Morgunblaðið - 29.03.1935, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 29.03.1935, Qupperneq 7
Föstuaaginn 29. mars 1935. MORGUNBLAÐIÐ 7 Vátryggingaf jelaginu „Al- binga“. Verslunarmannafjel. Reykja- víkur. Heimdalli, fjelagi ungra Sjálfstæðismanna. Sambandi ungra Sjálfstæðis- manna. Fjelagi Sjálfstæðismanna, Akureyri. Höjgaard & Schultz, Kaup- mannahöfn. Berdahl, Nissen & Thoresen, Osló. Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis. Iðnaðarmannafjelagi Reykja- víkur. Ferðafjelagi íslands. Vegamálastjórninni. Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Hafnarstjórn Reykjavíkur. Kvenfjelaginu Hringurinn. Starfsfólki á bæjarskrifstof- iinum. Starfsfólki á Slökkvistöðinni. Starfsmannafjelagi Reykja- víkur. m Ennfremur bárust silfurskildir, þar á meðal frá: Alþingi íslands. Landsmálafjelaginu Vörður. Kueðja frö sueitungum. Frá Þverárhreppi barst svo- hljóðandi skeyti. Fyrir hönd sveitunga okkar og í nafni þeirra og umhoði, færum við alúðar þakkir fyrir störf Jóns ■sáluga Þorlákssonar, og fyrir lians fölskvalausu og óeigingjörnu vel- vild til sveitafjelags okkar, sveit- arinuar, þar sem hann var fæddur og uppalinn og fyrir þá ræktar- semi, er kann í orði og verki sýndi sveitinni sinni og þau miklu fjár- framlög, sem hann gaf frá sjálf- um sjer henni til framfara og' menningar. yig vottum yður, fóst- nrdætrum yðar og hans nánustu ætting.jum, alííðarfylstu samúð í ykkar sáru sorg og óbætanlega vinamissir. Guð blessi minningu hans og framtíð ykkar. Innileg kveðja. Eggert Leví, kreppstjóri Þverárhrepps. Ingvar Sveinsson, hi'eppsnefndaroddviti Þverárhr. Uppboð fer fram í dag við Grett isgötu 38 og h.efst kl. 1%. Verða þar seldar allar vörur verslunar- innar Austurhlíð og verslunará- höld. Sjúkrasamlag Reykjavikur lield ur aðalfund sinn í kvöld kl. 8V2 í Iðnó. Aðgöngumiðar verða af- hentir samlagsmönnum, gegn sýn- ingu gjaldabókar, í skrifstofunni, Bergstaðastr. 3, kl. 2—5 og í Iðnó í kvöld eftir kl. 8. Gagnfræðaskólinn í ísafirði hef- ír boðið rektor Mentaskóians í Reykjavík, ásamt 20 nemöndum, að koma þangað vestur um páslc- ana og hefir rektor tekið boðinu. Flokkurinn mun búa í Birkihlíð, skála uemenda Gaghfxæðaskólans, og taka þátt í skíðavikunni, sem þá verður 'haldin í ísafirði að tiÞ hlutun Skíðáfjelags Isafjarðar, Betanía. — Föstuguðsþjónusta verður í kvöld kl. 8V2. Guðbjörn ■Guðmundsson talar. Zionskórinn svngur. Allir velkomnir. Guðspekifjelagiö. Fundur í „Septínu" í kvöld kl. 8V2. Þorlák- ur Ófeigsson flvtur erirnli. er liann. nefnir „Gott og ilt“. Gest.ir. Kröfnr Hiflers Frakkar segja, að gengið liafi fram af Bretum. Rússar og Þjóðverjar búast við árásarstríði hvor af öðrum. KAUPMANNAHÖFN 1 GÆR EINKASKEYTI TIL M ORGUNBLAÐSINS. Enska hlaðið „Daily Telegraph“ ! skýrin nánar heldur en í gær frá því hvaða kröfur það voru, sem Hitler gerði á Berlínarfundinum, fyrir utan þær landvinningakröf- ur, sem áður hefir verið sagt