Morgunblaðið - 07.02.1934, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
7
| ^ma-auglysingarj
Herbergi óskast til leigu nú
]jegar, sje á neðstu hæð. A. S. í.
rísar á.
Góð stúlka óskast strax á Hótel
Bjöminn. Gott kaup, sími 9292.
Tapast hefir gullarmbandskeðja
— Finnandi vinsamlega beðinn að
skila henni á A. S. í. Fundarlaun.
Flóra, Vesturgötu 17, sími 2039.
Höfum daglega nýja túlipana í
mörgum litum og mismunandi
verði. Fyrstu páskaliljumar eru
einnig komnar. Ennfremur höfum
við fengið hinar mjög eftirspurðu
prímúlur, blómstrandi í pottum.
Kiansar ávalt fyrirliggjandi og
búnir til úr lifandi blómum með
stuttum fyrirvara. Flóra.
MorgunblaSið fæst í Café
Svanur við Barónsstíg og Grett-
fegðtu.
Sparið yður að kaupa smurt
brauð. Kaupið heldur bókina
„Kaldir rjettir og smurt brauð“,
eftir Helgu Sigurðardóttur, og
smyrjið brauðið sjálfar.
Trillubátur, 25 fet á lengd, Ford
vjel, til sölu, tækifærisverð. Uppl.
gefur Sturlaugur Sigurðsson,
Hringbraut 186.
Ódiýrt
hveiti, Alexandra,
í 50 kg. sekkjum á 13.35.
í smápokum, mjög ódýrt. Enn-
fremur íslenskt bændasmjör, ísl.
®g útlend egg; ódýrast í
Versl fii'rninn.
Kfúpur.
Norðlenskt. dilkakjöt, hangikjöt.
islenskt smjör, egg og margt og
margt fleira.
Jóhannes Jóhannsson
Grundarstíg 2. Sími 4131.
ffýjar vsru :
Blómaborð frá 3,50.
Beddar 22 krónur.
Divanar 35 krónur.
Komið beint til okkar!
Ódýrast í bænum.
Húsgagnaverslunin
við Oúmkihtiona.
(Clausensbræður)
Skjaldarglíma
Ármanns.
Lárus Salómonsson vinnur
skjöldinn til eignar.
Þeir urðu aðeins 7, sem tóku
þátt í 22. skjaldarglímu Ármanns
í gærkvöldi. Einn gekk úr leik,
Jóhannes Bjarnason (K. R.)
Úrslit urðu þau, að Lárus Saló-
monsson lagði alla keppinautana
sex og vann þar með Ármanns-
skjöldinn. Hafði hann tvisvar
unnið ha.nn áður, og fekk hann
því níí til eignar. Er þetta fjórði
Ármannsskjöldurinn, sem unninn
er til eignar. Tvo þá fyrstu á Sig-
urjón_ Pjetursson, og þann þriðja
Sigurður Thorarensen.
Þrír menn urðu jafnir í glím-
unni með 4 vinninga hver: Ágúst
Kristjánsson (Á), Georg Þorsteins
son (Á) og Ingimundur Guð-
mundsson (KR). Leo Sveinsson
(Á) hafði 2 vinninga, Jóhann Ing-
varsson (KR) 1 vinning, en Ágúst
Sigurðsson (KR) engan vinning.
Glíman var ekki skemtileg, of
fábreytt og of mikill munur
manna á vöxt og afl. K. R. menn
glímdu ekki eins vel og Ármenn-
ingar og hafa alt annað glímu-
lag.------
Fegurðarglímuverðlaunin, bik-
ar, voru dæmd Ágúst Kristjáns-
syni.
v
Að glímunni lokinni afhenti
Ben. G. Waage, forseti f. S. í.,
verðlaunin og bað menn síðan
lirópa ferfalt húrra fyrir íslensku
glímunni og glímumönnunum og
gerðu á.horfendur það svo hressi-
lega, að húsið skalf við. Voru
áliorfendur og eins margir og hús-
ið gat framast rúmað.
bláar, brúnar Emaile vörur
fást bestar í
Qagbók.
I.O.O.F. 11527. Spilakvöld. Þátt-
takendur í borðhaldi tilkynni veit-
ingamanni fyrir kl. 4.
