Morgunblaðið - 21.03.1935, Page 7
Fimtudaginn 21. mars 1935.
MORGUNBLAÐIÐ
H
□agbok.
I. O. O. F. 5 = 11632187» = 9. 0
Veðrið. Skamt suður af Reykja-
nesi er alldjúp lægðarmiðja sem
að öllum líkindum þokast norð-
vestur fyrir Reykjanes í nótt. Má
búast við að hún valdi' fyrst A-
stormi við SV-ströndina en lygn-
andi SA-átt á morgun. f útsveit-
um norðanlands er A-hvassviðri og
dálítil snjókoma. Hiti er þar um
frostmark.
Veðurútlit í Rvík í dag: Stinn-
Ingskaldi á SA. Rigning öðru
hvoru.
Sjálfstæðismenn. Kjósið í
dag í útvarpsráð!
Tveir menn í útvarpsráð er
kjörorð Sjálfstæðismanna.
Dánarfregn. í gærmorgun ki. 7
andaðist að heimili sínu hjer í
bænum, Björn Sigurbjörnsson,
umsjónarmaður Landspítalans. —
Hann varð bráðkvaddur. Hann
hafði verið umsjónarmaður spítal-
ans frá því hann tók td starfa.
Aðalfundur Bókbindarafjelags
Reykjavíkur var haldinn í fyrra-
kvöld. 1 stjórn fjelagsins voru
kosnir Jens Guðbjörnsson, form.,
Guðgeir Jónsson gjaldkeri og
-Sveinbjörn Arinbjarnar ritari.
Útvarpsnotendur. Látið ekki
■dragast að kjósa í útvarpsráð,
Reykvíkingar. Munið það, að því
lengra sem líður og nær dregur
lokadegi kosninganna, því erfið-
ara verður að komast að til að
kjósá. Munið það einnig, Reyk-
víkingar, að það er undir ykkur
komið, hvort Magnús Jónsson
prófessor kemst í útvarpsráð, eða
rauðliðar fá þar fulltrúa, sem
þeir annars hafa engin tök á að
koma inn. Fjölmennið því, Reyk-
víkingar, og kjósið B-listann J
Iþróttafjelag kvenna helt árs-
hátíð sína í Oddfellow-liöllinni á
laugardaginn var. Skemtunin
hófst með bofðhaldi. Frk. Þóra
Bjárnadóttir setti skemtiíniua með
fæðu. IJndir borðum ljek Margrjet
Eiríksdóttir nokkur lög á píanó,
en frk. Anna Þófhallsdóttir söng
eiasöng. Þá voru og undir borðum
sungin tvö kvæði, er ein fjelags-
kvenna liafði ort. Eftir borðhaldið
var leikfimisýning telpna, undir
stjóru frk. Unnar Jónsdóttur, liins
‘ótrauða kennara fjelagsins, og
vakt-i sýningin almenua aðdáun
áhorfenda. Að lokum var stiginn
dans lengi nætur, og fór skemtun-
In hið besta fram.
Hjónaband. Síðastliðinn föstu-
tiag, 15. þ. m. voru gefin saman
í hjónaband af síra Bjama Jóns-
syni, Agla Jacobsen, dóttir Egils
heitins Jacobsen og Oddur Guð-
mundsson verslunarmaður, sonur
Cluðmundar Guðfinnssonar læknis.
Saltfiskur. í dag sendir h.f-
Alliance í f jölda margar matvöru
Lúðir í hænum, mðurbrytjaðan
fyrsta flokks saltfisk í nmbúðum.
Er brjefi fyrst vafið utan um fisk-
Inn hreinan, eins og hann getur
bestur og fallegastur verið og síð-
an er pakkanum stungið í pappa-
kassa. Eru 1 og 2 pund fisks í
hverjum kassa. AlHance er nú að
gera tilraunir um að selja þennan
5sk á Norðurlöndum, og er því
áletrun umbúðanna á dönsku fyrst
um sinn, þangað til jjeð verður
hvernig íslenskar húsmæður taka
þessari nýbreytni.
