og skemtilegt.
Á besta skeiði er Jónína burtu
kölluð. Allir sem þektu liana
munu sakna hennar sárt, þó manni
hennar og börnum verði söknuður-
inn sárastur, ]>ví manni sínum var
hún ástrík og góð eiginkona, og
biirnunum fyrirmyndar móðir.. En
nú er hún farin til hinna friðsælu
bústaða á ókunna landinu, þar sem
hún bíður eftir manni sínum og
hörnum, og ölluin vinunum, sem
nú kveðja hana með hugheilum
óskum, um eilífan frið og sælu í
liinum himnesku bústöðum.
Borgfirðingur.
Eggjaðnft — Gferdnft
og Krydd.
Knldinn er
kofmnn.
Kaupið því nú þegar:
Loðhúfur eða
Skinnhúfur.
Margar ódýrar teg.
Vöruhðsii.
m. AJlt með Islensltnm skipum! jfi
Dagbók.
I. O. O. F.Rb.&t. 1 Bþ. 811288
Vz-I.
Veðrið í gær: Við V-strönd ís
lands er djúp 'lægð á hreyfingu
N-eftir. Er henni samfara hvöss
SA-átt og úrkoma. Suðvestanlands
hefir veðurhæð sums staðar orðið
10—11 vindstig í dag. Þar var
snjókoma í morgun, en 'síðan
slydda og rigning. Nú er vindur
orðinn SV-lægur með skúrum eða
hagljeljum og miklu (hægari. Á
N og A-Iandi er hvöss SA átt með
snjójeljum og 1—2 st. frosti. Þar
mun vindur einnig ganga í SV og
læg.ja í kvöld eða í nótt.Frá Græn-
landi hafa engar fregnir náðst nje
heldur suðvestan af hafi. Er ekki
ólíMegt, að ný lægð sje að nálg-
ast þaðan, seni liafi í för með
sjer SA-átt og rigningu á morgun.
Veðurútlit í Rvík í dag: SV-átt
með snörpum skúrum eða jeljum.
Snýst ef til vill síðar í SA með
rigningu.
Dráttarvexitir af útsvörum hækka
frá 1. jan. næstkomandi. Menn
geta því sloppið hjá hækkuninni,
(ef þeir greiða útevarsskuldir fyrir
nýár.
Ölafur Johnson konsúll, kom
með Drottningunni um helgina.
Hann hefir verið um tíraa í Þýska-
landi.
Kristján Arinbjarnarson læknir,
frú lians, og tvö börn, eru með
Drottningunni þessa ferð til ísa-
fjarðar. Tekur Kristján þar við
laknisembætti sínu.
Harmónikuleikarar, Haraldur og
Marínó leika í Hótel Borg í kvöld.
Perlur, IV. hefti þessa árgangs
er nýkomið. Flytur það meðal
annars merkilega grein um Vest-
mannaeyjar, eftir Pál Kolka lækni,
og fylgja lienni margar myndir.
Margt er fleira í heftinu, t. d.
(Skákir og skákfrjettir frá Skák-
sambandi íslands. Er þetta í
fvrsta sinn, sem það efni er tekið
i tímaritið, en því á að halda á-
íram. Hefst þessi skákbálkur með
tafli, sem Aljechin tefldi við Réti
— og fylgja skýringar á taflinu —
Þar er enn fremur grein með mynd
um um undragjána í ITtali, og
hinar furðulegu stuðlabergsmynd-
anir, sem þar eru.
Lífsvenjubreyting. — Dóms-
málaráðherrann heldur áfram’,-
að boða lífsvenjubreytingu í
Tímanum. Tekur hann nú dæmi
af manni í Reykjavík, sem býr
í „villu“, sem kostað hefir 100
þús. kr. Þessi maður verður að
færa saman bú sitt, segir ráð-
herrann. Hann á að búa í einu
horni af höll sinni, og taka aðr-
ar fjölskyldur í það, sem um-
fram er. Ekki hefir enn heyrst,
að ráðherrann hafi flutt í eitt
hornið í skólastjóraíbúð Sam-
vinnuskólans; en íbúðin mun
hafa kostað nálægt 100 þús.
kr. Máske ráðherrann flytji í
hornið einhvern næstu daga?