frá. Hitler krafðist þess að Þjóð- verjar fengi að hafa jafn mik- ið af hemaðarflugvjelum eins ^ og Frakkar og Bretar, og her- j skipaflota sem væri aðeins 1/5, minni heldur en herskipafloti j Breta. Frönsku blöðin segja að Hitler hafi enn fremur krafist þess að hætt verði við hið fyrirhugaða hernaðarbandalag Frakka og Rússa, og að ítalir skuldbindi sig til þess að skifta sjer ekkert af því þótt Austurríki sameinist Þýskalandi. Frakkar eru ákaflega glaðir út af þessu og segja að hinar óbil- gjörnu kröfur Hitlers liafi orðið til þess, að þeir hafi algerlega eyðilagt spilið fyrir sjer, því að heiintufrekja þeirra liafi alveg gengið fram af Bretum, en þeir dylji vonbrigði sín með þögninni. Hitler rökstuddi kröfu Þjóð- verja um herbúnað með því að þeir ætti þá hættu sífeþp yfir sjer vofandi að Rússar rjeðist á Þýska land með ófriði. Eftir því sem „PoIitiken“ segir kemur Eden til Moskva í dag og er komu hans biðið með mikilli ó- þreyju. Segist rússneska stjórnin hafa í sínum fórum sjc.jö] er sanni það, að Hitler ætli sjer að láta Þjóð- verja ráðast á Rússland. Stalin hefir hannað allan kommúnista xundirróður í út- löndum, nema í Þýskalandi. Páll. Sir John Simon segir frá Berlínarför- inni. - Málin verða fyrst rædd til fulln- ustu i Stresa. London 28. mars F.U. Sir John Simon var spurður þess í neðri málstofu enska þingsins í dag, hvort hann vildi gefa deild- inni skýrslu um Berlínarför sína. >Sir John Simon svaraði því, að Berlínarför sín hefði aðeius vérið einn þáttur í heimsóknum til.ýmsra höfuðborga í Evrópu, til þess að rannsaka og spvrjast fvr- ir 11B1 ástandið, en þegar þessum heimsóknum væri lokið, mundi verða haldinn fundur í Stresa í norður ítalíu. Þar sagðist hann vonasl til þess að geta hitt Laval og- Mussolini. En þar sem viðræð- ur þær sejn nú þegar hefðu farið frani, værn éinungis undirbúnings- umræður, sagði hann að það væri auðsjáanlegt að skýrt yrði frá þeim að fullu, áður en Stresa fundurinn yrði haldinn. Hann var- aði menn við því, að fara eftir bollaleggingum um málin sem ekki væru opinberlega staðfestar. Ennfremur sagði Sir John, að í viðræðunum í Berlín hefði verið rætt um ástandið í Evrópu með tilliti til afstöðu ÞýsLalands og hefðu öll atriði orðsendingar frá 3. febrúar verið tekin til athng- unar. Áberandi skoðanamnnur hafði komið fram, sagði ráðherr- ann um ýms atriði, en viðræðurn- ar höfðu samt mikið gildi fyrir báða aðila, að því leyti að þeir kyntust greinilega hvor annars sjónarmiðum. En það var nauðsyn- legt fyrst og fremst tii þess að undirbúa samstarf milli þeirra. Sir John Simon sagði að á Stressa fundinum mundu koma fulltrúar þriggja ríkja. Þýska stjórnin hefir í dag mót- mælt því, að orðrómurinn um um- mæli Hitlers sje rjettur. 