Leikhúsið. í kvöld verður engin
leiksýniftg • í lejkhúsinu sökum æf-
inga á nýýu leikriti, en á sunnudag
verða tvær jsýningar, „Piltur og
st.úlka‘‘ á: nóni. og-,:;..Nanna“ um
kvöldið
Hár aldur systkina. Enn liefir
Morgunblaðið frjett um fimm
systkini, sem Kafa náð óvenju há-
um aldri. Eru það börn Sveins á
Mýrhiisum í Eyrarsveit — öll
fædd þar. Þau eru: Sólveig,
Reykjavíkurveg Hafnarfirði, 85
ára og 77 daga; Sveinn, Gimli,
Kauada, 83 ára og 6 daga Ingi-
björg, Bræðrabst. Rvík, 80 ára og
216 daga; Árni, Laugaveg 79 Rvík
76 ára og 307 daga; Ólína, Mjóstr.
8 Rvík 72 ára og 79 daga. Sam-
tals liafa þau verið í gær 397 ára
og 320 daga.
Togararnir. Arinbjörn hersir,
Snorri goði, Bragi, Kári og Gyllir,
fóru allir á veiðar í gærkveldi.
280 útvarpnotendur kusu í gær
og hafa þá kosið alls 2412, en það
er ekki nema rúmur helmingur af
öUum kjósendum í útvarpsráð.
Austfirðingafjelag. Annað kvöld
(föstudag) kl. 9 stundvíslega verð
ur haldinn fnndur á Skjaldbreíð
til að stofna fjelag Austfirðinga
í Reykjavík. Tilgangur þess er að
efla kynningu og samstarf meðal
Austfirðinga, sem hjer eru búsettir
og sömúleiðis að efla samband við
þá er á Austurlandi búa um menn-
ingar- *g hag^fcunamál f jórðung.s-
ins. — Er fjelagsstofnun þessi und
irbúin af nefnd, sem kosin var á
móti Austfirðinga, er haldið var
á Skjaldbreið, laugardaginn 23.
febr. síðastliðinn.
Hafnfirðingar! Fylgismenn B-
listans við útvarpsráðskosningu,
komið í dag á pósthúsið í Strand-
götu og neytið atkvæðisrjettar
yðar.
Frú Þuríður Erlendsdóttir átti
sjötugsafmæli 17. þ. m. Þann dag
heldu synir hennar, þeir Magnús
Andrjesson, stórkaupinaður í Kaup
mannahöfn, og Bertel Andrjesson,
stýrimaður, henni veislp í Odd-
fellowliúsinu og buðu þangað
ýmsum vinum hennar og vanda-
mönnum. Undir borðum mælti
Pjetur Maguússon, alþingismaður
fyrir minni héiðursgestsins, én
Jóhanues skáld úr Kötlum flutti
henui sujalt kvæði. Heiðursgestur-
iun þakkaði sjálf með snjallri
ræðu. Er staðið var upp frá borð-
um skemtu menn sjer við spil og
samræður, gekk frú Þuríður milli
gestauna,, ræddi við hvern mann,
kát og fjönig, eins og þrítug
stúlka, enda er hún með afbrigð-
urn ungleg, kvik á fæti ög fylgist
vel með Öllu. Samsæti þetta var
liið prýðilegasta, þeim til sóma er
að því stóðu og hinum til ánæg.jþ,
er boðnir voru. —- Frú Þuríður
hefir gengt ýmsum mannúðar og
líknarstörfum um æfina. Hún var
um skeið yfirsetukoua í Borgar-
firði og síðar vökukona um átta
ára bil hjá hjúkrunarfjelagi
Reykjavíkur. Fóru henui öll sín
störf prýðilega úr hendi, Hún er
vinmörg og vel metin af Öllum,'
er henni hafa kynst.
Sjálfstæðismann! Látið ekki
dragast að greiða atkvæði á kjör-
stofu útvarpsins við Lækjartorg
og kjósa B-Iistann.
JarS^iáHtaArygging'aí'. Bæjar-
st.jórn Reykjavíkur hefir nú aug-
lýst eftir tilboðum um tryggingar
á húsnm í bamuni. á tjóni sem
verður af völdum jarðskjálfta.
Umboðsmenn vátryggingarfjelaga
geta fengið upplýsingar á skrif-
stofu borgarstjóra.
Norðmenn og Rússar eiga nú í
samningum um síld. Gera Norð-
menu sjer vonir um að geta selt
Riissum um 45.000 tunnur af salt-
síld. (FB). (Hjer mun vera átt
við vetrarsíld Norðmanna).
Afli hjá Lófót. Fregnir frá Ló-
fót í gær að afH hafi glæðst
íikið undanfarna daga. Meðalafli
á bát var í fyrradag 1000 kg. en
méstur afli alt að 3000 kg. (FP>).
