Morgunblaðið - 18.01.1934, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ*
7
|Smá-augiýsingar|
Ullartreflar á dömur og börn
verða seldir frá 0.90 til 1,50 stk.,
mæstu daga. Sömuleiðis dömupeys-
ur með löngum og stuttum ermum
frá 4.50 stk. Versl. „Dyngja“,
Bankastræti 3.
Sokkarnir, silki og ísgarns, á
1.75 parið, komnir aftur. Binnig
seljum við silkisokka gljáandi og
metsokka frá 1.50 parið, meðan
fcirgðir endast. Versl „Dyngja“.
Corselet frá 2.95, sokkabönd frá
B.75 parið, sokkabandastrengir,
íífstykki, brjóstahaldarar. Versl.
______
Kvenbolir frá 1.75, silkibuxur
frá 2.75. Nokkrir barnabolir seld-
ir ódýrt. Versl. „Dyngja“.
Grólfteppagarn, gólfteppastrammi,
gólfteppaspýtur, gólfteppanálar,
gólfteppamunstur, stór og smá. —
Beta líka verið sýnishorn af vinnu
og tilsögn við ábyrjun teppanna.
Einnig er hægt að hnýta gólfpúða
úr þessu efni. Versl. „Dyngja“,
Bankastræti 3.
Sephyrgarn á 0.06 knekkið. —
Versl. „Dyngja“.
Nýkomið smekklegt úrval af
a i lark j ó I aef num, tískulitir og
gerð. Kjólar saumaðir á fullorðna
«g börn. V^rslun 6. Þórðardóttur,
Vesturgötu 28.
Verulega góður reyktur fiskur
fæst hjá Hafliða. Baldvinssyni,
sími 1456 ' (tvær línur), Saltfisks-
búðinni, Hverfisgötu 62, sími 2098
og planinu við höfnina. — Sími
4402.
Sá, sem í misgripum tók fata-
poka um borð í e.s. „ísland“ í
gærmorgun, er vinsamlega beðinn
að gera aðvart í síma 4120 eða
hjá Benóný Baldvins, Vesturgötu
€6. —
Hafnfirðingar. Byrja hannyrða-
kenslu næstu daga. Sigríður Árna
dóttir, Reykjavíkurveg 8.
Kjötfars og fiskfars heimatilbú-
'ið, fæst daglega á Fríkirkjuvegi
3. Sími 3227. Sent heim.
„Flóra“ hefir aldrei haft jafn-
fjölbreytt úrval af ódýrum túli-
pönum eins og nú. Túlipanarnir
íást einnig í versluninni „Róma“,
Baugaveg 8. Flóra, Vesturgötu 17.
Bími 2039.
Takið eiiir
1 útstillingarglugga okk-
ar er kíkir, þar sem þjer
getið sjeð í, hvort þjer
hafið byggingargalla á
auga yðar, og hvort þjer
eruð fjarsýnn eða nær-
•sýnn. Hjá kíkinum er
spjald, þar sem þjer get-
ið lesið hvað að auganu
er. „Expert“ okkar fram-
kvæmir daglega ókeypis
rannsókn á sjónstyrk-
leika augnanna. — Við-
talstími frá kl. 10—12 og
F. H Thíele
Austurstræti 20.
!)ýi mætir. gimsteinar
fundnir.
London 17. jan. F. Ú.
Fregn frá Pretoria segir frá
því, að nú hafi fundist 2. mjög
stórir demantar nálægt Jaegers-
fontain, næstum því á sama stað
þar sem Cullinan, demanturinn,
fanst árið 1905. Annár þessara
nýfundnu demanta er 726 karat
og hinn 300, og báðir eru þeir
sagðir skírir og gallalausir gim-
steinar ,og halda menn, að þeir
sjeu partar úr Cnllinan gimsten-
num, því þegar hann fanst var
talið, að partar hefðu brotnað
úr honum.
Rottur valda húsbruna.
Kalundborg 17. jan. F. Ú.
Það hefir nú komið í ljós, við
rannsókn, að rottur og mýs hafa
orðið valdar að húsbruna í Dan-
mörku, sem menn heldu áður að
orðið hefði af manna völdum.
Þær höfðu etið sundur veggina
meðfram hitapípum, og jafn-
framt hafði safnast þar eftir
þær ýmislegt smá rusl, sem
kviknaði í af hitanum frá píp-
unum.
Fárviðri og sjávarflóð við
Skotland.
London 17. jan. F. Ú.
Á vesturströnd Skotlands
geysaði fárviðri síðastliðna nótt.
Sjór gekk upp í ána Clyde, svo
að flæddi yfir bæinn Renfrew.
Með fjörunni barst flóðaldan
frá aftur, en menn eru hræddir
um ný áföll með ílóðinu. Flóð-
aldan og rokið ollu talsvert
miklu tjóni.
Mannskaðar og stórtjón af
jarðskjálftum í Indlandi.
London 17. jan. F. Ú.
(Kalundborg).