Bann við umferð bifreiða. — At-
vinnu- og samgöngumálaráðu-
neytíð auglýsir í siðasta Lögbirt-
ingablaði, að banna megi bifreiða-
umferð einstaka daga eða nokkra
daga í einu á tímabWinu frá 1.
des. 1931 til 10. júní 1932, um eft-
irtalda vegi: Þjóðvegi hvar sem er
á landinu, og sýsluvegi í þessum
isýslum: Borgarfjarðarsýslu, Aust-
ur-Húnavatnssýslu, Skagafjarðar-
.sýslu, Suður-Þingeyjarsýslu og Ár-
nessýslu. Heimild þessi er veitt
til þess að vernda vegina fyrir
skemdum. VegamáUastjóra er fal-
ið að auglýsa bannið jafnharðan
og ákvörðun er tekin fyrir hvern
veg og sjer hann um framkvæmd
bannsins.
Fundur verður í Skátafjelagi
K. F. ri. K. í kvöld kl. 81/2.
Útvarpið í dag: 10,15 Veður-
fregnir. 16.10 Veðurfregnir. 19,05
Þýska, 2 fl. 19,30 Veðurfregnir.
19,35 Enska, 2. fl. 20,00 Klukku-
sláttur. Erindi: Aldahvörf í dýra-
ríkinu, VTII (Árni Friðriksson).
20,30 Frjettir. 21,00 Grammófón
hljómleikar. Vilhelm Herold syng-
ur: Y'aagn af din Slummer, eftir
Heise, Majsang, eftir Lembcke,
Rav, eftir Sinding. Kom Garina,
eftir Johan Svendsen ,og Hvorfor
svulmer Weidhselfloden, eftir
Gade. 21,15 ITpplestui' (Jón Sig-
urðsson, skrifstofustjóri). 21,35
Grammófón hljómleikar: Kimrtet
C-dúr eftir Beethoven.
Farfug'lafundur verður haldinn
kvöld kl. 9 stundvíslega á Lauga
egi 1, (bak við versl. Vísi). —
Þangað eru allir ungmennafjelag-
ar hvaðanæva af landinu vel-
komnir. Fundir þessir eru ávalt
fjölmennir og fjörugir, eins mun
ic.ssi fundur verða, því að þar
,verður rætt um þegnskylduvinnu
jl MaGNÚS Ti S SlONHAHL^ nEYKJAVÍK
Urglðsln
óbrjótanlegu, allar gerðir.
Ódýrust hjá
Signrþór.
Kol & Kox
Kolasalan S.I.
Sími 1514.
Brúarfoss kom hingað í fyrri-
nótt frá útlöndum. Meðal iárþega
voru: Haráldur Böðvársson kpm.
frú hans og' sonur, Jakob LíndalT,
Högni Björnsson læknir. Rúss-
landsfararnir o. fl.
Skip Eimskipafjelagsins. Gull-
foss fór frá Kaupmannahöfn á
sunnudag. Goðafoss mun vera á
ísafirði í dag á suðurleið. Lagar-
foss kom til Seyðisfjarðar kl. 2
í gær. Dettifoss fór frá Hamborg'
á sunnudaginn. Selfoss er í Siglu-
firði.
Áfengismál. Á sunnudaginn
fundu to'llþjónarnir í „Dronning
Alexandrina' 24 flöskur af spiri-
tus, koniaki og ivhisky. Var það
fabð meðfram skrtifuásnum aftan
við vjelam'imið.
Skipsflak á reki. Skipstjórinn á
togaranum ,,Hugelia“ frá Grimsby
hefir tilkynt, að hinn 3. þ. mán.
hafi skip ,sitt steytt á rekaldi í
hafi um 20 sjómílur suð-austur
af Reykjanesi, á ca. 63°35’ norður
breiddar og 22° 12’ vesturlengdar.
Karl Magnússon læknir á Hólma-
vík, hefir verið um tíma hjer í
bænum, en fer í kvöld með Drotn-
ingunni heim á Qeið.
Skipaferðir. Dronning Alexand-
rina og Botnia komu á sunnudag-
jnn frá ntlöndum.