Sjálfstæðismenn. Kjósið í
dag í útvarpsráð!
Tveir menn í útvarpsráð er
kjörorð Sjálfstæðismanna.
Sjónvarp. Útva,rpsstjóri hefir
farið fram á það við bæjar-
stjórn, að húsi fyrir hljóð og
sjónvarp verði ætlaður staður á
Skólavörðuhæðinni.
Á morgun eru síðustu forvöð að
kjósa í útvarpsráð, og af því að þá
má þiiast við mikiíli aðsókn, ættu
þeir kjósendur B-listans er því
geta við komið, að kjósa í dag.
Eimskip. Gullfóss er á leið til
Vestmannaeyja frá Leith. Goða-
foss er í Grimsby. Dettifoss lá til
drífs utan við Önundarfjörð í
gærmorgun. Brúarfoss er í Kaup-
mannahöfn. Lagarfoss er væntan-
legur til Reykjavikur í dag. Sel-
foss var á Akranesi í gær.
Kosningaskrifstofa B-listans er
í Varðarhúsinu (símar 2339 og
3315). Geta útvarpskjósendur feng
ið þar allar upplýsingar nm kosn-
inguna.
Skíðafjelag fsafjarðar hefir á-
kyeðið að efna til almennrar skíða-
viku á fsafirði um páskana í vor,
ef veður og færð leyfa. Verður þá
farið í lengri 6g skemmri ferðir
um nágrennið,i óg verða æfð stökk,
skrið og fleira. Revnt verður að
géra þátttakendum dvöUna svo
kostnaðarlitla seip; ; v frekast er
hægt. (FÚ).
Sjálfstaeðismenn t Fjölmennið á
kjörstofu útvarpsins, í dag og
kjósið B listann.
M.b. Aldán kominn fram. Síðast
liðirin Suririúdág rjeri1 ýjelbátúrinn
Aldan frá Fáskrúðsfirði. Báturinn
var enn ókominn að á þriðjudags-
kvöld, og voru menn því farnir
að óttast um liann. Slysavarnar-
fjelagið sendi því skeyti til allra
skipa, sem voru á þeim slóðum,
sem bátsins var von, og bað þau
að aðstoða bátinn ef með þyrfti.
f gær um hádegi barst Slysavarna-
fjelaginu lóftskeýti, og sagt að
vjelbáturirin Birkir frá Eskifirði
hefði fundíð bátinn og væri á leið
með hann til Hornarfjarðar. Ald-
an var svo lengi í róðrinum vegna
vjelbilunar.
Kjörstofa útvarþsins er í dag
opin frá kl. 10—12 f. h. og kl.
1—7 e. h, í húfii Páls Stefánssonar
við Lækjartorg (þriðju hæð). Á
morgun (síðasta dag kosningar-
innar) verður kjörstofan opin kl.
10—12 f. h. og ltl. 1 til 12 (mið-
nættis).
Bifreiðasiys á Sauðárkrók.
Síðastliðið laugardagskvöld
um kl. 20, ók bíllinn SK 18 á
tvo menn á götu á Sauðarkrók.
Lenti annar ‘ framan á stöðar-
anum og fór þannig all-langan
veg, hinn fjell til hliðar. —
Mennirnir eru lítið meiddir. —
Bíllinn ók öfugu megin á veg-
inum, ljóslaus, og gaf ekki
hljóðmerki.
Bílstjórinn var settur í gæslu
varðhald, og málið tekið til
rannsóknar. FÚ.
Nýir kaapendur að Morgun-
blaðmu fá blaðið ókeypis til
næstkomandi mánaðamóta.
Hjálpræðisherimi. í dag kl. 87
síðd, fyrirlestur um Eistland, flyt-
uv deildarstjórimi Adjutant Ernst
n, sem ,í 4 ár hefir starfað
þar í landi, Með fyrirlestrinum
verða sýndar fjölbreyttar skugga-
myndir. Allir velkomnir.
Heimatruboð leíkmanna, Vatns-
stíg 3. Sánikóma í • kvöld kl. 8.
Allir velkomriir.;
Landsþing Daáa- Ffúinvarp
stjórnarinnar um afnám landþings
ins hefir verið samþykt í þ.jóð-
þingihu með 77 atkvæðum gegn
Besfa
Kjöt- og Fiskfarsið
fæst ávalt nýlagað á hverjum
morgni.
Milnersbúð,
Laugaveg 48. Sími 1505.