Nýjar frjettir eru nú komnar
af landskjálftunum á Indlandi.
Manntjón og eignatjón er nú tal
ið miklu meira en gert var ráð
fyrir í upphafi í norðanverðu
Biharx hjeraði sjerstaklega, en
úr ýmsum hjeruðum er enn ó-
frjett, vegna þess, að samgöng-
ur við þau hafa tepst.
Því hefir verið lýst yfir, að
ferðalög um sum svæði í Austur-
Bengal sjeu ekki hættulaus,
vegna þess, að vegir og brýr
hafa víða farið úr skorðum
vegna landsskjálftanna.
Sumar fregnir segja, að mann-
tjónið hafi verið mjög ógurlegt,
og einn bær að minsta kosti hafi
hrunið gersamlega til grunna,
og líkin liggi í hundraðatali á
götunum.
Það er einnig sagt, að mörg
klaustur Buddhatrúarmanna,
um þessar slóðir, hafi eyðilagst
mjög.
Sumir telja þó, að of mikið
sje gert úr landskjálftatjóninu í
þessum síðustu frjettum.
C-listinn er listi Sjálfstæð-
isflokksins.
Kjósið C-listann!
Dagbók.
□ Edda 59341207 = 2.
Veðrið (miðvikudagskv. kl. 5):
Djúp lægð um Hjaltlandseyjar
veldur V-hvassviðri um Bretlands-
eyjar, en NA-hvassviðri í Færeyj-
um. Hjer á landi er vindur hægur
NA á SV-landi, en allhvass A og
snjókoma í útsveitum norðan
lands. —Lægðin mun færast norð-
austur með vesturströnd Noregs
og valda NA-átt hjer á landi fyrst
um sinn.
Veðurútlit í Rvík í dag: NA-
kaldi. Úrkomulaust. Nokkurt frost.
Útvarpið í dag: 10.00 Veður-
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 15.00
Veðurfregnir. 19.00 Tónl'eikar.
19.10 Veðurfregnir. 19.20 Tilkynn-
ingar. — Tónleikar. 19.30 Lesin
dagskrá næstu viku. —- Tónleikar.
19.55 Auglýsingar. 20.00 Klukku-
sláttur. Fr jettir. 20.30 Erindi:
Mildir vetur (Jón Eyþórsson).
21.00 Tónleikar (Útvarpshljóm-
sveitin). Einsöngur (María Mark-
an). Danslög.
C-listinn er listi Sjálfstæð-
isflokksins.
K. F. U. M. A.—D. fundur í
kvöld. Síra Bjarni Jónsson talar.
Trúlofun Fjólu Breiðfjörð og
Gísla Guðmundssonar matsveins á
Dettifossi, er birtist í blaðinu fyrir
skemstu, hefir reynst röng.
Hjeraðslæknirinn biður þess get-
ið, að gefnu tilefni að það er mjög
áríðandi að fólk leyni ekki ef það
hefir grun um skarlatssótt á heim-
ili sínu. Allar sóttvarnir eru ó-
framkvæmanlegar í þessu efni, ef
fólkið vill ekki aðstoð læknanna.
Kjósið C-listann!
Breiðfirðingamót fyrir Snæfells-
nes-, Hnappadals-. Dala- og Borg-
arfjarðarsýslur verður haldið
fyrsta þorradag 19. þ. m. að Hótel
Borg.
í dag kl. 6 flytur Magnús Magn-
ússon erindi í Varðarhúsinu.
Eimskip. Gullfoss fer til Breiða-
f jarðar og Vestfjarða í kvöld kl.
10. Goðafoss og Lagarfoss eru í
Kaupmannahöfn. Brúarfoss var á
Rakkafirði í gærmorgun. Dettifoss
er í Reykjavík. Selfoss fór frá
Hull í gærmorgun.
Grímudansleik heldur Vestur-
bæjarkhxbburinn í K. R.-húsinu á
laugardaginn.
C-listinn er listi Sjálfstæð-
Isflokksins.
Breyting á bylgjulengd. í dag
byrjar útvarpið að senda út á
hinni nýju bylgjulengd, 1639 metr
xxm. -—
Kiósið C-listann!
Einkasíma er í ráði að leggja
um Mosfellssveit og verður aðal-
stöðin að Brúarlandi. Búist er við
að lokið verði við að leggja sím-
ann um sveitina næsta vor.
íslandið fer hjeðan í kvöld kl.
8 til Kaupmannahafnar um Vest-
mannaeyjar og Thorshavn.
Lyra fer frá Noregi í kvöld kl.
10 áleiðis hingað.
Esja var í Flatey í gær.
fafisksala. Sindri seldi í Grims-
by í gær, 60 smálestir af bátafiski
frá ísafirði fyrir 1410 stpd. Mark-
ham Cook sá um söluna.
Kjósið C-listann!
Togararnir. Þórólfur og Valpole
fóru til Englands í fyrrinótt með
mikinn fisk, en frá Englandi komu
Max Pemberton og Bragi.