Veðrið í gær: f dag hefir lægð-
armiðja hreyfst austur yfir sunn-
anvert landið. Byrjaði því með
SA-átt og bleytuhríð um alt land
en er nú gengin upp í N-átt. —
Sumstaðar vestan lands er vindnr
hvass N, en mun brátt lygna. Ný
lægð er við S-Grænland og hreyf-
ist. hún aust.ur eftir. Útlit er fyrir
að V-áttin víki nú um stund fyrir
A og N-áttum.
Veðurútlit í dag: N-gola. TTr-
komulaust. Gengur sennilega í
SA-átt með kvöldinu.
Útvarpið í dag: 10,00 Veður-
fregnir. 12,15 Hádegisútvarp.
15,00 Veðurfregnir. 18,45 Háskóla
fyrirlestur: Sálarlíf harna og nng-
linga (Ágúst H. Bjarnason). 19,00
Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir.
19,20 Tilkvnningar. Tónleikar.
19,30 Tónlistarfræðsla (E. Th.).
19,55 Auglýsingar. 20.00 Klukku-
slátt.ur. Frjettir. 20,30 Erindi:
Landfræði dýraríkisins, IV. (Árni
Friðriksson). 21,00 Tónleikar: —
a) Fiðlu-sóló (Þór. Guðmundsson)
b) . Grammófónn: Raehmaninoff:
Piano-konsert (Salomon & Hallé
orkestrið). Sálmur.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ:
Frá Jónasi Hjerónýmussyni til
minningar um Hjerónýmus Gísla-
son og Ingibjörgu Björnsdóttur,
50 kr. Bestu þakkir. Ásm. Gests-
son.
Togararnir: Gyllir kom frá Eng-
landi í fvrrinótt og Hilmir í gær.
Næsti háskólafyrirlestur próf.
dr. Ágústs H. Bjarnasonar nm sál-
arlíf barna og unglinga, verðnr
fluttur í kvöld kl. 6 í háskólanum.
Öllnm er heimill aðgangur.
fsfisksala. Karlsefni seldi báta-
fisk frá ísafirði, um 100 smál.,
í Grimsby í gær og fyrradag fyrir
1602 sterlingspund.
Pietur Jónsson skemti sjúkling-
um á Vífilsstöðum með söng á
sunnudaginn var, en Emil Thor-
oddsen ljek undir. Hafa sjúkling-
ar beðið blaðið að færa þeim
þakkir fyrir komuna.
Allmörg þýsk blöð hafa sagt frá
jólasamkomunni, sem útlendum
sjómönnúm var haldin hjer í Rvík
á jóladaginn, og minningarathöfn-
inni, sem fór fram í dómkirkjunni
á annan í jólum, yfir kistnm
Þjóðverjanna tveggja, sem drukn-
uðu af „Consul Dnbbers“. Myndin,
sem Magniis Ólafsson tók þá í
dómkirkjunni, og sýnd var í
glugga Morgunblaðsins birtist líka
í blöðunum.
Mentamál. Stjórn kennarasam-
bandsins tók við útgáfu „Menta-
mála“ um seinnstu áramót. Hefir
verið valin ritnefnd til eins árs
og eru í henni Aðalsteinn Eiríks-
son, Jónas Jósteinsson og Siríðnr
Magmisdóttir, kennarar í Revkja-
vík. Enn er þó ekki ráðið hver
skipan verður á um útgáfu ritsins
framvegis. Hefir það komið til
orða, að það verði gefið út sem
sjálfstæður hlutnr eða bálkur í
nýjn tímatali, sem ráðgert er að
hefji göngu sína innan skamms.
Skákþing Reykjavíkur hófst, á
mánudaginn var.Þátttakendur ern
5 í meistaraflokki þeir Eggert
Gilfer, Steingr. Guðmundsson, Jón
Guðmundsson, Baldur Möller og
Sigurður Jónsson. í 1. flokki eru
líka 5, þeir Bjarni Aðalbjarnarson,
Sigurður Halldórsson, Stnrla Pjet-
ursson, Margeir Sigurjónsson og
Benedikt Jóhannsson. í 2. flokki
eru 16 þátttakendnr og honum
því tvískift. Fyrsta kvöldið fóru
leikar svo, í meistaraflokki, að
Jón Gnðmundsson vann Baldur
Möller og Sigurður Jónsson vann
Steingr. Guðmundsson. T 1. fl.
Sigurður Halldórsson vann Bene-
dikt Jóhannsson og Margeir Sig-
urjónsson vann Sturla. Pjetursson.
t kvöld kl. 8 verður 3. umferð í
Oddfjelagahúsinu uppi, en 4. um-
ferð verður á föstudaginn á sama
stað og tíma.