Dánarfregn. Látin er hjer í
hænum húsfreyja Björg H. Hún-
fjörð, kona Jósefs Húnfjörð, 71
árs að aldri.
Símon Ágústsson hefír nýlega
lokið prófí í nppeldisfræði og sál-
arfræði barna við háskólann í
París. Hann á nú aðeins eftir eitt
munnlegt próf (1—2 mánaða Hest-
nr) til að lúka fullnaðarprófi í
heimspeki (þjóðfjelagsfræði, fag-
urfræði og uppeldisfræði). Próf
]ietta tekur hann f vor, með því
að ekkert tækifæri er til að lúka
]>ví fyr. En meðfram stundar hann
framhaldsnám (sjergrein) í vetur.
Morgunblaðið er 8 síður í dag
Fundur í Varðarhúsinu í gær-
kvöldi, um Síldareinkasöhma, var
fjölmennur og fjömgur — og / . . ,, „
vantaði |,6 „otknð, or ei„l<aSol,w°K mar« flelra' nykomið 1
fcrkólfarnir Ijetu ekki sjá sig. —
Nokkurum þeirra var boðið á
fundinn. Fundarsalurinn var troð-
fullur. Fjöldi manna varð frá að
lliverfa sakir þrengdla. Opnaðar
voru' dyrnar út á svalirnar að
sunnan verðn. Vel heyrðist út á
götu til þeirra ræðumanna, er róm-
sterkir voru. Hópur manna stóð
um tíma sunnan undir búsinu. —
Olafur Tbors stýrði fundinum.
Frummælandi var Sveinn Bene-
diktsson.
Hnmifbarimi
riklingur í pökkump
nýkominn.
Versl. Foss.
.auj?ave>í 12. Sími 2031.
Oivanteppi
*
Kylsant láuarður.
Eins og áður er getið var Kyl-
sant lávarður dæmdur í 12 mán-
aða fangelsi fyrir stjóm sína á
stærsta skipafjelagi heimsins —
„Royal Mail“. Hann var settur
í Wormwood Schrubbs fangabúsið
í öndverðum nóvembei'. Fyrsta
daginn, sem hann var þar, var
honum skipað að fara út í fang-
elsisgarðinn, ásamt hinum föng-
unum, til þess að hreyfa sig. —
Þarna varð liann að vera í klukku
stund, og gláptu liinir fangarnir
á hann eins og tröll á lieiðríkju,
og tók hann sjer það ákaflega
nærri. Áður en morgunverður væri
snæddur var honum skipað að þvo
klefa sinn, og gerði hann það. En
er maturinn kom: V2 pnnd af
brauði, smjörlíki og emaileruð
krús með tei, gat hann ekki snert
Borðleppl
Manchester,
Sími 894.
einnig verður þar upplestur, söng-Á honum. Og líkt for um miðdeg-
ur og annar gleðskapur. Þ. Bj. iisverðinn.
Þannig gekfc í nokkra daga,.
]>angað til Kvlsanit veiktist af'
þessu öllu sarnan. Honum datt
ekki í liug að svelta sig, en harnii
hafði svo mifcinn viðbjóð á- matn-
um og hvernig hann var fram—
reiddur, að hann gat ekki etið-
hann. Augnaráð, alnbogaskot, og
glósur h.inna fangauna tólm einnig"
mjög á hann. Og seinustu fregnir-
herma það, að læknis fangelsins'-
liafi skipað svo fyrir, að Kylsant
lávarður skuli fluttur í sjúlcrahús-
Bobr prófessor
fær heiðursbústað Carlshergs..
Stjórn CarLsbergssjóðsins hefir
nýlega spuri hinn kunna vísinda-
mann og Nobelsverðlaunamann„
Nils Bolir, prófessor, hvort hann
mundi vilja setjast, að í heiðurs-
bústað Carlsberg, sem Harald
Höffding bjó í áður. Mun Bohr
hafa tekið þessu með þökkum, og
pr búist við, að hann flytjist bráð-
lega í lieiðursbústaðinn. Höffding
var fyrsti maðurinn, sem naut
þessa. heiðurs, en hann var þá
gamall að aldri. Aftur á móti er
Bohr prófessor enn á ljettastai
skeiði.