Morgunblaðið - 25.09.1932, Qupperneq 3
MORGUNBIAÐIÐ
■9
*•
'•
'•
ttiaL: H.f. ÁmkiT, ItrUtTlk,
JUtatJörwr: Jfln KJnrUuumoB.
Vsltrr Btaf&aaoon.
Kitatlflrn oi nfsralValn:
▲natnratnstl >. — Btml III.
Aa*l?alntaatjðrl; Hafbar*.
Anclýalnaaakrlfatofa:
▲natnratraatl 17. —* Kad »».
Halaaaalaur:
Jðn KJartanaaon ar. IU.
Valttr ataf&naaon ir. lUt,
H. Hafbar* nr. 77»,
lakrlftaalnld:
Innanlanda kr. 1.00 d ntailL
Utanlanda kr. 1.10 * aukanVl,
I lanaaaðlu 10 anra alntaklV.
10 anra naa« Ia«Mk
framboðin.
Þrír Iístar í boði.
Framboðsírestur til aukakosning-
íinnar til AJþingis hjer í Reykjavík,
var útrunninn í gær.
Þrír listar komu fram og eni þcir
bcssir:
A—listi, sósíalistar. Þeir hafa í
kjöri Sigurjón A. Ólafsson, fyrver-
-andi alþm.
B—listi, kommúnistar. Frambjóð-
andi þeirra er Brynjólfur Bjarnason,
a-itstjóri Yerklýðsblaðsins.
€5—listi, Sjálfstæðisflokksins. Fram-
fcjóðandi er Pjetur Halldórsson, bók-
saíi.
Það er í raun og veru hleegilegt,
al sósíalistar og kommúnistar skuli
vora að bnrðast með lista við þessa
kosningu. Þar verður leikurinn svo
■ójafn, að kosningin hlýtur að verSa
þeim til minkunar.
Fyrst er nú þess að gæta, að fram-
bjóðandi Sjálfstæðisflokksins, Pjetur
Halldórsson, gnæfir svo hátt yfir
báða hina frambjóðendurna, sakir
•óvenjulegra mannkosta hans og hæfi-
íeika, að þar kemst enginn saman-
fcnrður að. Þá er hitt einnig vitanlegt,
■aí Sjálfstæðisflokkurinn hefir svo
langsamlega mest fylgi allra flokka
Tijer í bænum, að sigur hans væri viss
3>ótt allir andstöðuflokkamir samein-
mðust gegn honum.
Framboð sósíalista og kommúnista
ber sennilega að skoða sem einskonar
'kappleik innbyrðis. Kommúnistar hafa
hug á, að krækja í nokkur atkvæði
tfrá sósíalistum við þessa kosningu,
4il þess svo að geta hampað þeim
íraman í Rvissa næst þegar farið
verður fram á fjárgjafir. Sósíalistar
vilja hinsvegar ógjaman missa atkv.
jfir til kommúnista; það getur auð-
•veldlega haft áhrif á mjólkurkú þeirra
við Eyrarsund.
Sjálfstæðismenn munu lítt hugsa um
þenna innbyrðis kappleik andstæðing-
iiBna. Þeir munu sjá um, að kapp-
leikurinn verði báðum til minkunar
<og fylkja sjer um
C—listann.
Nýja sænska stjórnin.
Oslo, 24. sept. NRP. — FB.
Nýja sænska ríkisstjórnin verður
útnefnd í dag. Stjórnarforseti verður
jafnaðarmannaleiðtoginn Albin Hans-
son og utanríkismáiaráðherra Rikard
Sandler, sem var forsætisráðherra í
fyi'ri jafnaðarmannastjórninni.
Vinnudeilan í Lancashíre.
Manehester, 24. sept.
United Press. FB.
Seint í gærkvöldi var fulltrúafúnd-
inum frestað, án þess samkomulag
næðist um endurráðningu 2000 vefara,
sem gert höfðu verkfall áður en vinnu-
stöðvunin varð almenn. — Málamiðl-
unartilraun um þetta mikilvæga deilu-
atriði heldur áfram kl. 11.15 árd.
liotið (slenskar vðrur.
A landsþingi iðnaðarmanna, sem
lial-dið var í Reykjavík 18.—21. júní
s.l., var samþykt. svohljóðandi tillaga:
„Þingið skorar á útvarp ríkisins,
dagblöðin og tímaritin í landinu, að
ge>-a sitt ítrasta' til þess að halda
áhuga þjóðarinnar vakandi fyrir því,
að nota fyrst og fremst íslenska fram-
leiðslu. Þingið leggur sjerstaka áherslu
á, að allir, sem nota þurfa þær vörur,
sem unt er að framleiða í landinu
sjálfu, láti innlenda framleiðendur
sitja fyrir viðskiftum að öðru jöfnu“.