Enskur togari kom hingað í gær
til þess að fá sjer vat.n og vistir.
Hjálparstöð Líknar fvrir berkla
veika, Bárugötu 2 (gengið inn
frá Garðastræti 3. dvr t. v.) —
Læknirinn viðstaddur á mánudög-
um og miðvikudögum kl. 3—4 og
föstudaga kl. 5—6.
Lyra fór frá Vestmannaeyjum
kl. 5 í gær, var væntanleg hingað
t nótt.
„Maður og kona“. Alþýðnsjón-
leikurinn „Maður og kona“ verð-
nr sýndnr annað kvöld. — Á
sunnudaginn var voru tvær sýn-
ingar á leiknum og útselt á báðar.
Iðna.ðarmannfjelag Reykjavíkur
lieldur fund annað kvöld.
Aðalfundur Kvennadeildar Slysa
varnafjelags tslands' í Reykjavík,'
er í kviild kl. 814 ' Oddfjelaga-
húsinu.
Eimskip: Gullfoss fór frá Kaup-
mannahöfn í gær. Goðafoss fer
vestur og norður í kvöld. Brúar-
foss kemur hingað í dag. Detti-
foss fór frá TIull í gær á leið til
Hamborgar. Lagarfoss var í Ólafs-
vík í gær. Selfoss kom til Ant-
yerpen í .fyrradag.
Frá skattstofunni. Sjerstök at-
hygli skal vakin á anglýsingu
skattstofunnar í blaðinu í dag.
)) HaTmH & Olsem ((1Í
Allir
ættu að reyna
99
Primula
éé suðusúkkulaði
með v a n í I j a
er ný súkkulaði tegund, sem komin er á markaðinn. —
„Primula“ pakkinn, sem er y2 pund (250 gr.) á þyngd,
kostar í búðum aðeins 1 kr.
Ba 1 1 saðtísákkaíaðí
^ “ með vanilja
er einnig að koma á markaðinn. „Bella“ er í minni pakkn-
ingu en „Primula“, og kostar í búðum að eins 85 aura
pakkinn.
Húsmæður, reynið þessar nýju súkkulaði tegundir
sem fást nú í mörgum matvörubúðum bæjarins, og strax
sem hægt verður að fullnægja eftirspurninni, geta þær
verið til í öllum matvöruverslunum.
H.f. Efnagerð lleykfavíkur.
Huselgnin i HalnarsM 98
*
(núverandi Hótel „Akureyri“ og Kaffi ,,Herðubreið“).
er til leigu frá 14. maí n. k. sem veitinga eða verslunar-
hús. Húseignin liggur við alfjölfömustu götu bæjarins,
meðal hinna stærstu verslunarhúsa.
Semja ber við undirritaðan eiganda hússins, sem
gefur allar nánari upplýsingar.
Sig. Bjarnson,
fá \
Túngötu 1. Akureyri.
Timbupwerslun
P. W. Jaeobsen & SSn.
Stofnud 1824.
Sfmnefnit Granfuru — Carl-Lundsgade, KSbanhawn C.
Selttr timbur í stærri og smærri sendingum frá Kaupmhöfn.
Eik til skipasmiða. — Eixmig heila skipsfarma frá SviþjóS.
Hefi verslað við ísland í 80 ár.
::
••
••
::
• •
::
• •
• •
::
»•
••
• •
::
::
• e
••
Fimtugsafmæli átti í gær frú
Guðrún Kristjánsdóttir, Sjafnar-
götn 6.
Einar Carlsson, húsgagnasmíða-
j meistari og frú hans, Margrethe,
hafa orðið fyrir þeirri sorg, að
j missa einkabarn sitt, dreng á öðrn
ári. Fara hjónin utan á fimtu-
j daginn og verður drengurinn jarð
settur frá heimili foreldra frri-
arinnar í Kaupmanahöfn. Kveðju-
athöfn fer fram frá heimili þeirra
Leifsgötu 23, fimtudaginn 8. þ.
m. kl. 1 e. h.
Esja fór frá Yestmannaeyjum
í gærmorgun.
Uinferðarslys í Englandi.
1 Aldrei hafa á einu ári orðið
jafn mörg umferðarslys í Eng-
landi eins og árið sem leið. 7125
menn biðu bana af slysum (6667
árið áður) og 216.000 slösuðust
meira og minna (206 þús. árið
áður). I London eru t.il jafnaðar
162 umferðarslvs á dasr.