Morgunblaðið - 17.05.1934, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 17.05.1934, Qupperneq 2
2 MOKGUNHI, A f'* T fi Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Rltstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefá-nason. Rltstjórn og afgrrelOsla: Austurstrætt 8. — f^mt 1800. Augrlýsíngastjóri: E. Hafberg. Auglýsingaskrifstofa: Austurstræti 17. — Stsii 8700. Heimasímar: Jón Kjartan8Son nr. 8742. Valtýr Stefánsson nr. 4220. Árni Ófa nr. 8045. E. Kafberg nr. 8770. Áakriftagjald: Innanlands kr. 2.00 á mánutU. Utanlands kr. 2.50 á mánuði í lausasölu 10 aura eintakiö, 20 aura metS Lesbök. Landhelgissjóður. Grein sú, sem Magnús Guð- mundsson dómsmálaráðlierra skrif aði h,jer í blaðið, um landhelgis- gæsluna og meðferð Jónasar frá Hriflu á Landhelgissjóði, mun á- reiðanlega vekja mikla athvgli um 3and alt. M. G. upplýsir, að Landhelgis- sjóður hafi átt 1% miljón króna í liandbæru fje, þegar Jónas frá Hriflu tók við yfirstjórn land- helgisvarnanna síðla árs 1927. Jónas hafði yfirstjórn þessara mála í nál. 5 ár. Þegar hann skil- aði af sjer var ekki eyrir tái í Landhelgissjóði. Alt var upp eúð Ma gnús Guðmundsson bregður upp myndum af því, hvemig -rón- as frá Hriflu fór með Landhel. - issjóð. Þau 5 ár, sem J. J. sat við völd hafði hann eytt hálega 111.000.00 — eitt hundrað og eU-. efu þúsundum króna — úr Land- lielgissjóði í bílakostna'ð, hesta- hald og risnu, Verður það rúm- lega 22 þús. kr. á ári, eða yfir 60 kr. á dag, allan tímann! Landhelgissjóður var stofnað- ur í alveg ákveðnum tilgangi. Var svo ákveðið, að sektarfje, sem inn kaémi fyrir landhelgisbrot, sk.vhii renna í sjerstakan sjóð, Landhelgissjóð, og’ honum síðan varið til eflingar landhelgisgæsl- unni. Landhelgissjóður var stofn- aður með sjerstökum lögum. Váfalaust skilja það allir, að bílahald, hestahald og risna ráðherra getur undir eng- um kringumstæðum verið til eflingar landhelgisgæslunni. — Það er því ekki minsti vafi á, að meðferð Jónasar frá Hrflu á Landhelgissjóði er óleyfileg og vaiðar við lög. Þegar Jónas frá Hriflu settist í valdastólinn, lýsti hann því há- tíðlega yfir, að liann gæti með engú móti fengið sig til, að taka tvíborguð laun frá landinu, til eigin þarfa. Þess vegna tilkynti hann þá alþjóð, að hann gæfi Bún- aðarfjelagi íslands bankaráðslaun sín, er nota skyldi til sjóðsmynd- unar, -til styrktar einyrk.jabúskap í íandinu. Reyndar er nú upplýst, að þetta gjafafje Jónasar hefir aldrei í vörslu Búnaðarf jelagsins komið; hann mun hafa notað fjeð til eigin þarfa. En þegar almenningur fer að kynnast meðferð • Jónasar frá Hriflu á Landhelgissjóði, þarf engan að undra, þótt þessi maður þæt.tist hafa rá.