Frá Slglnfirðl.
Siglufirði, FB. 24. sept.
Síldveiðinni er nú að fullu lokið og
hefir engin síld verið söltuð síðasta
hálfan mánuð.
Tíðarfar hefir verið mjög óstöðugt,
en þurkar allgóðir þessa viku og hafa
því hey náðst inn.
Þorskafli var mjög misjafn þessa
vikn, enda róðrar stopulir sökum ó-
gæfta.
1 dag er hjer bleytuhríð og orðið
grátt í sjó fram.
Skarlatssótt geisar í bænum og hafa
læknarnir fengið vitneskju um yfir
20 sjúkdómstilfellí. Veikin kom fyrst
upp á heimili bústjóra mjólkurbúsins
á Hóli og breiddist út þaðan.
Ríkisverksmiðjan lauk í dag við að
bræða síldina. Vorn alls breedd 1371/2
þúsund mál.
Dagbók.
Veðrið (laugardagskvöld kl. 5):
Lægðin, sem var við S-land í gær, er
nú komin suðaustur undir Skotland,
en önnur lægð er milli Jan Mayen og
Noregs. Vindur er N-lægur um alt
land, víða allhvass, hiti 5—7 stig og
víðast bjartviðri sunnan lands en 2—4
st. hiti með þykkviðri og rigningu eða
slyddu á N- og A-landi. Útlit fyrir
N-átt næstn dægur, en lægir eitthvað
vestan lands á morgun.
Veðurútlit í Rvík í dag: N-kaldi.
Bjartviðri.
Munið drengjamót K. R. í dag kl. 10.
Litla blómabúðin heitir ný verslun
sem frú Jóhanna Zoega hefir opnað á
Laugaveg 8, þar sem áðnr var útsala
frá Boeskow á Reykjum. (Sjá augl. í
blaðinu í dag).
Til Strandarkirkju frá G. J. 204 kr.
Heimatrúboð leikmanna, Vatnsstíg3.
Almenn samkoma í kvöld kl. 8.
Gjöf til Kvennadeildar Slysavarna-
fjelags Hafnarfjarðar, að upphæð 216
krónur, frá skipverjum á b.v. „Garð-
ar“, Hafnarfirði, móttekið með þökk-
um. Fyrir hönd fjelagsins. Ólafía
Þ.orláksdóttir, gjaldkeri.
Fimtugur er á morgun, 26. septem-
ber, Jóhann Tómasson skipstjóri, Aust
urgötu 32, Hafnarfirði.
Dansskóli Rigmor Hanson byrjar
mánudaginn 3. okt. í Iðnó, kl. 4 fyrir
smábörn og byrjendur, kl. 5 fyrir
unglinga, kl. 8 fyrir fullorðna byrj-
endur og kl. 9 fyrir fullorðna, sem
hafa dansað áður.
40 áxa hjúskaparafmæli eiga í dag
Magnea Egilsdóttir og Vilhjálmur G.
Gunnarsson, Grjótagötu 7.
Frú Jóna Kristjánsdóttir Fjalldal
frá Melgraseyri andaðist í gærmorgun
á Vífilsstaðahæli eftir langvinn veik-
, indi.
Útvarpið í dag: 10.40 Veðurfregnir.
14.00 Messa í fríkirkjunni (sr. Arni
Sigurðsson). 19.30 Veðurfregnir. 19.40
Barnatími (Einar Guðmnndsson). 20.00
Klukkusláttur. Erindi: Nytjum landið
(gíra Björn O .Björnsson). 20.30 Frjett
ir. 2L00 Grammóf óntónleikar: Sym-
phonia nr. 4, eftir Tschaikowski. —
Danslög til kl. 24.
Útvarpið á morgun: 10.00 Veður-
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00
Veðurfregnir. 19.30 Veðurfregnir.
19.40 Tónleikar: Alþýðulög (Útvarps-
kvartettinn). 20.00 Klukkusláttur. Ein-
söngur. Fiðlu-sóló. 20.30 Frjettir. —
Músík.
Bethanía. Samkoma í kvöld kl. 8%.
Allir velkomnir.