1 París virðast menn meira og meira að komast á þá skoðun, að besta tryggingin gegn friðnum sje náin samyinna þjóðabandalags- ríkjanna. Viösjár xnilli Þýskalands og Sviss. KAUPMANNAHÖFN í GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS. Alvarlega deila er komin upp milli Þýskalands og Sviss, og má yera að hún dragi dilk á eftir sjer. Þýskur blaðamaður, Salomon að nafni, hafði flúið úr Þýska- landi og farið tii Sviss. Hafðist hann við í Basel. Þaðan var hann numinn á brott og fluttur til Þýskalands, en þar beið hans dauðadómur. Nú er sagt að Sviss ætli að mót mæla og krefjast þess að fá manuinn framseldan frá Þýska- landi. PáÐ. SljórnarskiBi i Póllandi. London 28. mars F.B. Frá Yarsjá er símað, að ríkis- stjórnin liafi beðist lausnar og hafi Moscicki ríkisforseti tekið lausnarbeiðnina til , greina. Kos lowski forsætisráðherra gegnir forsætisráðherrastörfum áfram, uns ný stjórn hefir verið mynd- uð. — Lausnarbeiðnin. er afleiðing þess, að þingið samþvkti stjórnar- skrárbreytingu þá, sem nýlega var um símað, og eykur mjög vald ríkisforsetans, og er fram komin, til þess að endurskipulagning rík- isstjórnarinnar geti farið fram í samræmi við hina nýju 'stjórnar- skrá. (United'Press). Memel-málin valda vaxandi æsingum i Þýskalandi. Orðrómur um að Austur-Prússland ætli að leggja Memel undir sig. KAUPMANNAHÖFN 1 GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS. í Þýskalandi halda áfram mót- mælafundir gegn dómunum í Kowno yfir þjóðernissinnnnum frá Memel. Er tekið mjög sterkt til orða gegn dómum þessum og hafa sum- ir ræðumenn sagt að notuð hafi verið pyndiugaráhöld, ems og á miðöldunum til þess að fá sak- borninga að játa á sig það, sem þeir voru sakaðir um . Enn fremur hefir því verið hald- ið fram, að það sje nú sýnilégt að þjóðasáttmálar sje gagnslansir, ef kotríki eigi að líðast það óhegnt, að fótum troða Memel-samning- inn, þar sem stórveldin öll ábyrgð- ust það að Memel-hjeraðið skyldi hafa sjálfstjórn. Það er mjög mikið efamál hvort Þýsjkaland þolir það að dómunum sje fullnægt, 0g að minsta kosti gengur orðrómur um það í Berlín, að þjóðemis- sinnar í Anstnr-Prússlandi sje að búa sig nndir það að gera áhlaup og ná Memel á sitt vald. Páll. Dagbók. I I. 0.0. F. 1 = 1163298’/2 = 9.0 Veðrið (fimtud. kl. 17): Á N- og Á-landi er vindur víðast hæg- ur og vindstaða milli N og A. Frost 3—5 st. og lítilsháttar snjó- koma á NA-landi. Á SV- og V- landi er vindur allhvass A, hvass við S-ströndina og sumstaðar dá- lítil snjókoma, hiti um frostmark. Stór hæð er fyrir norðan land en víðáttumikil lægð suðvestur í hafi, og veldur hún að líkindum S-lægri átt og mildara veðri hjer á landi, áður en langt líður. Veðurútlit í Rvík í dag: Mink- andi SA-átt. IJrkomulítið. Myndir fi-á jarðarför Jóns Þor- lákssonar eru í sýningargluggum Morgunblaðsins. > í víðsjá blaðsins í dag ritar pró- fessor Richard Beck um bókina Romance in Iceland eftir Margaret Schlauch. Höfundnr bókar þessar- ar dvaldi hjer Alþingishátíðarsum- arið og vann að vísindalegum bók- mentastörfum á Landsbókasafn- inu. I bókinni kemur skýrt fram að Austurlenskra áhrifa gætir