ð á að ,,gefa“ nokkrar krónur á ári. Sundkenslu hyrja þeir Vignir Andrjesson og' Júiíus Magnússon í skólasumllanginni á þriðjudag- inn kemur. Al|»ý!Bii&aiinlbas£tf3ið „fiilkynnir" os„aðvarar‘' „ríkf^ Jóns Baldwins- soiiétr fiannar §klpaútgerð rikisins að flytfa efni i rikSsvegi. erlösl i lieltlandi. Sljórnninálnflokkar bnnnaðSir. Jafnaðarmenn teknir fastir. Blaðið’ hefir haft tal af Pálrna Loftssyni framkvæmdarstj. Skipa- útgerðar ríkisins til að fá hjá hon- um aö vita, hver afskifti Alþýðu- sambands íslands hafa verið af Skipaútgerðinni, vegna flutninga- bannsins á vegagerðarvörum. Eins og kunnugt er, hefir Al- þýðusambandið með venjulegu of- beldi sínu girt fyrir flutninga alla frá vegag'erð ríkisins, svo hjer liggur nú brúarefni og áhöld, sem átti að vera komið út um land. Framkvæmdastjórinn segir svo frá: IJpphaf málsins er það, að stjórn Alþýðusambands Islands fer fram á það við verkamannafjelag- ið Dagstirún, að engir fjelags- menn þess fjelags vinni að út- skipun á brúarefni frá vegagerð ríkisins. Og Dagsbrúnarstjórnin felst vitanlega á það. Skipaiitgerð ríkisins var tilkynt þessi málaleitun með svohljóðandi brjefi frá Alþýðusambandi ts- lands, sem dagsett er 2. maí: Hjer með tiLkynníst afgreiðslu Skipaútgerðar ríkisins, að við höfiun farið fram á það við verkamaxmafjelagið Dagsbrún, að stöðvuð verði útskipun á brúar- efni, sem fara á til Víkur í Mýr- dal með Skaftfellingi í dag, ' En ástæðan til stöðvunarinnar er sú, að eigi hefir náðst sam- komulag við ríkissjóð (atvinnu- málaráðherra) um kaupgjald í op- inberri vinnu. F.b. Alþýðusambancls íslands Jón Baldvinsson. Skipaútgerðin svaraði ekki þessu brjefi, og gerði vitaskuld engar ráðstafanir til að tefja flut.ning á umræddu eíni. En verkamenn þeir. er við af- greiðsluna unnu ,neituðu að leggja hönd að því að flvtja fram efnið. Og við það sat. Dagsbrún tilkynnir: Viku seinna. þ. 9. maí fekk skipaútgerðin svohljóðandi brjef frá verkamanliaf jelaginu Dags- brún : Vegna deilu Alþýðusambandsins við ríkisstjórnina út af kaupi og kjörum í opinberri vinr.u, er mönn um, sem eru í verkamannafjelag- inu Dagsbrún óheimilt að vinna að útskipun á vörum til brúar- gerða ríkissjóðs, uns deilan er leyst. Þetta tilkynnist yður hjer með. Verkamannafjelagið Dagsbrún. Sigurður Guðmundsson. Þá nær bannið ekki aðeins til Skaftfellinga, heldur til allra sem brúarefni eiga að fá. Slcipaútg'erðin svaraði ekki þess- ari tilkynningu. Dagsbrún fikrar sig npp á skaftið. Þegar Esja fór hjeðan þ. 12. maí, átti hún að taka á.höld og brúarefni fvrir vegagerð ríkisins. En þegar að því kom. neituðu verkameun. að taka vörur þessai; út í skipið. Sams dag f'jekk skipaútgerðin eftirfarandi tfjkynningu frá Dags- brún: Þrátt fyrir gefna aðvörun um að elt efni til brúar og vega gerða ríkissjóðs megi ekki af- greiðast af mönnum, sem eru í verkamannafjelaginu Dagstirún, þá höfum við orðið þess varir, að vörum íil vegagerða ríkissjóðs hefir verið skipað um borð í Esju. Lýsum við hjer með yfir, að bannið nær til allra flutninga til- heyrandi bráa- og vegagerðum hvert á land sem er. Verkamannaí j elagið Dagsbrún. Sigurðnr Guðmundsson. Að lokum ;sagði framkvæmda- stjórinn, að verkamenn þeir. sem ynnu við afgreiðsluna, þektu úr efni vegagerðárinnar, og gætu.