Skæð bráðapest. Haft er eftir
leitarmönnum í Flóa- og Hi-eppamanna
afrjettum, að sauðfjárpestin hafi verið
^vo megn, að þeir hafi orðið að skilja
eítir á þriðja hundrað fjár sem
ýmist lá dautt á afrjettinum eða var
skorið á leiðinni heim til rjetta.
Fjöltefli háði skáksnillingurinn
Bogoljubow í Darmstadt fyrir
skömmu, tefldi 27 skákir og lauk þeim
á 3 stundum; vann 18, tapaði 2, en
7 urðu jafntefli. Tveir íslenskir stú-
dentar tóku þátt í fjölteflinu, Einar
Sveinsson og Arni Snævarr. Þeir náðu
báðir jafntefli. Árni er talinn með
snjöllustu skákmönnum í Darmstadt.
Skipafrjettir. Gullfoss er væntanleg-
ur til Reykjavíkur seinni partinn í
dag. — Goðafoss fór frá Hamborg í
gær. — Brúarfoss er væntanlegur til
Reykjavíkur í dag, að vestan. —- Lag-
arfoss kemur til Djúpavogs í dag, fré
Leith. — ■ Selfoss kom til Hamborgar
í gærmorgun, fer þaðan á mánudag.
— Dettifoss er á Húsavík.
Umboðsfirma í Portúgal óskar eftir
að komast í samband við útflytjendur
af saltfiski, reyktum laxi, saltaðri og
reyktri síld, görnum og tólg. Upplýs-
ingar gefur danska utanríkisráðuneyt-
ið (Erhvervskontoret) Christiansborg.
Kári Ásbjörnsson veitingaþjónn
andaðist að Vífilsstaðabæli þann 11.
þ. m. Hann var nú síðast þjónn á
Hótel ísland og áðnr á Eimskipafje-
lagsskipum. Hann varð 24 ára, prúður
maður og vel látinn af öllum þeim
mörgu, er hann átti viðskifti við.
Hann verður jarðsunginn á morgun frá
heimili sínu, Öldugötu 59, kl. 2 síðd.
Ný bók, „Alríkisstef nan“, eftir
Ingvar Signrðsson. Þetta er mikil bók,
308 blaðsíður og er henni skift í 6
aðalkafla: Nýr grundvöllur, Nýtt al-
heimsvald, Alríkið, Stórmálin, Bar-
dagaaðferðir alríkisstefnunnar, Mót-
bárur, Eina leiðin.
Strandferðaskipin. Esja fór hjeðan
í gærkvöldi í strandferð vestnr um
land. Súðin á að fara á þriðjudaginn
austur um land. — Þegar hún kemur
úr þeirri ferð verður hún send til út-
landa með kjötfarm og fellur því niður
áætlunarferðin frá Reykjavík 24. októ-
ber.
Símaskráin nýja. Handrit að henni
er til sýnis daglega í nýju símastöð-
iuni. Þar geta menn um leið fengið
leiðbeiningar um notkun sjálfvirku
símatækjanna, sem bráðum koma í
stað þeirra símatækja, sem nú eru.
Útiskemtun heldur knattspyrnufje-
lagið Þjálfi í Hafnarfirði að Víði-
stöðnm í dag. Meðal annars fer þar
fram reiptog milli þeirra sem búa í
suðurbænum og hinna sem í vestur-
bænum búa.
Eggert Stefánsson ætlar að syngja
opinberlega á sunnudaginn kemur. A
söngskránni verða eingöngu ný íslensk
lög eftir ýmsa böfunda.
Tímarit Iðnaðarmanna, annað hefti
6. árgangs, er komið út. í því er fyrst
sagt frá fyrsta iðnaðarþingi íslend-
inga, sem haldið var í júní s.l. og
fylgir mynd af þinginu. Þá er sagt
frá iðnsýningunni og 65 ára afmælis-
fagnaði Iðnaðarmannafjelagsins. Sein-
ast er glögg, sundurliðuð skýrsla um
bygging&r í Reykjavík á árinu 1931.
N#tit ísieszkir Hnf
og ískazk skip.
Dansleikur knattspyrnumanna úr K.
R. verður í kvöld í húsi fjelagsins og
hefst kl. 9.
Látinn er í Ellihcimilinu Hermann
Gnðmundsson, háaldraður maður og
einn af þeim Reykvíkingum, sem allir
munu hafa þekt. Jarðarför hans fór
fram í gær.
Ársskýrsla Flensborgarskólans er
komin út. Henni fylgja myndir þær,
sem birtust í Lesbók með grein um
fimtugsafmæli skólans, ennfremur
myndir af 32 nemendum skólans, sem
luku gagnfræðaprófi við Mentaskólann
sama vorið og þeir útskrifuðust úr
Flensborg. Þá er og þarna línurit, sem
sýnir nemendafjölda í skólanum ftlt
frá byrjun.