Vegna iarðarfarar
Þorfixms Jónssonar frá Baldurs-
haga. fara bflar, sætaferðir
frá Hafnarbílastöðinni. Sími 2006.
58, óg verður nú sent til land-
þingsiHs. (Sendiherrafrjett).
Atvinnndeilnmar í Danmörku.
Kyndarar hafa með öllum atkvæð-
um gegn 2, samþykt málamiðlunar
frumvarpið, en hásetar feldu það
með miklum meirihluta atkvæða.
Kemur því til kasta sáttasemjara.
AJIsherjarverkbanninu er frestað
þangað til 3 dögum eftir að mála-
miðlun er fullreynd. (Sendiherra-
frjett).
Nýir kaupendur að Morgun-
blaðinu fá blaðið ókeypis til
næstkomandi mánaðamóta.
H. P. Hansen, Nörremölle, fyrv.
ráðherra vár heiðraður í dag af
fulltrúúni verslunar, siglinga og
iðnaðar í Kauphöllinni, með því að
honum var afhent „legat“ Tietgen-
sjöðsins, 42.000 króna að upphæð,
ásarnt heiðurspening úr gulli með
mynd Tietgenjs. —- Tietgenssjóður-
inn er 300.000 krónur og úthlutun
úr honum fer fram þriðja hvert
ár. (Sendiherrafrjett).
Gullpeningur í þvottabala. Fyr-
»r nokkrum dögum var kona hjer
í: bænum að þvo þvott. Þegar því
var lokið og hún fór að hreinsa
þvottabalarin, glamraði í einhverju
á botni hans- Var þar þá lítil
málmplata með gullslit, áttstrend
og næfurþunn. Stóð á hana letrað
annarsvegar í hálfhring að ofan:
„Californian Gold“. Á miðju stóð
með skírum stöfum V2 og neðan
undir mynd af skógarbirni. Á bak-
hliðinni er mynd af Indiána og
ártalið 1860. — Gullsmiður hefir
skoðað peninginn og segir hann
vera úr gulli. Eina skýringin á því
hvernig þessi peningur finst í
þvottabalannm, er sú, að hann hafi
verið í þvottaduftinu, sem konan
notaði.
Glímumeim K. R. Æfing í kvöld
kl. 7V2 síd. Áríðandi að allir mæti.
Húsmæður. Munið, að skrif-
stofa Húsmæðrafjel. í Lækjar-
torgi 1, annari hæð, herbergi 11,
er opin frá kL 5—7 daglega. Á
þeim tíma verða skírteini afhent
og þangað geta konur sótt upp-
lýsingar. Sími 4292.
1686 er símanúmer kosninga-
skrifstofu útvarpsins.
iJtvarpið:
Fimtudagur 21. mars.
10,00 Veðurfregnir
12.10 Hádegisútvarp.
12,45 Enskukensla.
15.00 Veðurfregnir.
19,00 Tónleikar.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Þingfrjettir.
20,00 Klukkusláttur.
Frjettir.
20,30 Erindi: Frá útlöndum (Vil-
lijálmur Þ. Gíslason).
21,00 Lesin dagskrá næstu viku.
21.10 Bach-hljómleikar (250 ára
afmæli): a) Plötur; b) Orgel-
hljómleikar (Páll ísólfsson).
Li. LTIl
fer hjeðan í dag 21. þ. m. kl.
6 síðd. til Bergen um Vest-
mannaeyjar og Thorshavn.
Flutningi veitt móttaka til
hádegis í dag.
Farseðlar sækist fyrir
sama tíma.
HIc. Bjarnason 1 Smlth.
Trjekassar
til sölu.
Skórinn,
Laugaveg 6.
Jörðin
3aurbær í ölfusi er laus til
ábúðar frá næstkomandi far-
dögum, og kaups ef um
semur.
Allar upplýsingar viðvíkj-
andi jörðinni gefur Jón Guð-
mundgpon, Ránargötu 12,
Reykjavík.
IHotsimbytd
ffýlr kaupendur
að Morganblað-
Inti fá bíaðið ó-
keypls tll næst-i
komandl mán-
aðamóta.---------
Pantíð blaðið f «ima
1600.
Blömkðl
Hvítkál,
RauðkáJ,
Selierí, ,
Purrur,
Gulrætur,
Rauðbeður.
Vernlunfin
Kfiðt & Ffisknr.
Símar: 3828 og 4764.