því sjeð, hvað það væri, sem Dags- brún baimar Jieim að snerta. En til frekari fullvissu. sagði hanri að Dagsbrún hefði vörð á bryggjunum til þess að sjá um, að þetta aJlsherjar flutnihgabann á ýöpúm vegag-erðárinnar nái fram að ganga. Berlín 16.'maí. FÚ. Stjórnin í Lettlandi hefir geí- ið út opinbera yfirlýsingu um að sökum hættu á innanlandsróst-l um, og vegna öryggis íbúanna, skuli næstu sex mánuði ríkja um sátursástand í landinu. í nót^ voru jafnaðarmaðurinn Kalny, forseti Iettneska þingsins, og son ur hans Bruno Kalny, alþektur jafnaðarmaður, settur í fangelsi. Herlið var látið taka Alþýðuhús- ið 1 Ríga á sitt vald, og var þar dreginn við hún rauði og hvíti ríkisfáninn, í stað rauða fánans. Herlið hefir verið sett í allar opinberar byggingar, þinghúsið,! járnbrautarstöðvar og pósthús. Mjög mikið herlið hefir verið ! dregið saman í Ríga, og eru göt- urnar fullar af hermönnum. —* Einnig sjást þar brynvarðir vagnar og vjelbyssur, London 16. maí. FÚ. — Fundarhöld hafa verið bönnuð í LeUIandi, og kröfugöngur. Svo er að sjá, sem þessum ráðstöfunum stjórnar- innar sje beint gegn báðum þeim flokkum, sem lengst fara til hægri og vinstri ogýmsir leiðtog- ar þeirra hafa verið handteknir. Tuttugu blöð jafnaðarmanna hafa verið gerð upptæk og einn ig ýrns af blöðum hægriflokks- ins, sem lengst ganga og þau, sem út fá að kopia,: eru gefin ut undir eftirliti herstjórnarinn- ár, 1 i LO "• Stjórnin hefir skýit frá því, að hún hafi neyðst til þess ,að grípa til þessara ráða, til þess að koma í veg fyrir almenna upp reisn, því að hægri flokkarnir hafi undirbúið byltingu, ea yinstri flokkarnir hótað allsherj arverkfalli. Ýmsar breytingar verða gerð- ar á stjórninni og er búist við því, að það verði tilkynt í dag hverjir eiga sæti í nýju stjórn- inni. Riga, FB 16. maí. Herlög eru gengin í gildi uni gervalt Lettland og tilkynt, að þingið starfi ekki fyrst um sinn. Starfsemi stjórnmálaflokka hef ir verið bönnuð, a.m.k. um stund arsakir. (U. P.) Nýr Indlandsjarl. London 16. maí. FÚ. Inclverska stjórnin hefir til- kynt, að Sir George' Stanley, landstjóri í Madras, verði settur varakonungur í Indlandi meðan Willingdon lávarður og frú hans, eru fjarverandi. Willing- donhjónin fóru frá índlandi í morgun í flugvjel og verða í 3 mánuði í orlofi í Evrópu. WiÍísfci.fíasfráfS ISrela ©jg Japana, "Japanskir stjórnmálamenn í verksmiðju í Tókíó að skoða sijki og bómullarvörur, sem ætlaðar eru til útflutnings. 1 London 16. maí. FÚ. Talsmaður japanska utanríkis ráðuneytisins lýsti yfir afdrátt- arlaust í dag, að Mr. Matsud- ara, sendihérra Japana í London hefði verið gefin skipun um það, að fara þess á leit við bresku stjórnina, uð hún drági úr inn- flutningshömlum þeim, sem hún hefir sett á japanskar vefnaðar- vörur. Enn fremúF-hfefir sendíT herranum verið falið að móti inæla höftunum í heild simii, vegna þess, að þau sjeu skerðiúg á þeirn rjetti til bestu kjara í viðskiftum, sem Japanar eiga. að njóta í Englandi samkværht samningum ríkjanna. ,,Við munum einnig fara frátr á það“, sagði fulltrúi utanríkífe- ráðuneytisins enn fremur, ,,að ekki verði hert á hömlunum fram úr því, sem nú er orðið, ineð því að láta þær ná til fleiri VöVutegunda, en baðmullar og áilkis.“ ’ Jafnframt er bresku stjórn- inni tilkynt það, að Japanar sjeu reiðubúnir til þess' að taka upp 'Sámninga um öll þessi viðskifta- mál og haftamál, ef Bretar vilji.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.