Björgunarskipið breska, sem fór
austur á mánud. til þess að reyna
að ná xxt togaranxim „Margaret
Clark“, kom hingað aftur í gær-
morgxxn til þess að fá sjer kol.
Hefir það lítið getað aðhafst fyrir
austan sökum óhagstæðs veðurs.
AVEXXIR
nýkomnir
APPELSÍNUR „Jaffa“ Í44.
do. „Valencia“ 240-300
EPLI „Wínesaps“.
GRAPEFRUIT.
SÍTRÓNUR.
LAUKUR
Sínii í-2-3-4.
Þýskur togari, Claus Bolten,
kom hingað í fyi'radag með ýmsan
útbúnað í togarann Neufundland,
sem hefir legið hjer í Slippnum
til viðgerðar, og nokkra menn til
viðbótar við skipshöfn togarans.
Heimatrúboð leikmanna, Vatns-
stíg 3. Samkoma í kvöld kl. 8.
Allir velkomnir.
Verslunarmannafjelag Reykja-
víkur hefir bókaútlán og spila-
kvöld í Oddfellowhúsinu kl. 8y2
í kvöld.
Kjósið C-Iistann!
Danir og Þjóðverjar byrja inn-
an skamms á því að semja um
ýms viðskifta- og fjárhagsmál og
er búist við því að samningaum-
leitanir hefjist í Berlín í þessari
viku. (Sendiherrafrjett).
Poul og Anna Borg Reumert
byrjuðxx á þriðjudaginn að leika
sem gestir í „Casino“ leikritið
„Aldrig et Kys“. Poul Reumert
leikur hlutverk föðursins í leikn-
um en Anna Borg leikur hlutverk
dótturinnar. Fyrsta sýningin varð
stórsigur fyrir leiklist þeirra. —
(Sendihei’rafrjett).
Tímaritstjórinn Gísli Guðmunds
son talaði síðastur fyrir hönd
Fi’axhsóknarmanna í útvarpið í
gærkvöldi. Þótti merkilegt, að
þessi málsvari hinna ófrómu skyldi
líka láta sig muna um að hnupla
til sín 5 mínútna lengri ræðutíma,
en honum bar.
C-iistinn er listi Sjálfstæð-
Isflokksins.
Útvarpsumræðurnar um bæjar-
mál. í' gær var Framsóknarmaður
einn spurður að því, hvaða Fram-
sóknarmenn ættu að tala í útvarp
þá uni kvöldið. Framsóknarmaður-
inn var daufur í dálkinn og bað
spyrjanda að tala sem minst um
útvarpsumræðjirnar, þvi enginn
flokkur hefði gagn af þeim. nema
Sjálfstæðismenn.
Kjósið C-listann!
Næturvörður verður í nótt í
Reykjavíkur Apóteki og Lyfja-
bxxðinni Iðunn.
C-listinn er listi Sjálfstæð-
isf lokksins..
Flýgur rjúpan til Grænlands?
Ut af hinu óskiljanlega hvarfi
rjúpunnar með nokkurra ára milli
bili, hefir mörgum komið til hug-
ar að hún muni flytja sig búferl-
um til Grænlands, og hafa ýmsar
athuganir fremur stutt þá skoðun.
Nú í seinasta „Náttúrufræðing“
segir Jón Guðlaugsson svo frá:
Um miðjan desember 1919 var jeg
staddur á Hellisheiði vestanvert
við Skálafell. Það var frost og
talsverður snjór. Jeg heyri vængja
þyt yfir mjer, og sje hátt uppi
BORÐ, allar tegundir.
STÓLAR, margar tegundir.
DfVANAR, allar tegundir.
Ódýrast í bænum.
Htisgagnaverslanín
víð Dómkírkjtma.
(Clausensbræður).
Veitíð því
athygíí
hve fægingin er
skínandi björt og
endingargóð úr
Fjallkontt-
fægííeginttm.
Þeir, sem einu
sinni liafa notað
Fjallkonu fægi-
löginn, dást að
þessum kostum
hans.
fl.l. Efnagerð Reykjavíknr
rjúpnahóp, á að giska 1000—1500.
Jeg hefi aldrei sjeð rjúpur fljúga
eins hátt eins og þessi hópur gerði.
Þær komu austan að og heldu í
útnorður. Jeg horfði á eftir hópn-
um eins lengi og jeg sá til þeirra
og þær lækkuðu ekkert flugið.
Iðnaðarmenn!
Minnist þess, að Sjálfstæðis-
flokkurinn er eini flokkurinn, er
hefir uppfylt óskir ykkar og sett
menn úr ykkar stjett á sinn lista.
Kjósið því
C-listann!
Danskt Nazistablað upptækt.
Kalundborg 17. jan. F. Ú.
Lögreglustjórinn í Kaup-
mannahöfn gerði í dag upptækt
blað Nazista, ,,Angreb“, vegna
svæsinna persónulegra árása,
sem í því voru á Stauning for-
sætsiráðherra.