mjög í lygisögunum, í íslenskum bókmentum. Richard Beck skýrir ýturlega frá þessu í grein sinni og bendir á rök bókmentafræðinga í því efni. íkviknun. t gærdag, laust fyrir kl. 1 var slökkviliðið kvatt að Árbæ. Það brá skjótt við og voru sendir uppeftir 2 bílar. Á Árbæ hafði kviknað í lofti út frá elda- vjelarpípu og voru menn frá Raf- veitunni búnir að kæfa eldinn þeg- ar slökkviliðið kom að Árbæ. — Skemdir urðu talsverðar. Gamla Bíó. „Hugsum ekkert um kvenfólk framar“, heitir mynd, sem Gamla Bíó sýnir í fyrsta skifti í kvöld. Mynd þessi er hæði spenn- andi og skemtileg. Tveir kafarar við Kvrrahafsströndina verða svarnir óvinir út af ástamálum, og það oftar en einu sinni. Þessir tveir náungar ern karlar í krap- inu, sem ekki eru að víla fyrir sjer smávegis handalögmál, ef því er að skifta. Mvndin gerist. að mestu leyti um borð í kafaraskip- um, sem vinna að því að ná upp fjársjóðum af hafsbotni. Að lok- Um komast hinir svörnu óvinir að raun um, að „einn vinur í hendi er betra en tíu vinkonur í fangi“. Togararnir. Af veiðum komu í gær Belgaum með 115 föt lifrar og Karlsefni með 90. Hekla kom til Port Talbot í gærmorgun og helt áfram þaðan í gærkvöldi og fer beint til Reykjavíkur. Eimskip. Gullfoss var á Hofsós í gærmorgun. Goðafoss er á leið til Vestmannaeyja frá Hull. Brúar- foss er í Kaupmannahöfn. Detti- "'oss er á leið til Hull frá.Vest- mannaeyjum. Lagarfoss var á Seyðisfirði í gær. Selfoss fór frá Færeyjum x fyrradag á leið til Aberdeen. Jarðarför Guðrúnar H. Jóns- dóttur frá Keflavík í Rauðasands- hreppi fer íram frá dómkirkjunni í dag og hefst kl. 1 með hús^ kveðju að heimili sonar hennar, Guðbjart Ólafssonar hafnsögu- manns á Framnesveg 13. Aðalfundur Sparisjóðs Beykja- víkur og nágrennis, verður í kvöld í baðstofu iðnaðarmanna kl. 8V2. Eggert Jónsson kaupm., Óðins- götu 30, verður 60 ára á morgun, 30. þ. m. Frá K. R. Innanfjelags víða- vangshlaup K. R. fer fram n.k. sunnudag kl. 11 f. h. frá K. R.- húsinu. Hlaupið er fyrir fullorðna og drengi. Barnaskemtun fjelags- ins sem fram átti að fara n.k. sunnudag er frestað vegna inflú- ensuiuiar. Fyrsta knattspyrnuæf- ing fjelagsins verður n.k. sunnu- dag kl. 2 e. h. á íþróttavellinum. Æfingin er fyrir 1. og 2. flokk. Þátttakendur í skólahlaupinu eiga að tilkynna þátttöku sína fvrir n.k. sunnudagskvöld, Carl D. ToUnius forstjóri hefir staðist próf sem dómtúlkur og skjalaþýðandi í dönsku og hefir síðan af Stjórnax*ráðinu verið lög- giltur sem slíkur. IJtvarpið: Föstudagur 29. mars. 10,00 Veðurfregnir. 12.10 Hádegisútvarp. 12,50 Þýskukensla. 15,00 Veðurfregnir. 19,00 Tónleikar. 19.10 Veðuffrcgnir. 19,20 Þingfrjettir. 20,00 Klukkusláttur. Frjettir. 20,30 Kvöldvaka : a) Sigurður Þorsteinsson frá Flóagafli: í Þorlákshöfn fvrir hálfri öld; b) Theódóra Thoroddsen: Ákvæða- vísur; e) Árni Óla blaðam.: Ferðasaga fvrir 70 árum. — Ennfremur íslensk lög.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.