Resolute, flutningaskip, kom hingað
í gær. Hafði það affermt í Keflavík í
rokinn í gær. Lá það þar við nýju
bryggjuna og þótti Keflvíkingum mun-
ur á að afgreiða skipið og á afgreiðslu
áður, meðan engin var bryggjan. Skip-
ið fer hjeðan eftir tvo daga til Norð-
urlandsins og tekur þar ísfisk til út-
flutnings.
Endurminningar um Björnstjerne
Björnson heitir bók sem kemur í
bókaverslanir á morgun. Hún er eftir
Karl Konow, en þýdd af Einari Guð-
mnndssyni. Kostnaðarmenn eru nokkr-
ir Reykvíkingar. Bókin mun gefin út í
tilefni af aldarafmæli Björnsons. f
henni ern 6 myndir, en stærðin er 4
arkir í átta blaða broti.
Grasspretta hefir verið góð um alt
land í sumar, þar sem tíl frjettist.
Hefir heyfengur víðast hvar orðið góS-
ur, og óvíða hafa hey hrakist að mun.
Hjer í austursveitunum munu nú flest-
ir hafa hirt alt hey.
Heybruni. í Kalmanstungu kvíkn-
aði nýskeð í hlöðu. Er talið að þar
hafi brunnið um 100 hestar af heyi.
Jarðskjálftar. Þrír jarðskjálftakipp-
ir fundust hjer í gær, einn kl. rúmleg*
1, annar kl. tæplega 4 og sá þriðji
rúmlega kl. 6. Var sá fyrsti talsvert
langur, en sá næsti snarpari. Sá þriðji
vægur. Ekki er enn vitað hvar þeir
hafa haft upptök sín, en það verður
rannsakað í dag. Morgunblaðið átti
tal við stöðina í Hveragerði í gær ög
fekk þær frjettir, að þar hefði menn
ekki orðið varir við jarðskjálftana.
Morgunblaðið er 8 síður í dag og
Lesbók. Auglýsingar kvikmyndahús-
anna eru á 4. síðu.
Húsahyggingar í Reykjavík. í sein-
asta hefti Tímarits iðnaðarmanna er
skýrsla frá Sigurði Pjeturssyni bygg-
ingafulltrúa um húsabyggingar í
Reykjavík árið sem leið. Sjest á henni
að bygð hafa verið 122 hús (bæði
steinhús og timburhús) og eru í þeirn
214 íbúðir. Hafa hús þessi kostað
rúmlega 4 miljónir króna. Eru hjer
ekki taldar með breytingar á eldri
húsum, skúrabyggingar, girðingar
kring um lóðir o. fl. þ. h., en til alls
slíks var varið miklu fje á árinu.
Ekki er heldur talinn með kostnaður
við byggingu þjóðleikbússins.
Knattspyrnukappleikur fer fram í
dag kl. 3 milli Danska íþróttafjelags-
ins og skipverja af Fylla. Kept er um
Sendiherrabikarinn.
Síra Björn O. Bjömsson, ritstjóri
„Jarðar“, flytur erindi á ,,Voraldar“-
samkomu í Varðarhúsinu í dag kl. 5
síðd. Pjetur Sigurðsson stjórnar sam-
komunni. Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn. Samkomur í dag:
Helgunarsamkoma kl. 11 árd. Barna-
samkoma kl. 2 síðd. Útisamkoma við
Barónsstíg kl. 4. Fagnaðarsamkoma
fyrir nýja flokksstjórann Adjutant
Svöfu Gísladóttur. Kapt. K. Kjærbo
og kapt. Jósef Speneer. Allir vel-
komnir!
G«nGariE
IHOBllÓlL
VACUUM OIJL COBPAKY ^
Umboðsmenn:
H. Benediktsson S Go.
í Slðtrið:
Bngmiöl
(Isleuskl og danskt).
Bankabyggsm|Bl
Krydd alskonar.
Sanmgarn.
pppSHBKBRl
Brauða og kökuútsala 1
„Svaninum“
(hornið á Barónsstíff og
Grettisgötu).
Kvensloppar,
Hvensuuntur,
[| Náttföt. M
barna, kvenna or- karla.
Verslunin
Björn Kristiinsson.
lön Björnsson i Go.
Skóli
ísaks lónsonar.
Sími 1224 kl. 6—7.